Fréttablaðið - 14.12.2011, Page 22
14. desember 2011 MIÐVIKUDAGUR22
Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir
og amma,
Álfheiður Jónasdóttir
Aðalgötu 25, Ólafsfirði,
sem lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 5. desember,
verður jarðsungin frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn
17. desember kl. 14.
Jakob Ágústsson
Sigurbjörn Jakobsson Regína Vilhjálmsdóttir
Hafsteinn Jakobsson Birgitta Guðjónsdóttir
Ruth Jakobsdóttir Rúnar Helgi Kristinsson
og barnabörn.
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Signý Thoroddsen
sálfræðingur, Álfheimum 62,
andaðist á Líknardeild Landakotsspítala 11. des-
ember. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju
mánudaginn 19. desember kl. 13.00.
Bergljót Njóla Jakobsdóttir
Ármann Jakobsson
Sverrir Jakobsson Æsa Guðrún Bjarnadóttir
Katrín Jakobsdóttir Gunnar Sigvaldason
og barnabörn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Okkar ástkæri sonur, faðir, tengda-
faðir, unnusti, bróðir og mágur,
Ragnar Leifur
Þrúðmarsson
rafvirki, Hoffelli, Hornafirði,
andaðist föstudaginn 9. desember. Útför hans verður
gerð frá Hoffellskirkju laugardaginn 17. desember.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á að leyfa Hoffellskirkju að njóta
þess.
Hólmfríður Leifsdóttir Þrúðmar Sigurðsson
Snæbjörn Sölvi Ragnarsson
Þrúðmar Kári Ragnarsson Waraporn Chanse
Hildur Björg Ragnarsdóttir Heiðar Ingi Eggertsson
Gunnþóra Gunnarsdóttir
Þrúðmar Þrúðmarsson Ingibjörg Æ. Steinsdóttir
Jóhanna Lilja Þrúðmarsdóttir Sigurbjartur Pálsson
Rúnar Þrúðmarsson Erna Hlín Þórðardóttir
Elsku frænka okkar,
Anna Sigurbjörg
Tryggvadóttir
Sólvöllum 17, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn
16. desember kl. 13.30.
Systrabörn
Hreinn Gunnlaugsson
andaðist á Dvalarheimilinu Felli hinn 4. desember sl.
Útför verður frá Fossvogskapellu föstudaginn
16. desember næstkomandi kl. 15.00.
Þuríður Ragnarsdóttir
Gullsmiðurinn Stefán Bogi Stefáns-
son opnaði verslunina Metal design á
Skólavörðustíg 2 fyrir skemmstu.
„Ég hef verið að smíða vörur úr
silfri og aðeins úr gulli að undanförnu
og þegar þetta húsnæði bauðst gat ég
ekki látið það fram hjá mér fara,“
segir Stefán, sem er með nokkrar
línur sem allar hafa skírskotun til
náttúrunnar. Ströndina vinnur hann
með nýstárlegum hætti. „Ég nota
krabbaskel til að forma æðótt munstr-
ið sem minnir á sporin sem öldurnar
skilja eftir sig í svörtum sandi,“ lýsir
Stefán. Af öðrum línum má nefna
lambagras, fjólu og sóley, sem bera
tilheyrandi munstur.
Stefán hefur starfað við gullsmíði
í þrjátíu ár og meðal annars smíðað
fjölda kirkjumuna. „Ég lærði hjá Sig-
mari Ó. Maríussyni hér heima en hélt
svo til náms í Danmörku þar sem ég
lagði sérstaka áherslu á kirkjumuni
eins og kertastjaka, könnur og vasa
og hef ég smíðað kaleika, oblátubox
og aðra muni fyrir einar fjörutíu
kirkjur.“ Stefán starfaði eftir nám hjá
gullsmiðnum Hans Hansen á Strikinu
um tíma áður en hann hélt heim á ný.
„Nú, þegar ég var búinn að koma
mér upp svolitlum lager fannst mér
tilvalið að koma þessari náttúruafurð
á markað,“ segir hann.
Stefán smíðar aðallega úr silfri en
hann segir það hafa sótt í sig veðr-
ið að undanförnu. „Það er heppilegt
því þó að verð á bæði gulli og silfri
hafi hækkað gríðarlega er verðið á
silfrinu viðráðanlegra.“ Stefán notar
auk þess steina, perlur og hraun til
skrauts. Hann segir náttúruáhrifin í
takt við tíðarandann. „Á svona tímum
breytist fólk og fer að horfa til gras-
rótarinnar og þess sem gefur lífinu
gildi. Það er auðvelt að detta í sama
gír og hann er alls ekki sá versti,
enda formin í náttúrunni óendanleg.
vera@frettabladid.is
METAL DESIGN: NÝTT GULLSMÍÐAGALLERÍ VIÐ SKÓLAVÖRÐUSTÍG
Mótar silfur með krabbaskel
Stefán hefur starfað við gullsmíði í þrjátíu ár og meðal annars smíðað fjölda kirkjumuna.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL RÚNARSSON
Þennan dag árið 2003 var tilkynnt að fyrrver-
andi forseti Íraks, Saddam Hussein, hefði fund-
ist í holu skammt frá heimabæ sínum Tikrit.
Ekkert hafði sést til Saddams síðan bandaríski
herinn réðst inn í Írak í apríl sama ár, en Uday
og Qusay, synir hans, voru drepnir af banda-
rískum hermönnum í júlí.
25 milljónir dala voru boðnar hverjum þeim
sem gæti gefið upplýsingar um dvalarstað
Saddams og þegar tilkynnt var að hann hefði
fundist fylgdi sögunni að einn úr hans eigin
fjölskyldu hefði gefið vísbendingar um ferðir
hans.
Holan sem Saddam fannst í var svokölluð
„köngulóarhola“, tveggja metra djúp og rúmaði
einungis eina manneskju. Saddam var vopn-
aður byssu þegar hann fannst en veitti enga
mótspyrnu við handtökuna.
Saddam var hengdur samkvæmt dómsúr-
skurði 30. desember árið 2006.
ÞETTA GERÐIST 14. DESEMBER ÁRIÐ 2003
Saddam Hussein finnst í holu
ÞÝSKA TÓNSKÁLDIÐ CARL PHILIPP EMANUEL BACH (1714-1788)
lést þennan dag árið 1788.
„Tónlistarmaður getur ekki snert aðra nema hann sé snortinn sjálfur.“
Merkisatburðir
1934 Golfklúbbur Reykjavíkur er stofnaður og hét þá „Golf-
klúbbur Íslands“.
1935 Um mestallt Ísland geisar fárviðri og varð mikið mann-
tjón. Tuttugu og fimm manns fórust, símalínur slitnuðu
niður og skemmdir urðu á húsum.
1939 Sovétríkin eru rekin úr Þjóðabandalaginu vegna innrás-
arinnar í Finnland en það stríð var síðar nefnt vetrarstríð-
ið.
1977 Ofviðri samfara stórflóði veldur tjóni víða á suðurströnd
Íslands, til dæmis á Stokkseyri. Þetta voru talin mestu
flóð á tuttugustu öldinni.
1989 Í Síle eru haldnar fyrstu lýðræðislegar kosningarnar í
sextán ár.
Stefán notar
krabbaskel til
að móta muni
sem tilheyra línu
sem hann nefnir
ströndin.
Hér má sjá sýnis-
horn úr línu sem
nefnist Fjóla.