Morgunblaðið - 15.07.2010, Side 2

Morgunblaðið - 15.07.2010, Side 2
Morgunblaðið/Eggert Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vonast er til að árnar undir Eyja- fjöllum sem eru bakkafullar af eðju eftir gosið í vor hreinsi sig sjálfar eftir að grafnar hafa verið í þær rásir sem geti tekið við frekari eðju- flóðum af jöklinum. Landgræðslan og Vegagerðin standa fyrir miklum framkvæmdum þessa dagana. Verið er að moka upp úr um 17 km, alls um 80 þúsund rúmmetrum af efni. Farvegir flestra ánna undir Eyja- fjallajökli eru fullir af framburði og geta ekki tekið við eðjuflóðum sem jarðvísindamenn búast við að komi af jöklinum með rigningum. Land- græðslan telur að jökulleðja og mal- arframburður muni berast út fyrir farvegina og inn á ræktunarlönd, eins og gerðist við upphaf eldgoss- ins í Eyjafjallajökli þegar Svaðbæl- isá flæddi yfir bakka sína og skildi eftir leirlag á meginhluta túna bóndans á Önundarhorni og víðar. Þá eru byggingar og mannvirki tal- in í hættu og ekki síst hringveg- urinn. Hefði þurft að vera lokið Ástandið hefur verið alvarlegast við Svaðbælisá. Þar er verið að byggja mikla varnargarða ofan vegar og moka upp úr farveginum. Neðan vegar hefur efni verið ýtt upp úr ánni og Vegagerðin hækkað veginn til að verja landið. Enn er flóðahætta í Önundarhorni og hefur Sigurður Þór Þórhallsson bóndi ekki fengið leyfi til að hefja end- urræktun túnanna vegna þess. Njóli hefur náð yfirhöndinni í ræktuninni og er Sigurður að ráðast gegn hon- um þessa dagana. Hann segir að hækka þurfi veginn um einn til einn og hálfan metra og grjótverja til að verja landið og því verki hefði þurft að vera lokið. Nú sé hann að verða of seinn að hefja ræktun með það að markmiði að fá uppskeru næsta sumar. Einnig verður mokað upp úr Laugará og varnargarðar grjót- varðir. Svaðbælisá og Laugará renna saman neðan við þjóðveg og heitir áin eftir það Bakkakotsá. Þar verður sömuleiðis mokað upp og varnargarðar útbúnir og þá er byrj- að að moka út ós árinnar til að hún renni beint til sjávar og hreinsi sig frekar. Framkvæmdir standa einnig yfir við farveg Holtsár sem er nokkru vestar undir Eyjafjöllum og rennur í Holtsós. Verktakinn mokar upp úr farveginum úr ósnum og upp fyrir þjóðveg. Þá verða varnargarðar styrktir. Opnaðir farvegir fyrir eðjuna af Eyjafjallajökli  Áttatíu þúsund rúmmetrum af jökuleðju og möl mokað upp Gert við Slöngur gáfu sig í atganginum hjá gröfumönnum Snilldarverks þar sem þeir voru að störfum í Holtsá. 2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Á millistjórnendalaunum við vinnslu og frystingu  Vertíðarstemning í Neskaupstað og engin sumarlokun hjá Síldarvinnslunni Kristín Ágústsdóttir Neskaupstaður | Vertíðarstemning hefur verið í Neskaupstað í sumar þar sem unnið er við vinnslu og frystingu á makríl og síld í fiskiðjuveri Síldar- vinnslunnar. Vinnan er mikil og hafa framhalds- skóla- og háskólanemar fengið þar sumarstörf. Unnið er á tólf tíma dag- og næturvöktum og því mikið líf í fiskiðjuverinu allan sólarhringinn. Sökum þess hvernig vinnutíma er hagað gefur sumarvinn- an mikið í aðra hönd, eða fimm til sex hundruð þús- und krónur á mánuði. Er þetta í fyrsta sinn frá árinu 2007 sem ekki hefur þurft að grípa til sum- arlokunar. Góð stemning var í hópnum á vaktaskiptum um kvöldmatarleytið í gær þegar dagvaktin hélt heim á leið og næturvaktin tók við. Sigfús Ólafur Guðmundsson og Sæunn Skúladóttir hafa unnið á næturvöktunum og eru sammála um að mikil ver- tíðarstemning hafi verið það sem af er sumri og mikil samkennd í hópnum. „Reyndar er nú ekki mikið líf utan vaktanna,“ sagði Sæunn og Sigurður Steinn Einarsson, sem var að koma af dagvaktinni, tók í sama streng: „Maður missir eiginlega alveg af sumrinu hérna inni.“ En þar sem mörg ungmenni koma saman er sjaldan leiðigjarnt og þó svo sumrið fari að mestu í vinnu láta þau það ekki á sig fá. „Við reynum að hafa stuð á vöktunum. Til að mynda hefur næturvaktin stofnað hljómsveitina Færibandið sem er mikið framtíðarband,“ sögðu Sæunn og Sigfús Ólafur. „Alla vega með hærri laun en mamma“ Ef stuðið á vöktunum er ekki nóg til að draga úr óánægjunni með að missa af sumrinu er ljóst að launaseðillinn í byrjun mánaðar ætti að duga til. Enda var ekki annað að heyra en að krakkarnir væru hæstánægðir með launin sem greidd eru fyrir sumarvinnuna. „Þetta er mjög vel borgað. Maður er kominn í hátekjuskatt,“ sagði Sigfús Ólafur með bros á vör. Aðrir tóku í sama streng: „Ég er alla vega með hærri laun en mamma,“ sagði einn og annar: „Þetta er betur borgað en í álverinu.“ Aug- ljóst var því að flestir voru sáttir við sitt. Krakkarnir segja að á vöktunum ríki algjört jafnrétti, engin sérstök karlastörf eða kvennastörf eru í boði. Allir ganga í að hausa og slógdraga, flaka og öll hin verkin sem tilheyra vinnslunni. Síldin er talin skemmtilegri og fjölbreytilegri í vinnslu, en hún er flökuð. Makríllinn, sem er bara hausaður og slógdreginn, þykir helst til einhæfur. Morgunblaðið/Kristín Ágústsd. Vaktaskipti Sigfús Ó. Guðmundsson, Eyðun Sím- onsen verkstjóri og Sigurður Steinn Einarsson. Börn og ferðamenn mokveiddu þorsk við Ólafsvíkurbryggju í gær- kvöldi. Börnin voru afar ánægð með aflann og sagði einn veiðimað- urinn, Trausti að nafni: „Við erum búin að fá átta fiska maður og þeir voru risastórir. Ég bað pabba að hjálpa mér að koma þeim upp á bryggjuna.“ Erlendir ferðamenn horfðu agn- dofa á veiðiskapinn. Börnin voru gestrisin og buðu ferðamönnunum að spreyta sig. Ekki leið á löngu þar til þeir voru farnir að þeyta þorski á land. Mokveiddu í Ólafsvík Sælir Vel bar í veiði hjá þessum ungu mönnum á Ólafsvíkurbryggju. Morgunblaðið/Alfons Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is Þjófnaður á tjaldvögnum og fellihýs- um hefur aukist mikið að undan- förnu. Lögregla vill brýna fyrir fólki að vera á varðbergi og nota keðjur og lása óspart til að verja vagnana fyrir þjófum. Aðfaranótt miðvikudags var tjald- vagni stolið á sýningarsvæði fyrir framan búðina Ellingsen í Reykja- vík. Þjófurinn kom akandi inn á svæðið, tengdi vagninn snarlega við Cherokee-jeppa sinn og ók á brott. Að sögn Angantýs Agnarssonar verslunarstjóra virtist þjófurinn engu skeyta um að athæfi hans væri fest á filmu. „Það sýnir hversu ófor- skammað þetta er.“ Fyrirtækið Víkurverk hefur svip- aða sögu að segja. Aðfaranótt föstu- dagsins 9. júlí náðist ökumaður Cherokee-jeppa á myndband þar sem hann tengdi fellihýsi á lóð Vík- urverks við jeppann og keyrði burt. Hvorki tjaldvagninn, fellihýsið né þjófurinn hafa fundist. Lögregla rannsakar nú upptökur af atburðun- um. Stolið eftir tvo daga Lögregla segir að þjófnaður af þessu tagi hafi ávallt tíðkast að ein- hverju marki hér á landi en aldrei komist í hálfkvisti við ástandið nú í sumar. Lögregla hefur jafnframt litlar upplýsingar um hvað verður um vagnana og telur líklegt að þeir séu fluttir úr landi í gámum. Þjóf- arnir virðast svífast einskis. Angan- týr segist vita um dæmi þess að fjöl- skylda hafi fjárfest í tjaldvagni, ekið að heimili sínu, lagt honum þar og tveimur dögum síðar hafi tjaldvagn- inn horfið og aldrei sést aftur. Tjaldvögnum stöðugt stolið  Segja ástandið aldrei hafa verið verra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.