Morgunblaðið - 24.09.2010, Page 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2010
✝ Unnur Þyri Guð-laugsdóttir
fæddist í Reykjavík
9. júlí 1930. Hún
lést á Landspít-
alanum í Reykjavík
16. september 2010.
Móðir hennar hét
Ólöf Vilborg Eyj-
ólfsdóttir og faðir
Guðlaugur Hinriks-
son. Unnur bjó í
Kjós, Mosfellsbæ og
Reykjavík.
Unnur var gift
Eyþóri Fannberg og
saman eignuðust þau fjögur
börn: Salóme Herdís, f. 1951, Ás-
kell Bjarni, f. 1953, Kristjana
Ólöf, f. 1956 og Eyþór, f. 1964.
Unnur giftist seinni manni sínum
Herði Ragnarsyni 1970. Hann
lést 2001. Barna-
börnin eru Yrsa
Þurý, Þórey Krist-
jana, Magnús,
Björn Ingemar,
Tor Viðar, Nanna
Herdís, Áslaug
Dögg, Unnur
Björk, Eyþór Ingi,
Einar Már, Hörður
Már, Helgi Þór,
Heiðar Freyr,
Brynjar Þór, Bjart-
ur Freyr og barna-
barnabörnin eru
Ludwig Tyree,
Freydís Ósk, Anton Logi, Loki,
Æsa og Þór.
Jarðarför Unnar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 24.
september 2010, og hefst athöfn-
in kl. 13.
Það er mér mjög dýrmætt að
hafa verið á landinu og með þér
síðustu dagana og náð að kveðja
þig. Að fá að lesa fyrir þig upphátt,
þótt ég sé ekki viss um að þú hafir
fylgst með söguþræðinum.
Við höfum átt margar góðar og
skemmtilegar stundir saman og
sérstaklega síðustu tíu árin. Mér
þykir mjög vænt um þann tíma og
að hafa fengið að vera svo mikið
með þér. Að fá að hlusta á sögur
þínar, því þú varst gott skáld og
góður sögumaður. Það er dýrmætt
að eiga minningar um okkur sam-
an sem fullorðnar konur.
Ég vil sérstaklega þakka fyrir
að hafa fengið að taka þátt í lífi
þínu á Hrafnistu í Hafnarfirði, þar
sem þú varst óþreytandi við að
kynna mig fyrir heimilismönnum,
láta mig hlusta á sögur þeirra og
vera með í daglegu lífi ykkar. Ég
fékk að vera með og ljósmynda
púttið, sönginn, bókasafnið, lista-
smiðjuna, 100 ára prjónakonur og
ég dansaði meira að segja minn
fyrsta vals á Hrafnistu, enda þótt
ég hafi víst traðkað vel á tánum á
þeim sem bauð mér upp! Þú redd-
aðir mér meira að segja dýnu svo
ég gæti sofið á gólfinu hjá þér
meðan ég var á landinu. Hver ann-
ar en Unnur amma hefði fengið
það í gegn að hafa þrítugt barna-
barn sofandi á gólfinu hjá sér á
elliheimilinu?
Stolt var ég þegar ég sem nemi í
London gat boðið fólki í fiskibollur,
sem þú sendir mér að heiman. Þú
varst með það á hreinu hvenær
pósturinn færi og varst mætt með
50 frosnar fiskibollur til að senda
mér og þær skiluðu sér gaddfrosn-
ar innan við 24 klukkustundum síð-
ar.
Gott var að fá að setjast í hinn
fræga „Deutscher-stól“, stólinn
sem amma tengdi heimsóknum
þýsks læknis sem fórst í stríðinu.
Ég var víst ekki sú eina sem fann
fyrir lækningamætti hans. Það var
mjög góð og sérstök tilfinning að
sitja í þessum stól og standa upp
úr honum sem ný. Því gleymi ég
aldrei.
Ég mun ganga álfagönguna sem
við gengum svo oft um hraunið við
Hrafnistu þér til heiðurs hvert
sumar.
Þín
Yrsa.
Elsku Unnur mín.
Mig langar að kveðja þig með
nokkrum fátæklegum orðum og
þakka þér fyrir allar fallegu stund-
irnar sem þú gafst mér.
Það var alltaf svo yndislegt að
hitta þig, þú gafst svo mikið og
hafðir alltaf svör á reiðum hönd-
um, alveg sama hvort það voru
fjármálin eða andleg mál, þú varst
nú snögg upp á lagið og enga
stund að redda hlutunum.
Þitt líf var nú enginn dans á rós-
um en trú þín var sterk og svo
hafðir þú elsku Hörð þinn til að
halla þér að og núna eruð þið sam-
an aftur og það hafa verið fagn-
aðarfundir, get ég trúað.
Ég ætlaði einmitt að heimsækja
þig daginn sem þú kvaddir þennan
heim og fá hjá þér tesopann góða
og hafði svo margt að segja þér en
ég veit að ég get talað við þig í
hljóði þótt þú sért farin yfir móð-
una miklu og nú finnur þú ekkert
til, ert frjáls með öllum hinum
englunum, elsku Unnur mín góða.
Þú elskaðir allt sem fagurt er og
sagðir aldrei neitt ljótt um nokk-
urn mann, lagðir málefnum þeirra
sem minna mega sín lið af því litla
sem þú áttir.
Ég á eftir að sakna þín og sé
núna að ég hefði alveg getað komið
oftar við á Hrafnistu en mér fannst
ég stundum ekki hafa tíma og eitt-
hvað annað að gera en samt vil ég
trúa því að okkar allt of fáu stund-
ir hafi verið dýrmætari en gull.
Ég vil þakka þér, elsku kæra
vinkona mín, fyrir allt og allt.
Geymi þig allir englarnir þangað
til við hittumst á ný yfir tebolla og
kátínu og núna syng ég fyrir þig
þennan fallega sálm í kveðjuskyni.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Þín vinkona,
Hlíf Káradóttir.
Unnur var einn af stofnendum
Styrks, samtaka krabbameins-
sjúklinga og aðstandenda þeirra,
haustið 1987 og öflugur liðsmaður
alla tíð. Hún tók þátt í öllum fjár-
öflunum félagsins, seldi merki og
jólakort, en síðast en ekki síst átti
hún stóran þátt í að safna fyrir pí-
anói sem hefur nýst mjög vel í
starfi Styrks og annarra sem halda
fundi í húsi Krabbameinsfélagsins.
Í hverjum mánuði mætti hún á fé-
lagsfundi Styrks og fór nokkrum
sinnum á vegum félagsins í orlofs-
dvöl að Löngumýri í Skagafirði og
Sólheimum í Grímsnesi. Jákvæðnin
skein af henni og hún veitti mörg-
um styrk í erfiðleikum með hlýju
viðmóti og gat miðlað af reynslu
sinni af erfiðum sjúkdómi. Fyrir
hönd Styrks sendi ég innilegar
samúðarkveðjur til fjölskyldu Unn-
ar.
Steinunn Friðriksdóttir,
formaður Styrks.
Unnur Þyri
Guðlaugsdóttir
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á
reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is
og viðeigandi efnisliður valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Þar sem pláss er
takmarkað getur birting dregist,
enda þótt grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birt-
ast í Morgunblaðinu séu ekki lengri
en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda
lengri grein. Lengri greinar eru ein-
göngu birtar á vefnum. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir
formáli sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um fæddist, hvar og hvenær
hann lést og loks hvaðan og klukkan
hvað útförin fer fram. Þar mega einn-
ig koma fram upplýsingar um for-
eldra, systkini, maka og börn. Ætlast
er til að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður, en ekki
í minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir grein-
unum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynn-
ingu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um
annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendi-
kerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda myndina á
netfangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar
Bækur
Guðbrandsbiblía
Guðbrandsbiblía, ljósprent frá
1956. Gott eintak.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Dýrahald
Persakettlingar. Höfum persakettl-
inga til sölu. Tilbúnir til afhendingar,
örmerktir, ættbók frá kynjaköttum,
með báðar bólusetningar og búnir að
fara í ófrjósemisaðgerð.
Kettirnir frá okkur eru að leita að
góðum framtíðarheimilum. Áhuga-
samir hafi samband í 663 6507.
Gisting
Vantar þig gistingu á Akureyri
í vetur? Mjög góðar orlofsíbúðir
til leigu við miðbæinn. Margar
stærðir, frábær verð. Getum tekið
á móti stórum hópum.
Upplýsingar á
www.gistingakureyri.is og
www.gistingamaro.is
eða í s. 461 2222.
AKUREYRI
Höfum til leigu 50, 85 og 140 m²
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is,
Leó, s: 897- 5300.
Húsnæði óskast
Einbýlis-, tvíbýlis-, par- eða
raðhús óskast. Par með tvö börn
óskar eftir einbýlis-, tvíbýlis-, par-
eða raðhúsi. Verður að vera bílskúr.
Svæði Kóp., Mosf., Grafarv. eða
svæði nálægt Lækjarbotni/Heiðmörk
og allt þar nálægt. Uppl. í símum
696 2682, 777 0985 og 571 2279.
Atvinnuhúsnæði
Til leigu 20-60 fm iðnaðarpláss
Staðsett 20 mínútur frá Hafnarfirði.
Upplýsingar í síma 894-0431.
Til sölu
Líkamsræktartæki til sölu
Erum með 25 góðar stöðvar til sölu,
seljast sem heild. Uppl. í s. 899 6698.
Ódýr blekhylki og tónerar í
HP, Dell, Brother, Canon og Epson.
Send samdægurs beint heim að
dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150.
Sjá nánar á blekhylki.is
Verslun
Motivo Selfossi - Sósuskál á
tilboðsverði kr. 4.990
Afmælisgjafir, brúðargjafir og gjafir
handa þér. Motivo, Austurvegi 9,
Selfossi, s. 482-1700, www.motivo.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi. Kaupi
allt gull, nýlegt, gamalt og illa
farið. Leitið til fagmanns og fáið
góð ráð. Upp. á demantar.is, í
síma 699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13 (við Austurvöll).
Verið velkomin.
Veiði
HAGLASKOT - Haglaskot fyrir
leirdúfur, sjófugl, rjúpu, önd og gæs.
Topp gæði - botn verð.
Sportvörugerðin sími 660-8383.
www.sportveidi.is
Bílar
Til sölu bílar sem þarfnast
lagfæringar. Kia Sportage, dísel
jeppi árg. 2002. Ekinn 88.000 þús.
Dodge sendibíll, árgerð 1996 og
gamall Patrol, árgerð 1985.
Upplýsingar í síma 894 0431.
TOYOTA RAV4 LANGUR 4WD.
Árgerð 2001, ekinn 159 þ. km.
5 gírar. Verð 1.280.000. Rnr. 113669.
Sjá fleiri myndir á www.bilalif.is.
TILBOÐ 2.490.000,-
VW Touareg V6. Árgerð 2004, ekinn
119 þ. km. Sjálfskiptur. Ný dekk.
Verð 2.890.000. Rnr. 243173.
Sjá fleiri myndir á www.bilalif.is.
Bón & þvottur
Vatnagörðum 16, sími 445-9090
Þvoum, bónum, djúphreinsum, þrífum
að innan alla bíla, eins sendibíla,
húsbíla og hjólhýsi, eins vélmössum
við matt lakk svo það verði sem nýtt.
Einnig bjóðum við hrað-gæðaþvott.
Öll vinna er handunnin. Opnum kl.
9.00 virka daga og 10.00 laugardaga.
Einnig bendum við viðskiptavinum
Viðskiptanetsins á auglýsingu á
barter.is
Bonogtvottur.is
MMC PAJERO GLS ANTERA 33"
Árgerð 2003, ekinn 139. þ. km.
Sjálfskiptur. Verð 2.890.000.
Rnr. 242943. Sjá fleiri myndir á
www.bilalif.is.
Bílaþjónusta
!
"
Hjólbarðar
Óska eftir 16" nagladekkjum
á Nissan Terrano, s. 893 5201.
Fellihýsi
Ferðavagnageymsla Borgarfirði
Geymum tjaldvagna, fellihýsi,
hjólhýsi og fleira í upphituðu rými.
Gott verð. S: 899 7012.
E-mail solbakki.311@gmail.com.
Húsviðhald
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl