Fréttablaðið - 14.12.2011, Page 1

Fréttablaðið - 14.12.2011, Page 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl - júní 2011 LÖGREGLUMÁL Tveir starfsmenn tveggja mismunandi símafyrir- tækja eru taldir hafa látið grunaða menn í rannsóknum hjá embætti sérstaks saksóknara vita að verið væri að hlera síma þeirra. Heim- ildir Fréttablaðsins herma að emb- ættið hafi lagt fram tvær kærur til lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu (LRH) vegna þessa. Starfsmennirnir liggja undir grun um að hafa látið aðila sem eru til rannsóknar vegna meintra brota Milestone og annars ónefnds félags vita að fyrirtækjunum sem þeir starfa hjá hefði borist beiðni frá lögreglu um að símar þeirra yrðu hleraðir. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins vaknaði fyrst upp grunur innan embættis sérstaks saksókn- ara sumarið 2009. Þá fékk maður sem var til rannsóknar í tengslum við málefni Sjóvár og Milestone vísbendingar um að sími hans væri hleraður. Sérstakur saksókn- ari kærði málið til LRH þar sem embættið gat ekki rannsakað það sjálft. Í janúar 2010 vöknuðu síðan grunsemdir um að annar einstak- lingur sem var til rannsóknar hjá embættinu hefði verið látinn vita að sími hans væri hleraður. Talið var að háttsettur starfsmaður innan Skipta-samstæðunnar, sem á meðal annars Símann, hefði látið hinn grunaða vita um hlerunina. Viðkomandi starfsmaður var yfirheyrður hjá LRH vegna máls- Nýr tilboðsbæklingur í dag Tax free 20,32% afsláttur á leikföngum Jólaleikur BYKO! Vinningshafi gærdagsins er Gunnar G uð björnsson Sjá nánar á www.byko.is Nýr vinningur á hverjum degi Matar- og kaffistell - 12.990 kr. Vinningur dagsins: dagar til jóla 10 Opið til 18.30 Nýtt kortatímabil Miðvikudagur skoðun 18 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Lífeyrissparnaður 14. desember 2011 292. tölublað 11. árgangur Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457 DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerískgæðavara Amerískgæðavara Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Fjölnota nuddpúðiShiatsu nudd, titringur oginfrarauður hiti. Hentar vel fyrir bak,herðar og fótleggi Fjarstýring 17.950 kr. Gefðu góða gjöf B úist er við að mikill fjöldi ferðamanna sæki hátíðarhöld á Suður-heimskautslandinu í dag og á næstunni í tilefni þess að öld er liðin síðan norski landkönn-uðurinn Roald Amundsen náði manna fyrstur á suðurpólinn. Gunnar Egilsson pólfari hefur verið önnum kafinn við undirbún-ing þeirra. „Ég hef verið að yfirfara og gera við tvo sex hjóla Ford Econoline í eigu fyrirtækisins ANI, sem sér um að fljúga með farþega, eldsneyti og búnað á suðurskautið frá Punta Arenas í Síle. Bílarnir sjálfir verða not-aðir til að flytja farþega áísfl b suðurpólnum,“ upplýsir Gunnar og getur þess að á meðal farþega verði sjálfur Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, og hans fylgdarlið. „Norðmenn vilja heiðra sinn mann og þarna verða nokkrir af helstu fyrirmönnum þjóðarinnar samankomnir.“Gunnar hefur verið við störf á suðurheimskautinu síðan um miðjan nóvember og var ásamt fleiri methöfum boðið sérstak-lega að vera viðstaddur Amund-sen-hátíðina í dag, en eins og kunnugt er setti Gunnar hraða-met á suðurheimskautinu árið 2005 þegar hann ók á sérútbúnsex hjóla F d Gunnar segist vera upp með sér að hafa verið boðið á hátíðina en ákvað að afþakka, meðal ann-ars til að geta sinnt verkefnum heima, og verður því víðs fjarri góðu gamni í dag. „Svo var mig líka farið að langa aftur heim,“ viðurkennir hann fúslega. „Hef farið þrisvar sinnum og langaði ekki að þvælast lengur þarna. Þetta var orðið fínt, alla vega í bili. Enda er heima best,“ segir hann. Gunnar bætir við að hátíðar-höldunum ljúki formlega 12.janúar á næsta á i Gerði bíl Stoltenbergs kláran fyrir suðurpólinn Gunnar Egilsson pólfari yfirfór bíl sem mun flytja forsætisráðherra Noregs um suðurheimsskautið. Jólavættir Reykjavíkur er yfirskrift jólaborgarinnar Reykjavík 2011 sem Höfuðborgarstofa sér um að skipuleggja. Hugmyndin er að upphefja íslenska sagnahefð og tengja íbúa borgarinnar við gesti hennar í gegnum samtöl og sögur. Sjá nánar á www.visitreykjavik.is/ SÉREIGNARSPARNAÐURMIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2011 Kynningarblað Sparnaður, lífeyrir, tryggingar, framtíðin, krónur, evrur, hagnaður. V iðbótarlífeyrissparnaður er enn þá einn besti kosturinn sem fólk getur valið í sparnaði. Það mun ekki breytast þrátt fyrir þær breytingar sem boðaðar hafa verið núna um ára- mótin,“ segir Lárus Páll Pálsson, verk- efnastjóri lífeyrismála hjá Íslandsbanka. „Einn helsti kosturinn er auðvitað mót- framlag vinnuveitanda, sem er bund- ið í f lesta kjarasamninga, og það mun ekki breytast við þessar aðgerðir ríkis- stjórnarinnar.“ Lárus segir að viðbótar- lífeyrissparnaður njóti áfram ákveðinna skattafríðinda þrátt fyrir breytingarn- ar, til dæmis sé ekki greiddur fjármagns- tekjuskattur af ávöxtuninni og í dag sé sá skattur 20%. „Í ljósi þess að séreign- arsparnaður er yfirleitt til fjölda ára er ávöxtun alla jafna talsverður hluti af sparnaðinum og getur það skipt máli varðandi lokaniðurstöðu. Þegar þess- ir kostir eru teknir með í reikninginn er það ekki nokkur spurning að allir launa- menn sem á annað borð geta lagt fyrir ættu að hefja viðbótarlífeyrissparnað og þeir sem eru nú þegar að spara ættu að halda ótrauðir áfram þrátt fyrir fyrir- hugaðar breytingar af hálfu ríkisstjórn- arinnar.“ En eru það rétt skilaboð sem verið er að senda með því að draga úr kostum þessa sparnaðar? „Við teljum að mikil- vægi sparnaðar hafi aldrei verið meira, sérstak lega ef l í feyrissjóðir sjá ek k i fram á að ná 3,5% raunávöxtunarkröfu, þá þurfa launþegar að byggja upp sinn eigin sparnað til að koma til móts við þær aðgerðir sem óhjákvæmilega þarf að grípa til ef sú staða verður viðvarandi. Við álítum einnig að það þurfi að auka fjárfestingu í landinu og sparnaður er í sjálfu sér fjárfesting sem ætti alla jafna að koma at- vinnulífinu til góða ef rétt er að henni staðið.“ Hvers vegna ætti að spara í viðbótarlífeyrissparnað? „Við teljum að mikilvægi sparnaðar hafi aldrei verið meira,” segir Lárus Páll Pálsson, verkefnisstjóri lífeyrismála hjá Íslandsbanka MYND/GVA HVER ER BESTI KOSTURINN? „Lífeyrisþjónusta Íslandsbanka býður upp á fjölmargar fjárfestingarleiðir þar sem viðskiptavinir geta valið allt frá verðtryggðum bankareikningum yfir í fjárfestingarleiðir með ríkisskuldabréfum og hlutabréfum,“ segir Lárus Páll og heldur áfram. „Við leggjum áherslu á að leiðbeina viðskiptavinum okkar og veita einstaklingsbundna þjónustu þar sem m.a. er kannað viðhorf viðkomandi til áhættu og síðan farið yfir vænlegar leiðir til þess að mæta væntingum hvers og eins. Innistæða á lífeyrisreikningum sveiflast til dæmis mjög lítið nema í takt við verðbólgu en aðrar fjárfestingarleiðir sveiflast meira. Viðskiptavinir geta einnig blandað fjárfestingarleiðum saman og sett þann hluta sem þeir vilja lágmarka áhættu með inn á lífeyrisreikning, en sett svo ákveðinn hluta í áhættumeiri fjár- festingarleiðir sem sveiflast meira en geta hugsanlega gefið meira af sér.“ HVAÐ Á AÐ GERA EF SKATTAFRÁDRÁTTURINN VERÐ UR LÆKKAÐUR ÚR 4% Í 2%? Lárus segir að mikilvægt sé að spara þrátt fyrir þessar breytingar. „Það þarf að hafa í huga að þó að lækkunin nemi 2% þarf að leggja til hliðar 2,5% af brúttó- launum í reglulegan sparnað til þess að ná sama árangri vegna mismunandi skattareglna á sparnaðarformunum. Sem dæmi lækkar má aðarlegur sparnaður einstaklings sem er með 300.000 kr. í heildarlaun um 6.000 kr. við þessar breytingar en til þess að ná sama árangri við 67 ára aldur þarf hann að leggja um 4.400 kr. af útborguðum launum til hliðar miðað við sambærilega ávöxtun.“ Mikið álag Páll Óskar kominn með sinaskeiðabólgu eftir stífa törn við áritanir á plötum. fólk 42 BÓKMENNTIR Nýjasta bók Yrsu Sigurðar- dóttur, Brakið, hefur velt Einvíginu eftir Arnald Indriðason úr efsta sæti metsölulista bókaútgefanda sem Rann- sóknarsetur verslunarinnar tekur saman. Þetta er í annað sinn á þrem- ur vikum sem Yrsu tekst að koma bók sinni á toppinn en Arnaldur hefur átt þar fast sæti undanfarin ár. Bækur þeirra verða samanlagt prentaðar í 45 þúsund eintökum og ef að líkum lætur munu Íslendingar fjárfesta í þessum tveimur glæpasögum fyrir 215 millj- ónir íslenskra króna fyrir þessi jól. Yrsa var auðvitað kampakát með niðurstöðuna þótt hún vilji lítið gera úr samkeppninni við Arnald. „Hún er ekki á milli okkar, maður verður fyrst og fremst að hugsa um sjálfan sig. Hver bók er einstakt verk og þó að það gangi vel núna er ekki öruggt að það gangi vel næst.“ - fgg / sjá síðu 42 Yrsa Sigurðardóttir veltir Arnaldi Indriðasyni úr toppsæti sölulistans í annað sinn: Harður slagur um toppsætið YRSA SIG- URÐARDÓTTIR ARNALDUR INDRIÐASON Grunaðir vissu um hleranir Starfsmenn tveggja símafyrirtækja eru grunaðir um að hafa látið sakborninga vita að símar þeirra hafi verið hleraðir. Sérstakur saksóknari hefur kært tvö slík tilvik til lögreglu. Annað málið snýr að Milestone. SNJÓKOMA eða éljagangur norðanlands en nokkuð bjart sunnan til. Strekkingsvindur eða allhvasst NV-lands, á annesjum N-lands og allra austast. VEÐUR 4 0 0 0 1 1 Samkvæmt upplýsingum, sem símafyrirtækin létu Fréttablaðinu í té í byrjun nóvember vegna umfjöllunar um símahleranir, á aðeins lítill hópur tækni- manna, valinn af öryggisstjóra, að hafa vitneskju um það hvaða símanúmer er verið að hlera á vegum lögreglu. Beiðni um hlerun berst frá lögreglunni inn á lokað vefsvæði, sem eingöngu þessi hópur hefur aðgang að. Tækni- mennirnir undirrita allir trúnaðaryfirlýsingu vegna þessara starfa sinna og eru því bundnir strangri þagnarskyldu. Stjórnendur símafyrirtækjanna eru ekki í hópnum og eiga ekki einu sinni að vita hverjir eru í honum, sögðu fyrirtækin. Ströng þagnarskylda ins. Hann hefur látið af störfum. Rannsókn á meintum brotum sem áttu sér stað innan Milestone hefur staðið yfir frá því snemma árs 2009. Hún snýst um hvort helstu stjórnendur Milestone og Sjóvár, sem var dótturfélag þess, hefðu gerst brotlegir við lög. Fréttablaðið greindi frá því í nóvember að rannsókn væri lokið í málinu. Það er nú inni á borði sak- sóknara sem þarf að ákveða hvort ákært verði á grundvelli rann- sóknarinnar. - þsj, jss Grimmdarverk í Belgíu: Minnst sex látnir og yfir hundrað sárir BELGÍA, AP Maður vopnaður handsprengjum og skotvopnum banaði fimm í belgísku borginni Liège í gær áður en hann svipti sig lífi. Í gærkvöldi hafði verið staðfest að minnst 120 til við- bótar væru sárir eftir árásina, sumir svo illa að þeim væri vart hugað líf. Maðurinn varpaði hand- sprengjunum að strætóskýlum við fjölfarið torg í borginni áður en hann hóf skothríð. Belgísk yfirvöld fullyrða að hann teng- ist ekki hryðjuverkasamtökum. Fyrstu fregnir hermdu að þrír hefðu látist, 75 ára kona, fimmtán ára piltur og sautján ára stúlka. Í gærkvöldi greindi belgíska sjónvarpsstöðin 7sur7 svo frá því að tvítugur maður og tæplega tveggja ára stúlka hefðu látist af sárum sínum. Morðinginn, Narodine Amradi, dæmdur ofbeldismað- ur af pakistönskum ættum, var búsettur í Liège. - sh, gb / sjá síðu 6 Á VETTVANGI VOÐAVERKS Lögreglumenn rannsaka vettvang árásarinnar og skrásetja vandlega það sem fyrir augu ber. Á milli þeirra sést lík sem búið er að hylja með ábreiðu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Hannes áttræður Hannes Pétursson skáld fagnar áttatíu ára afmæli í dag. menning 28 Með gull í höndunum Nýkrýndir Norðurlanda- meistarar unglinga í sundi fá hrós frá frönskum þjálfara sínum. sport 39

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.