Fréttablaðið - 01.10.2011, Page 102
1. október 2011 LAUGARDAGUR70
PERSÓNAN
Eva Bjarnadóttir
Aldur: 27 ára.
Starf: Togarasjómaður.
Fjölskylda: Mamma og pabbi og
svo á ég sex bræður.
Búseta: Ég á heima í miðbænum.
Stjörnumerki: Vog.
Eva gerði hlé á námi sínu í Myndlistar-
skóla Reykjavíkur og skellti sér á norskan
frystitogara.
„Þegar ég fór að lesa þetta þá brá mér eilítið í
brún á köflum og mér fannst ég vera að kynn-
ast nýjum Kobba Magg,“ segir Jakob Frímann
Magnús son. Samtalsbók Þórunnar Erlu-Valdi-
marsdóttur við Stuðmanninn Jakob Frímann
Magnússon kemur út fyrir þessi jól.
Jakob hefur verið í sviðsljósinu síðan elstu
menn muna, bæði sem tónlistarmaður en líka
í hlutverki stjórnmálamanns, miðborgarstjóra
og ekki síst menningarfulltrúa í London. Jakob
viður kennir í bókinni að hafa daðrað við hina
heilögu þrenningu tónlistarmannsins; kynlíf, rokk
og eitur lyf en reynsluheimur hans markist þó
ekki af þessu þrennu.
Jakob segir samstarfið við Þórunni hafi verið
skemmtilegt, þegar svona merkur sagnfræðingur
og rithöfundur banki upp á hjá manni fyllist
maður lotningu og undirgefni en vonandi ekki
eftir sjá. Hann hafi verið búinn að afþakka svona
boð í tvígang en það sé einhver þrenning sem sé
gegnumgangandi í lífi okkar. „Ég bauð henni í
bíltúr og hún spurði mig spjörunum úr og rakti
úr mér garnirnar. Þetta var langur en fróðlegur
bíltúr, ekki síst fyrir mig sem var ekki búinn að
gleyma mörgu en grafa sumt djúpt í minni.“
- fgg
Kynntist nýjum Kobba Magg
MILLI MALBIKSINS OG REGNBOGANS Samtalsbók Þórunnar
Erlu-og Valdimarsdóttur við Jakob Frímann kemur út fyrir þessi
jól. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Þetta er á undirbúningsstigi en
ef af þessu verður yrðu þetta lík-
lega stærstu tónleikar sem haldnir
hafa verið á Íslandi,“ segir Stein-
þór Helgi Arnsteinsson, tónleika-
haldari og útgefandi.
Steinþór situr í undirbúnings-
hópi sem vinnur að því að halda
alþjóðlega stórtónleika í Laugar-
dalshöll og Hörpu á næsta ári.
Samtökin 46664, sem frelsishetj-
an Nelson Mandela stofnaði, hafa
veg og vanda af tónleikunum og er
búist við því að alþjóðlegar stór-
stjörnur komi fram, Samhliða tón-
leikunum yrði viðburðurinn nýttur
til að hrinda af stað nýju alheims-
átaki og söfnun.
„Samtökin hafa lengi leitast
eftir þessu við sendiherra sam-
takanna hér á landi að halda tón-
leika hér,“ segir Steinþór en það
eru kvikmyndagerðamaðurinn
Sigurjón Einarsson og trymbill-
inn Gunnlaugur Briem sem gegna
þeim hlutverkum. Sigurjón kom
að skipulagningu sambærilegra
tónleika í Trömsö árið 2005. „Þeir
fengu mig og fyrirtækið Faxaflóa
með sér í lið og við erum að athuga
hvort það sé grundvöllur fyrir
þessu hér,“ segir Steinþór.
Sjö alþjóðlegir stórtónleikar
hafa verið haldnir á vegum sam-
takanna í London, Jóhannesar-
borg, Cape Town, Madrid og
Trömsö og hefur þeim verið sjón-
varpað til milljóna áhorfenda. Síð-
ustu tónleikarnir fóru fram í New
York og þar komu fram listamenn
á borð við Alicia Keys og Stevie
Wonder. Kostnaðurinn við að halda
tónleikanna nemur tæplega 103
milljónum íslenskra króna.
Borgarráð Reykjavíkur sam-
þykkti á fundi sínum fyrir
skemmstu að styrkja undirbún-
ing tónleikanna um tvær millj-
ónir króna með fyrirvara um
að mennta-og menningarmála-
ráðneytið og iðnaðarráðuneytið
geri slíkt hið sama og að tónleik-
arnir fari fram. Að sögn Steinþórs
STEINÞÓR HELGI: TÓNLEIKAR FYRIR NELSON MANDELA Á ÍSLANDI
Undirbúa stærstu tónleika
Íslandssögunnar á næsta ári
HEIMSVIÐBURÐUR
Stefnt er að því að halda stórtónleika
samtakanna 46664, sem frelsishetj-
an Nelson Mandela stofnaði, hér á
landi á næsta ári. Steinþór Helgi
Arnsteinsson og Gunnlaugur
Briem sitja í undirbúningshópi
tónleikanna en borgarráð
Reykjavíkur
samþykkti fyrir
skemmstu að
styrkja undir-
búningsvinnu
þeirra um
tvær milljónir.
hafa ekki enn borist svör frá ráðu-
neytunum. Í umsókn um styrkinn
kemur fram að Reykjavik þurfi
ekki að keppa við aðrar borgir um
að halda tónleikana, samtök Man-
dela hafi lýst því yfir að þau hafi
mikinn áhuga á að viðburðurinn
fari fram í höfuðborginni.
„Þetta er gríðarlega spennandi,
við erum að tala um nokkur hundr-
uð störf og það yrði jákvætt fyrir
Ísland út á við að tengjast þess-
um samtökum og fyrir tónlistar-
bransann væri þetta gríðarlegur
hvalreki.“
freyrgigja@frettabladid.is
Heimir & Kolla vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00
„Mig hefur lengi langað til að
opna sýningu hér í Lúxemborg
og lét loksins verða af því núna,“
segir Nína Björk Gunnarsdóttir,
ljósmyndari en hún opnaði ljós-
myndasýningu í Lúxemborg í
gærkvöldi.
Myndirnar sem Nína er með á
sýningunni eru af fatnaði Berg-
lindar Ómarsdóttur klæðskera en
báðar eru þær búsettar í Lúxem-
borg. Mikið var um dýrðir á opn-
uninni sem var með ákveðnum
Íslendingabrag en Elísabet Ólafs-
dóttir söngkona tók meðal annars
nokkur lög.
„Okkur Berglindi langaði að
stilla saman strengi okkar og
gera eitthvað sniðugt saman. Það
er mikil samheldni hjá Íslending-
um hérna í Lúx og við erum stór
hópur kvenna sem eru duglegar
að gera eitthvað saman,“ segir
Nína Björk, sem hefur búið þar
síðastliðin tvö ár.
Þegar Fréttablaðið náði tali
að Nínu í gær var hún á fullu að
undirbúa opnunina enda í mörg
horn að líta. „Þetta er mjög flott-
ur staður en umhverfið minn-
ir örlítið á helli þegar maður
er kominn inn. Við eigum von á
fullt af gestum í kvöld en staður-
inn tekur milli 300-400 manns,“
segir Nína Björk en hún er iðin
með myndavélina í Lúxemborg
og hefur meðal annars breytt vef-
síðu sinni í nina.lu.
„Ég er nýkomin úr fæðingar-
orlofi og er að koma mér í gang
aftur. Ég hef samt þróast í að
taka meira af fjölskyldu- og
barnaljósmyndum í stað tísku-
mynda sem ég gerði mikið af
á Íslandi. Mér finnst það mjög
gaman og það hefur verið fullt að
gera hjá mér,“ segir Nína Björk
og er ekkert á leiðinni aftur til
landsins í bráð.
„Lífið hér er yndislegt og
okkur líkar vel. Við flytjum samt
aftur til Íslands í framtíðinni,
bara ekki næstu árin.“
- áp
Nína opnar sýningu í Lúxemborg
MIKIÐ AÐ GERA Nína Björk Gunnars-
dóttir opnaði ljósmyndasýningu í
Lúxemborg í gær ásamt Berglindi
Ómarsdóttur klæðskera.