Fréttablaðið - 08.11.2011, Qupperneq 20
KYNNING − AUGLÝSINGSkartgripir & úr ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 20112
HVAÐA KONUNGLEGU
DJÁSN ERU DÝRUST?
Vefsíðan Born Rich hefur tekið
saman lista yfir dýrustu skartgripi
kóngafólksins. Þar trónir á toppnum
franska drottningin Marie Antoinette
(1755-1793) sem átti demantshálsfesti
sem nú er metin á 3,7 milljónir punda
eða sem samsvarar litlum 676.777.000
krónum. Festin er skreytt fjölda hvítra
demanta, ásamt tveimur sjaldgæfum
gulum sporöskjulaga demöntum og
glæsilegum bleikum demanti neðst.
Fegurðarskyn er margslungið fyrirbrigði og misjafnt
eftir heimsálfum, þjóðum og einstaklingum hvernig
fólki finnst flott að punta sig.
Hefð er fyrir því meðal kvenna af Padaung-ætt-
flokknum í Búrma að skarta þungum gylltum hringj-
um utan um hálsinn. Telpur allt niður í fimm ára
aldur byrja á að bera hring að staðaldri og bæta svo
hringjum smám saman við næstu árin. Flestir geta
hringirnir orðið tuttugu talsins og samhliða fjölgun
þeirra lengist hálsinn í allt að 50 sentimetra. Í seinni
tíð þykir þessi hefð þó mjög umdeild, sérstaklega í
ljósi þess að ef hringirnir eru fjarlægðir kafna kon-
urnar þar sem barkinn og hálsinn falla saman.
Aðrir ættflokkar nota skart til að stækka eyru, nef
og varir. Þannig nota ættflokkar í Suður-Ameríku
skart til að teygja á eyrnasneplunum meðan Mursu-
fólkið í Afríku festir við innanverða vör sína leir-
diska til að teygja á húðinni. Markmiðið er að fá sem
stærsta eyrnasnepla eða framstæða neðri vör og er
aðgerðin framkvæmd í nokkrum þrepum þar sem
stöðugt stærri hlutir eru notaðir.
Heimild: wikipedia.org.
Hverjum þykir sinn fugl fagur
Konur af Padaung-ættflokknum í Búrma hafa um nokkurt skeið
skartað mörgum gylltum hringjum utan um hálsinn.
Ýmsir ættflokkar í Afríku, Asíu og Suður-Ameríku punta sig með
aðferðum sem Vesturlandabúum gætu þótt óhefðbundnar.
Þannig strekkja sumir húð í innanverðri neðrivör til að gera hana
framstæða. NORDICPHOTOS/GETTY
Í tilefni af opnun verslunarinnar bjóðum við 20% afslátt af öllu íslensku skarti í nóvember,“
segir Kolbrún Tobíasdóttir, versl-
unarstjóri í nýrri Leonardverslun
í Lækjargötu 2 í Reykjavík sem er
sú fjórða á landinu. Verslunin er
í sögufrægu húsi á horni Lækjar-
götu og Austurstrætis sem var
endurreist eftir bruna fyrir nokkr-
um árum.
Auk þess að vera með mikið
úrval af íslenskum skartgripum
mun verslunin í Lækjargötu bjóða
upp á vönduð úr. „Við erum að
auka vöruúrvalið hjá okkur,“ segir
Kolbrún. „Í dag bjóðum við úr frá
Tag Heuer en munum bæta við
Breitling, Hublot, IWC og Omega
á næstu mánuðum.“
Nokkur töskumerki verða líka
einungis í Leonard í Lækjargötu.
„Okkur langar að skapa sérstaka
stemningu í kringum verslunina
og bjóða upp á vörumerki hér sem
ekki er boðið upp á í hinum versl-
unum Leonard,“ segir Kolbrún.
„Á vormánuðum er meðal ann-
ars von á töskum frá Tory Burch
og Michael Kors.“
Í desember mun Leonard, fjórða
árið í röð, bjóða upp á styrktar-
hálsmen í línunni „Flóra Íslands“
frá Leonard. Skartgripurinn er
hannaður af Eggerti Péturssyni,
listmálara og Sif Jakobs gullsmið
og er seldur til styrktar góðu mál-
efni tengdu börnum. Í fyrra voru
það sykursjúk börn sem nutu góðs
af sölu á skartgripnum Sóldögg.
Fyrr í þessum mánuði var fulltrú-
um frá Dropanum, styrktarfélagi
barna með sykursýki, afhentur
1.500.000 króna styrkur sem ágóði
af sölu á Sóldögg árið 2010.
Afsláttur af íslensku skarti
Ný skartgripaverslun hefur tekið til starfa í Lækjargötu 2 í Reykjavík. Það er Leonard sem þar opnaði sína fjórðu verslun. Hinar eru í Kringlunni,
Smáralind og á Keflavíkurflugvelli. Boðið verður upp á sérstök vörumerki í Lækjargötunni sem ekki eru í hinum búðunum.
Verslunin er í sögufrægu húsi á horni Lækjargötu og Austurstrætis sem nýlega var
endurreist eftir bruna.
„Við erum að auka vöruúrvalið hjá okkur,“ segir Kolbrún Björg Tobíasdóttir, verslunarstjóri Leonard í Lækjargötu.
MYNDIR/GVA