Fréttablaðið - 28.12.2011, Blaðsíða 34
28. desember 2011 MIÐVIKUDAGUR30
sport@frettabladid.is
KÖRFUKNATTLEIKSLIÐ KR hefur nælt sér í góðan liðsstyrk fyrir átökin í Iceland Express-deild karla eftir
áramót. Tveir nýir Kanar eru á leiðinni. Annar heitir Josh Brown og er bakvörður. Hann kemur frá Dinamo Búkarest
í Rúmeníu þar sem hann var með 21 stig, 5 fráköst og 5 stoðsendingar að meðaltali i leik. KR hefur líka nælt sér í
stóran leikmann sem heitir Rob Ferguson. Hann kemur frá Defensor í Úrúgvæ en hann hefur einnig leikið í Þýskalandi.
Enska úrvalsdeildin:
Arsenal-Wolves 1-1
1-0 Gervinho (7.), 1-1 Steven Fletcher (38.)
Swansea-QPR 1-1
1-0 Danny Graham (13.), 1-1 Jamie Mackie (58.).
Norwich-Tottenham 0-2
0-1 Gareth Bale (55.), 0-2 Gareth Bale (67.)
STAÐAN:
Man. City 18 14 3 1 53-15 45
Man. United 18 14 3 1 47-14 45
Tottenham 17 12 2 3 34-19 38
Chelsea 18 10 4 4 36-21 34
Arsenal 18 10 3 5 34-26 33
Liverpool 18 8 7 3 21-14 31
Newcastle 18 8 6 4 25-22 30
Stoke City 18 7 4 7 18-28 25
WBA 18 6 4 8 19-26 22
Everton 17 6 3 8 18-20 21
Norwich City 17 5 6 6 27-31 21
Aston Villa 18 4 8 6 19-23 20
Fulham 18 4 7 7 19-24 19
Swansea City 18 4 7 7 17-22 19
Sunderland 18 4 6 8 22-22 18
QPR 18 4 5 9 18-32 17
Wolves 18 4 4 10 20-33 16
Wigan Athletic 18 3 5 10 15-35 14
Bolton 18 4 0 14 22-41 12
Blackburn 18 2 5 11 25-39 11
Deildarbikar kvenna:
Stjarnan-Fram 25-36 (11-19)
Mörk Stjörnunnar: Jóna Margrét Ragnarsdóttir
9, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 5, Sandra Sigur-
jónsdóttir 2, Helena Örvarsdóttir 2, Sólveig Lára
Kjærnested 2, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 2, Rut
Steinsen 1, Lilja Lind Pálsdóttir 1, Guðrún Hrefna
Guðjónsdóttir 1.
Mörk Fram: Stella Sigurðardóttir 7, Sigurbjörg
Jóhannsdóttir 7, Elísabet Gunnarsdóttir 6, Sunna
Jónsdóttir 6, Birna Berg Haraldsdóttir 4, Marthe
Sördal 3, Ásta Birna Gunnarsdóttir 2, Hekla Rún
Ámundadóttir 1.
Valur-HK 33-27
Mörk Vals: Þorgerður Anna Atladóttir 6, Hrafnhild-
ur Ósk Skúladóttir 6, Ágústa Edda Björnsdóttir
5, Karólína Lárusdóttir 5, Dagný Skúladóttir 4,
Heiðdís Guðmundsdóttir 2, Hildur Marín Andrés-
dóttir 2, Kristín Guðmundsdóttir 2, Anna Úrsula
Guðmundsdóttir 1.
Mörk HK: Elín Anna Baldursdóttir 8, Brynja
Magnúsdóttir 6, Harpa Baldursdóttir 5, Elva
Björg Arnarsdóttir 2, Jóna Sigríður Halldórs-
dóttir 2, Arnar Björk Almarsdóttir 1, Elísa Ósk
Viðarsdóttir 1, Sigríður Hauksdóttir 1, Guðrún Erla
Bjarnadóttir 1.
Deildarbikar karla:
Haukar-Fram 31-19
Mörk Hauka: Stefán Rafn Sigurmannsson 7, Gylfi
Gylfason 5, Tjörvi Þorgeirsson 4, Brynjólfur Snær
Brynjólfsson 4, Freyr Brynjarsson 3, Heimir Óli
Heimisson 3, Þórður Rafn Guðmundsson 2, Árni
Steinn Steinþórsson 2, Einar Pétur Pétursson 1.
Mörk Fram: Sigurður Eggertsson 9, Róbert Aron
Hostert 4, Einar Rafn Eiðsson 2, Matthías Bernhöj
Daðason 1, Arnar Snær Magnússon 1, Stefán
Baldvin Stefánsson 1, Ægir Hrafn Jónsson 1.
Leik FH og HK var ekki lokið er Fréttablaðið
fór í prentun.
Sænski körfuboltinn:
Sundsvall-Örebro 94-84
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 28 stig fyrir
Sundsvall. Hlynur Bæringsson skoraði 17 stig og
tók 11 fráköst. Pavel Ermolinskij skoraði 11 stig og
gaf 11 stoðsendingar.
Norrköping-Jämtland 72-86
Brynjar Þór Björnsson skoraði 9 stig fyrir Jämt-
land.
08 Stockholm HR-Lf Basket 64-83
Helgi Már Magnússon skoraði 5 stig fyrir
Stockholm.
Þýski handboltinn:
Huttenberg-Grosswallstadt 29-32
Sverre Jakobsson komst ekki á blað í liði Gross-
wallstadt.
Lübbecke-Hannover Burgdorf 26-30
Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði 5 mörk fyrir
Hannover. Vignir Svavarsson 3 og Hannes Jón
Jónsson tvö.
Magdeburg-Wetzlar 31-25
Kári Kristján Kristjánsson skoraði 7 mörk fyrir
Wetzlar, þar af 4 úr vítum.
ÚRSLIT
UTAN VALLAR
Sigurður Elvar Þórólfsson
segir sína skoðun
NBA-körfuboltinn í Bandaríkjunum hófst með
látum á jóladag eftir ömurlegt verkbann sem stóð
yfir í nokkra mánuði. Áður en lengra er haldið er
best að viðurkenna að ég held með Golden State
Warriors. Það hefur ekki verið dans á rósum – alls
ekki.
Fyrstu minningar mínar frá NBA-körfuboltanum
voru úrslitaviðureignir LA Lakers og Philadelphia
76‘ers á RÚV þar sem Bjarni Felixson lýsti eldgöml-
um leikjum eins og þeir væru brakandi ferskir.
Viðureignir Boston Celtics og LA Lakers næstu ár
þar á eftir með þá Magic Johnson og Larry Bird
fremsta í flokki voru sjónvarpsefni sem ekki mátti
missa af. Og með tilkomu Michael Jordan var ekki
aftur snúið.
Á undanförnum vikum hef ég séð brot úr
fjölmörgum gömlum úrslitaleikjum á NBA TV. Þar
hefur eitt lítið atriði vakti athygli mína. Bird, Magic
og Jordan – þeirra kynslóð var ekkert að gefa
einhverjum gaurum „fimm“ eftir hvert einasta víta-
skot. Þeir stóðu einfaldlega við vítateiginn og biðu
eftir frákastinu og voru með „hittu bara úr helv...
skotinu“ svipinn.
Á einhverjum tímapunkti fóru körfuboltamenn
og konur að gefa hvort öðru „fimm“ í hvert
einasta skipti sem einhver tekur vítaskot. Það er
gefið „high five“ fyrir drullulélegt víti sem fer ekki
ofan í og líka fyrir þau sem fara ofan í. Þetta fer
óendanlega í taugarnar á mér. Hver byrjaði eigin-
lega á þessu?
Hvað er svona flókið við að taka vítaskot í körfu-
bolta? Þú færð frið til þess að taka skotið, þú færð
að því virðist óendanlegan tíma til þess að taka
skotið. Tíminn sem fer í þetta er ótrúlega lengi að
líða þegar maður hefur andstyggð á þessu „gef
mér fimm kjaftæði“.
Ég legg til að þetta aðkallandi mál verði tekið
fyrir á næsta fundi stjórnar Körfuknattleikssam-
bands Íslands. Og eftir þann fund verði því lýst
yfir með formlegum hætti að Ísland verði fyrst
allra landa til þess að banna „gefðu mér fimm“
kveðjuna í vítaskotum í körfubolta. NBA-deildin
yrði ekki lengi að feta í fótspor Íslendinga ef ég
þekki David Stern rétt. Og veröldin yrði miklu betri
fyrir vikið.
Hver byrjaði á þessu „gefðu mér fimm“ kjaftæði?
KÖRFUBOLTI NBA-deildin í körfu-
bolta fór vel af stað í Bandaríkj-
unum um jólin og sjónvarps-
áhorf á opnunarleikina á jóladag
var mun meira en á sama tíma
fyrir ári. Alls voru fimm leikir
sýndir á jóladag á bandarískum
sjónvarpsstöðvum. Um 6,2 millj-
ónir sáu þá leiki en í fyrra var
þessi tala 6 milljónir.
Leikur Chicago Bulls og LA
Lakers er í þriðja sæti yfir
mesta áhorf allra tíma á deildar-
leik á ABC-sjónvarpsstöðinni.
Leikur Miami Heat gegn Lakers
á síðasta tímabili og viðureign
sömu liða árið 2004 eru þar fyrir
ofan.
LA Clippers virðist ætla að
vera vinsælt í vetur, enda nýbúið
að fá stórstjörnuna Chris Paul til
liðsins. Leikur LA Clippers gegn
Golden State Warriors var með
69% meira áhorf en leikur Port-
land gegn Golden State fyrir ári.
Kapalsjónvarpsstöðvar eru
einnig sáttar við áhorfið á NBA.
Leikur Boston Celtics gegn New
York Knicks fékk 48% meira
áhorf en leikur sömu liða á sama
tíma fyrir ári.
Það er því ljóst að aðdáendur
NBA-deildarinnar hafa ekki
snúið baki við deildinni þrátt
fyrir langt verkbann og bið eftir
því að boltinn byrjaði. Könnun
sem gerð var meðan á verkbann-
inu stóð sýndi að meirihluta
fólks var sama um verkbannið
en fólk flykktist síðan að tækj-
unum þegar boltinn byrjaði að
rúlla á ný.
Byrjun deildarinnar hefur
verið áhugaverð þar sem LA
Lakers og meistarar Dallas hafa
bæði tapað fyrstu leikjum sínum.
- seth
NBA-deildin:
Mikil aukning
á áhorfi
CHRIS PAUL Hjálpar til við að auka
áhorfið á leiki Clippers.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Það verða Fram og
Valur sem mætast í úrslitum
deildarbikarkeppni kvenna en
bæði lið unnu örugga sigra í gær.
Haukar mæta annað hvort FH
eða HK í úrslitaleik karla.
Haukarnir niðurlægðu Fram í
gær með tólf marka mun.
Úrslitaleikur kvenna fer fram
klukkan 18.15 en úrslitaleikur
karla hefst klukkan 20.00. Leik-
irnir fara báðir fram í íþróttahús-
inu Strandgötu í Hafnarfirði. - hbg
Deildarbikarkeppni HSÍ:
Úrslit í dag
FÓTBOLTI Tottenham er nú sjö
stigum á eftir toppliðunum frá
Manchester og á enn leik inni.
Spurs er ekkert á því að gefa eftir
og kláraði sinn leik eftir jólin
ólíkt flestum öðrum toppliðunum.
Arsenal klúðraði sínum leik.
Flestir gerðu ráð fyrir frekar
auðveldum sigri Arsenal gegn Úlf-
unum. Það byrjaði vel hjá heima-
mönnum því Gervinho kom þeim
yfir eftir aðeins nokkurra mínútna
leik. Úlfarnir gáfust þó ekki upp
frekar en áður og Steven Fletcher
jafnaði fyrir hlé.
Arsenal réði ferðinni í síðari
hálfleik og Úlfarnir misstu mann
af velli stundarfjórðungi fyrir
leikslok. Umdeildur dómur og ekki
síst í ljósi þess að Alex Song hefði
getað fengið að líta rauða spjald-
ið skömmu áður er hann sýndi af
sér meiri ruddaskap en leikmaður
Wolves.
Sóknarþungi heimamanna
var mikill á lokamínútunum en
Hennessey varði allt sem á markið
kom og bjargaði stigi fyrir sína
menn sem þeir fögnuðu vel og
innilega.
„Við virtumst ekki vera nógu
slakir í þessum leik. Við vorum að
þvinga spilið of mikið því okkur
langaði svo mikið að vinna. Þetta
er pirrandi en við verðum að taka
það jákvæða úr leiknum og halda
áfram veginn,“ sagði svekktur
stjóri Arsenal, Arsene Wenger.
„Það er ekki hægt að neita því að
þetta er pirrandi en ég get ekki
kvartað yfir frammistöðunni og
baráttu leikmanna,“ sagði Wenger
sem gat ekki annað en hrósað
Wayne Hennessey, markverði
Wolves.
„Hann átti leik lífs síns. Leik-
menn Wolves börðust síðan eins
og brjálæðingar og þeir fá prik í
kladdann fyrir það. Við máttum
samt ekki við þessu jafntefli og
það svíður.“
Heiðar Helguson var í liði QPR
sem sótti Swansea heim í dag.
Swansea hefur komið á óvart í
vetur og aðeins fengið tvö mörk
á sig á heimavelli sem er minnst
allra liða í deildinni.
Heimamenn byrjuðu leikinn
vel og Danny Graham kom þeim
yfir með laglegu skoti frá vítateig.
Jamie Macken jafnaði fyrir QPR
í síðari hálfleik og þar við sat í
frekar jöfnum leik.
„Það er svekkjandi að hafa ekki
fengið öll stigin. Dómarinn átti að
dæma hendi er þeir skoruðu og
það fer í taugarnar á mér að hann
skildi ekki hafa flautað,“ sagði Neil
Warnock, stjóri QPR, en hann var
ekki í neinu jólaskapi.
Graham sjálfur sagði að það
hefði ekki verið neitt athugavert
við mark hans.
„Ég kom ekki viljandi við bolt-
ann með hendinni. Svo áttum
við að fá víti í seinni hálfleik
sem við fengum ekki. Við vorum
því óheppnir líka og erum jafn
svekktir og þeir að fá ekki öll
stigin,“ sagði Graham.
Lokaleikur dagsins var síðan
viðureign Norwich og Tottenham.
Fyrri hálfleikur var tíðindalítill.
Spurs réði ferðinni en gekk illa að
skapa sér færi.
Besta færið fékk Gareth Bale
en skot hans fór yfir markið. Eftir
aðeins tíu mínútur í síðari hálf-
leik náði Bale að bæta fyrir mis-
tökin með því að skora með skoti
frá vítateig. Sanngjörn staða.
Tíu mínútum síðar átti Bale
ótrúlegan sprett upp allan vallar-
helming Norwich. Varnarmenn
Norwich náðu honum ekki og Bale
vippaði smekklega yfir markvörð-
inn. Frábært mark og öruggur
sigur Spurs í höfn.
henry@frettabladid.is
Spurs eltir Manchesterliðin
Tottenham fór ekki í jólaköttinn eins og svo mörg önnur topplið á Englandi.
Gareth Bale sleppti greinilega hangikjötinu og var í toppformi er Spurs lagði
Norwich. Arsenal missti af mikilvægum stigum gegn tíu Úlfum.
FAGNAÐ Bale og Emmanuel Adebayor fagna í gær. Adebayor lagði upp fyrra mark Bale í gær. NORDIC PHOTOS/AFP