Morgunblaðið - 15.07.2010, Síða 27

Morgunblaðið - 15.07.2010, Síða 27
Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2010 ✝ Sesselja KristínHalldórsdóttir til heimilis á Hrafnistu í Hafnarfirði fæddist í Skálmardal í Múla- sveit 28. ágúst 1920. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði hinn 9. júlí 2010. Foreldrar Sesselju voru Halldór Sveins- son og Guðrún Þórð- ardóttir. Hún fluttist með fjölskyldu sinni að Svínanesi og síð- an að Móbergi á Rauðasandi. Systkini hennar voru Pálína Rebekka, Ingibjörg og Þórður Einar. Hinn 10. desember 1939 giftist Sesselja Halldóri Halldórssyni, f. 6. júní 1918, d. 5. desember 2005. Foreldrar hans voru Hall- dór Ólafur Bjarna- son og Magnfríður Ívarsdóttir. Þau eignuðust eina dótt- ur, Rósu Kristínu, f. 13. ágúst 1940. Hennar maður er Ragnar Hjaltason, f. 28. mars 1939. Sesselja var hús- móðir í sveit allt til 1953 að fjölskyldan flutti til Reykjavík- ur. Eftir það vann hún ýmis störf, t.d. í Nóa Síríusi, stund- aði heimasaum, blaðaútburð og bókband, vann í eldhúsinu í Lyngási og Landsbankanum í Hafnarfirði. Sesselja verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 15. júlí 2010, kl. 11. Hún amma er farin í ferðalag. Hafði haft á orði í vor að kannski væri hún á leið í ferðalag. Það á víst ekki að koma á óvart að ní- ræð manneskja kveðji jarðneskt líf en óneitanlega snertir það sál- artetrið þegar það er einhver sem manni þykir óendanlega vænt um. Það er sama hvar ég ber niður í minningabankanum um ömmu, allt eru það góðar minningar. Margt höfum við amma brallað saman um dagana enda var hún alltaf tilbúin að leyfa manni að skottast með í því sem hún var að gera. Margar minningar tengjast sögustundunum hennar ömmu en hún var hafsjór af ævintýrasög- um. Ekki má gleyma öllum bók- unum sem hún las fyrir mig áður en ég sjálf varð læs, þá var ekkert verið að velja eintómar barnabók- menntir heldur alls kyns bækur. Fátt var notalegra en að skríða í holuna frænda, við hlið ömmu, þegar við komum heim frá því að bera út blöðin eldsnemma á morgnana og fá lesna góða sögu. Amma saumaði heima í mörg ár og það var alveg ótrúlega gaman að fylgjast með þegar konurnar voru að koma og máta, þá var nú skrækt og skríkt. Frænda fannst hins vegar minna spennandi þegar títuprjónarnir áttu það til að leyn- ast í gólfteppinu og gátu þá stung- ist í iljarnar. Þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn var spennan mikil hjá ömmu og frænda. Ég missti legvatnið heima hjá þeim og þvílíkur handa- gangur að panta sjúkrabílinn og koma mér í öruggar hendur. Amma var svo mætt upp á spítala um miðja nótt til að tryggja nú að allt væri í lagi og var vart fáanleg að fara heim að sofa. Rakel fædd- ist svo um morguninn og hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi eins og strákarnir mínir tveir. Það varð að reglu að fara beint af spít- alanum í Hafnarfjörðinn til þeirra í smástopp áður en haldið var heim og leyfa þeim að njóta nýja fjölskyldumeðlimsins. Nokkrar ferðir kom amma í heimsókn til mín á sumrin og stoppaði þá í dálítinn tíma. Þetta voru alla tíð miklir dásemdar- tímar, þá flæktumst við um og skoðuðum en nýttum tímann vel í spjall og spekúleringar. Ógleym- anlegt er að hafa komið ömmu og frænda um borð í hjólabát og siglt út í Dyrhólaey. Amma var af þeirri kynslóð sem hafði ekki alltaf haft of mikið á milli handanna og fór afar vel með. Allt dótið hennar ber þess glöggt merki og það gerði heimilið hennar einnig á meðan hún hélt heimili sjálf. Hún naut þess að vera vel til höfð og fín og þess vegna líkaði henni ekki vel að vera orðin illa fær um að sinna þörfum sínum síðustu mánuðina. Við vorum búnar að tala saman um að halda upp á níræðisafmælið hennar í sumar en ég verð að sætta mig við að hún heldur bara veisluna með frænda og öllum gömlu ættingjunum og vinunum sem farnir eru á undan henni. Ég veit að amma var södd lífdaga og tilbúin að skipta um tilverustig. Það er með miklu þakklæti og virðingu sem ég kveð og þakka fyrir öll árin okkar saman og veit að ég er betri manneskja fyrir að hafa þekkt hana ömmu. Elsku Rósa, megi Guð vera með þér og styrkja og styðja, við ylj- um okkur við minningarnar. Sædís Íva. Amma Sella var einstök kona, full af kærleika og með fallegt hjartalag. Það var alltaf gott að koma í heimsókn til hennar og vera nálægt henni. Okkur var allt- af tekið fagnandi í Hafnarfirðinum hjá ömmu og frænda og heim- sóknirnar til þeirra skemmtilegar. Ömmu var mikið í mun að allir færu saddir frá henni og var enga stund að galdra fram úr erminni dýrindis kræsingar og passaði upp á að allir fengju meira en nóg að borða. Þegar ég var lítil sat hún með mig í fanginu, las fyrir mig eða sagði mér sögur og þegar ég varð eldri hlógum við saman við eldhúsborðið og alltaf var jafn gaman. Amma hafði dillandi og smitandi hlátur og alltaf var stutt í brosið. Þegar kom að handa- vinnu var amma snillingur og eftir hana eigum við systkinin mikið af fallegri handavinnu, gullfallegar útprjónaðar peysur, jólasveinab- angsa og veggmyndir svo eitthvað sé nefnt. Við vorum einstaklega heppin að eiga ömmu að og hún var í miklu uppáhaldi hjá okkur öllum. Minningin um hlýja og góða konu lifir. Fyrir síðustu skiptin okkar saman á Hrafnistu er ég sérstak- lega þakklát, ég fékk mér kaffi- bolla og gaf ömmu trönuberjasafa í glas og svo sátum við og spjöll- uðum og höfðum það notalegt, þau skipti gáfu mér mikið. Mikið á ég eftir að sakna þín en ég trúi að nú sértu flutt með frænda á betri stað. Elsku amma, takk fyrir öll gæð- in við mig og Guð geymi þig. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þín Rakel. Kæra vinkona, Sesselja Hall- dórsdóttir. Takk fyrir að vera vinkona mín í 48 ár. Takk fyrir alla fallegu kjólana sem þú saumaðir fyrir mig. Takk fyrir að veita mér þá tilfinningu að standa mér næst ef móður minnar nyti ekki við. Takk fyrir öll jólakortin með svo fal- legum texta, skrifuðum frá hjart- anu til mín og fjölskyldu minnar. Takk fyrir alla gestrisnina, gleðina og hláturinn sem þú og Halldór maðurinn þinn vöktuð með mér og öllum sem heimsóttu ykkur á heimili ykkar um ára- fjöld. Blessuð sé minning þín. Álfheiður Guðbjörg Guðjónsdóttir. Sesselja Halldórsdóttir Garðar Túnþökusala Oddsteins  Lóðaþökur  Fótboltaþökur  Golfvallargras  Holtagróður Steini, s. 663 6666 Kolla, s. 663 7666 visa/euro Hljóðfæri Píanó til sölu Gratie píanó til sölu með stól. Uppl. í síma 865 1601 / ragnartrausti@gmail.com. Atvinnuhúsnæði Til leigu 20-60 fm iðnaðarpláss Staðsett 20 mínútur frá Hafnarfirði. Upplýsingar í síma: 894-0431. Sumarhús Rotþrær frá 2300 l, siturlagnir, leiðbeiningar, heildarlausnir. Vatnsgeymar staðlaðar stærðir. Jarðgerðarílát/moltukassar. www.borgarplast.is Mosfellsbæ, s. 561 2211. Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Sumarhús - orlofshús Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratugareynsla. Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Upp. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bókhald C.P. þjónusta. Veiti bókhalds-, eftirlits- og rannsóknarvinnu ýmiskonar. Hafið samband í síma 893 7733. C.P. þjónusta. Veiti bókhalds-, eftirlits- og rannsóknarvinnu ýmiskonar. Hafið samband í síma 893 7733. Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, 4WD. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Húsviðhald Þak og utanhússklæðningar og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. Kaupi gamla mynt og seðla Óska eftir að kaupa gamla mynt og seðla. Frá stórum og smáum myntsöfnum. Kaupi gullmynt og minnispeninga frá Seðlabankanum. Sigurður: 825 1016. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl ✝ Reynir Guð-mundsson fædd- ist 11. desember 1935. Hann lést á St. Jósefsspítala 25. júní sl. Foreldrar hans voru Guðmundur Símonarson, f. 24. mars 1912, d. 1989, og Guðbjörg Guð- mundsdóttir, f. 6. sept. 1912, d. 2008. Systkini Reynis: Gréta, Heiður og Símon og er Heiður látin. Börn Reynis eru Unnur, f. 1962, ógift og barnlaus, búsett í Reykjavík, og Elvar, f. 1965, gift- ur og á tvo syni, búsettur á Ísa- firði. Reynir giftist 10. október 1970 J. Mar- gréti Haraldsdóttur frá Haga í Gnúpver- jahr. f. 27. apríl 1937, d. 29. júlí 1992. Reynir útskrif- aðist sem stýrimaður með skipstjórn- arréttindi vorið 1960. Hann vann mestan hluta ævinn- ar hjá Skipadeild SÍS, sem síðar varð Samskip, bæði sem stýrimaður og skipstjóri og síðast sem vaktmaður. Útför Reynis hefur farið fram í kyrrþey. Hann var jarðsettur í Garðakirkjugarði. Hvar á að byrja og hvar á að enda? Okkar kynni byrja þegar þú kynnist konunni þinni, því þá bjuggum við saman á Kleppsveg- inum, nánar systur og unnum sam- an á sumrin. Kynnin af þessum unga stýrimanni leiddu til trúlof- unar og svo giftingar. Hann flutti á Kleppsveginn, en ég flutti það- an út, þá sjálf í íbúðarkaupum og föstu sambandi. En í þínum huga var ég alltaf þessi afleggjari sem þú kynntist um leið og Möggu konunni þinni og þú vildir allt fyrir mig og mín börn gera, hringdir sjálfur í mig þar sem ég bjó á Ísafirði ásamt manni og börnum og sagðir mér að þið væruð búin að selja á Kleppsveg- inum og flutt í einbýlishús í Garðabæ og þar væri gestaher- bergi fyrir mig og mína og það þáðum við. Eftir að við fluttum aftur til Reykjavíkur vildu börnin mín alltaf fara til Reynis og Möggu frænku á sunnudögum, þótt þú hafir oft verið úti á sjó, þá var setningin sú sama: Reynir og Magga frænka. Þau voru ekki þeirri gæfu gædd að eiga barn saman, en fyrir átti Reynir dótt- urina Unni og soninn Elvar. Því miður hef ég ekki kynnst börnum hans, en Unni kynntist ég á síð- asta ári í veikindum Reynis og verkar hún traust, stöðug og elskuleg stúlka og hefði ég viljað kynnast þeim fyrr. Um árabil var það umsamið að á aðfangadagskvöld þegar við værum búin að borða og taka upp pakkana þá kæmum við til þeirra í ís og kvöldkaffi, þá biðu þar jóla- pakkar og útlenskt nammi og bæði börn og fullorðnir með ánægjusvip. Og þetta muna þau ennþá. Þegar dóttir mín Margrét Ásta fermdist og ég hafði ekki pláss fyrir veisluna, þá sögðu Reynir og Magga: „Hér er nóg pláss, hafðu hana í okkar húsi,“ og það var gert. Reynir varð ungur skipstjóri hjá Skipadeild SÍS, hann var traustur maður, stóð fast í báða fætur og vildi hvorki svindl né svínarí, happasæll á sínu Hamra- og Dísarfelli án nokkurra áfalla. Ég spurði hann þegar bíómynd- in um Titanic var sýnd hér hvort hann vildi koma með mér í bíó, svar hans var nei, það eru nógu margir vinir mínir komnir niður á hafsbotn, ég vil ekki sjá þessa mynd. Þó var hann hættur á sjón- um. Hann var tilfinningamaður en var ekki að flíka þeim og ef enginn má sjá tilfinningar þá er svo auð- velt að grípa til grímunnar og jafn- vel að sigla í land. Þú veist það, Reynir minn, að við ræddum margt og vorum ekki alltaf sammála, en niðurstaðan var: „Guði sé lof að all- ir eru ekki eins.“ Í lokin vil ég þakka þér fyrir alla þá ást og umhyggju sem þú sýndir þinni eiginkonu í hennar erfiðu veikindum, hættir sem skipstjóri, kemur í land til að sinna henni sem enginn hefði getað gert betur en þú. Við þökkum þá tryggð sem þú hefur haldið við hennar fjölskyldu og þá ást og umhyggju sem þú hef- ur haldið við mig og mín börn og á síðastliðnum vikum þegar ég heim- sótti þig var ég spurð: „Ert þú þessi Gunna sem ég var að hringja í fyrir Reyni?“ Reynir minn, þakka þér allt og allt, minningin lifir, sjáumst síðar. Kveðja frá börnum mínum, Möggu Ástu og Nonna B. Guðrún St. Haraldsdóttir. Reynir Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.