Fréttablaðið - 28.12.2011, Blaðsíða 6
28. desember 2011 MIÐVIKUDAGUR6
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum þann 4. janúar á frábæru tilboði.
Þú bókar fllugsæti og fjórum dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Verð kr. 49.900
Netverð á mann, flugsæti 4 – 17. janúar.
Verð kr. 69.900
Netverð á mann, m.v. 4 í íbúð með 2 svefnherbergjum í 13 nætur.
Verð kr. 89.900
Netverð á mann, m.v. 2 í studio/ íbúð í 13 nætur.
Frá kr. 49.900
Kanarí
4. janúar í 13 nætur
VIÐSKIPTI Íslandsbanki felldi niður
90% af þeim kröfum á Höfða-
torg ehf. sem voru undir í nauða-
samningi félagsins sem var sam-
þykktur tveimur dögum fyrir jól.
Höfðatorg, sem á og rekur Höfða-
torgsbygginguna og óbyggðar
lóðir í kringum hana, skuldaði 23
milljarða króna um síðustu ára-
mót og var með neikvætt eigið fé
upp á 10,6 milljarða króna. Pétur
Guðmundsson, eigandi Eyktar og
stjórnarformaður Höfðatorgs,
vildi ekki veita upplýsingar um
umfang þeirra samningskrafna
sem liggja til grundvallar nauða-
samningnum þegar Fréttablaðið
leitaði eftir því í gær.
Meginatriði nauðasamnings-
frumvarpsins eru þau að lánar-
drottnar Höfðatorgs fá 10%
greiðslur upp í þær kröfur sem
samningurinn nær til í formi nýs
hlutafjár. Í frumvarpinu segir að
í þessu felist að „samningskröfu-
hafar samþykkja 90% niðurfell-
ingu samningskrafna“.
Íslandsbanki, sem var aðallán-
veitandi Höfðatorgs, fær 72,5%
eignarhlut í félaginu samkvæmt
nauðasamningnum. Hinn kröfu-
hafinn sem átti aðild að honum
er Eykt ehf. Samkvæmt síðasta
birta ársreikningi Eyktar var
eigið fé félagsins jákvætt um 303
milljónir króna í lok árs 2010.
Á meðal eigna þess var krafa á
Höfðatorg ehf. upp á 509 millj-
ónir króna. Á grundvelli þeirr-
ar kröfu fékk Eykt 27,5% hlut í
Höfðatorgi við endurskipulagn-
ingu félagsins. Í tilkynningu sem
Íslandsbanki sendi frá sér vegna
Höfðatorgs hinn 22. desember
síðastliðinn kom fram að Eykt
hefði átt kröfu „vegna áfallins
byggingarkostnaðar við verk-
efnið“. Þar segir einnig að „aðrir
kröfuhafar en Íslandsbanki og
Eykt sem nú eiga félagið munu fá
kröfur sínar greiddar“ enda séu
þeir „smærri og áttu ekki aðild að
nauðasamningnum“.
Höfðatorg skuldaði samtals 23
milljarða króna um síðustu ára-
mót. Félagið tapaði 226 milljónum
króna í fyrra og eigið fé þess var
neikvætt um 10,6 milljarða króna.
Því er ljóst að að minnsta kosti sú
upphæð hefur verið niðurfelld.
thordur@frettabladid.is
Milljarðakröfur á
Höfðatorg afskrifaðar
Í nauðasamningsfrumvarpi Höfðatorgs ehf. kemur fram að 90% af samnings-
kröfum verði felldar niður. Félagið skuldaði 23 milljarða króna um síðustu
áramót. Íslandsbanki og Eykt eignast Höfðatorg samkvæmt samningnum.
LANDSVIRKJUN Lánið er til þriggja ára
og að fjárhæð 200 milljónir Bandaríkja-
dala. Þá er lánið með framlengingar-
heimild um tvö ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VIÐSKIPTI Landsvirkjun hefur
skrifað undir samning um nýtt
sambankalán á alþjóðlegum banka-
markaði, hið fyrsta sem opinbert
íslenskt fyrirtæki gerir frá banka-
hruni. Um er að ræða fjölmynta
veltilán til þriggja ára að fjárhæð
200 milljónir Bandaríkjadala, sem
jafngildir 24,6 milljörðum króna.
Landsvirkjun getur dregið á lánið
og endurgreitt eftir þörfum. Þá er
lánið með framlengingarheimild
um tvö ár. Með lántökunni hefur
Landsvirkjun lokið endurfjár-
mögnun á sams konar láni sem var
á gjalddaga í desember 2012.
„Þetta lán er ekki ætlað sem
endurfjármögnunarlán heldur má
eiginlega kalla það yfirdrátt. Það
sem við erum að gera er að endur-
nýja okkar yfirdrátt,“ segir Rafnar
Lárusson, framkvæmdastjóri fjár-
málasviðs, og bætir því við að lánið
sé hugsað til að mæta skammtíma-
sveiflum í lausafé eða þá sem
neyðar úrræði ef markaðir lokast
tímabundið.
Um lántökuna sáu Barclays
Capital, Citigroup og SEB en auk
þeirra tóku þátt í láninu Arion
banki, JP Morgan, UBS, Lands-
bankinn og Íslandsbanki. - mþl
Fyrsta lánið á alþjóðlegum markaði sem opinbert fyrirtæki tekur frá hruni:
Landsvirkjun endurnýjar veltulán
TÆKNI Starfsmenn Volkswagen í
Þýskalandi munu ekki lengur fá
vinnutengdan tölvupóst í farsíma
sína utan vinnutíma, samkvæmt
samkomulagi við fyrirtækið.
Starfsmönnum þótti mörgum
óþægilegt að fá vinnutengdan póst
í frítíma sínum. Nú fá þeir ekki
tölvupóst í símann nema þegar
þeir eru skráðir í vinnu, að því er
fram kemur á vef BBC.
Þetta á þó ekki við um æðstu
stjórnendur fyrirtækisins, sem
geta áfram lesið póstinn sinn að
nóttu sem degi. - bj
Breytingar hjá þýsku fyrirtæki:
Senda ekki póst
utan vinnutíma
SÝRLAND, AP Sýrlandsstjórn kallaði herlið sitt frá
borginni Homs í gær þegar fyrstu eftirlitssveitirnar
frá Arababandalaginu voru komnar til landsins.
Þegar eftirlitsmenn komu til Homs að kanna
ástandið þar streymdu þúsundir mótmælenda út
á götur til að upplýsa um atburði liðinna vikna og
mánaða þar í borg.
Aðgerðir stjórnarhersins gegn mótmælendum
kostuðu að minnsta kosti 23 manns lífið í gær, til við-
bótar þeim hundruðum manna sem létu lífið í vik-
unni á undan. Þúsundir hermanna hafa tekið þátt í
umsátri um borgina Homs síðustu vikur og mánuði.
Áætlun Arababandalagsins, sem Bashar al Assad
forseti samþykkti fyrir viku, felur í sér að sérsveitir
hersins og öll þungvopn verði fjarlægð af götum
borga landsins, viðræður hefjist við leiðtoga stjórn-
arandstöðunnar og bæði fréttamenn og fulltrúar
mannréttindasamtaka fái að fara inn í landið.
Ekki var annað að sjá en að Assad og stjórnarher-
inn hefðu hert aðgerðir sínar gegn mótmælendum
í Homs fyrst eftir að samkomulag tókst við Araba-
bandalagið en í gær varð breyting þar á. - gb
Fyrstu eftirlitsmenn Arababandalagsins komnir til Sýrlands:
Stjórnarherinn farinn frá Homs
SKRIÐDREKI Í HOMS Hundruð manna hafa látist í aðgerðum
stjórnarhersins gegn mótmælendum undanfarna viku. NORDIC
PHOTOS/AFP
HÖFÐATORG Fyrsti áfanginn var tekinn í notkun í byrjun árs 2008 og hýsir að mestu
ýmsa starfsemi á vegum Reykjavíkurborgar. Annar áfanginn, nítján hæða turn, var
opnaður í ágúst 2009. Um 70% hans eru sem stendur í útleigu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sami eigandi að Eykt og Höfðatorgi
Eykt var áður í eigu Holtasels ehf., félags sem átti líka Höfðatorg ehf.
Eigandi Holtasels er Pétur Guðmundsson. Félagið hefur ekki skilað árs-
reikningi fyrir árin 2009 og 2010. Fréttablaðið greindi frá því í október
að Holtasel og dótturfélög þess hefðu skuldað rúmlega 44 milljarða
króna og verið með tæpa 22 milljarða króna í neikvætt eigið fé sam-
kvæmt síðustu birtu ársreikningum þeirra. Eina félag samstæðunnar sem
var með jákvætt eigið fé var Eykt ehf., sem er nú skráð í eigu félagsins
Mókollur ehf. Eigandi þess félags er Pétur Guðmundsson. Mókollur var
tómt félag um síðustu áramót.
SKÚRINN
TÓNLISTARTÍMARITIÐ FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Þrjú myndbönd með nýjum
lögum Páli Óskari á vísir i. s/popp
ÞÚ KOMST VIÐ HJARTAÐ Í MÉR
ÞORSLÁKSMESSUKVÖLD
BETRA LÍF
Fórst þú í kirkju um jólin?
JÁ 12,2%
NEI 87,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Eiga lögreglumenn að hafa að-
gang að skotvopnum í læstum
hirslum í lögreglubílum?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN