Morgunblaðið - 24.09.2010, Side 11

Morgunblaðið - 24.09.2010, Side 11
Barnaefni í dag, er það nú della. Ekki það að éghorfi mikið á barnaefni, ekki svona á síðustu ár-um. Til þess horfi ég á of mikið á klám. Nei,djók – ég er alltaf á fésbók og gúggúlínunni. Fjarri mér að ætla að normalísera nokkurn skapaðan hlut, ég er tussufínn og borga Icesave upp í topp. Að því sögðu: Síðast þegar ég gjóaði augum á skjáinn hjá fjögurra ára gömlum frændum mínum sá ég þar sprangandi tíu ára pjakk sem gekk undir nafninu Benedikt tíundi eða Ben 10. Ósköp venjulegur krakki nema það að með einhvers konar armbandi getur hann brugðið sér í nánast allra kvikinda líki. Þessi skartgripur og kraftar hans koma sér vel fyrir Benna sem sífellt er að koma sér í allskonar æv- intýri sem ég skil ekkert í. Nákvæmlega ekki neitt. Þau krefjast þess alltént að hann breyti sér með hjálp armprjálsins í framandi geimfyrirbæri á borð við Fýlufluguna, Hitahöggið, Óða rakkann og Draugskrípið. Já, sæll. Þessi Ben 10. er með því skrítnasta sem ég hef séð og samt hef ég sko verið á netinu. Dísess, maður! Þetta var litlu skárra fyrir tíu árum. Þá var það pókímon-draslið. Ég man glögg- lega eftir öðru frændsystkinasetti að leika sér með undarlegar fígúrur sem slógust án góðrar ástæðu og betrumbættust eða þróuðust á darwinska vísu í hvert skipti sem þær lögðu andstæðing að velli. Svo var bara hnussað þegar ég skildi ekki neitt í þessari vitleysu. Gott ef annað þeirra systkina átti ekki lyklakippu sem klæmdist þegar maður potaði í kviðinn á henni; æpti við potið „píka, píka, píkatsjú!“ Japanskt fyrirbæri, þetta pókímon. Undarlegheitin útskýrð. Ég ætla ekki einu sinni að byrja á að tala um sýru- trippið sem Stubbarnir eru. Læt eitt þéttingsfast skriflegt stubbaknús nægja. *stubbaknús!* En þetta hefur ekki alltaf verið svona, fjarri því. Ég þarf bara að hugsa aftur til áranna 1989 til 1992, þá lífið var mjólk og hafrakex. Og þá horfði ég, barnið sem ég var, á Turtles. Það – sjáið nú til – það var eðlilegt barnaefni; fjórar stökkbreyttar táningsskjaldbökur, nefndar í höfuðið á endurreisnarlista- mönnum, síétandi pitsur og menntaðar í ninjalistum af hálfmennskri rottu í bleik- um náttslopp, sem berjast hatramm- lega við mannlegan dósaopnara sem hyggur á heimsyfirráð ásamt nashyrningsmanni, stökkbreyttu villisvíni, vís- indaflugumanni og her vél- menna sem talandi heili úr annarri vídd lagði til. Allt mjög eðlilegt. Eðlilegt, segi ég – eðlilegt! Skúli Á. Sigurðsson | skulias@mbl.is »Fjarri mér að ætla að normalíseranokkurn skapaðan hlut, ég er tussu- fínn og borga Icesave upp í topp. Heimur Skúla GRILLVEISLA Í KRÓNUNNI LIN DUM kl. 1600 í dag! LINDUM OPIÐ ALLA DAGA KL. 10-20 Við heilgrillum lamb í samvinnu við Landssamtök sauðfjárbænda – komdu og smak kaðu! DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2010 Annað kvöld, laugardagskvöld, verður svo sveitaball haldið í miðri höfuðborginni. „Við endum hátíðina á sveitaballi með Skítamóral og DJ Atla. Það er öðruvísi stemning en kvöldið áður en mjög skemmtileg. Það má reyndar ekki koma með sitt eigið áfengi en ég mæli með lopapeysu og gúmmítútt- um, það er spáð smárigningu og get- ur orðið kalt í tjaldinu svo í guðanna bænum ekki mæta í hælaskóm. Hlý föt og þægilegir skór eru málið,“ seg- ir Ósk kankvís. Þrjú tjöld og góð spá Ósk var á fullu við skipulagningu hátíðarinnar þegar blaðamaður náði í hana í gær og sagði hún undirbúning- inn aldrei hafa gengið svona vel. „Oft hefur verið svo brjálað veð- ur að við höfum, liggur við, verið að setja tjaldið upp sama dag og hátíðin byrjar, en núna erum við tímanlega og í þessum töluðum orðum erum við að setja upp barina, borðin og stólana og gera miðasöluna tilbúna. Það hafa aldrei verið jafnmörg tjöld og jafnstórt svæði og í ár. Þetta hefur alltaf farið fram í einu tjaldi en núna erum við með eitt risatjald og tvö önnur minni, svæðið er líka girt af. Þetta er viðamesta Októberfestið hingað til. Í fyrra mættu 2.000 manns þótt veðrið væri ekki gott en núna er spáin ágæt svo við búumst við góðri mætingu.“ Spurð hvaða þýðingu hátíðin hafi fyrir nemendur Háskóla Íslands seg- ir Ósk hana vera mikla. „Það er alltaf gaman að lyfta sér upp með vinum sínum og skólafélögum, fólk verður að fá smápásu frá bókunum. Þetta er stærsti viðburðurinn á háskólaárinu og stemningin í skólanum fyrir hátíð- inni áþreifanleg,“ segir Ósk. Miðasala á hátíðina er á Midi.is. Hægt er að kaupa armband á hátíð- ina sem gefur aðgang alla dagana en einnig er hægt að kaupa sig inn á stök kvöld. Ef miðarnir seljast ekki upp verður einnig miðasala við inngang- inn. Morgunblaðið/Ernir l skemmta Endilega … … skellið ykkur í salsasveiflu Gaman Suðrænn dans er sjóðheitur. aðferð til að kynnast öðru fólki. Nú er um að gera að munstra sig í dansinn, af nógur er að taka, hvort sem það eru penir samkvæm- isdansar, dillandi diskódansar, rífandi rokk, brjálað breik, sveiflandi salsa, hömlulaust afró eða eitthvað annað. Drífa sig! Allskonar dansnámskeið fara af stað á haustin og um að gera að liðka legginn og skella sér á eitt eða fleiri slík námskeið, annaðhvort til að rifja upp gamla takta eða læra eitthvað al- veg nýtt. Dans er skemmtileg leið til að halda sér í formi og auk þess kjörina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.