Fréttablaðið - 28.12.2011, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 28.12.2011, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 28. desember 2011 17 Þessa dagana stendur yfir end-urskoðun á frumvarpi sjávar- útvegsráðherra frá því í vor um fiskveiðistjórnun. Frumvarpið byggði á svokallaðri samningaleið sem hagsmunaaðilar í greininni höfðu lagt þunga áherslu á að lægi til grundvallar. Eins og marga rekur minni til var frumvarpinu þó fálega tekið af öllum þeim sem um það hafa fjallað, bæði fylgjend- um og andstæðingum breytinga á kvótakerfinu. Er því ljóst að frum- varpið þarf að taka gagngerum breytingum. Ráðherranefnd um fiskveiði- stjórnun hefur nú málið til með- ferðar – henni til aðstoðar eru fjór- ir stjórnarþingmenn – og er stefnt að því að leggja fram nýtt og betra frumvarp fljótlega á vorþingi. Jafnræði og atvinnuréttur Eitt þeirra verkefna sem við blasa er að búa svo um hnúta að gætt verði jafnræðis við gerð og úthlutun nýtingarsamninga (til 15 ára skv. frumvarpi) og útleigðra aflaheimilda (til eins árs, svokall- aður leiguhluti). Jafnframt þarf atvinnuréttur sjávarbyggðanna til nýtingar sjávarauðlindarinnar að vera tryggður. Verði áfram byggt á samningaleiðinni svokölluðu er óhjákvæmilegt að opna frekar á milli fyrirhugaðra nýtingarsamn- inga og leiguhluta ríkisins (tíma- bundinna aflaheimilda). Í fyrirliggjandi frumvarpi er ein- ungis gert ráð fyrir því að hand- hafar nýtingarsamninga geti sótt sér viðbót í leigupott. Leiðin er ekki opin á hinn veginn, þ.e. fyrir kvóta- lausar eða kvótalitlar útgerðir að bjóða í nýtingarsamninga. Þessu þarf að breyta. Þá þarf að tryggja ríkinu rétt til að endurúthluta nýt- ingarsamningum eða leigja að nýju aflaheimildir gjaldþrota útgerðar- fyrirtækja eða fyrir tækja sem hætta af öðrum orsökum. Loks virðist óhjákvæmilegt að setja þak á hlutdeildarkerfið og brjóta það upp að einhverju marki. Nýliðun, atvinnusköpun, jafnræði Þegar frumvarp sjávarútvegsráð- herra var sent heim til föðurhúsa í lok sumars fylgdu greinargerð og tillögur okkar Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, formanns og vara- formanns sjávarútvegs- og land- búnaðarnefndar Alþingis (sem nú hefur verið lögð niður). Við bentum ráðherra á að til að tryggja rétt- láta skiptingu fiskveiðiauðlindar- innar og nægjanlega nýliðun væri heppilegast að fara blandaða leið, þ.e. að hægt væri að bjóða í nýting- arsamninga ásamt því að nægjan- legt framboð aflaheimilda væri í leigupotti ríkisins. Í frumvarpinu er leigupottur- inn allt of lítill; hann þarf að auka verulega svo hann verði raunveru- legur valkostur þar sem eðlileg verðmyndun aflaheimilda getur átt sér stað. Jafnhliða þarf að stórefla strandveiðar. Þetta sam- anlagt teljum við að geti byggt upp möguleika nýliða til áframhald- andi fjárfestinga og atvinnuþátt- töku í greininni, auk þess sem það stuðlar að dreifðri eignaraðild. Byggðaráðstafanir Eitt þeirra atriða sem hvað harðast hafa verið gagnrýnd í frumvarpi sjávarútvegsráðherra er „byggða- bixið“ svokallaða, en það birtist í formi mismunandi potta sem ráð- stafað er úr með ráðherraíhlutun til einstakra fyrirtækja og svæða. Farsælast væri að hverfa með öllu frá hugmyndum um byggða- og ívilnunarpotta og þar með mið- stýringarvaldi ráðherra hverju sinni við úthlutun byggðakvóta. Þess í stað þyrfti að stækka leigu- pottinn verulega eins og fyrr segir. Aflaheimildir úr leigupotti mætti svæðistengja og skilyrða við ákveðið lágmark heimilda, enda er mikilvægt – þó að horfið verði frá beinum byggðakvóta – að ríkið geti brugðist við áföllum í atvinnu- málum sjávarbyggða með samn- ingum um ráðstöfun aflaheimilda til sveitarfélaga/fyrirtækja sem skilyrt væru til ákveðins tíma. Mikilvægt er að slíkar ráðstafan- ir byggi á almennum, gagnsæjum úthlutunarreglum. Frjálsar strandveiðar í skilgreindri strandveiðihelgi Til þess að efla nýliðun og auka hráefnisframboð til fiskvinnslu á minni stöðum tel ég rétt að stór- efla strandveiðar og gefa þær „frjálsar“ innan skilgreindra (og strangra) marka. Þannig þyrfti veiðitímabilið að vera afmark- að við fimm daga vikunnar í 4-6 mánuði og einungis bátar minni en 15 brúttótonn með tvær hand- færarúllur um borð fengju strandveiðileyfi. Veiðarnar yrðu skilyrtar við skráðan eiganda, sem ekki myndi gera út aðra báta á strandveiðitímanum. Verði þessum skilyrðum fylgt strangt eftir tel ég aðrar takmark- anir óþarfar af hálfu löggjafans, því vélarafl, sjólag og gæftir munu sjá til þess að veiðarnar komi ekki niður á umhverfinu eða öðrum veiðum. Þessar umhverfisvænu, sjálfbæru veiðar myndu skila mörg hundruð störfum og stór- auknum gjaldeyristekjum í þjóð- arbúið. Fiskvinnsla Í fyrrgreindum tillögum okkar formanns og varaformanns sjávar- útvegs- og landbúnaðarnefndar leggjum við til að lögskyldað verði að bjóða allan óunninn fisk á inn- lendan markað og að skilið verði milli veiða og vinnslu. Að þessu verði stefnt í áföngum þannig að vaxandi hluti fari á innanlands- markað uns t.d. 80% er náð. Þessi breyting gæti skapað um eitt þús- und störf. Tryggja verður að fisk- vinnsla í landi og á sjó sitji við sama borð og búi við sambæri- legt rekstrarumhverfi, og að allur afli skili sér að landi og sé nýttur í vinnslu. Þess má geta að Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda hafa fagnað þessum tillögum. Til grundvallar þeirri vinnu sem fram undan er liggur stjórnar sáttmáli ríkisstjórnar- innar og stefna beggja stjórnar- flokka, sem byggir ekki síst á jafn- ræðis- og atvinnufrelsisákvæði stjórnarskrárinnar, og álit mann- réttindanefndar SÞ. Í frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnar- skrá er einnig gerð tillaga um nýtt auðlindaákvæði sem rennir enn frekari stoðum undir þann grunn sem nýtt fiskveiðistjórnunarkerfi þarf að byggja á. Sanngjarnar leikreglur, arð- semi, sjálfbærni en ekki síst þjóð- hagsleg hagkvæmni hljóta að vera leiðarljósið í þeirri vinnu sem fram undan er. Það er brýnt fyrir greinina í heild sinni en ekki síst þau sjávarútvegsfyrirtæki sem líða fyrir hráefnisskort og tak- markað aðgengi að aflaheimildum í núverandi kerfi. Almennar opnar leikreglur geta skilið milli feigs og ófeigs fyrir framtíðarmöguleika slíkra fyrirtækja og því er ekki eftir neinu að bíða. Sanngirni og jafnræði í sjávarútvegi Sjávarútvegsmál Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður Sanngjarnar leikreglur, aðrsemi, sjálf- bærni en ekki síst þjóðhagsleg hag- kvæmni hljóta að vera leiðarljósið í þeirri vinnu sem fram undan er. TÍMI TIL AÐ NJÓTA FLJÓTANDI KRAFTAR ÁN MSG

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.