Morgunblaðið - 15.07.2010, Síða 10

Morgunblaðið - 15.07.2010, Síða 10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2010 10 Daglegt líf Ylfa Kristín K. Árnadóttir ylfa@mbl.is Tímaritið Sumar í boði náttúrunnar kom út fyrirskemmstu og að sögn Guðbjargar Giss-urardóttur ritstjóra er það lífsstílsblað sem ein-blínir á heilbrigðan lífsstíl. „Við horfum út fyrir borgarmörkin og skoðum hvernig við nýtum náttúruna, þá erum við að tala um landið, dýrin og plönturnar og allt í kringum það. Þetta er fyrir þá sem hafa áhuga á að vera úti í íslenskri náttúru og kunna að meta hana. Mig langaði að upphefja íslenska náttúru því hún er alveg gríðarlega falleg, mikilvæg og dýrmæt fyrir okkur Íslendinga. Hún er ein af okkar auðlindum sem eru svo dýrmætar og mig langaði að gera því góð skil í þessu blaði,“ segir Guðbjörg. Nýr tónn í tímaritaútgáfu Hugmyndin að blaðinu kviknaði sl. haust. „Maðurinn minn, Jón Árnason, hefur hjálpað mér að móta hugmynd- ina og komið að þessu eins og hann getur. Svo fékk ég fólk með mér þegar vinnslan á blaðinu hófst, til að hanna og skrifa, en fyrst og fremst hef ég gert allt sjálf, eins og að safna auglýsingum og undirbúa kynningar, dreifingu og sjá um söluna á blaðinu,“ segir Guðbjörg. Aðspurð segir hún fólk hafa tekið blaðinu vel. „Þetta er nýr tónn í tímaritaútgáfu. Við erum að taka á hlutum sem tengjast íslenskri náttúru á einhvern hátt, hlutum sem hafa verið í miklum vexti, t.d. útivist, áhuga á að nýta og njóta náttúrunnar betur, t.d. nýta villijurtir, og líka hvernig við getum á hagkvæman hátt gert umhverfið okk- ar huggulegt. Umfjöllunin er í takt við það sem er að ger- ast á Íslandi í dag og það finnst mér fólk skynja. Fólk er meðvitaðra um umhverfið og það endurspeglast í blaðinu.“ Ekki aðeins endurspeglast umhverfisvitundin í efn- istökum blaðsins heldur einnig í blaðinu sjálfu. „Við ákváðum að fara með þetta alla leið. Pappírinn er um- hverfisvænn og vottaður, hann er mattur en ekki með þessari glansáferð sem flest tímarit hafa. Fyrsta snert- ingin við blaðið er strax á þessum nótum, þetta er ekki glanstímarit,“ segir Guðbjörg. Matur á landsbyggðinni helsta umkvörtunarefnið Í blaðinu er matarkort þar sem staðsetning veit- ingastaða og kaffihúsa með hollum og góðum mat er sýnd á landinu öllu. Lítil umfjöllun fylgir svo um hvern stað. „Ég var að ferðast um landið í fyrrasumar og þá fannst mér þetta vanta tilfinnanlega,“ segir Guðbjörg. „Ef maður var að keyra um landið og langaði í sérstaka matarupp- Langaði að upphefja íslenska náttúru Í miðri brjóstagjöf um hánótt datt Guðbjörgu Gissurardóttur í hug að gefa út tímarit þar sem tekið er á hlutum sem tengjast íslenskri náttúru. Tímaritið er orðið að veruleika og Sumar í boði náttúrunnar aðgengilegt öllum. lifun þá vissi maður aldrei hvert maður átti að fara, fyrir utan bensínstöðvastoppin með hamborgurum og tilheyr- andi. Það eru víða góðir staðir en enginn leiðarvísir sem maður gat treyst. Svo fór ég að tala við ferðafrömuði sem höfðu ferðast mikið með útlendingum um landið. Ég spurði þá hvað það væri sem útlendingum þætti vanta og þá var mér sagt að aðalumkvörtunarefnið væri maturinn á landsbyggðinni. Það væri erfitt að finna staði þar sem væri hægt að fá stað- bundinn, ekta íslenskan mat. Þetta passaði við það sem mér fannst vanta og allir mínir vinir voru sammála um það. Því varð augljóst að það þyrfti að taka þetta fyrir.“ Nefnt eftir árstíðinni Blaðið mun koma út fjórum sinnum á ári en fyrsta ár- ið kemur það út þrisvar sinnum. Næsta blað verður Vetur í boði náttúrunnar og verður það gefið út, eins og nafnið gefur til kynna, næsta vetur. Hægt er að kaupa Sumar í boði náttúrunnar í bókabúðum, matvöruverslunum, bens- ínstöðvum og á ibn.is. Bollywood-kvikmyndaiðnaðurinn í Ind- landi er einn sá stærsti í heimi en strax í kringum 1930 voru búnar til 200 myndir árlega. Höfuðstöðvar framleiðslunnar eru í Mumbai en þessi kvikmyndagerð hefur nú líka teygt sig til fleiri landa. Gullöld Bollywood- kvikmyndanna er talin hafa verið á ár- unum 1940 til 1960 en þær eru þó enn mjög vinsælar í dag. Oftast er um að ræða fjörugar dans og söngvamyndir sem einkennast af dramatískum ástarsögum. Litríkir búningar og dans ráða ríkjum í þessu lifandi kvikmyndaformi sem haft hefur sín áhrif víða og líka hér á litla Íslandi þar sem Bollywood-dans og tónlist hafa verið vinsæl síðastliðin ár. Á vefsíðunni grapheine.com/ bombaytv gefst almenningi nú kostur á að setja saman myndskeið í sína eig- in Bollywood-kvikmynd og setja texta á íslensku saman við. Þetta er stór- skemmtilegt dægradvöl og á eftir er hægt að senda afraksturinn til vina og þeir geta þá prófað líka. Vefsíðan www.grapheine.com/bombaytv Reuters Vinsælt Kvikmyndaaðdáandi kaupir sér bíómiða í Mumbai. Bollywood talsett á íslensku Það þarf ekki að vera flókið og kosta mikla fyrirhöfn að bjóða vinum í mat. Það er tilvalið að nota sumarkvöldin til að bjóða í grill, líka á virkum dög- um og bjóða upp á eitthvað einfalt og gott. Góðir hamborgarar klikka aldrei og þá má útfæra á ýmiss konar nýjan hátt og bera fram með fljótlegum heimagerðum sósum, t.d. jógúrtsósu með myntu eða sinnepi. Það er líka gott að kaupa tilbúnar sósur, t.d. pip- arsósu, og skella ofan á borgarann með smásinnepi og brakandi fersku grænmeti. Setja svo nokkrar franskar í ofninn og bera fram eitthvað ískalt og svalandi að drekka með. Endilega … … bjóðið vinum í mat Morgunblaðið/Árni Sæberg Girnilegt Hamborgari er skotheldur. Gallabuxur eru með sígildustu flík- unum sem finna má í fataskápnum. Þær má gera sparilegri með flottum skóm og efri parti eða nota hvers- dags með þægilegum íþróttaskóm og hettupeysu. Gallabuxur má nota við flestöll tækifæri, meira að segja brúðkaup ef marka má könnun sem breska markaðsfyrirtækið Glamour- 2Go lét gera nýverið. Alls tóku 1.822 konur á aldrinum 25 til 50 ára þátt í könnuninni sem gerð var í átta verslunarmiðstöðvum. Könnunin leiddi í ljós að flestum konunum fannst viðeigandi að vera í gallabuxum við flest tilefni, fyrir utan atvinnuviðtöl og jarðarfarir. Alls sögðu 69% kvennanna að þær myndu mæta í merkjagallabuxum í formlegt brúðkaup, 10% svöruðu neitandi og 21% með kannski. Sama var að segja um leikhúsferðir og fína veitingastaði. Flestar konurnar sögðu að þær myndu láta sjá sig þar í galla- buxum en þó af sparilegri gerð. Það er af sem áður var þegar konur voru litnar hornauga fyrir það eitt að ganga í buxum. Flestar konur myndu mæta á þeim í brúðkaupsveislu Gallabuxur Buxurnar má bæði nota spari og hversdags. Gallabuxur eru málið Bónus Gildir 15.-18. júlí verð nú áður mælie. verð My heimilisbrauð, 770 g ............ 198 259 257 kr. kg Hollenskar nautalundir ............... 2.698 2.998 2.698 kr. kg Ferskar grísahnakkasneiðar ........ 898 998 898 kr. kg Ferskar grísakótelettur ................ 898 998 898 kr. kg Bónus pylsur ............................. 598 719 598 kr. kg KS frosnar lambalærissneiðar ..... 1.259 1.398 1.259 kr. kg KS frosið lambafillet ................... 2.698 2.998 2.698 kr. kg KS frosin lambasvið ................... 194 239 194 kr. kg Kjörfugl ferskur heill kjúklingur .... 565 598 565 kr. kg Fjarðarkaup Gildir 15.-17. júlí verð nú áður mælie. verð Svínahnakki úrb. úr kjötborði ...... 998 1.498 998 kr. kg Svínalundir úr kjötborði .............. 1.398 2.198 1.398 kr. kg Lambafille m/fitu úr kjötborði ..... 2.798 3.498 2.798 kr. kg Hamborgarar, 4x80 g m/brauði .. 496 596 496 kr. pk. FK kjúklingabringur .................... 1.781 2.375 1.781 kr. kg Móa kjúklingaleggir.................... 649 998 649 kr. kg Ísfugl kalkúnagrillsneiðar............ 1.199 1.599 1.199 kr. kg Fjallalambs fjallalæri, kryddað .... 1.583 2.473 1.583 kr. kg FK grill svínakótilettur ................. 1.198 2.098 1.198 kr. kg Hagkaup Gildir 15.-18. júlí verð nú áður mælie. verð Hagkaups grill læri..................... 1.724 2.298 1.724 kr. kg VSOP lambatvírifjur.................... 1.998 2.498 1.998 kr. kg VSOP lærissneiðar ..................... 2.262 2.828 2.262 kr. kg Holta ferskar kjúklingabringur ..... 1.946 2.595 1.946 kr. kg Holta ferskar kjúklingalundir ....... 1.946 2.595 1.946 kr. kg Holta kjúkl.bring. m/hvítl./rósm.. 1.796 2.395 1.796 kr. kg Holta indverskir kjúklingaleggir.... 647 995 647 kr. kg Myllu fjallabrauð........................ 199 489 199 kr. stk. Myllu kleinur, 25% meira í pk...... 299 318 299 kr. pk. Kostur Gildir 15.-18. júlí verð nú áður mælie. verð Goði pítubuff, 6 stk. m/ brauði ... 798 998 798 kr. pk. Goði grísalærissneiðar, rauðvínsl. 1.274 1.698 1.274 kr. kg Goði grísahnakki beinl. pip/Bbq . 1.678 2.098 1.678 kr. kg Goði ítalsk. grillpylsur, 5 stk. í pk. 302 378 302 kr. pk. Ferskjur, 750 g askja ................. 258 369 344 kr. kg Nektarínur, 750 g askja.............. 328 469 437 kr. kg Plómur, 750 g askja................... 328 469 344 kr. kg Quaker. haframjöl, 4,5 kg ........... 1.499 1.789 333 kr. kg Best Yet örbylgjupopp, 3 pokar ... 169 199 169 kr. pk. Krónan Gildir 15.-18. júlí verð nú áður mælie. verð Grísalundir ................................ 1.299 2.598 1.299 kr. kg Grísakótilettur New York.............. 899 1.498 899 kr. kg Grísahnakki í hvítlauk/rósmarín .. 899 1.698 899 kr. kg Grísasnitsel ............................... 899 1.698 899 kr. kg Grísagúllas................................ 899 1.598 899 kr. kg Grísabógur hringskorinn ............. 449 598 449 kr. kg Grísasíður pörusteik ................... 479 798 479 kr. kg Krónu kjúklingabringa Texas........ 1.998 2.598 1.998 kr. kg Móa Piri Piri vængir tilbúnir ......... 539 899 539 kr. kg Nóatún Gildir 15.-18. júlí verð nú áður mælie. verð Lambafille með fiturönd ............. 2.798 3.498 2.798 kr. kg Lambalærissneiðar, kryddaðar .... 1.598 1.998 1.598 kr. kg Lamba sirloinsneiðar.................. 1.049 1.498 1.049 kr. kg Lambalæri, Heiðmerkurkryddað .. 1.258 1.398 1.258 kr. kg Grísakjöt á spjóti ....................... 1.798 1.998 1.798 kr. kg Nautafille spjót með grænmeti.... 727 799 727 kr. kg Caj P’s grillolía, Hickory .............. 299 329 299 kr. stk. Knorr Doy sósa, Bernaise ........... 399 439 399 kr. stk. Pepsi, 2 l .................................. 198 256 198 kr. stk. Þín verslun Gildir 15.-18. júlí verð nú áður mælie. verð Ísfugls kjúklingabringur, úrb. ....... 2.094 2.992 2.094 kr. kg Ísfugls kjúklingur heill................. 682 975 682 kr. kg Ísfugls kjúklingalæri og leggir ...... 669 956 669 kr. kg Fanta lemon, 0,5 l ..................... 115 149 230 kr. ltr Maryland kexkökur, 150 g .......... 110 129 734 kr. kg Hatting pítubrauð, fín, 6 stk. ....... 245 285 41 kr. stk. Kjörís grænir frostpinnar, 10 stk. . 579 759 58 kr. stk. Philadelphia rjómaostur, 200 g... 439 499 2.195 kr. kg Dala fetaostur m/ólífum, 325 g .. 415 459 1.277 kr. kg Helgartilboðin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.