Morgunblaðið - 15.07.2010, Blaðsíða 40
1904
1. febrúar - Hannes Hafstein verður fyrsti ráðherra Íslendinga. Íslend-
ingar fá heimastjórn og Stjórnarráð Íslands stofnað.
Júní - Fyrsti bíllinn, Thomsensbíllinn, kemur til landsins.
15. júlí - Margrét Hannesdóttir fæðist á Núpsstað.
September - Ísland kemst í símasamband við önnur lönd.
12. desember - Rafvirkjun Jóhannesar Reykdal í Hafnarfirði gangsett
og lýsti hún upp nokkur hús og tvö götuljós. Þetta var upphaf rafvæð-
ingar landsins.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Margrét Hannesdóttir frá Núpsstað
er 106 ára í dag. Hún fæddist 15.
júlí 1904 og er næstelst núlifandi Ís-
lendinga, Torfhildur Torfadóttir á
Ísafirði er aðeins eldri en Margrét
en Torfhildur fæddist 24. maí 1904.
„Ég ætla ekkert að halda upp á
afmælið, því það er ekkert stórt af-
mæli,“ sagði Margrét þegar Morg-
unblaðið ræddi við hana í gær. En
eru ekki öll afmæli hennar núorðið
stórafmæli?
„Ja, það segja krakkarnir en ég
segi annað. Ég held ekkert afmæli
nema þegar stendur á heilum eða
hálfum tug,“ sagði Margrét. „Ég
sagði krökkunum að ég ætlaði ekk-
ert að skipta mér af þessu. Eins og
þau vissu hélt ég upp á afmælið
mitt í fyrra þegar ég varð 105 ára
og það léti ég duga!“
Margrét býr enn í húsinu sem
hún flutti í árið 1941 ásamt mann-
inum sínum, Samúel heitnum Krist-
jánssyni sjómanni. Þau fengu lóð
við Langholtsveginn og byggðu hús-
ið. Margrét og Samúel giftust árið
1930 og eignuðust fimm börn. Sam-
úel dó árið 1965.
„Ég er líkamlega hraust og fylg-
ist alveg með,“ sagði Margrét. „Ég
elda handa mér. Ég vil heldur elda
matinn sjálf en fá hann annars stað-
ar frá á meðan ég get stjórnað hit-
anum á eldavélinni.“
Margrét sagðist sjóða sér kjöt og
kartöflur á sunnudögum en fisk og
kartöflur hina dagana. „Ég er ekk-
ert að steikja, er ekkert mikið fyrir
það. Hef heldur ekkert mikið uppá-
hald á grillmat og svoleiðis. Ég sýð
bara matinn.“
Margrét er elst tíu barna þeirra
Hannesar Jónssonar landpósts og
bónda og Þórönnu Þórarinsdóttur
húsfreyju á Núpsstað. Fjögur
systkinanna eru á lífi, auk Mar-
grétar eru það Jón, fæddur 1913,
Jóna Aðalheiður, fædd 1924, og
Ágústa Þorbjörg, fædd 1930. Filipp-
us bróðir þeirra dó 23. maí sl. og
var þá á 101. aldursári. „Það var allt
of fljótt sem hann fór, hann var
skemmtilegur,“ sagði Margrét um
Filippus heitinn.
Margrét sagðist ekki hafa farið
austur að Núpsstað í sumar en hún
fór í fyrrasumar og var þá við ár-
lega guðsþjónustu sem haldin er í
bænhúsinu á Núpsstað um
verslunarmannahelgina.
„Það er ekkert stórafmæli“
Margrét Hannes-
dóttir frá Núps-
stað 106 ára í dag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hress „Ég vil heldur elda matinn sjálf en fá hann annars staðar frá á meðan ég get stjórnað hitanum á eldavélinni.“
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 196. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Nían nægði ekki
2. Konur stunda kynlíf í klæðum
3. Setti dóttur sína í þvottavél
4. Skeytti engu um upptökubúnað
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sænsk/breska hljómsveitin Fan-
farlo er væntanleg til landsins til að
spila á Bræðslunni á Borgarfirði
eystri um aðra helgi. Tónlistin þeirra
hefur heyrst í vinsælum sjónvarps-
þáttum eins og Grey’s Anatomy og
House og hljómsveitin vinnur nú
hörðum höndum að breiðskífu númer
tvö. »32
Reyna að semja aðra
plötu í ferðinni
Gjörningurinn
Domains of Joyful
Degradation verður
framinn í dag kl. 17
á Geirsgötu 11 og er
hann hluti af list-
viðburðinum Villa
Reykjavík. Gjörning-
urinn er á vegum Kling & Bang-
gallerísins og stýrt af myndlist-
armanninum Kolbeini Huga Hösk-
uldssyni. Fjöldi listamanna tekur þátt
í honum.
Domains of Joyful
Degradation
Hljómsveitin Hjálmar er nýlega
komin heim frá Noregi þar sem hún
spilaði á tónlistarhátíðinni Træna í
Norður-Noregi. Skipuleggjendur há-
tíðarinnar hafa falast eftir kröftum
Hjálma um árabil og hlutu þeir frá-
bærar viðtökur.
Hjálmar munu
snúa aftur til Nor-
egs 22. júlí til að
spila á Vinjerock-
hátíðinni í Jötun-
heimum, en uppselt
er á viðburðinn.
Reggísveitin Hjálmar
slær í gegn í Noregi
VEÐUR
Ólafur Stefánsson, fyrirliði
íslenska landsliðsins í
handknattleik, mun gang-
ast undir speglunaraðgerð
á hægra hné hérlendis í
dag. Ólafur hefur beðið í þó-
nokkurn tíma eftir rétta
tímanum til að fara í að-
gerðina en hann lék ekki
með íslenska landsliðinu í
æfingaleikjum í síðasta
mánuði. Keppni í þýsku
deildinni hefst í lok ágúst-
mánaðar. »1
Ólafur Stefáns-
son í aðgerð
KR-ingar taka á móti Karpaty Lviv frá
Úkraínu í Evrópudeild UEFA í fótbolta
á KR-vellinum í kvöld. Logi Ólafsson,
þjálfari KR, segir að Karpaty sé án
efa mjög gott lið en sínir menn hafi
undirbúið sig mjög vel og ætli að
freista þess að ná hagstæðum úrslit-
um í heimaleiknum. »3
Úkraínumenn á KR-
vellinum í kvöld
Knattspyrnumaðurinn efnilegi Guð-
laugur Victor Pálsson var himinlifandi
á þriðjudag þegar hann frétti að hann
væri í aðalliðshópi Liverpool sem er nú
nýkominn til Sviss í æfingaferð. Guð-
laugur ætlar að nýta dagana vel til að
sanna sig fyrir Roy Hodgson, nýja
stjóranum, og fá í kjölfarið nýjan
samning við félagið en núgildandi
samningur rennur brátt út. »1
Guðlaugur Victor vill
sanna sig í Sviss
ÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Skýjað með köflum eða bjartviðri og sums staðar síðdegisskúrir,
einkum um landið sunnanvert. Vaxandi norðaustanátt suðaustan til. Hiti 8 til 18 stig.
Á föstudag Norðaustan 5-13 m/s, hvassast austast á landinu og dálítil væta, en yfirleitt
þurrt og bjart sunnan- og vestanlands. Hiti 13 til 19 stig, hlýjast sunnanlands.
Um helgina Hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað og lítilsháttar væta NA- og A-til. Víða
bjartviðri annars staðar, líkur á stöku skúrum við suðurströndina. Hiti 10 til 19 stig.