Morgunblaðið - 15.07.2010, Side 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2010
Yfir 280 manns hafa þegar skráð
sig til þátttöku í Jökulsárhlaupi
hinn 24. júlí nk. Aldrei hefur þátt-
taka verið eins góð og nú og er bú-
ist við góðri keppni. Skráningu lýk-
ur 21. júlí en hámarksfjöldi
þátttakenda er 300.
Jökulsárhlaupið fer fram í stór-
kostlegu umhverfi Jökulsárgljúfra í
Vatnajökulsþjóðgarði. Hlaupið
hentar hvort sem er reynslumiklum
langhlaupurum og þeim sem vilja
takast á við utanvegahlaup í fyrsta
sinn, þar sem í boði er að hlaupa
þrjár mismunandi vegalengdir:
32,7 km, 21,2 km og 13,2 km. Lagt
er að stað frá mismunandi stöðum
fyrir hverja vegalengd en öll hlaup-
in enda í Ásbyrgi.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Jökulsárhlaup
Húnavaka, bæjarhátíð Blöndu-
ósinga, verður haldin næstu helgi,
16.-18. júlí nk. Húnavaka er fjöl-
skyldu- og menningarhátíð þar
sem Blönduósingar og gestir koma
saman og skemmta sér.
Í ár ber hæst vígslu nýrrar
sundlaugar í bænum sem er ætlað
að setja Blönduós á ferða-
mannakortið.
Fastir liðir á Húnavöku eru m.a.
fjölskylduskemmtun, kvöldvaka
með varðeld og fjöldasöngur á
bökkum Blöndu, dansleikir, hátíð-
ardagskrá í söfnum bæjarins,
listasýningar, golfmót, söngkeppni
fyrir börn, víðavangshlaup og ým-
islegt fleira.
Húnavaka nálgast
Fyrsta íslenska
hagleikssmiðjan
verður opnuð á
Djúpavogi á
morgun, föstu-
dag. Það er Ný-
sköpunarmiðstöð
Íslands sem
stendur að hag-
leikssmiðjunni.
Hún er sett upp að kanadískri fyr-
irmynd og er ætlað að sameina
menningu, handverk og ferðaþjón-
ustu til að stuðla að atvinnusköpun í
sveitum og varðveislu þekkingar.
Hagleikssmiðjan hefur fengið
nafnið Arfleifð en Ágústa Margrét
Árnadóttir hönnuður sýnir þar
gestum töskur, fylgihluti og fatnað
úr alíslenskum hráefnum á borð við
hreindýrshorn, leður, fiskroð og
fleira úr umhverfinu.
Hagleikssmiðja á
Djúpavogi
STUTT
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Íslandsklukka Þjóðleikhússins verður sýnd
nokkrum sinnum í menningarhúsinu Hofi hér
á Akureyri í haust, er mér sagt. Fyrsta sýning
ku áætluð 19. nóvember.
Ingvar E. Sigurðsson fékk Grímuverð-
launin á dögunum sem besti leikari í aðal-
hlutverki fyrir túlkun á Jóni Hreggviðssyni í
Íslandsklukkunni og Björn Thors var valinn
besti leikari í aukahlutverki. Benedikt Erl-
ingsson er höfundur leikgerðar og leikstýrði.
Gaman er að geta þess að Eyfirðingarnir
Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson
sömdu og fluttu tónlistina í þessu frábæra
verki Laxness og fengu Grímuverðlaun fyrir.
Leikfélag Akureyrar frumsýnir söngleik-
inn Rocky Horror í Hofi í september en Ís-
landsklukkan verður fyrsta íslenska verkið í
Hofi. Íslandsklukkan var ein þriggja opn-
unarsýninga Þjóðleikhússins árið 1950.
Birgir Orri frændi minn æfir fótbolta með
8. flokki KA en neyddist til að taka sér frí í
nokkra daga fyrir skemmstu. Það var meðan á
N1 móti KA stóð og yngri flokkarnir æfðu á
blettinum neðan við Akureyrarvöll.
„Mamma, ég get ekki æft hérna. Lyktin
frá Greifanum er svo góð að ég verð alltaf
svangur,“ útskýrði frændi. Veitingahúsið er
steinsnar frá og ilmur af hvítlauk og annarri
dýrð varð honum ofviða.
Frændi tók að sjálfsögðu upp þráðinn þeg-
ar æfingar hófust á KA-svæðinu á ný og stund-
ar þær af kappi. Pabbi hans nefndi að það væri
eins gott að þeir í Kristjánsbakaríi, við enda
KA-vallarins, bökuðu ekki mikið á æfingatíma.
Kristján Steinn Magnússon er tvítugur og
vann sér nýlega sæti í 1. deildar liði Þórs í fót-
bolta. Afi hans og nafni er búsettur á Vopna-
firði en gerði sér ferð til Akureyrar um síðustu
helgi til að sjá strák spila gegn HK. Í fyrstu
sókninni lék Kristján fram vinstri kantinn og
eftir fyrirgjöf hans var skorað. Flott byrjun!
En Kristján lenti í samstuði og meiddist þegar
hann sendi fyrir markið og varð að fara af velli.
Afinn sá hann því keppa í tæpa mínútu …
Of góð lykt til að æfa
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Leikur Ingvar E. Sigurðsson í fótboltaleik á
Akureyri nýverið. Hann verður Jón í Hofi.