Morgunblaðið - 24.09.2010, Síða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2010
✝ Sigurlaug Guð-mundsdóttir
fæddist 16. júní 1926 á
Bragagötu 23 í
Reykjavík. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð 16. sept-
ember 2010. For-
eldrar hennar voru
Guðmundur Finn-
bogason járnsmiður,
f. 18. ágúst 1900, d.
30. maí1987, og Lilja
Magnúsdóttir, f. 6.
febrúar 1898, d. 9.
desember 1972.
Systkini Sigurlaugar eru Vilhelm-
ína Ragnheiður, f. 18. mars 1924,
Jensína Kristín, f. 14. október 1928,
d. 14. apríl 1991, Finnbogi, f. 3.
október 1930, d. 28. apríl 1978,
Helga Perla, f. 3. desember 1939, og
Hrafnhildur Petra, f. 13. ágúst 1941.
Sigurlaug giftist 20. janúar 1951
Albert Jónssyni, f. 4. nóvember
1919, d. 6. ágúst 2006. Foreldrar
hans voru Jón Þórir Ingimundarson
og Viktoría Halldórsdóttir. Börn
Sigurlaugar og Alberts eru: 1) Arn-
dís Lilja, f. 22. febrúar 1949, gift
Agli Jóni Sigurðssyni, börn þeirra
eru: a) Hallur, f. 1974, í sambúð með
Þórhildi Gísladóttur, þau eiga tvo
syni. b) Albert, f. 1976, í sambúð
með Sigyn Huld Oddsdóttur, þau
eiga tvö börn. c) Víkingur, f. 1979.
d) Hrönn, f. 1981, í sambúð með
Garðari Steingrímssyni, þau eiga
tvær dætur. 2) Hallur, f. 16. júlí
1950, kvæntur Svanhildi Guð-
mundsdóttur, dóttir
þeirra er Harpa, f.
1973, í sambúð með
Bárði Róbertssyni,
þau eiga tvö börn. 3)
Viktor Þórir, f. 15.
ágúst 1953, kvæntur
Leoncie Mariu Martin.
4) Sólrún, f. 27. júní
1958, dætur hennar
eru: a) Sigurlaug
Viktoría Pettypiece, f.
1977, í sambúð með
Hrafnkeli Erlends-
syni, þau eiga fjögur
börn. b) Dagrún An-
toinette Pettypiece, f. 1982, gift
Trausta Traustasyni og eiga þau tvo
syni.
Sigurlaug og Albert hófu búskap
á Freyjugötu 37, byggðu síðan hús á
Borgarholtsbraut 16 í Kópavogi og
bjuggu þar síðan. Sigurlaug stund-
aði nám í Austurbæjarskólanum.
Eftir skólagöngu vann hún m.a. sem
gjaldkeri hjá Áfengis- og tóbakssölu
ríkisins og í Gjafabúðinni á Skóla-
vörðustíg. Árið 1974 fór Sigurlaug
aftur út á vinnumarkaðinn og vann í
Fatahreinsuninni Snögg í Suðurveri
í um 18 ár. Sigurlaug var mikil úti-
vistarmanneskja og ferðaðist mikið
um landið með foreldrum sínum og
síðar eiginmanni og börnum. Sig-
urlaug stundaði íþróttir á unglings-
árum, aðallega sund og skíði hjá Ár-
manni.
Útför Sigurlaugar verður gerð
frá Kópavogskirkju í dag, 24. sept-
ember 2010, og hefst athöfnin kl. 13.
Bless, elsku amma mín.
Núna þegar amma er farin hellast
yfir mig allar minningarnar um hana
frá bernsku minni. Amma var alveg
æðisleg amma. Það var gaman að fara
í allar göngurnar með henni og afa,
skoða hella, ganga um Heiðmörkina
og hlusta á sögurnar hans afa. Síðan
eftir hverja ferð var farið í sjoppu og
keypt hraun eða ís í brauðformi.
Amma var dugleg að fara með okkur
barnabörnin í sund og hún fór með
okkur í rennibrautina í Laugar-
dalslauginni. Það var æðislegt að sjá
ömmu í rennibrautinni, hún var alltaf
tilbúin að vera með okkur í öllu, ekki
bara horfa á og sitja í heita pottinum.
Síðan má ekki gleyma ömmu sem fór
með okkur á skauta og var hún bara
ansi góð á skautum.
Þegar við barnabörn ömmu vorum
lítil vorum við alltaf saman um jólin.
Það var gaman að vera heima hjá
ömmu og afa og vera allir saman. Þá
var alltaf dansað og sungið í kringum
jólatréð eftir mat og uppvask. Síðan
lásu amma og afi alltaf jólakortin áður
en það mátti opna pakkana. Amma bjó
alltaf til stóra skál af möndlugraut og
eftir grautinn fékk sá sem var með
möndluna gjöf. Ég var ekki mikið fyrir
grautinn og því var ekki möguleiki fyr-
ir mig að vinna leikinn. Ein jólin
svindluðum við Siggurnar og amma
setti möndluna í diskinn minn og ég
fékk möndlugjöfina það árið. Síðan á
gamlárskvöld var alltaf gamlársgleði
heima hjá ömmu og afa. Allir komu
með mat og allir horfðu saman á
Skaupið. Síðan var farið að sprengja
upp flugelda. Það var alltaf nóg um að
vera hjá ömmu og afa. Heimili þeirra
var samkomustaður fjölskyldunnar
þar sem jólin voru haldin, allir hittust
á gamlárskvöld, fermingar haldnar
o.fl.
Þegar ég var komin með börn var
alltaf gaman að kíkja í sunnudagskaffi
til ömmu Siggu og afa Alla og fá vöffl-
ur eða pönnsur og rjúkandi heitt kakó
eða bara eitthvað annað gott í gogg-
inn. Og ekki má gleyma bestu kjöt-
súpu í heimi sem amma bjó til. Ég nota
alltaf uppskriftina hennar þegar ég bý
til kjötsúpu. Amma var líka mjög dug-
leg að prjóna og prjónaði hún falleg-
ustu vettlinga og sokka. Það var alltaf
talað um það í leikskólanum hjá
Söndru og Róberti að þau ættu svo fal-
lega vettlinga og sokka að það þyrfti
ekki að merkja þá.
Amma vildi vera með í svo mörgu.
Þegar við Sandra fórum í skólann í
laufabrauðsgerð vildi amma alltaf
koma með og skera út nokkur laufa-
brauð og hlusta á kórana syngja jóla-
lög sem hún söng með, enda hafði hún
gaman af söng. Þegar ég tók slátur
var amma alltaf til staðar við sauma-
skapinn. Þegar ég sauð slátrið sá ég
alltaf hvaða keppi amma hafði saumað
því hún saumaði svo vel.
Amma var alltaf mikil amma og það
var alltaf gott að leita til hennar, hvort
sem það var með bletti í fötum, laga
buxur eða bara til að tala við. Amma
var alltaf tilbúin að hlusta á mig,
hjálpa mér og dekra við mann.
Bless, elsku besta amma mín, ég
veit að afi tók á móti þér þegar þú
fórst frá okkur. Það er gott að vita að
þið hafið hvort annað núna.
Saknaðarkveðjur,
Viktoría (Sigga Vigga).
Elsku amma.
Yfirleitt á ég svo auðvelt með að
setjast niður og skrifa en núna reynist
mér það erfitt, kannski vegna þess að
ég er ekki fyllilega búin að átta mig á
því að þú sért farin frá okkur.
Það er svo stutt síðan þú faðmaðir
mig og hlóst að einhverjum bjánaleg-
um tilþrifum mínum.
Það gleður mig að ég hafi verið þér
svona náin og að börnin mín hafi náð
að kynnast þér vel. Þú varst náttúr-
lega engin venjuleg amma. Þú sagðir
þínar skoðanir, hvernig sem þær voru.
Alltaf þegar ég kom til þín, hvort
sem það var heim á Borgó eða á Sunn-
hlíð, tókst þú á móti mér með svo fal-
legu brosi, þú ljómaðir öll af gleði,
þannig vissi ég alltaf hve vænt þér
þótti um mig. Við áttum sérstakt sam-
band, grínuðumst mikið og áttum svo
margar góðar stundir.
Sem unglingur man ég eftir þér
sem bjargvættinum mínum, iðulega
var ég mætt heim til þín, læst úti eftir
skóla og þú skutlaðir mér heim og
opnaðir fyrir mér. Þetta var auðvitað
okkar leyndarmál því að mamma
hefði ekki verið kát með þetta enda-
lausa vesen á mér. Þú hugsaðir alltaf
um velferð mína og ég vissi að þér
gæti ég treyst fyrir öllu. Þannig varst
þú, kletturinn minn og okkar allra.
Þú ert svo stór hluti af uppvexti
mínum og ég á þér svo margt að
þakka. Ég gleymi því aldrei hve fús þú
varst að fara með mér og Hrönn í
rennibrautina í sundlauginni, við vor-
um svo montnar með okkar frábæru
ömmu. Þvílík forréttindi að fá að alast
upp hjá þér og afa í fallega hlýja hús-
inu ykkar, sem er engu öðru líkt. Ég
hef alltaf fundið fyrir friði við komu
mína á Borgarholtsbrautina.
Með tárin í augunum hugsa ég til
jólanna, það hafði enginn eins gaman
af því að syngja jólasálma við eldhús-
verkin eins og við gerðum saman og
það er svo stutt síðan við gerðum það
síðast.
Ég veit að þú varðst aldrei söm eftir
að elsku afi fór frá okkur, hann var svo
stór hluti af þér. Þess vegna léttir mér
í hjarta mínu að vita til þess að þið haf-
ið sameinast á ný.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson)
Hvíl í friði, elsku amma mín.
Dagrún, Trausti og synir.
Heimför ömmu Siggu bar skjótt að.
Öldrunarsjúkdómur hafði hrjáð hana
um nokkurt skeið en hún var alltaf svo
hress og bar sig svo vel að það kom
mjög óvænt að hinsta kveðjustundin
skyldi vera svo skammt undan.
Fyrstu ár ævi minnar bjó ég langt
frá ömmu, en fór oft í heimsókn til
hennar. Það var alltaf svo spennandi
og skemmtilegt að heimsækja ömmu
Siggu eða ömmu Kópó eins og ég kall-
aði hana oft. Það var alltaf mikið líf og
fjör í kringum hana. Hún söng og
trallaði með svuntu inni í eldhúsi og
bjó til eitthvað gott. Hún fór með mig í
sund, í bæinn og í heimsóknir. Það var
alltaf svo gaman með ömmu.
Vegurinn milli mín og ömmu stytt-
ist þegar ég var 15 ára þegar ég flutti
suður. Mikill samgangur var í fjöl-
skyldunni og á hverjum sunnudegi
var kaffiboð hjá ömmu og afa. Á jólum
hittist fjölskyldan, gekk í kringum
jólatréð og söng. Amma gaf alltaf tón-
inn og okkur börnunum þótti þetta
skemmtilegt og henni líka.
Amma söng vel og fallega en var
jafnframt mikil íþróttakona og nátt-
úruunnandi. Hún æfði skíði, hand-
bolta, var góð á skautum og mikil
sundkona. Hún var mikill göngugarp-
ur og gekk á fjöll. Amma og afi hafa
eflaust gengið upp á flest fjöll á Ís-
landi enda þekktu þau landið mjög
vel. Þau voru einnig dugleg að fara í
útilegur og amma lumaði alltaf á ein-
hverjum sögum úr ævintýraferðum
sínum. Amma tíndi oft fjallagrös og
bjó til grauta og smyrsl til að lækna
sár. Hún vildi hlúa að sínu fólki og var
alltaf til staðar.
Amma Sigga var mikil barnagæla,
flautaði og söng fyrir litlu barnabörn-
in sín og síðan langömmubörnin. Hún
hafði svo gaman af að fylgjast með
þeim og spjalla við þau. Amma Sigga
var þeim hæfileika gædd að geta talað
við alla og hún þekkti alla. Hún hafði
einnig gaman af ættfræði og gat rakið
skyldleika í allar áttir. Amma gat tal-
að við hvern sem er, hvort sem hún
þekkti viðkomandi eða ekki. Hún var
svo opin, skemmtileg og ófeimin. Eitt
sinn þegar ég var unglingur kom hún
inn í verslun þar sem ég var að vinna.
Það var fullt af fólki og hún kallaði „jú-
húhú“ og veifaði til mín með bros á
vör. Allir litu í áttina til hennar og ég
líka, mér fannst hún alveg æðisleg þar
sem hún stóð þarna stolt af barna-
barninu sínu og ég brosti og veifaði á
móti. Alveg jafn stolt af henni og
fannst ég svo heppin að eiga svona
„kúl“ og skemmtilega ömmu. Hún
ljómaði alltaf af gleði þegar við hitt-
umst. Það er gott að minnast hennar
þannig.
Amma Sigga var falleg og hlý kona.
Hjarta hennar var sterkt og vel gert.
Ég á yndislegar minningar um þessa
góðu konu. Hún hafði góða nærveru,
var skemmtileg og öllum þeim sem
fengu að kynnast henni þótti vænt um
hana.
Ég var ekki undir það búin að
amma væri að kveðja þennan heim.
Þegar ég heimsótti hana fyrir stuttu
þá sagðist ég koma með litlu langöm-
mutvíburana hennar í heimsókn þeg-
ar hún væri orðin hressari og ég
hlakkaði til. Því miður varð ekkert af
þeim fundi. Ég reyni að hugga mig við
að hún sé ekki lengur kvalin, sé komin
til afa og líði vel á betri stað. Hennar
er sárt saknað, hafi hún þökk fyrir allt
og allt.
Harpa Hallsdóttir.
Sigurlaug
Guðmundsdóttir
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
HELGA RAGNHILDUR HELGADÓTTIR,
Birkivöllum 27,
Selfossi,
lést miðvikudaginn 22. september. Útförin
fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 1. október
kl. 13.30.
Ormur Hreinsson,
Guðrún Ormsdóttir, Þorsteinn Bjarnason,
Olga Björg Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær dóttir okkar, systir, mágkona og frænka,
HRAFNHILDUR HRAFNSDÓTTIR,
Bólstaðarhlíð 52,
105 Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítala í Kópavogi
fimmtudaginn 16. september, verður jarðsungin frá
Háteigskirkju þriðjudaginn 28. september kl. 15.00.
Ingibjörg Ólafsdóttir, Hrafn Þórðarson,
Ólafur Veigar Hrafnsson, Hilda Hrund Cortes,
Guðrún Th. Hrafnsdóttir, Benedikt F. Jónsson,
Vilfríður Hrefna Hrafnsdóttir,
Svava Berglind Hrafnsdóttir,
Helga Jenný Hrafnsdóttir,
systkinabörn og allir sem elskuðu hana.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
SIGURÐUR GUNNARSSON
frá Flatey á Skjálfanda,
Boðaslóð 12,
Vestmannaeyjum,
lést mánudaginn 20. september.
Útförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
fimmtudaginn 7. október kl. 14.00.
Jóna Guðmundsdóttir,
Helga Sigurðardóttir, Ásgeir Sverrisson,
Kristín Sigurðardóttir, Magnús Þorsteinsson,
Lilja Sigurðardóttir, Guðmundur Adolfsson
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýhug og stuðning
við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar,
JÓNU BJARGAR PÁLSDÓTTUR
hjúkrunarfræðings.
Sérstakar þakkir til íslenskra námsmanna í
Danmörku sem hafa veitt okkur ómetanlegan
stuðning.
Birgir Elíasson.
Elsku Kolla mág-
kona mín er látin. Hún
var yndisleg kona og
hafði góða nærveru. Kolla hringdi
reglulega í okkur til að athuga hvern-
ig við hefðum það og spyrja frétta af
fjölskyldunni, henni var umhugað um
að öllum gengi vel.
Hér áður fyrr nutum við þess oft að
gista hjá Kollu þegar við komum suð-
ur, það var gott að koma til hennar og
tók hún á móti okkur með hlýju og
gleði. Einnig heimsóttum við hana á
Ísafjörð, það var yndislegur og eft-
irminnilegur tími. Seinni árin vorum
við Kolla í meira sambandi. Mér er
Kolbrún Daníelsdóttir
✝ Kolbrún Daníels-dóttir fæddist í
Samkomugerði í
Eyjafirði 12. apríl
1936. Hún lést á
Landspítalanum í
Reykjavík 9. sept-
ember síðastliðinn.
Kolbrún var jarð-
sungin frá Bústaða-
kirkju 17. september
2010.
minnisstætt að þegar
elsta ömmustelpan mín
fermdist bað ég hana
að aðstoða mig við að
sauma fermingarkjól-
inn og þótti henni það
alveg sjálfsagt. Svo
byrjaði saumaskapur-
inn og var ég daglegur
gestur hjá Kollu um
tíma og tók hún alltaf á
móti mér með hlýju og
fallega brosinu sínu. Á
endanum var það Kolla
sem saumaði kjólinn og
ég horfði bara á en ég
lærði sitthvað af henni því sauma-
skapurinn lék í höndunum á henni.
Við áttum góðar stundir saman og
spjölluðum um heima og geima og er
ég henni ævinlega þakklát fyrir það.
Kolla var mér mjög kær og er gott að
geta yljað sér við allar ljúfu minning-
arnar um hana.
Elsku fjölskylda, innilegar samúð-
arkveðjur til ykkar.
Takk fyrir allt, ég sakna þín elsku
Kolla.
Hanna I. Sigurgeirsdóttir.