Morgunblaðið - 24.09.2010, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2010
FRÉTTASKÝRING
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Áætlað er að fullum afköstum í kjöl-
far endurbóta í álveri Alcan í
Straumsvík verði náð um mitt ár
2014. Í gær tilkynnti fyrirtækið að
ráðist yrði í framkvæmdir sem kosta
munu 347 milljónir dollara, eða sem
nemur um 40,6 milljörðum króna á
núverandi gengi. Ekki er þó um eig-
inlega stækkun álversins að ræða,
heldur verða straumleiðarar og ann-
ar búnaður uppfærður í því skyni að
auka rafstrauminn sem veitt er á ál-
framleiðslukerin, en með því móti er
hægt að auka framleiðslugetuna.
Ekki þarf að stöðva vinnslu meðan á
uppfærslunni stendur, að undan-
skildum þeim kerum sem unnið er
að hverju sinni. Ætlunin er að ná
20% framleiðsluaukningu að fram-
kvæmdunum loknum. Við það fer
framleiðslugetan úr 189 þúsund
tonnum á ári í 228 þúsund tonn.
Tæknilega flókið verkefni
„Verkefnið kom til vegna nauð-
synjar þess að bæta öryggisaðbún-
að, en þróaðist út í tækifæri til að
auka framleiðsluna. Verkefnið
reyndist mjög tæknilega flókið, en
var þróað með þeim hætti að það
sýndist gerlegt og var samþykkt af
Rio Tinto [móðurfélagi Alcan á Ís-
landi hf.]. Stækkunaraðgerðirnar
verða gerðar án þess að vinnsla
stöðvist, nema á þeim hluta sem
breytt er hverju sinni,“ sagði Pieter
Taljaard, verkefnisstjóri stækkun-
arverkefnisins, á kynningarfundi í
gær. Umsjón með framkvæmd verk-
efnisins verður alfarið í höndum ís-
lensku verkfræðistofunnar HRV,
sem mun annast hönnun, innkaup og
framkvæmdir í samvinnu við Alcan.
HRV hafa unnið fyrir álver um
árabil en þetta er í fyrsta sinn sem
fyrirtækið sér algjörlega um svo
stórt verkefni, að sögn Skapta Vals-
sonar, forstjóra. Mikil þekking hafi
safnast saman hjá fyrirtækinu og
þetta bæti enn við hana.
„Við verðum með meira rekstr-
aröryggi, við verðum með endurnýj-
un á rafmagnsbúnaði þannig að við
verðum með öruggari rekstur á ker-
skálunum,“ sagði Rannveig Rist,
forstjóri Alcan, í samtali við Morg-
unblaðið. „Við misstum nú út einn
kerskála árið 2006, þannig að þetta
minnkar líkur á því. Við bætum
hreinsibúnaðinn þannig að við náum
að hreinsa hvert tonn af áli betur
sem fer frá okkur,“ bætir hún við.
Útblástur mun dragast saman um
10% á hvert tonn, en að teknu tilliti
til framleiðsluaukningar mun hann
aukast um 5-7% í heildina.
Ekki varð ljóst hvort mögulegt
væri að fara í fyrirhugaðar fram-
kvæmdir fyrr en raforkusamningur
Alcan og Landsvirkjunar var frá-
genginn í vikunni. Samningurinn
gildir til ársins 2036, og tryggir Alc-
an 75MW orku umfram það sem fyr-
irtækið kaupir í dag.
Ekki fyrsti kostur
Sú leið sem nú er farin til að auka
framleiðslu álversins er ekki endi-
lega fyrsti kostur fyrirtækisins.
Auðveldara hefði verið að stækka ál-
verið og taka í notkun ný ker. Sú
leið var hins vegar felld í íbúakosn-
ingu og því er þetta gert með þess-
um hætti, að sögn Rannveigar. Hún
segir framleiðsluna í verk-
smiðjunni, eins og hún er í
dag, hafa verið komna að
þanmörkum. Því hafi
verið ákveðið að fara í
straumhækkunarverk-
efnið nú.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flókið verkefni Pieter Taljaard, verkefnisstjóri stækkunarverkefnisins, Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi og Skapti Valsson, forstjóri HRV.
Tugmilljarða uppfærsla
Framleiðslugeta álvers Alcan í Straumsvík mun aukast um 20% að loknum upp-
færsluframkvæmdum Heildarkostnaðurinn yfir 40 milljarðar króna
Pétur Óskarsson,
talsmaður sam-
takanna Sólar í
Straumi, segir þá
leið, sem Alcan
fer við fram-
leiðsluaukningu
nú, vera ásætt-
anlega. „Þetta er
í raun bara eðli-
leg þróun sem
ásér stað núna,
að fyrirtækið lagi til hjá sér innan-
húss og auki framleiðsluna, og við
gerum enga athugasemd við það“
segir Pétur.
Samtökin Sól í Straumi lögðust
gegn fyrirhugaðri stækkun álvers-
ins í Straumsvík á sínum tíma, en
sú fyrirætlan var felld í atkvæða-
greiðslu íbúa Hafnarfjarðar. „Það
sem var í uppsiglingu á sínum tíma
var náttúrulega margfalt það sem
nú er að gerast. Það átti að þre-
falda verksmiðjuna, en nú er verið
að auka framleiðsluna um 20%. Við
höfum frá upphafi ekki gert at-
hugasemdir við þær hugmyndir og
ekki fjallað um þær eitt eða neitt,“
segir Pétur.
Ekkert við
aukningu
að athuga
Innanhússtiltekt
Alcan eðlileg þróun
Pétur
Óskarsson
Hörður Arn-
arson, forstjóri
Landsvirkjunar,
segir að vaxta-
kjör Landsvirkj-
unar í nýlegu
skuldabréfaút-
boði fyrirtækisins
séu mjög ásætt-
anleg. Fyrirtækið
sótti sér 100
milljónir dollara
með 6,5% vöxtum, fyrir milligöngu
Deutsche Bank. „Miðað við mark-
aðsaðstæður eru þetta mjög eðlileg
kjör. 6,5% fastir vextir er hagfellt
eins og er. Það er í rauninni með
ólíkindum að við náum þessum kjör-
um meðan Írland seldi rík-
isskuldabréf með 6,1% vöxtum á
svipuðum tíma og við gáfum okkar
bréf út,“ segir Hörður. Fyrirtækið
geti til langs tíma rekið sig með fjár-
magnskostnaði viðlíkan þeim sem
fylgdi nýgengnu skuldabréfaútboði:
„Okkar fjárfestingar þola 6,5% vexti
miðað við arðsemismat, þó vaxtakjör
hafi vissulega verið betri á und-
anförnum árum. En sé horft fram á
veginn bind ég vonir við að Lands-
virkjun fái enn betri vaxtakjör,“ seg-
ir Hörður. Landsvirkjun sé nú nán-
ast með nægt fé til að mæta öllum
gjalddögum erlendra lána fram til
ársloka 2012. Hörður segir að
Landsvirkjun gæti í raun greitt nið-
ur öll erlend lán á 10-12 árum, yrði
ekki ráðist í frekari framkvæmdir.
Betri kjör vegna Búðarháls
Búðarhálsvirkjun er næsta stóra
verkefni Landsvirkjunar. Hörður
segir að ætlunin sé að sækja erlenda
fjármögnun fyrir því verkefni, eða á
bilinu 150-200 milljónir dollara.
Framkvæmdin verður fjármögnuð
með lánsfé að um það bil tveimur
þriðju. Hörður telur að vaxtakjör
Landsvirkjunar vegna fjármögn-
unar á Búðarhálsvirkjun verði tals-
vert betri en nú síðast: „Útboðið um
daginn var fyrsta erlenda
skuldabréfaútboð íslensks fyr-
irtækis, ég hef trú á að hið næsta
verði okkur hagstæðara.“
Orkan frá Búðarhálsvirkjun verð-
ur að mestu seld til álversins í
Straumsvík. Álverið þarf á 75 mega-
wöttum að halda, svipuðu og Búð-
arhálsvirkjun mun framleiða.
Hagfellt eins
og er að fá
6,5% vexti
Hörður
Arnarson
Því hefur verið haldið fram að
nýr orkusamningur Alcan og
Landsvirkjunar, sem er for-
senda framkvæmdanna nú, sé
mjög hagstæður fyrir Lands-
virkjun. Spurð hvort það þýddi
að hann væri síður hagstæður
fyrir Alcan vildi Rannveig ekki
fallast á það. „Samningurinn er
nokkuð sem við sættum okkur
við. Það er hægt að orða það
þannig. En það er alltaf þann-
ig þegar menn semja
að þeir verða að kom-
ast að niðurstöðu
sem báðir aðilar eru
sáttir við,“ segir
Rannveig.
Sátt við kjör
ORKUSAMNINGUR
347
milljónir dollara sem fjárfest verður
í verkefninu, um 40 milljarðar króna
470
ársverk sem verkefnið kallar á í
heild sinni á framkvæmdartímanum
228.000
tonn af áli sem álverið getur fram-
leitt á ári eftir aukningu
20%
framleiðsluaukningin sem reiknað
er með að náist að fullu árið 2014
26
ár sem nýr raforkusasmningur Alc-
an og Landsvirkjunar gildir
‹ FRAMLEIÐSLUAUKNING ›
»
Jóhann Ágústsson,
fyrrverandi aðstoð-
arbankastjóri Lands-
bankans og stjórnar-
formaður Visa, lést í
gærmorgun, 80 ára að
aldri.
Jóhann fæddist í
Reykjavík 4. maí 1930.
Foreldrar hans voru
Ágúst Markússon
veggfóðrunarmeistari
og Guðrún Guðmunds-
dóttir húsmóðir. Jó-
hann var næstyngstur fjögurra
systkina.
Eftirlifandi eiginkona Jóhanns
er Svala Magnúsdóttir, en þau
gengu í hjónaband árið 1952. Þau
eignuðust þrjú börn, Magnús f.
1954, Guðmund Örn f. 1960 og Sól-
veigu Fríðu f. 1972. Barnabörn Jó-
hanns urðu alls sjö talsins.
Eftir að Jóhann lauk gagnfræða-
prófi hóf hann strax
störf hjá Landsbank-
anum. Árið 1952 lá
leiðin síðan til Parísar
þar sem hann hóf
störf hjá Union Euro-
pean-bankanum. Jó-
hann sótti fjölmörg
námskeið í fjár-
málum, meðal annars
í Oxford-skóla á Eng-
landi. Einnig starfaði
hann við Scand-
inavian Bank í Lond-
on.
Eftir að Jóhann kom aftur til Ís-
lands hóf hann aftur störf hjá
Landsbankanum og varð að end-
ingu aðstoðarbankastjóri þar til
hann hætti við 68 ára aldur.
Jóhann var stjórnarformaður
VISA á Íslandi um 14 ára skeið, en
hann var einn stofnenda fyrirtæk-
isins hér á landi.
Andlát
Jóhann Ágústsson
WWW.LEIKFELAG.IS
NÆSTU SÝNINGAR
24.- 25. SEPT.
Í HOFI
MIÐASALA Á NETINU: LEIKFELAG.IS
NETFANG: MIDASALA@LEIKFELAG.IS
SALA AÐGÖ
NGUMIÐA
Á WWW.LE
IKFELAG.IS
“Hörkushow” Mbl.