Fréttablaðið - 14.12.2011, Síða 6

Fréttablaðið - 14.12.2011, Síða 6
14. desember 2011 MIÐVIKUDAGUR6 VIÐSKIPTARÁÐ ÍSLANDS ICELAND CHAMBER OF COMMERCE ÖNNUR LEIÐ TIL AFNÁMS GJALDEYRISHAFTA MORGUNVERÐARFUNDUR FIMMTUDAGINN 15. DESEMBER 2011 KLUKKAN 8.15-10.00 Á GRAND HÓTEL REYKJAVÍK (GULLTEIGUR) Ný áætlun um afnám gjaldeyrishafta Gylfi Magnússon, dósent við viðskiptafræðideild HÍ Álitaefni við afnám hafta Páll Harðarson, forstjóri NASDAQ OMX Iceland Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur Rökfræði áætlunarinnar um losun gjaldeyrishafta Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri Umræður og álit: Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, Björn Rúnar Guðmundsson, skrifstofustjóri efnahagsmála í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur Stjórn umræðna: Tanya Zharov, framkvæmdastj. lögfræðisviðs Auðar Capital Fundarstjóri: Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands Nýrri skýrslu um áhrif gjaldeyrishafta verður dreift á fundinum Á fundinum verður kynnt tillaga vinnuhóps sérfræðinga úr röðum atvinnulífs og háskóla að nýrri áætlun um afnám gjaldeyrishafta. Áætlunin miðar að því að losa höft á um það bil einu ári, án þess að verulegur þrýstingur verði á gjaldeyrismarkað og kostnaði við afnámið verði haldið í lágmarki - Skráning á www.vi.is Aðgangseyrir er 2.500 kr. með morgunverði sem hefst kl. 8.00 BELGÍA Rúmlega þrítugur maður, vopnaður handsprengjum og skot- vopnum, varð að minnsta kosti þremur að bana á fjölförnu torgi í borginni Liège í Belgíu um hádeg- isbil í gær áður en hann svipti sjálfan sig lífi. Hann byrjaði á að varpa þrem- ur handsprengjum á strætisvagna- skýli og hóf síðan skothríð. Að sögn vitna beindi hann síðan byssu að sjálfum sér og svipti sig lífi. Lög- regla sagði þó síðdegis í gær ekki ljóst hvort hann hafi svipt sig lífi viljandi eða hvort hann hafi orðið sjálfum sér að bana fyrir slysni. Hann var enn með nokkrar hand- sprengjur á sér þegar hann lést. Ein 75 ára kona lét lífið ásamt tveimur unglingum, fimmtán ára pilti og sautján ára stúlku. Þau voru nýkomin úr prófi. Tvísýnt var einnig um líf tveggja ára stúlku- barns sem varð fyrir árásinni. Að sögn lögreglu særðust að minnsta kosti 123 að auki, sumir það alvarlega að óvíst er hvort þeir lifi af. Árásin var gerð á torginu Saint-Lambert, sem er í hjarta borgarinnar. Árásarmaðurinn hét Narodine Amrani. Hann var 33 ára gamall, ættaður frá Pakistan en búsettur í Liège. Þar hafði hann setið í fang- elsi fyrir brot sem tengdust fíkni- efnum, skotvopnum og kynferðis- legu ofbeldi. Fulltrúi belgíska innanríkis- ráðuneytisins sagði í gær að Amr- ani tengdist ekki hryðjuverkasam- tökum, en hann átti að mæta fyrir rétt síðar í gær. Fjöldi vegfarenda hljóp inn í nærliggjandi verslanir þegar árás- irnar hófust eða inn á fornminja- safn rétt hjá þar sem fólk komst í skjól. Lögreglan girti miðborgina af og rýmdi götur, þar á meðal jóla- markað sem er skammt frá árás- arstaðnum. Einnig var komið upp aðstöðu til að hlynna að hinum særðu, meðan beðið var eftir að hægt yrði að flytja þá á sjúkrahús. Lögreglan sagði ekkert hæft í fréttum, sem bárust fyrst eftir árásina, um að maðurinn hefði ekki verið einn að verki. Fjöl- miðlar héldu því fram um tíma að einn eða fleiri árásarmenn hefðu flúið af vettvangi og óvíst hvar þeir væru niðurkomnir. Lögregl- an sagði heldur ekkert hæft í því að árásin hefði tengst flótta úr dómshúsi sem er nálægt árásar- staðnum. gudsteinn@frettabladid.is höfðu fund- ist sárir eftir árásina í gær- kvöldi, auk þeirra fjögurra sem létust. 123 Kastaði sprengjum á strætisvagnaskýli Að minnsta kosti fjórir létu lífið á fjölförnu torgi í belgísku borginni Liège í gær, þegar 33 ára gamall maður hóf árás á fólk með sprengjur og byssur að vopni. Að sögn lögreglu virðist sem maðurinn hafi verið einn að verki. LÖGREGLA Á VETTVANGI Stórt svæði í miðborg Liège var girt af í kjölfar árásarinnar. NORDICPHOTOS/AFPÖRYGGISMÁL Þrjú þúsund sjómenn hafa sótt Slysavarnaskóla sjó- manna á árinu 2011. Aldrei hafa jafn margir sótt skólann og í ár. Þá miklu aukningu sem varð á aðsókn í skólann frá fyrri árum má að mestu leyti rekja til örygg- isfræðsluskyldu sem tók gildi fyrir smábáta á árinu 2011. Löggjafinn hefur sett reglur um að allir sem stunda sjó í atvinnuskyni skuli sækja örygg- isfræðslu ásamt endurmenntun á fimm ára fresti. Nemendafjöldi við Slysavarnaskóla sjómanna hefur að sama skapi vaxið jafnt og þétt í gegnum árin. - shá Fræðsluskylda skilar árangri: 3.000 sjómenn í slysavarnaskóla ÆFING Mikill árangur hefur náðst í öryggismálum sjómanna með tilkomu skólans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FRAKKLAND, AP Dominique de Villepin, fyrrverandi forsætis- ráðherra Frakklands, ætlar að bjóða sig fram gegn Nicolas Sar- kozy í forsetakosningum í vor. Villepin er fyrrverandi flokks- bróðir Sarkozys en býður sig fram á eigin vegum með stuðn- ingi eigin stjórnmálaflokks, Ein- huga lýðveldis, sem hann stofnaði sumarið 2010. Honum er þó ekki spáð miklum árangri enn sem komið er. Frambjóðandi Sósíalistaflokks- ins er François Hollande. - gb Fyrrverandi forsætisráðherra: Býður sig fram gegn Sarkozy STANGVEIÐI Verð á veiðileyfum í laxveiðiár á Kólaskaga í Rúss- landi verður 5 til 30 prósent- um lægra næsta sumar en var í sumar sem leið. Þetta kemur fram á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur. „Söluaðilar eru að aðlaga verð sín að breyttum kaupmætti við- skiptavina, sem að mestu koma frá Evrópu og Bretlandseyjum,“ segir svfr.is um ástæðu lækkun- arinnar í Rússlandi. „Veiðileyfa- salar þar í landi óttast verulega það efnahagslega umrót sem á sér stað beggja vegna Atlants- hafsins.“ Leiga fyrir veiðirétt í nokkr- um íslenskum ám hefur aftur á móti hækkað í nýlegum útboðum og veiðiréttareigendur hafa sagt svigrúm til meiri hækkana. - gar Búast við falli í kaupmætti: Rússar lækka laxveiðileyfin HILMAR HANSSON Íslenskir veiðimenn eru hagvanir á Kólaskaga. FASTEIGNIR Alls var 105 kaupsamn- ingum um fasteignir þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku, 2. til 8. desember, og heild- arvelta nam 3,1 milljarði króna. Á sama tímabili á síðasta ári var 81 kaupsamningi þinglýst og heildarvelta nam 2,6 milljörðum. Meðalupphæð á hvern kaupsamn- ing lækkaði hins vegar, úr 32,6 milljónum króna á samning í 29,6 milljónir. Taka skal fram að það er ekki lýsandi fyrir meðalverð eigna þar sem fleiri en ein eign getur verið á einum samningi. - þj Fasteignamarkaður í vikunni: Fleiri kaupsamn- ingar en í fyrra Fá ekki sandspyrnu í námu Kvartmíluklúbburinn fær ekki að nota Undirhlíðarnámu í Hafnarfirði til keppnishalds í sandspyrnu. Vatns- veitustjóri benti skipulagsnefnd bæjarins á að aðeins eru fimm metrar niður á grunnvatn í nyrsta hluta námunnar. Bærinn ætlar þó að ræða við Kvartmíluklúbbinn um aðrar mögulegar staðsetningar. HAFNARFJÖRÐUR EFNAHAGSMÁL Tæpir 17 milljarðar hafa sparast í vaxtagjöld á því að ná fjárlagahallanum niður. Hann nam hæst tæpum 216 milljörðum árið 2008 en er nú kominn niður í tæpa 50 milljarða króna. Þetta kemur fram í tölum frá fjármála- ráðuneytinu sem Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar, vitnaði í á Alþingi í gær. „Þetta sýnir hvað þessi mikla áhersla á að ná fjárlagahallanum niður getur skipt miklu máli. 17 milljarðar eru nálægt þeirri upp- hæð sem við setjum í alla háskóla á einu ári og svipuð upphæð sem Fjárlagahallinn hefur minnkað um tæpa 170 milljarða á þremur árum: Ríkið sparar 17 milljarða í vaxtagjöld Uppsafnaður vaxtasparnaður vegna minni halla* 5% 5% 5% Halli 2008 216 Halli 2009 139,3 76,7 Halli 2010 123,3 92,7 Halli 2011 47,3 168,7 Vaxtasparnaður 3,835 4,365 8,435 Samtals: 16,905 *Í MILLJÖRÐUM KRÓNA fer í alla framhaldsskóla á einu ári,“ segir Skúli. Frumvarp um ráðstafanir í ríkisfjármálum, bandorminn svo- kallaða, var tekið til annarrar umræðu á Alþingi í gær. Umræð- ur stóðu enn yfir þegar Fréttablað- ið fór í prentun. Efnahags- og við- skiptanefnd hefur lagt til ýmsar breytingar á frumvarpinu. - kóp KJÖRKASSINN Fylgdist þú með íslenska kvennalandsliðinu í handbolta á heimsmeistaramótinu? JÁ 60,4% NEI 39,6% SPURNING DAGSINS Í DAG: Eyðir þú meiru í jólagjafir í ár en í fyrra? Segðu skoðun þína á visir.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.