Fréttablaðið - 08.11.2011, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 8. nóvember 2011 11
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Borgar-
nesi rannsakar nú meintan þjófn-
að á hrútlambi í Skorradal fyrr í
haust. Í síðustu viku barst til-
kynning um að lambið væri
mögulega að finna í girðingu rétt
utan við Akranes.
„Það var nýbúið að endurmarka
lambið. Fróðir menn töldu sig
þekkja gamla markið þar undir
og lambinu hefur verið skilað
til þess sem tilkynnti um málið
í upphafi,“ segir Theódór Þórð-
arson, yfirlögregluþjónn hjá lög-
reglunni í Borgarnesi.
Hann segir eiganda fjárins í
girðingunni sem er frístunda-
bóndi ekki hafa gefið haldbærar
skýringar á því hvernig lambið
komst til hans.
Ólafur Dýrmundsson, ráðu-
nautur hjá Bændasamtökum
Íslands, segir að á undanförn-
um árum hafi verið upplýst um
fáeina sauðaþjófnaði auk þess
sem grunsemdir hafi vaknað
um sauðaþjófnaði vegna lélegra
heimta á haustin.
„Ég man hins vegar ekki eftir
máli sem hefur endað með dómi
jafnvel þótt það hafi verið upp-
lýst. Sammerkt með þessum
málum er að menn hafa ekki
treyst sér til þess að kæra þar
sem um nágranna hefur verið
að ræða. En það eru dæmi um að
menn hafi náð sáttum um bætur.“
Það er mat Ólafs að taka eigi
hart á sauðaþjófnaði. „Öll afskipti
af búfé og dýrum varða við dýra-
velferð. Ef mál verða kærð á
lögregla að taka þau alvarlega.
Skýrslutaka lögreglu verður að
vera vönduð þannig að skýrsla
haldi vatni.“ - ibs
Lögreglan í Borgarnesi rannsakar meintan sauðaþjófnað frístundabónda frá bónda í Skorradal:
Lögreglumenn fundu endurmarkað lamb
SAUÐFÉ Bændur treysta sér sjaldan til
að kæra sauðaþjófnað. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HVERAGERÐI Uppblásanlegt íþróttahús
mun rísa í bænum.
SVEITARFÉLÖG Fyrirhugað æfinga-
hús við Grýluvöll í Hveragerði
veldur enn deilum í bæjarráðinu
þar. Meirihluti Sjálfstæðisflokks
hefur ákveðið að bjóða út fram-
kvæmdina. Um er að ræða upp-
blásanlegt hús.
„Uppblásið æfingahús inni í Dal
er ekki skynsamlegasta aðferð-
in við nauðsynlega uppbyggingu
íþróttamannvirkja í Hveragerði,“
sagði fulltrúi minnihluta A-listans
sem kvað fjárfestinguna óarðbæra
og greiddi atkvæði gegn henni.
Fulltrúar meirihlutans sögðu
ágreininginn snúast um útfærslu:
„Á því höfum við skilning en undr-
umst samt ómálefnalegt orðfæri
og orðhengilshátt í umræðunni.“
- gar
Deila um uppblásið hús:
Ásakanir um
orðhengilshátt
SVÍÞJÓÐ Kona sem var á bótum
vegna bakveiki bar sjálf hundruð
bjórdósa úr farangursgeymslu
rútu sem hún hafði ferðast með
ásamt öðrum bótaþegum til þess
að kaupa ódýrt áfengi í Þýska-
landi. Þetta gerði konan fyrir
framan tollverði og starfsmenn
sænsku sjúkratrygginganna sem
tóku þátt í skoðun tollsins í Hels-
ingborg í tvo daga í októberlok.
Auk konunnar voru sex aðrir
farþegar á bótum vegna veikinda
og atvinnuleysis. Áfengið sem
þeir fluttu til Svíþjóðar vó 3.000
kg. Af 94 sem skoðaðir voru þessa
tvo daga voru 43 á einhvers konar
bótum frá sjúkratryggingum. - ibs
Afhjúpuð í tollinum:
Bakveik á bót-
um bar hundr-
uð bjórdósa
NOREGUR Karlmaður var nýlega
dæmdur í ellefu ára fangelsi í
Noregi fyrir að taka þátt í smygli
á tæpum níu kílóum af heróíni frá
Svíþjóð árið 2009.
Málið vekur athygli þar sem
þau sem stóðu að innflutningn-
um höfðu áður smyglað efnunum
inn til Noregs, en þá óttuðust þau
að lögreglan væri á eftir þeim og
flúðu aftur til Svíþjóðar, segir í
Aftenposten. Þau reyndu aftur
viku síðar og keyrðu þá fáfarna
sveitavegi og villtust nokkrum
sinnum en komust þó á áfangastað
í bænum Sarpsborg í Noregi. Þar
voru þau handtekin síðar um dag-
inn. Hinir sakborningarnir höfðu
fengið allt upp í 12 ára dóm. - þj
Seinheppnir brotamenn:
Smygluðu sama
dópinu tvisvar
HITTUST Á FÓRNARHÁTÍÐ Þessir ungu
piltar heilsast að loknum morgunbæn-
um á fórnarhátíð múslima í Kolkata á
Indlandi. NORDICPHOTOS/AFP