Morgunblaðið - 15.07.2010, Side 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2010
Str. 38-56
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Enn meiri
afsláttur
40%-70%
Nýtt kortatímabil
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Póstsendum
Stórútsala
30-70%
afsláttur
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Mál Svanhildar Önnu Sveinsdóttur,
íbúa í fjölbýlishúsi á Akranesi, hefur
verið áberandi undanfarið en henni
var neitað um framlengingu hunda-
leyfis sem rennur út 1. nóvember nk.
Félagsmálaráðuneytið hyggst nú
endurskoða lögin og hefur þegar haf-
ið undirbúning á breytingum. Í nú-
gildandi lögum geta ofnæmissjúkir
komið í veg fyrir hundahald fatlaðra í
blokkum en eftir breytingar verður
réttur fatlaðra tryggður.
Svanhildur fæddist sjón- og heyrn-
ardöpur auk þess sem hún þjáist af
jafnvægisleysi vegna heilaæxlis. Hún
hefur haft leiðsöguhundinn Exó í
þrjá mánuði og hefur hann breytt lífi
hennar til hins betra. Eftir að beiðni
hennar var hafnað þarf Svanhildur
að velja milli þess að losa sig við leið-
söguhundinn eða leita að nýju hús-
næði.
Þorsteinn Eggertsson sem búsett-
ur er í Danmörku heyrði af málinu og
fann sig knúinn til að blanda sér í
það. Þorsteinn telur að með svo úr-
eltum lögum sé verið að koma þess-
ari konu út af kortinu. „Henni er bol-
að út úr sinni íbúð á löglegan hátt og
bæjarstjórinn á Akranesi getur ekk-
ert gert í málinu“. Þorsteinn segir að
það vanti lagaákvæði sem geri grein-
armun á hvort hundurinn sé gæludýr
eða hjálpartæki. „Þetta er sérþjálf-
aður labrador sem geltir ekki. Hann
veldur minni hávaða en kona á há-
hæluðum skóm“. Að auki hefur verið
stofnuð síða á samfélagsvefnum
Facebook, þar sem fólk getur lagt
inn á reikning til að hjálpa Svanhildi í
flutningunum.
Líka ekki nornaveiðar
„Augljóst er að endurskoða þarf
reglugerðina sem er 16 ára gömul og
margt breyst síðan þá. Í rauninni er
byrjað að undirbúa þá endurskoðun.
Það er ótækt að fólk geti ekki haldið
nauðsynlegum hjálpartækjum,“ seg-
ir Anna Sigrún Baldursdóttir, að-
stoðarmaður félagsmálaráðherra.
Hún segir hagsmuni Svanhildar
tryggða þar til lausn finnst.
Sjálf segist Svanhildur miður sín
eftir umfjöllun um málið sökum þess
að nágrannar hennar hafa orðið fyrir
miklu áreiti. „Þó svo að ég veitti við-
tal í sjónvarpið þá var það ekki til-
gangur minn að nágrannar mínir
yrðu fyrir svona hræðilegu skít-
kasti,“ segir hún. „Ég er afar þakklát
fyrir þennan mikla einhug sem ég hef
fundið fyrir en ég bið fólk vinsamleg-
ast um að hætta að leita að sökudólgi.
Mér líka ekki þessar nornaveiðar.
Látið kraftinn ganga í það að breyta
lögunum“.
Úrelt reglugerð kemur í
veg fyrir rétt fatlaðra
Lögum um leiðsöguhunda í blokkum verður breytt
Morgunblaðið/ÞÖK
Besti vinur mannsins Labrador-hundar eru gjarnan sérþjálfaðir í allt að
fimm ár til þess að hjálpa blindu og fötluðu fólki að athafna sig í lífinu.
MMyndskeið á mbl.is
Skúli Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-
Sif, er nú í Bandaríkjunum þar sem
hún mun sinna mengunareftirliti á
Mexíkóflóa fyrir BP-olíufélagið.
Flaug Sif til Hauma í Louisiana-ríki í
gærmorgun. Sjö starfsmenn Land-
helgisgæslunnar fóru utan ásamt
flugvirkja og flugumsjónarmanni.
TF-Sif er ætlað að kortleggja olíu-
mengun í flóanum suður af New Or-
leans og sérstaklega að rannsaka
hvar megi takast að hreinsa olíuna
upp. Stjórnvöld í Bandaríkjunum
áætla að 35-60.000 tunnur af olíu leki
úr olíulind BP í flóann á dag. Lekinn
hófst þegar Deepwater Horizon-bor-
pallurinn sökk í apríl.
Bandaríska strandgæslan hefur
yfirumsjón með verkefninu en Sif
mun leysa flugvél kanadísku sam-
göngustofnunarinnar af en sú vél er
af sömu gerð og Sif. Eru þær báðar
búnar öflugri ratsjá sem sérhönnuð
er fyrir mengunareftirlit.
Áætlað er að Sif verði við störf
ytra í um það bil mánuð og snúi heim
15. ágúst. Til stendur að fljúga yfir
flóann fimm til sex daga í viku, sam-
tals um hundrað flugtíma. Verður
vélin mönnuð fjórum áhafnarmeð-
limum í hverju flugi og reiknað er
með að um borð verði ávallt maður
frá bandarísku strandgæslunni.
Nokkur hætta er á að fellibyljir
skelli á í Bandaríkjunum á þessum
árstíma. Er búið að gera ráðstafanir
til að leggja megi Sif í flugskýlum;
annars vegar í Tyndal í Florida-fylki
komi fellibylur úr vestri og í San
Antonio í Texas komi hann úr austri.
Sif til Louisiana í
mengunareftirlit
Ráðstafanir gerðar vegna fellibylja
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sif Áhöfnin áður en lagt var í hann.