Morgunblaðið - 24.09.2010, Page 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2010
Heilsuþing Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga verður haldið í dag,
föstudag, á Grand hóteli. Þar verð-
ur boðið upp á fyrirlestra, umræð-
ur og kynningar á heilsueflandi fyr-
irtækjum hjúkrunarfræðinga. Í
kjölfarið verða haldin heilsueflandi
námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga
sem dr. Sólfríður Guðmundsdóttir
hefur umsjón með.
Á heilsuþinginu mun Félag ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga hrinda
af stað átaki meðal hjúkrunarfræð-
inga um heilsueflingu nú á haust-
önn. Átakinu er ætlað að hvetja
hjúkrunarfræðinga til þess að huga
að eigin heilsu, finna leiðir til eigin
heilsueflingar og hvetja aðra til að
gera slíkt hið sama.
Morgunblaðið/Kristinn
Hlaup Hjúkrunarfræðingar ætla efla
heilsu sína og annarra.
Heilsuþing
Í dag, föstudag, kl. 8:30-10:30 verð-
ur haldinn fundur um félagslega
einangrun á Grand hóteli. Fund-
urinn er skipulagður af stýrihópi
Evrópuráðsins 2010, sem er til-
einkað baráttunni gegn fátækt og
félagslegri einangrun.
Haldin verða erindi þar sem m.a.
verður rætt um verkefni Rauða
krossins, Hlutverkasetrið verður
kynnt og fjallað um úrræði í heima-
þjónustu Reykjavíkurborgar. Að
loknu erindi hvers og eins verður
tekið við fyrirspurnum úr sal. Að-
gangur er ókeypis og öllum opinn.
Fundur um fé-
lagslega einangrun
Dagforeldrar í borginni eru upp til
hópa ánægðir með starf sitt og
þeim líður vel í vinnunni. Þetta
kemur fram í nýrri viðhorfskönnun
sem kynnt var í menntaráði Reykja-
víkur í fyrradag.
Samkvæmt könnuninni hefur
meðalstarfsaldur dagforeldra
hækkað síðustu fjögur ár, úr 11 ár-
um í 14, og hafði þriðjungur þeirra
starfað lengur en 21 ár við dag-
gæslu á heimili sínu. Um 42% dag-
foreldra höfðu leitað til daggæslu-
ráðgjafa til að fá ráðgjöf eða
stuðning í starfi og voru 72% þeirra
ánægð með þá þjónustu. Um 66%
töldu sig njóta nægilegs stuðnings í
starfi, en þriðjungur taldi svo ekki
vera. 90% foreldra voru ánægð með
dagforeldrið. Foreldrar voru oftast
ánægðir með aðstöðu, útiveru og
dagskipulag, en ekki jafnánægðir
með verðið á þjónustunni.
Flestir ánægðir
með dagforeldra
Í dag, föstudag,
kl. 17-22 verður
Vísindavaka
Rannís haldin í
Listasafni
Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu. Á
Vísindavökunni
munu yfir 70
sýnendur frá há-
skólum, stofn-
unum og fyrirtækjum kynna við-
fangsefni sín fyrir almenningi á
lifandi og skemmtilegan hátt.
Gestir fá að skoða og prófa ýmis
tæki og tól sem notuð eru við
rannsóknir og skoða ýmsar afurð-
ir. Lögð verður áhersla á lifandi
vísindi og uppákomur á sviði og
eru börn og ungmenni sérstaklega
velkomin.
Vísindavaka
STUTT Átján ára bið senn á enda
Þroskahjálp fagnar flutningi á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga
Landssamtökin Þroskahjálp fagna mjög flutningi
málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. „Við höf-
um beðið eftir þessu í 18 ár,“ segir Gerður Árna-
dóttir, formaður samtakanna.
Rætt hefur verið um flutning á málefnum fatl-
aðra frá ríki til sveitarfélaga af og til síðan 1992 og
í júlí sl. var undirritað samkomulag um fjárhags-
legar forsendur fyrir flutningnum, sem verður að
veruleika um næstu áramót.
Í nýlegri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur
fram að hún telji að skipulag og stjórnun mála-
flokksins sé að ýmsu leyti ábótavant. Í því sam-
bandi er meðal annars bent á að ekki liggi fyrir
formlega samþykkt heildarstefna, fjárveitingar
taki ekki mið af reglubundnu mati, eftirlit með
starfsemi þjónustuaðila sé ófullnægjandi og ekki
sé hægt að fullyrða að jafnræði ríki meðal þjón-
ustuþega.
Gerður segir að fjárhagsástandið í samfélaginu
sé visst áhyggjuefni en með breytingunni gefist
tækifæri til þess að varðveita fjármagnið, sem sé í
málaflokknum, og nýta það betur í þágu þeirra
sem á því þurfi að halda.
Gert er ráð fyrir að um 3.000 manns njóti um-
ræddrar þjónustu hérlendis til þess að lifa eðlilegu
lífi. Gerður segir að nú sé mikilvægast að endur-
skoða réttindagæslu og eftirlit með þjónustunni
enda komi fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar að
þessi þáttur sé óviðunandi. Eins verði að sjá til
þess að farið sé að lögum, nægt fjármagn sé fyrir
hendi og menn fái þjónustu í samræmi við þarfir
sínar. steinthor@mbl.is
Fara verður að lög-
um og tryggja nægt
fjármagn sem og
þjónustu.
Gerður Árnadóttir
LAUSNIR FYRIR FYRIRTÆKI | landsbankinn.is | 410 4000
Lausnir fyrir fyrirtæki
Landsbankinn ætlar sér stóran hlut í uppbyggingu íslensks efnahagslífs og
mun þjónusta fyrirtæki og einstaklinga í greiðsluvanda af enn meiri krafti en
áður. Bankinn mun setja á stofn sérstakt svið sem eingöngu sinnir málum sem
lúta að endurskipulagningu fyrirtækja. Úrræði Landsbankans til að takast á við
greiðsluvanda fyrirtækja eru mörg, t.d.:
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
3
7
0
1
N
B
I
h
f.
(L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t
.
4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
.
LÁN FÆRÐ Í 90% AF EIGNAVIRÐI GEGN EIGINFJÁRFRAMLAGI
Miðað er við að færa skuldir í 90% af heildarvirði eða endurmetnu eignavirði gegn
því að eigandi greiði a.m.k. 10% af heildarvirði. Ef eigandi greiðir umfram 10% inn
á lánið er hægt að lækka skuldir um 1,5 krónur á móti hverri krónu eiginfjár á
meðan skuldir eru umfram 70% af heildarvirði eða eignavirði.
LÁN FÆRÐ Í 100% AF EIGNAVIRÐI ÁN EIGINFJÁRFRAMLAGS
Miðað er við að færa skuldir í 100% af heildarvirði eða endurmetnu eigna-
virði hjá fyrirtækjum með skuldir undir 750 m.kr. ef eigandi getur ekki lagt
til lágmarks eigið fé. Úrræðið á við um fyrirtæki þar sem reksturinn byggir
fyrst og fremst á eigendunum sjálfum.
25% HÖFUÐSTÓLSLÆKKUN LÁNA
Fyrirtæki með lán í erlendri mynt eiga kost á að sækja um 25% höfuð-
stólslækkun gegn því að lánunum sé breytt í óverðtryggð eða verðtryggð
lán í íslenskum krónum. Úrræðið á við um fyrirtæki sem eru með meira en
50% af tekjum í íslenskum krónum eða eru ekki með beina tengingu við
erlenda gjaldmiðla.
FRYSTING – GREIÐSLA Á VÖXTUM ÁSAMT HLUTA AFBORGANA
Hægt er að fá frestun á hluta eða öllum afborgunum lána í 12-24 mánuði
ef fyrirtæki getur staðið undir greiðslu á vöxtum ásamt hluta afborgana.
Lausnirnar eru háðar nánari skilmálum.
Viðskiptavinir sem nýta sér úrræði bankans fyrirgera
ekki rétti sínum leiði dómar eða lagasetning til betri
niðurstöðu.
Hafðu samband við fyrirtækjasérfræðing
í næsta útibúi. Við tökum vel á móti þér
um land allt.
Nánari upplýsingar á landsbankinn.is