Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.11.2011, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 08.11.2011, Qupperneq 8
8. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR8 VEIÐI Gremju gætir nú meðal rjúpna- veiðimanna vegna takmarkana sem ýmis sveitarfélög hafa sett á veiði- mennskuna á þessu tímabili. Menn sem hugðust ganga til rjúpna um síðustu helgi í nágrenni Hólmavíkur fréttu til dæmis á síðustu stundu að veiðilendurn- ar hefðu skroppið verulega saman eftir að sveitarstjórnin samþykkti á fimmtudag í síðustu viku að banna veiðar í landi sveitarfélagsins. Í Langanesbyggð hefur öllum heiðarvegum verið lokað tíma- bundið. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu sveitarfélagsins er það gert til þess að rjúpnaveiði- menn aki ekki inn á vegina sem eru í viðkvæmu ásigkomulagi vegna aurbleytu. Skotveiðifélag Íslands, Skotvís, hefur gagnrýnt aðgerðir sveitarstjórnar Húnaþings vestra sem ákvað að selja veiðimönnum aðgang að afréttum „enn eitt árið“ eins og segir í yfirlýsingu félagsins. Skotvís vitnar í lagabókstaf- inn þar sem segir að allir íslensk- ir ríkis borgarar og erlendir menn með lögheimili hérlendis megi veiða í almenningum, á afréttum utan landareigna lögbýla þar sem enginn geti sannað eignarrétt sinn til þeirra. Skotvís segir Húnaþing vestra neita að sýna gögn um eign- arhald sitt. „Viðbrögð sveitarfélagsins við kurteislegri beiðni Skotvís er því ekki hægt að túlka á annan veg en að um grófa aðför sé að ræða að rétti almennings til veiða og það ber að fordæma. Því hvetur Skotvís alla þá sem veiða á umræddum svæð- um og lenda í útistöðum við meinta landeigendur að kalla sýslumann á vettvang,“ segir í yfirlýsingu félags- ins. - gar Sveitarfélög bregða víða fæti fyrir rjúpnaveiðimenn: Loka á veiðimennina 1. Hvaða hluti úr John Lennon var seldur dýrum dómum á dögunum? 2. Hvað heitir flutningaskipið sem dregið var til hafnar í Fáskrúðs- firði? 3. Hver er fyrirliði danska hand- knattleiksliðsins AG? SVÖR: 1. Jaxl, 2. Alma. 3. Arnór Atlason. SJÁVARÚTVEGUR Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra, hefur ákveðið í framhaldi af ráðgjöf Hafrannsóknastofnun- arinnar að auka kvóta í íslenskri sumargotssíld um 40 þúsund tonn. Fyrr á þessu hausti var úthlutað fimm þúsund tonnum. Rannsóknir Hafró við Suður- og Suðausturland sýna að síld þar er minna sýkt en síld við Vesturland og fullorðin síld er blönduð smá- síld. Í ljósi þessa er ákveðið að til bráðabirgða verði veiði takmörkuð við Faxaflóa og Breiðafjörð. - shá Veiðar bannaðar fyrir austan: Síldarkvótinn 45 þúsund tonn FÓLK Herdís Þorgeirsdóttir var endurkjörin forseti Evrópusam- taka kvenlögfræðinga á aðalfundi samtakanna í Berlín í síðustu viku. Evrópu- samtök kvenlög- fræðinga voru stofnuð árið 2000. Meðal stofnendanna var Cherie Booth Blair, eiginkona Tony Blair, fyrrver- andi forsætisráðherra Bretlands. Herdís hefur gegnt formennsku í samtökunum síðan 2009. Að þessu sinni var fundað í Mannréttindastofnun Þýskalands, en henni veitir forstöðu fyrrver- andi varaforseti samtakanna, Beate Rudolp lagaprófessor. - sh Evrópskir kvenlögfræðingar: Herdís endur- kjörin forseti HERDÍS ÞORGEIRSDÓTTIR VEISTU SVARIÐ? Akureyri F n j ó s k a d a l u r K i n n a r f j ö l l V a ð l a h e i ð i Fyri rhug uð g öng E y j a f j ö r ð u r Fyrirhuguð jarðgöng undir Vaðlaheiði SAMGÖNGUR Steingrímur J. Sigfús- son fjármálaráðherra segist viss um að Vaðlaheiðargöng muni verða sjálfbær og gerð þeirra komi ekki til með að varpa kostnaði á ríkis- sjóð. Þetta sagði hann á opnum fundi í umhverfis- og samgöngu- nefnd Alþingis í gær. Á sama fundi sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra að alger lykilforsenda fyrir aðkomu ríkissjóðs væri að framkvæmdin stæði undir sér með notendagjöld- um eins og vegatolli. Áætlanir gera ráð fyrir því að kostnaður við gerð ganganna verði fjármagnaður með láni frá ríkinu til hlutafélagsins Vaðlaheiðarganga hf. en það er í eigu Vegagerðarinnar (51%) og Greiðrar leiðar ehf. (49%), en Greið leið er að mestu í eigu Akureyrarbæjar og KEA. Að loknum framkvæmdum mun félagið endurfjármagna sig á mark- aði og greiða skuld sína við ríkið. Aðspurður sagði Ögmundur að ef göngin hefðu ekki verið tekin út úr samgönguáætlun og sett í þetta sér- tæka fjármögnun, væru þau ekki í forgangi. Sem dæmi um samgöngu- framkvæmdir sem væru á undan í forgangsröð nefndi hann göng til Norðfjarðar og Dýrafjarðar auk samgöngubóta á sunnanverðum Vestfjörðum og til Vestmannaeyja. Spurður hvort hann væri hlynnt- ur gerð Vaðlaheiðaganga svaraði Ögmundur: „Ég er hlynntur því að bæta samgöngur á Norðurlandi. Ég tel að það yrði til góðs fyrir sam- félagið og atvinnulífið til langs tíma, en ég er hlynntur því núna á tilteknum forsendum. Það er, að framkvæmdin sé fjármögnuð með notendagjöldum, ekki með aðkomu ríkissjóðs. Það eru skýr skilyrði.“ Skiptar skoðanir voru um for- sendur við kostnaðinn. Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, sagði að forsendurnar myndu ekki stand- ast og göngin yrðu aldrei sjálfbær. Kostnaður myndi því lenda á ríkinu. Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) var sömuleiðis á þeirri skoð- un og taldi of marga óvissuþætti í áætluninni. Þá væri áætlun of bjartsýn þar sem gert er ráð fyrir að 90% umferðar færu um göng- in þrátt fyrir að vegastytting væri ekki nema 16 kílómetrar miðað við akstur um Víkurskarð. Kallaði framkvæmdastjóri FÍB, sem sat fyrir svörum með öðrum hagsmunaaðilum, eftir óháðri úttekt. Fjármálaráðherra sagðist hins vegar treysta forsendunum, sem væru að hans mati varkárar. „Það er okkar mat að þessar for- sendur séu eins traustar og þær geta orðið. Þær eru byggðar á mjög var- færnum spám um aukningu umferð- ar og ekki tekið með í reikninginn möguleikar líkt og líklegar stór- framkvæmdir í Þingeyjarsýslum á næstu árum.“ Steingrímur sagði að óvissuþætt- ir myndu sennilega falla í jákvæða átt og ekkert sé því til fyrirstöðu að ljúka fjármögnunarsamningi vegna framkvæmdarinnar. Vonandi feng- ist heimild frá þingi til að klára fjár- mögnunarsamning á næstu vikum. thorgils@frettabladid.is Sjálfbærni er lykilatriðið Ráðherrar og hagsmunaaðilar á þingnefndarfundi um Vaðlaheiðargöng. Innanríkisráðherra segir göngin ekki hafa verið framarlega í forgangsröð. Fjármálaráðherra bjartsýnn á að göngin beri sig. ■ Áætlanir gera ráð fyrir að kostn- aður við göngin verði 11 milljarðar króna með virðisaukaskatti. ■ Veggjald verði rétt undir 1.000 krónum og hægt verði að greiða göngin upp á 25 til 30 árum. ■ Vegstytting á hringveginum verður 16 kílómetrar og elds- neytissparnaður gæti numið um 300 til 500 krónum í hverri ferð. Um göngin: JAFNRÉTTISMÁL Kærunefnd jafn- réttismála hefur vísað frá máli tvítugs starfsmanns Hagkaups á Akureyri sem kærði stéttarfélag- ið VR og fjölda verslana fyrir átak gegn kynbundnum launa- mun. Átakið snerist um að VR hvatti fyrirtæki til að veita konum tíu prósenta afslátt af vörum og þjón- ustu í eina viku, til að vega upp á móti kynbundnum launamun, sem einnig mælist um tíu prósent. Meðal þeirra fyrirtækja sem brugðust við áskoruninni var Hagkaup. Starfsmaðurinn var ósáttur við þessa viðskiptahætti og taldi að með þeim væri brotið gegn lögum um jafnan rétt kvenna og karla, enda væri ólöglegt að mismuna viðskiptavinum eftir kyni. Í niðurstöðu kærunefndarinnar er ekki tekin efnisleg afstaða til málsins, heldur því vísað frá með þeim rökum að maðurinn eigi ekki einstaklingsbundna og lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins. Í nefndinni eiga sæti hæstarétt- arlögmennirnir Erla S. Árnadótt- ir, Björn L. Bergsson og Þórey S. Þórðardóttir. - sh Kærunefnd jafnréttismála tekur ekki afstöðu til kæru vegna launamunarátaks VR: Máli Hagkaupsstarfsmanns vísað frá ÓLÍKT VERÐ Karlar og konur greiddu ekki það sama fyrir svona lambalæri í eina viku í september. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.