Fréttablaðið - 28.12.2011, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 28. desember 2011 17
Þessa dagana stendur yfir end-urskoðun á frumvarpi sjávar-
útvegsráðherra frá því í vor um
fiskveiðistjórnun. Frumvarpið
byggði á svokallaðri samningaleið
sem hagsmunaaðilar í greininni
höfðu lagt þunga áherslu á að lægi
til grundvallar. Eins og marga
rekur minni til var frumvarpinu
þó fálega tekið af öllum þeim sem
um það hafa fjallað, bæði fylgjend-
um og andstæðingum breytinga á
kvótakerfinu. Er því ljóst að frum-
varpið þarf að taka gagngerum
breytingum.
Ráðherranefnd um fiskveiði-
stjórnun hefur nú málið til með-
ferðar – henni til aðstoðar eru fjór-
ir stjórnarþingmenn – og er stefnt
að því að leggja fram nýtt og betra
frumvarp fljótlega á vorþingi.
Jafnræði og atvinnuréttur
Eitt þeirra verkefna sem við
blasa er að búa svo um hnúta að
gætt verði jafnræðis við gerð og
úthlutun nýtingarsamninga (til 15
ára skv. frumvarpi) og útleigðra
aflaheimilda (til eins árs, svokall-
aður leiguhluti). Jafnframt þarf
atvinnuréttur sjávarbyggðanna til
nýtingar sjávarauðlindarinnar að
vera tryggður. Verði áfram byggt
á samningaleiðinni svokölluðu er
óhjákvæmilegt að opna frekar á
milli fyrirhugaðra nýtingarsamn-
inga og leiguhluta ríkisins (tíma-
bundinna aflaheimilda).
Í fyrirliggjandi frumvarpi er ein-
ungis gert ráð fyrir því að hand-
hafar nýtingarsamninga geti sótt
sér viðbót í leigupott. Leiðin er ekki
opin á hinn veginn, þ.e. fyrir kvóta-
lausar eða kvótalitlar útgerðir að
bjóða í nýtingarsamninga. Þessu
þarf að breyta. Þá þarf að tryggja
ríkinu rétt til að endurúthluta nýt-
ingarsamningum eða leigja að nýju
aflaheimildir gjaldþrota útgerðar-
fyrirtækja eða fyrir tækja sem
hætta af öðrum orsökum. Loks
virðist óhjákvæmilegt að setja þak
á hlutdeildarkerfið og brjóta það
upp að einhverju marki.
Nýliðun, atvinnusköpun, jafnræði
Þegar frumvarp sjávarútvegsráð-
herra var sent heim til föðurhúsa
í lok sumars fylgdu greinargerð
og tillögur okkar Lilju Rafneyjar
Magnúsdóttur, formanns og vara-
formanns sjávarútvegs- og land-
búnaðarnefndar Alþingis (sem nú
hefur verið lögð niður). Við bentum
ráðherra á að til að tryggja rétt-
láta skiptingu fiskveiðiauðlindar-
innar og nægjanlega nýliðun væri
heppilegast að fara blandaða leið,
þ.e. að hægt væri að bjóða í nýting-
arsamninga ásamt því að nægjan-
legt framboð aflaheimilda væri í
leigupotti ríkisins.
Í frumvarpinu er leigupottur-
inn allt of lítill; hann þarf að auka
verulega svo hann verði raunveru-
legur valkostur þar sem eðlileg
verðmyndun aflaheimilda getur
átt sér stað. Jafnhliða þarf að
stórefla strandveiðar. Þetta sam-
anlagt teljum við að geti byggt upp
möguleika nýliða til áframhald-
andi fjárfestinga og atvinnuþátt-
töku í greininni, auk þess sem það
stuðlar að dreifðri eignaraðild.
Byggðaráðstafanir
Eitt þeirra atriða sem hvað harðast
hafa verið gagnrýnd í frumvarpi
sjávarútvegsráðherra er „byggða-
bixið“ svokallaða, en það birtist í
formi mismunandi potta sem ráð-
stafað er úr með ráðherraíhlutun
til einstakra fyrirtækja og svæða.
Farsælast væri að hverfa með öllu
frá hugmyndum um byggða- og
ívilnunarpotta og þar með mið-
stýringarvaldi ráðherra hverju
sinni við úthlutun byggðakvóta.
Þess í stað þyrfti að stækka leigu-
pottinn verulega eins og fyrr
segir.
Aflaheimildir úr leigupotti
mætti svæðistengja og skilyrða við
ákveðið lágmark heimilda, enda
er mikilvægt – þó að horfið verði
frá beinum byggðakvóta – að ríkið
geti brugðist við áföllum í atvinnu-
málum sjávarbyggða með samn-
ingum um ráðstöfun aflaheimilda
til sveitarfélaga/fyrirtækja sem
skilyrt væru til ákveðins tíma.
Mikilvægt er að slíkar ráðstafan-
ir byggi á almennum, gagnsæjum
úthlutunarreglum.
Frjálsar strandveiðar í skilgreindri
strandveiðihelgi
Til þess að efla nýliðun og auka
hráefnisframboð til fiskvinnslu á
minni stöðum tel ég rétt að stór-
efla strandveiðar og gefa þær
„frjálsar“ innan skilgreindra (og
strangra) marka. Þannig þyrfti
veiðitímabilið að vera afmark-
að við fimm daga vikunnar í 4-6
mánuði og einungis bátar minni
en 15 brúttótonn með tvær hand-
færarúllur um borð fengju
strandveiðileyfi. Veiðarnar yrðu
skilyrtar við skráðan eiganda,
sem ekki myndi gera út aðra báta
á strandveiðitímanum.
Verði þessum skilyrðum fylgt
strangt eftir tel ég aðrar takmark-
anir óþarfar af hálfu löggjafans,
því vélarafl, sjólag og gæftir munu
sjá til þess að veiðarnar komi ekki
niður á umhverfinu eða öðrum
veiðum. Þessar umhverfisvænu,
sjálfbæru veiðar myndu skila
mörg hundruð störfum og stór-
auknum gjaldeyristekjum í þjóð-
arbúið.
Fiskvinnsla
Í fyrrgreindum tillögum okkar
formanns og varaformanns sjávar-
útvegs- og landbúnaðarnefndar
leggjum við til að lögskyldað verði
að bjóða allan óunninn fisk á inn-
lendan markað og að skilið verði
milli veiða og vinnslu. Að þessu
verði stefnt í áföngum þannig að
vaxandi hluti fari á innanlands-
markað uns t.d. 80% er náð. Þessi
breyting gæti skapað um eitt þús-
und störf. Tryggja verður að fisk-
vinnsla í landi og á sjó sitji við
sama borð og búi við sambæri-
legt rekstrarumhverfi, og að allur
afli skili sér að landi og sé nýttur
í vinnslu. Þess má geta að Samtök
fiskframleiðenda og útflytjenda
hafa fagnað þessum tillögum.
Til grundvallar þeirri vinnu
sem fram undan er liggur
stjórnar sáttmáli ríkisstjórnar-
innar og stefna beggja stjórnar-
flokka, sem byggir ekki síst á jafn-
ræðis- og atvinnufrelsisákvæði
stjórnarskrárinnar, og álit mann-
réttindanefndar SÞ. Í frumvarpi
stjórnlagaráðs að nýrri stjórnar-
skrá er einnig gerð tillaga um nýtt
auðlindaákvæði sem rennir enn
frekari stoðum undir þann grunn
sem nýtt fiskveiðistjórnunarkerfi
þarf að byggja á.
Sanngjarnar leikreglur, arð-
semi, sjálfbærni en ekki síst þjóð-
hagsleg hagkvæmni hljóta að vera
leiðarljósið í þeirri vinnu sem
fram undan er. Það er brýnt fyrir
greinina í heild sinni en ekki síst
þau sjávarútvegsfyrirtæki sem
líða fyrir hráefnisskort og tak-
markað aðgengi að aflaheimildum
í núverandi kerfi. Almennar opnar
leikreglur geta skilið milli feigs og
ófeigs fyrir framtíðarmöguleika
slíkra fyrirtækja og því er ekki
eftir neinu að bíða.
Sanngirni og jafnræði í sjávarútvegi
Sjávarútvegsmál
Ólína
Þorvarðardóttir
alþingismaður
Sanngjarnar leikreglur, aðrsemi, sjálf-
bærni en ekki síst þjóðhagsleg hag-
kvæmni hljóta að vera leiðarljósið í þeirri
vinnu sem fram undan er.
TÍMI TIL AÐ NJÓTA
FLJÓTANDI KRAFTAR
ÁN
MSG