Fréttablaðið - 14.12.2011, Side 23
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara
Amerísk
gæðavara
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16
Fjölnota nuddpúði
Shiatsu nudd, titringur og
infrarauður hiti.
Hentar vel fyrir bak,
herðar og fótleggi
Fjarstýring
17.950 kr.
Gefðu góða gjöf
B
úist er við að mikill
fjöldi ferðamanna sæki
hátíðarhöld á Suður-
heimskautslandinu í dag
og á næstunni í tilefni þess að öld
er liðin síðan norski landkönn-
uðurinn Roald Amundsen náði
manna fyrstur á suðurpólinn.
Gunnar Egilsson pólfari hefur
verið önnum kafinn við undirbún-
ing þeirra.
„Ég hef verið að yfirfara
og gera við tvo sex hjóla Ford
Econoline í eigu fyrirtækisins
ANI, sem sér um að fljúga með
farþega, eldsneyti og búnað á
suðurskautið frá Punta Arenas
í Síle. Bílarnir sjálfir verða not-
aðir til að flytja farþega á milli
ísflugbrautarinnar og til búða,
ásamt því að fara með farþega í
skoðunarferðir um svæðið og að
suðurpólnum,“ upplýsir Gunnar
og getur þess að á meðal farþega
verði sjálfur Jens Stoltenberg,
forsætisráðherra Noregs, og
hans fylgdarlið. „Norðmenn vilja
heiðra sinn mann og þarna verða
nokkrir af helstu fyrirmönnum
þjóðarinnar samankomnir.“
Gunnar hefur verið við störf
á suðurheimskautinu síðan um
miðjan nóvember og var ásamt
fleiri methöfum boðið sérstak-
lega að vera viðstaddur Amund-
sen-hátíðina í dag, en eins og
kunnugt er setti Gunnar hraða-
met á suðurheimskautinu árið
2005 þegar hann ók á sérútbúnum
sex hjóla Ford 1.100 kílómetra
leið frá Patriot Hills til suður-
pólsins. Leiðangurinn tók 69,3
tíma, þannig að meðalhraði var
16 kílómetrar á klukkustund.
Gunnar segist vera upp með
sér að hafa verið boðið á hátíðina
en ákvað að afþakka, meðal ann-
ars til að geta sinnt verkefnum
heima, og verður því víðs fjarri
góðu gamni í dag. „Svo var mig
líka farið að langa aftur heim,“
viðurkennir hann fúslega. „Hef
farið þrisvar sinnum og langaði
ekki að þvælast lengur þarna.
Þetta var orðið fínt, alla vega í
bili. Enda er heima best,“ segir
hann.
Gunnar bætir við að hátíðar-
höldunum ljúki formlega 12.
janúar á næsta ári, en þá verða
einmitt hundrað ár síðan Robert
Falcon Scott, foringi í breska kon-
unglega sjóhernum og landkönn-
uður, kom annar á eftir Amund-
sen á suðurpólinn.
roald@frettabladid.is
Gerði bíl Stoltenbergs
kláran fyrir suðurpólinn
Gunnar Egilsson pólfari yfirfór bíl sem mun flytja forsætisráðherra Noregs um suðurheimsskautið.
Jólavættir Reykjavíkur er yfirskrift jólaborgarinnar
Reykjavík 2011 sem Höfuðborgarstofa sér um að
skipuleggja. Hugmyndin er að upphefja íslenska
sagnahefð og tengja íbúa borgarinnar við gesti hennar
í gegnum samtöl og sögur.
Sjá nánar á www.visitreykjavik.is/