Fréttablaðið - 28.12.2011, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 28.12.2011, Blaðsíða 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl - júní 2011 Nýr tilboðsbæklingur í dag Tax free 20,32% afsláttur á búsáhöldum Miðvikudagur skoðun 16 SÉRBLAÐ í Fréttablaðinu Allt 28. janúar 2011 303. tölublað 11. árgangur Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.www.mistyskor.is Uppháir herrakuldaskór úr leðri og fóðraðir með lambsgæru. Teg: 53802 - litur: brúnt - stærðir: 40 - 47 - Verð: 24.775.- Nú er farið að kólna og allra veðra von. Sími 551 2070Opið mán.-fös. 10-18.Opið á laugard. 10-14. DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerískgæðavara Amerískgæðavara Jólaljósin loga utandyra sem innan og er fátt notalegra en að fá sér göngu- eða bíltúr um valin hverfi að kvöldlagi og skoða dýrðina. Sumar götur eru meira skreyttar en aðrar og er gaman að leita uppi skrautleg hús sem skera sig úr. Bandaríska tímaritið Vogue Knitting skipuleggur prjónaferð til Íslands í ágúst á næsta ári. Bandaríkjamenn óðir í íslenska ull og lopa B andaríska tímaritið Vogue Knitt-ing undirbýr prjónaferð til Íslands í ágúst á næsta ári. Meðal við-komustaða þess verður fyrirtækið Ístex, þar sem þátttakendur fá að kynn-ast íslenskri prjónahefð og -iðnaði á áþreifanlegan hátt undir leiðsögn fram-kvæmdastjórans Guðjóns Kristinssonar.„Ég verð með fyrirlestur um íslensku ullina, sérstöðu hennar miðað við erlenda ull og lopann. Svo fær hópurinn skoðunarferð um verksmiðjuna til að sjá hvernig lopinn er framleiddur,“ upplýsir Guðjón, sem reiknar með allt að fimmtíu manns í heimsókn. „Þetta gætu þó orðið fleiri þar sem skrán-ing er enn í fullum gangi.“Vogue Knitting er í eigu sömu aðila og tísku- og hönnunar-tímaritið Vogue og er með virtari tímaritum sem fjalla um prjóna-mennsku. Árlega skipuleggur tíma-ritið LÖGREGLUMÁL Fjórðungur allra fanga á landinu situr inni vegna fíkniefnabrota. Árið 1990 var hlutfallið sjö prósent. Fíkniefnabrot eru flokkuð sem slík þegar alvarlegasta brot sem viðkomandi hefur framið er tengt fíkniefnalöggjöfinni. Erlendur Baldursson, afbrota- fræðingur hjá Fangelsismála- stofnun, segir fíkniefni þó tengj- ast mun fleiri afbrotum en þeim sem formlega eru skráð sem fíkniefnabrot. „Ef við tökum alla vímugjafa tengjast þeir mjög háu hlut- falli allra brota,“ segir Erlendur. „Þegar menn fremja ofbeldisbrot eru þeir oftast undir áhrifum vímugjafa. Þó hefur sá misskiln- ingur verið uppi að kynferðisbrot og heimilisofbeldi séu framin undir áhrifum vímuefna, en það er miklu oftar ekki tengt neinu slíku. Menn eru oft bláedrú að berja konurnar sínar.“ Vel yfir hundrað fangar af þeim sem sitja inni núna frömdu glæpi tengda vímugjöfum. Alls sitja nú 177 fangar inni í fangelsum lands- ins og hafa þeir aldrei verið fleiri. „Ég tel að um tvö af hverjum þremur fíkniefnabrotanna megi flokka sem mjög alvarleg. Þá er um að ræða verulegt magn fíkni- efna og dreifingu til margra,“ segir Erlendur. Páll Winkel, forstjóri Fangelsis- málastofnunar, tekur undir orð Erlends og tekur manndrápsmál sem dæmi. „Fíkniefni eða áfengi tengjast nær öllum manndrápsmálum,“ segir Páll. „Ég man í svipan eftir tveimur morðum sem voru framin þegar viðkomandi var edrú.“ Hlutfall fanga sem sátu inni vegna fíkniefnabrota árið 1990 var aðeins sjö prósent, eða 25 fangar. Tíu árum síðar var hlut- fallið komið upp í 25 prósent, 55 fangar alls. Í fyrra fór hlutfallið í 36 prósent, þegar 120 fangar afplánuðu fíkniefnadóma í íslenskum fangelsum. Í ár er hlut- fallið rúmlega 25 prósent. Helgi Gunnlaugsson, afbrota- fræðingur við Háskóla Íslands, segir að hreyfiaflið bak við þessa skörpu þróun í fjölda fanga sé að stórum hluta frumkvæðisvinna lögreglu og aukin áhersla stjórn- valda á að stemma stigu við brot- um af þessu tagi. „Aukinn fjöldi fíkniefnamála hefur komið inn á borð yfirvalda og eru sum mjög stór í sniðum, sem sýnir að hér er stór markaður fyrir fíkniefni og mikil eftirspurn sem margir sjá gróðavon í að full- nægja,“ segir Helgi. - sv Langflest afbrot hér á landi tengd áfengi og fíkniefnum Fjórðungur allra fanga á Íslandi afplánar dóma vegna fíkniefnabrota. Hlutfallið var sjö prósent fyrir tutt- ugu árum. Afbrotafræðingar segja afar hátt hlutfall brota framið í einhverjum tengslum við vímuefni. FÓLK Unnsteinn Guðjónsson var nýlega ráðinn til tæknibrellu- fyrirtækisins Moving Picture Company, sem þykir eitt það fremsta í sinni í röð. Unnsteinn, yfirleitt kallaður Ummi, vinnur meðal annars að nýjustu kvik- mynd Brad Pitt, World War Z, og hannar fyrir hana uppvakninga. „Við erum komnir mjög skammt á veg með hana en hún verður mjög sérstök og áhuga- verð,“ segir Ummi, sem hefur unnið að mörgum vinsælustu kvikmyndum síðari ára, þar á meðal Avatar og tveimur Harry Potter-myndum. - fgg / sjá síðu 34 Unnsteinn gerir það gott: Gerir uppvakn- inga fyrir Pitt Spyrja út í Seinfeld Kolbeinn og Sindri halda Seinfeld-spurningakeppni. fólk 34 Birgitta Spur áttræð Hefur veitt Listasafni Sigurjóns Ólafssonar forstöðu í á þriðja áratug. tímamót 20 HÆGUR VINDUR og nokkuð bjart veður víða en lítilsháttar él á stöku stað. Vaxandi vindur sunnan- og vestanlands síðdegis með éljum og síðan snjókomu. VEÐUR 4 -1 -2 -3 -4 -6 SLYS Vandasöm aðgerð sem Fann- ey Þorbjörg Guðmundsdóttir, landsliðskona á skíðum, þurfti á að halda í gærmorgun á Ullevål- sjúkrahúsinu í Ósló í Noregi þótti heppnast vel. Fanney, sem er 19 ára gömul, slasaðist alvarlega á aðfangadag þegar hún var við æfingar í Geilo í Noregi. Fyrst eftir slysið var óttast að Fanney hefði lamast fyrir neðan háls, en brot var bæði á öðrum og þriðja hryggjarlið hennar. Eftir aðgerðina í gær var hún hins vegar komin með hreyfigetu í bæði fætur og fingur. „En það er lítið vitað um hvort einhver skaði er varanlegur, það kemur í ljós á næstu tveimur árum,“ segir Gísli Rafn Guðmundsson, bróðir Fann- eyjar. „En þetta lofar allt mjög góðu.“ Að sögn Gísla verður Fanney á Ullevål-sjúkrahúsinu fram yfir áramót, en að því loknu taki við frekari endurhæfing ytra. Nánasta fjölskylda Fanneyjar er hjá henni úti í Ósló, en þau voru í jólaheimsókn í Geilo þegar slysið varð. Að sögn Gísla verður móðir þeirra áfram úti á meðan Fanney er að jafna sig. Fanney var meðvitundarlaus og andaði ekki þegar að henni var komið á slysstað. „Aðstoðar- þjálfari á vettvangi komst fljótt til hennar. Hann náði að losa ól á brotnum hjálmi og setja hana í læsta hliðarlegu og þá tók hún aftur að anda,“ segir Gísli. Slysi Fanneyjar svipar til þess þegar Arna Sigríður Alberts- dóttir hryggbrotnaði og lamað- ist þegar hún lenti á tré í æfinga- ferð Skíðafélags Ísafjarðar til Geilo fyrir fimm árum. Hún var þá 16 ára. - óká Skíðakona fór í vel heppnaða aðgerð í gær eftir að hafa brotnað illa á æfingu: Nær að hreyfa fætur og fingur FANNEY ÞORBJÖRG GUÐ- MUNDSDÓTTIR Menn eru oft bláedrú að berja konurnar sínar. ERLENDUR BALDURSSON AFBROTAFRÆÐINGUR VERSLUN Útsölurnar hófust í mörgum verslunum í gær og virðist nýliðin jólaös ekki hafa slegið á verslunarþörf landans. Húsfyllir var á útsölunni hjá Epli.is þegar ljósmyndara bar að og segir Bjarni Ákason framkvæmdastjóri að tugir manna hafi þurft að hverfa frá þennan fyrsta útsöludag. „Fyrsta hæðin hjá okkur fylltist alveg af fólki. Við vorum með tilboð á sýningar- tölvum og fleiru sem fólk virðist hafa verið til í,“ segir Bjarni. Hann segrir að Íslend- ingar séu greinilega í stuði þessa dagana. Útsalan hófst líka í IKEA og Stefán Rúnar Dagsson versl- unarstjóri segir þó nokkuð af fólki hafa mætt á fyrsta degi til að kynna sér tilboðin. “Annars er yfirleitt nokkur stígandi í þessu hjá okkur og aðsóknin eykst dag frá degi fram til áramóta.” - þj Fjölmenni á útsölu Epli.is: Tugir þurftu frá að hverfa ALLIR Í RÖÐ Útsölurnar eru hafnar í verslunum landsins og virðist sem margir hyggi á góð kaup. Alltént var fullt út úr dyrum í verslun Epli.is í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Spurs eltir Tottenham gefur ekkert eftir í toppbaráttu enska boltans og eltir Manchesterliðin. sport 30

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.