Fréttablaðið - 14.12.2011, Qupperneq 50
14. desember 2011 MIÐVIKUDAGUR38
KÖRFUBOLTI Stórlið KR og Grinda-
víkur mætast í sextán liða úrslit-
um bikarkeppni KKÍ, Power ade-
bikarnum, en dregið var í sextán
liða úrslit hjá báðum kynjum í gær.
KR-ingar eiga titil að verja
og ef liðið ætlar að halda í doll-
una þarf það að komast í gegn-
um besta lið landsins í dag. Liðin
mættust í DHL-höllinni á dögun-
um og þá niður lægðu Grindvík-
ingar lið meistaranna. KR mun
líklega mæta til leiks með breytt
lið enda báðir Bandaríkjamennirn-
ir úr þeim leik farnir heim og nýir
verða væntanlega komnir áður en
þessi stór leikur fer fram.
Leikur Stjörnunnar og Snæfells
er ekki síður áhugaverður, en leik-
ir þessara liða í vetur hafa verið
frábær skemmtun. Í tvígang hefur
aðeins munað einu stigi á liðunum
þannig að óhætt er að veðja á að sá
leikur verði áhugaverður í meira
lagi.
Leikirnir í kvennaflokki eru
ekki eins spennandi enda sitja
tvö sterk lið hjá í þessari umferð.
Áhugaverðasta rimman er þó leik-
ur Hauka og KR. - hbg
í vali á Bíl árs
Brimborg og Volvo áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð bílanna getur verið frábrugðin myndunum í auglýsingunni. Nánari upplýsinga
ins 2012
r veita ráðgjafar Volvo á Íslandi.
Bikarkeppni KKÍ
16 liða úrslit karla:
Breiðablik - KFÍ
KR - Grindavík
Hamar - Þór Akureyri
Tindastóll - Þór Þorlákshöfn
Njarðvík - Höttur
Stjarnan - Snæfell
Fjölnir - Njarðvík B
Skallagrímur - Keflavík
16 liða úrslit kvenna:
Fjölnir - Laugdælir
Þór Akureyri - Hamar
Snæfell - Valur
Njarðvík - Breiðablik
Haukar - KR
Sitja hjá: Grindavík, Stjarnan, Keflavík.
Leikirnir fara fram 7.-9. janúar.
Tveir stórleikir í sextán liða úrslitum í bikarkeppni karla í körfubolta:
KR fær tækifæri til að hefna sín
HANDBOLTI Karen Knútsdóttir,
leikstjórnandi íslenska kvenna-
landsliðsins, sýndi stáltaugar
á vítalínunni á HM í Brasilíu
og nýtti 13 af 14 vítum sínum í
keppninni sem gerir 93ja pró-
senta vítanýtingu.
Enginn leikmaður á HM sem
hefur tekið 14 víti eða meira
hefur gert betur en Karen. Karen
klikkaði aðeins á einu víti og það
kom á móti Kína eftir að hún var
búin að skora úr tíu í röð.
Norska stelpan Linn Sulland
er sú eina sem nær 90 prósenta
nýtingu og hún þarf að skora úr
næstu átta vítum sínum til að ná
upp í nýtingu Karenar. - óój
Karen Knútsdóttir á HM:
Er með bestu
vítanýtinguna
KAREN KNÚTSDÓTTIR Var með frábæra
vítanýtingu á HM. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Man. Utd varð fyrir enn
einu áfallinu í gær þegar tilkynnt
var að Darren Fletcher þyrfti
að fara í frí vegna veikinda.
Fletcher var líka frá í tvo mánuði
undir lok síðasta tímabils vegna
veikinda. Fletcher hefur verið að
komast aftur á skrið en það er
hreinlega hættulegt fyrir hann að
spila knattspyrnu og því verður
hann að fá nauðsynlega hvíld.
Sjúkdómurinn sem Fletcher
glímir við, sáraristilbólga, er
sjaldgæfur og ræðst meðal ann-
ars á ristilinn. Ljóst er að þessi
veikindi gætu haft mikil áhrif á
feril Fletchers og jafnvel bundið
enda á hann. - hbg
Man. Utd missir miðjumann:
Ferill Fletchers
er í hættu
FLETCHER Greindist á dögunum með
sáraristilbólgu. NORDICPHOTOS/GETTY
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
GRÍÐARSTERKIR KR réði
ekkert við Grindvíkinga
síðast er liðin hittust
vestur í bæ. Nú mætast
liðin í bikarnum.