Fréttablaðið - 08.11.2011, Side 6

Fréttablaðið - 08.11.2011, Side 6
8. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR6 ÍRAN Sergei Lavrov, utanríkis- ráðherra Rússlands, segir að það væru alvarleg mistök, sem gætu haft í för með sér ófyrirsjáanlegar afleiðingar, að gera árás á Íran. Ísraelar hafa hótað því að gera loftárás- ir á Íran til að eyðileggja kjarnorkubúnað þeirra og koma þannig í veg fyrir að Íranar geti komið sér upp kjarnorku- vopnum. Bandaríkjastjórn hefur sömuleiðis haft í hótunum við Íran vegna kjarnorkunnar. Nú í vikunni er væntanleg skýrsla frá Alþjóðlegu kjarnorku- stofnuninni, þar sem talið er að fram komi ítarlegar upplýsingar um að Íranar séu í raun að búa sig undir að kjarnorkuvopnavæðast. - gb SKOÐAÐU FLEIRI SPENNANDI NÁMSKEIÐ Á S NORDICASPA I. SH’BAM TM NÝJASTA DANSÆÐIÐ FRÁ LES MILLS! COME AS YOU ARE LEAVE AS A STAR 4 VIKNA NÁMSKEIÐ 14.900 Námskeiðið hefst 17. nóv. TAKMARKAÐUR FJÖLDI Í TÍMA! TRYGGÐU ÞÉR PLÁSS OG BÓKAÐU NÚNA! EVRÓPUMÁL Össur Skarphéðins- son hefur skipað samráðshóp í tengslum við samningaviðræður um aðild Íslands að Evrópusam- bandinu. Hópurinn mun funda reglulega með samningamönnum Íslands um stöðuna í viðræðunum og framgang þeirra og eitt megin- hlutverk hans verður að miðla upplýsingum til landsmanna og stuðla að málefnalegri umræðu um hagsmuni þjóðarinnar og möguleg áhrif aðildar Íslands að sambandinu. Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, hefur verið skipaður formaður hópsins. Varaformenn eru Guðni Th. Jóhannesson sagn- fræðingur og Ágúst Sigurðs- son, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. Í tilkynningu frá utanríkisráðu- neytinu segir að ráðherra muni á næstunni skipa tuttugu fulltrúa til viðbótar í samráðshópinn. „Við val á þeim verður sérstök áhersla lögð á kynjajafnvægi, jafnvægi á milli landshluta, höfuðborgar- svæðis og dreifbýlis, sem og á andstæð sjónarmið í Evrópumál- unum.“ Þá geti hópurinn kallað til frekara samráðs einstaklinga og fulltrúa stjórnmálaflokka og ýmissa samtaka. - sh Utanríkisráðherra skipar samráðshóp um aðildarviðræður Íslendinga: Stuðlar að málefnalegri ESB-umræðu SALVÖR NORDAL GUÐNI TH. JÓHANNESSON SERGEI LAVROV FRÉTTASKÝRING Hvar stendur rammaáætlun? Drög að þingsályktunartillögu um vernd og orkunýtingu náttúru- svæða liggja nú til umsagnar og eru þegar komnar inn 25 umsagn- ir um tillöguna. Drögin eru hluti af rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða og að umsagnarferli loknu verður tillagan unnin nánar og síðan lögð fyrir Alþingi. Þar bíður þingmanna að taka endanlega afstöðu til þess á hvaða svæðum verður leyft að virkja, hver verða vernduð og hvaða svæði fara í bið- flokk. Langt ferli liggur að baki til- lögunni og því er fráleitt lokið. Umsagnarfrestur rennur út á föstu- daginn og ljóst er að fleiri umsagn- ir eiga eftir að koma inn. Engin náttúruverndarsamtök hafa til að mynda sent inn umsögn en ljóst er að mörg hver hyggja á það. Árni Finnsson, formaður Nátt- úruverndarsamtaka Íslands, segir að þar á bæ sé unnið að umsögn. Hann segir ferlið opið og gott og taki að mörgu leyti mið af því sem þekkist í nágrannalöndunum. Margir hafa gagnrýnt þann tíma sem farið hefur í vinnuna, en Árni segir slíka gagnrýni ekki skila miklu. „Við erum komin á þennan stað með þessa vinnu, með skýrslu í umsagnarferli. Í sjálfu sér er til- gangslítið að gagnrýna það svo mikið. Meginatriðið er að ná niður- stöðu sem er ásættanleg.“ Meðal innkominna umsagna má nefna sjö frá einstaklingum og tíu frá bæjarfélögum. Þá hafa Rarik, Samorka og Fallorka sent Kvartað yfir verndun og nýtingu á náttúru Tuttugu og fimm umsagnir eru komnar inn um rammaáætlun. Ýmist kvartað vegna of mikillar verndunar eða nýtingar. Náttúruverndarsamtök ekki búin að senda inn umsögn en frestur rennur út á föstudag. Deilt er um Gjástykki. ÞJÓRSÁRVER Verði drögin samþykkt óbreytt verða Þjórsárver gerð að griðlandi. Það þýðir að ekki verður af Norðlingaölduveitu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Ef þingsályktunartillaga um áætlun um vernd og orkunýtingu landssvæða verður samþykkt óbreytt á Alþingi kemur upp sú einstaka staða að allir orkuöflunarkostir sem RARIK og dótturfélög þess hafa verið að skoða lenda í biðflokki eða verndarflokki.“ - Úr umsögn RARIK „Hvergerðingar og aðrir fylgjendur skilyrðislausrar verndunar Bitru, Reykja- dals og Grændals fagna tillögu til þingsályktunar um vernd og nýtingu nátt- úrusvæða sem gerir ráð fyrir verndun á umræddu svæði.“ - Úr umsögn bæjarráði Hveragerðis Ummæli úr umsögnum inn umsagnir, auk Orkusölunnar. Af umsögnum má sjá að um mála- miðlun er að ræða. Ýmist er kvartað yfir því að svæði falli í verndar- eða nýtingarflokk og einstaka sinnum að þau séu færð úr öðrum hvorum flokknum í biðflokk. Gjástykki virðist vera umdeilt svæði, en það fellur undir verndar- flokk samkvæmt tillögunni. Bent er á að samkvæmt gildandi svæðis- skipulagi, staðfestu af umhverfis- ráðherra, sé gert ráð því að nýta allt að 45 megavött á svæðinu. Árni segir mesta akkinn í drögun- um að fá færi á að vernda ósnortin svæði. Í þeim felist verðmæti, enda séu ekki mörg slík eftir í Evrópu. Þá segir hann fagnaðarefni að ekki verði af Norðlingaölduveitu, en sam- kvæmt drögunum verða Þjórsárver friðland. kolbeinn@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Ferðavenjur við- skiptavina og gesta Landspítalans verða kannaðar næstu daga. Fram kemur í tilkynningu að könnunin sé liður í undirbúningi vegna bygg- ingar nýs Landspítala, en ferða- venjur starfsfólks hafa verið kann- aðar. Könnunin hefst í dag og stendur fram á mánudag í næstu viku. Tveir spyrlar verða við aðalinn- ganga spítalans, í Fossvogi og við Hringbraut, og eru gestir beðn- ir um að gefa sér tíma og svara spurningum. Könnunin er unnin í samstarfi við Háskóla Íslands og Maskínuna ehf. - sv Landspítalinn gerir könnun: Ferðavenjur gesta kannaðar SAMGÖNGUR Kanna á ferðavenjur þeirra sem sækja Landspítalann heim á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA DÓMSMÁL Þrotabú Milestone reynir nú að innheimta skuld upp á eina milljón evra, jafn- virði um 160 milljóna króna, af makedónskum kaupsýslumanni, sem var viðskiptafélagi Werners- bræðranna Karls og Steingríms fyrir bankahrun. Málflutningur um skuldina fór fram fyrir Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær. Í viðskiptum með makedónsku lyfsölukeðjuna Zegin árið 2006 myndaðist krafa á manninn, Blagoj Mehandiziski, sem einnig er stór hluthafi í keðjunni. Mála- reksturinn nú snýst einkum um það hvar rétt sé að höfða málið, á Íslandi, í Makedóníu eða Austur- ríki, eins og sagði í gerðardóms- ákvæði í upphaflegum samning- um. - sh 160 milljóna skuld fyrir dóm: Milestone í mál við Makedóna Beðið skýrslu um Íran: Lavrov segir árás mistök Tekur á móti athugasemdum Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis gefur almenningi kost á að senda athugasemdir við skýrslu forsætisnefndar um tillögur stjórn- lagaráðs um breytingar á stjórnarskrá og við frumvarp um meðferð tillagna stjórnlagaráðs sem nefndin hefur nú til umfjöllunar. ALÞINGI Hundur skemmdi úlpu Hundur beit konu á miðjum aldri í handlegginn þegar hún var á göngu í íbúðahverfi í Hafnarfirði á föstudag. Konan hlaut óveruleg meiðsl en úlpa hennar skemmdist hins vegar. Eigandi hundsins féllst á að borga konunni skaðabætur vegna úlpunnar og skildu báðir aðilar sáttir að því loknu. LÖGREGLUFRÉTTIR Er réttlætanlegt að sekta þá sem henda rusli á almannafæri? Já 92,1% Nei 7,9% SPURNING DAGSINS Í DAG: Vilt þú að komið verði á snjó- framleiðslukerfi á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins? Segðu þína skoðun á Vísi.is DANMÖRK Maður á fimmtugsaldri var dæmdur til fangelsisvistar í Vejle í Danmörku í gær fyrir að selja átta ára dóttur sína í kynlífs- þrælkun. Þrír aðrir karlmenn voru dæmdir í sama máli. Á fréttavef Berlinske Tidende kemur fram að mennirnir hafi ýmist greitt föðurnum með fíkni- efnum eða peningum fyrir kynlíf með dóttur hans. Maðurinn var dæmdur í rúmlega þriggja ára fangelsi. Hann var einnig ákærður fyrir að selja eldri dóttur sína sem er 15 ára, en var sýknaður. - sv Danskur faðir dæmdur: Leyfði nauðgun á dóttur sinni KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.