Morgunblaðið - 15.07.2010, Page 35

Morgunblaðið - 15.07.2010, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2010 Hljómsveitin Porterhouse, sem samanstendur af systkinunum Finni Bjarka og Þorbjörgu Tryggvabörnum ásamt syni Finns, Hilmari, gáfu ný- verið út diskinn Spinal Chords til styrktar Mænuskaðastofnun Ís- lands. Aðallag söfnunarinnar er lagið „the Day“, sem Hilmar samdi fyrir afa sinn, Tryggva Ingólfsson, en hann lamaðist frá hálsi og niður í slysi fyrir fjórum árum. „Sonur minn samdi lagið kvöldið sem afi hans slasaðist, en þá var hann aðeins 14 ára gamall. Þetta er í rauninni hans fyrsta lag,“ segir Finnur Bjarki, sem samdi lögin á disknum ásamt syn- inum. Hann segir stofnunina vera fjölskyldunni mjög hug- leikin eftir slysið, enda búi hún yfir góðum alþjóð- legum gagnagrunni sem nýtist sjúklingum og að- standendum þeirra. Þá segir Finnur einnig að fyrir stofnun hennar, árið 2007, hafi nánast engar upplýs- ingar verið að fá á íslensku. „Þegar fólk lendir í áfalli þá leitar það upplýsinga. Þegar pabbi slas- aðist fundum við ekkert nema á Christopher Ree- ves-síðunum í Bandaríkjunum. Hjá stofnuninni er hægt að finna svo margt í tengslum við mænu- skaða og eins upplýsingar um hvernig lífið er eftir mænuskaða.“ Að sögn Finns stendur Mænuskaðastofnun nú illa sökum niðurskurðar ríkisins og því sé söfnunin nauð- synleg. „Ríkið er búið að skera svo mikið niður til góð- gerðarmála, en það sá um að fjármagna þennan gagna- grunn. Nú er hann í hættu.“ Meðal annarra flytjenda á disknum Spinal Chords eru Pét- ur Örn Guðmundsson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Einar Ágúst, Shay Dillon, Nonni og Skúli úr Dikta, Óskar Þor- marsson úr Veðurguðunum/Fjallabræðrum og fleiri. Þeir sem vilja leggja þessu verðuga málefni lið geta hringt í síma 908-7070 og verða þá 3.000 kr. gjaldfærðar af síma- reikningi þess sem hringir. Til að fá diskinn Spinal Chords er nafn og heimilisfang lesið inn þegar hringt er og verður hann þá sendur viðkomandi að kostnaðarlausu. hugrun@mbl.is Mænuskaðastofnun í bráðri neyð Spinal Chords Þremenning- arnir vinna nú óeigingjarnt starf í þágu Mænuskaða- stofnunar. Tekið er við frjálsum framlögum á reikning Mænuskaðastofnunar 311-26-71030, kt. 411007-1030. Spænsku stórleikararnir Javier Bar- dem og Penélope Cruz gengu í það heilaga á Bahamas fyrr í mán- uðinum að viðstöddum nánustu ætt- ingjum og vinum. Þau hafa alla tíð haldið sambandi sínu fyrir utan sviðsljós fjölmiðla og því kemur eng- um á óvart að slúðurpressan vest- anhafs hafi ekki verið látin vita af brúðkaupi hjónakornanna. Athöfnin var látlaus, en Cruz klæddist sérhönnuðum brúðarkjól Johns Gallianos, góðvinar leikkon- unnar. Parið kynntist við tökur myndarinnar Jamón, Jamón, árið 1992, en byrjuðu ekki að rugla sam- an reytum fyrr en árið 2007. Hér er á ferðinni sannkallað ósk- arsverðlaunapar þar sem Bardem hlaut Óskarinn fyrir frammistöðu sína í myndinni No Country for Old Men, og Cruz hreppti Óskars- verðlaun fyrir leik sinn í mynd Woody Allens, Vicky Cristina Barcelona, sem skartar einnig Bar- dem sjálfum. Nýgift Bæði Bardem og Cruz eru stoltir Óskarsverðlaunahafar. Giftu sig í laumi á Bahamas Predators kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára Grown Ups kl. 5:45 - 10:30 LEYFÐ Knight and Day kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára The A-Team kl. 8 B.i. 12 ára Killers kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Sýnd kl. 8 og 10 (POWERSÝNING) Sýnd kl. 10:10Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:10 Sýnd kl. 4 og 6 Íslenska 3D Þú færð 5 % endurgreitt í Smárabíó, Háskólabíó og Borgarbíó SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI „The A-Team setur sér það einfalda markmið að skemmta áhorfendum sínum með látum, og henni tekst það með stæl. Ekta sumarbíó!” -T.V. - Kvikmyndir.is L.A Times USA Today Missið ekki af hasar gamanmynd sumarsins! Verkefni sem hann átti ekki að geta leyst Leyndarmál sem hún átti ekki að vita Núna þurfa þau að treysta á hvort annað POWE RSÝN ING Á STÆ RSTA DIGIT AL TJALD I LAN DSINS KL. 10 :00 T.V., Kvikmyndir.isS.V., MBL - News of the World - Timeout London - Boston Globe -bara lúxus Sími 553 2075 Bráðfyndin og hjartnæm frá byrjun til enda. Lang besta Shrek myndin og það eru engar ýkjur. - Boxoffice Magazine Sýnd kl. 4 Íslenska 2D Sýnd kl. 4, 6 og 8 Enska 3D Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum www.laugarasbio.is 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á gdu Aukakrónum!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.