Fréttablaðið - 28.12.2011, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 28.12.2011, Blaðsíða 30
28. desember 2011 MIÐVIKUDAGUR26 folk@frettabladid.is kg 25 SEK 2 4 6 Bláar fallegar kúlur sem skjótast upp og springa. Niður fellur rautt regn með brestum og silfurlituðum stjörnum. Mögnuð kaka. 2 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Miðvikudagur 28. desember 2011 ➜ Tónleikar 20.00 Mótettukór Hallgrímskirkju heldur jólatónleika sína nú í þrítugasta sinn. Þóra Einarsdóttir sópransöngkona verður gestasöngvari. Tónleikarnir verða haldnir í Hallgrímskirkju og er miðaverð kr. 3.900. ➜ Leiklist 19.30 Önnur sýning leiksýningarinnar Heimsljós, eftir samnefndri sögu Hall- dórs Laxness verður sýnt á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu. Verkið er í leikgerð Kjartans Ragnarssonar og meðal leikara má nefna Hilmi Snæ Guðnason og Jóhannes Hauk Jóhannesson. Miðaverð er kr. 4.300. ➜ Sýningar 20.00 Verkið On Misunderstanding eftir Margréti Bjarnadóttur danslista- mann verður frumsýnt í Kassanum, Þjóðleikhúsinu. Miðaverð er kr. 2.500, ➜ Tónlist 20.00 Dj Addi Intro spilar tónlist fyrir gesti Priksins. 21.00 Jóla Gó tónlistarveisla verður haldin á Café Rósenberg. Meðal þeirra sem fram koma eru Sigurður Guð- mundsson, Dísa Jakobs og Helgi Björns - auk þess sem þrusugóð hljómsveit hefur verið sett saman í til- efni þessa. Meðal þeirra sem þar spila eru Guðmundur Óskar Guðmundsson, Daníel Friðrik Böðvarsson og Ari Bragi Kárason. Miðaverð er kr. 2.000. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is. ÍSLENSKAR KRÓNUR eru auðæfi Mel Gibson metin á en helmingur- inn rann til fyrrverandi eiginkonu hans, Robyn Moore, er skilnaður þeirra gekk í gegn á dögunum. Moore og Gibson voru gift í 30 ár og eiga saman sjö börn. Eiginkona körfuknattleikmanns- ins Kobe Bryant hefur sótt um skilnað frá íþróttastjörnunni eftir að upp komst að hann hefur haldið stöðugt framhjá henni undan farinn áratug. Hjónin höfðu ekki skrifað undir kaupmála fyrir brúðkaupið og því getur Vanessa Bryant farið fram á helming eigna eiginmannsins. Vanessa Bryant mætir vel und- irbúin í réttarsalinn því heilt lið einkaspæjara hefur elt Kobe á röndum undanfarið ár og safnað sönnunargögnum um framhjá- hald hans. „Vanessa telur að hann hafi átt í sambandi við tíu mismunandi konur hvert ár sem þau voru gift og því gæti tala ástkvenna hans verið allt að 105 konur. Hún er harmi slegin og trúir vart að hann hafi logið svona að henni. Í hvert sinn sem upp um hann komst lofaði hann betrumbótum en sveik þau lof- orð jafnóðum,“ var haft eftir heimildar manni. Fái Vanessa helming eigna hans getur hún endað með 36 milljarða eftir skilnaðinn. Fer fram á helming eigna eiginmannsins Matthew McConaughey hefur trúlofast kærustu sinni til síðustu fimm ára, brasilísku fyrirsæt- unni Camilu Alves. Leikarinn bar bónorðið upp á jóladag og fagnaði jákvæðu svari hennar með því að setja mynd af þeim að kyssast á Twitter. „Var að biðja Camilu um að giftast mér. Gleðileg jól,“ skrifaði hann. Hinn 42 ára McConaughey og hin 29 ára Camila hafa verið saman í fimm ár og eiga tvö börn saman, soninn Levi og dótturina Vidu. Trúlofuðust á jóladag TRÚLOFUÐ Matthew McConaughey og Camila Alves trúlofuðu sig á jóladag. SVIKIN Vanessa Bryant fer fram á skilnað og helming eigna Kobe Bryant. NORDIC PHOTOS/GETTY 104.235.500.000 Heimsbyggðin stundar það öll að lofa bót og betrun og strengja áramótaheit þegar að því kemur að kveðja liðið ár. Margt hefur verið skrifað um erfiðleika mannskepn- unnar við að standa við háleitar fyrirætlanirnar, sem iðu- lega falla í gleymsku á fyrstu dögum nýja ársins. Fræga fólkið í Hollywood virðist oft lifa heilbrigðara og agaðra lífi en annað fólk, en hvernig gengur því að standa við ára- mótaheit sín? ÁRAMÓTAHEITIN Í HOLLYWOOD KIM KARDASHIAN hét því um síðustu áramót að hún yrði ein- hleyp allt árið 2011. Hún klúðraði þeim áformum heldur betur og vakti einna mesta athygli á árinu fyrir skamm- líft hjónaband sitt og íþróttastjörnunnar Kris Humphries. JAY-Z tilkynnti í lok ársins 2009 að hann ætlaði að eyða mun meiri innilegum tíma með kærustu sinni, Beyonce, á árinu 2010. Hann virðist hafa fylgt heitinu eftir og meira til, því skötuhjúin eiga von á fyrsta barni sínu í byrjun næsta árs. MILEY CYRUS sagði í lok 2009 að hún ætlaði að vanda sig á nýju ári við að forðast vandræði. Gleymskan virðist hafa hrjáð hana því á árinu 2010 rak hver hneykslisfréttin aðra af ungstirninu, en kannabis- neysla hennar rataði meðal annars í fjölmiðla. ROBERT PATTINSON þráir fátt heitar en að Twilight-fyrirbærið nái að jafna Harry Potter að vinsældum, og strengdi heit þess efnis að hann myndi eyða líðandi ári í að tryggja einmitt það. Hann hafði þó ekki erindi sem erfiði því Harry Potter-myndin hafði betur. OPRAH hefur áorkað meiru en flestir í lífi sínu og birtist meðal annars árlega á lista yfir valdamestu konur heims. Hennar leyndarmál til að komast áfram í lífinu og breyta hegðun er að sleppa því alfarið að strengja áramótaheit og einbeita sér þess í stað að því að lifa í núinu. KELLY OSBOURNE segist hafa verið háð áramótaheitum en aldrei tekist að standa við þau. Nú er hún í mun betra jafnvægi og lífsglaðari en þegar hún hét því að hætta að borða kjöt, gerast vegan- grænmetisæta, léttast, vera yfir- vegaðri og margt fleira. Í ár ætlar hún ekki að setja mikla pressu á sjálfa sig heldur strengja þess eingöngu heit að læra af for- tíðinni og einblína á hið jákvæða.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.