Morgunblaðið - 27.09.2010, Síða 1
M Á N U D A G U R 2 7. S E P T E M B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 225. tölublað 98. árgangur
Holl mjólk
hraustir krakkar
Mjólk er
góð!
Á alþjóðlega skólamjólkurdeginum, 29. september, býður Mjólkursamsalan
öllum 70.000 grunn- og leikskólabörnum landsins upp á mjólk í skólunum.
Með deginum vill íslenskur mjólkuriðnaður vekja athygli barna, foreldra og
starfsfólks skólanna á mikilvægi mjólkur í fæði barnanna.
SJÓÐHEITT
SUNDBÍÓ OG
MONROE
„RAUÐI ED“
SIGRAÐI STÓRA
BRÓÐUR
ÖLDRUÐUM FÍKLUM
FJÖLGAR VÍÐA UM HEIM
HIPPAKYNSLÓÐIN KOMIN AÐ ÞROTUM? 18 HNÍFJÖFN RIMMA 16KVIKMYNDAHÁTÍÐ 31
Andri Karl fer í saumana á vandamálinu
Ronja í faðmi Alexöndru Lífar
Alexandra og Ronja eru ósköp venjulegar systur sem tengjast sérstökum böndum. Alexandra segir að þeim komi ekki alltaf vel saman,
enda algjörar andstæður. Faðir þeirra er sannfærður um að síðar muni vinskapurinn verða mikill. „Þær verða sérstakar vinkonur.“
Alexandra Líf Ólafsdóttir getur þakkað
litlu systur sinni fyrir að vera enn á
lífi. Eftir að Alexandra greindist með
MDS-krabbamein fyrir rúmu ári var
ljóst að hún þurfti að reiða sig á annað
en bara lyfjagjöf. Hún þurfti að reiða
sig á beinmergsgjöf frá systur sinni.
Báðar systur Alexöndru reyndust
hæfir beinmergsgjafar. Ronja, sú eldri,
frumur koma frá Ronju. Alexandra og
Ronja búa ásamt foreldrum sínum og
tveimur yngri systkinum í Hróarskeldu.
Undanfarin ár hafa reynst fjölskyld-
unni erfið. Aðeins ári eftir að Alex-
andra greindist með krabbamein í
fyrra skiptið af tveimur, drukknaði
yngri bróðir hennar sem þá var aðeins
þriggja ára gamall. » 12-13
varð fyrir valinu. „Ronja er svo fíl-
hraust, frumurnar hennar eru svo
sterkar, að við treystum því að hún
myndi bjarga henni,“ segir Ólafur Páll
Birgisson, faðir stúlknanna. Trú Ólafs
reyndist á rökum reist. Læknar Alex-
öndru hafa haft orð á því að það sé
greinilegt að hún sé með mjög sterkan
gjafa, en allar hennar beinmergs-
Bjargaði lífi stóru systur
Alexandra Líf hefur sigrast á krabbameini í annað sinn
Morgunblaðið/Gísli Baldur
Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
1.306 heimili og fyrirtæki voru seld á nauðungarupp-
boði um land allt frá áramótum fram til 15. sept-
ember á þessu ári. Þetta er tala frá embætti umboðs-
manns skuldara sem nýlega óskaði eftir
upplýsingum um slíkar sölur frá öllum sýslumanns-
embættunum. Flest voru uppboðin haldin í höfuð-
borginni, 228 talsins,
en athygli vekur að
sýslumaðurinn í Kefla-
vík fylgir þar fast á
hæla með 224 uppboð.
Þykir sú tala veita
ágæta vísbendingu um
atvinnuástandið á
Reykjanesi.
Ásta Sigrún Helga-
dóttir, umboðsmaður
skuldara, óskaði jafn-
framt eftir upplýsing-
um um heildarfjölda
beiðna um nauðungar-
sölur en hafði ekki er-
indi sem erfiði. Ljóst
er að enginn veit ná-
kvæmlega hversu margar beiðnir hafa borist sýslu-
mannsembættum.
„Það er greinilega vandkvæðum bundið að athuga
þetta nákvæmlega og embættin gátu ekki veitt okkur
upplýsingarnar. Það er ýmislegt sem flækir málið.
Til að mynda geta verið margir gerðarbeiðendur að
baki hverri kröfu um nauðungaruppboð en það er
ekki talið sérstaklega hjá sýslumönnum,“ segir Ásta.
Hún segir jafnframt afar mikilvægt að ráðist verði í
þá vinnu að greina þessar tölur enda geti stjórnvöld
ekki fyrr áttað sig á umfangi vandamálsins. Hún seg-
ir ennfremur að stefnt sé að því að funda með stjórn-
völdum og fulltrúum fjármálafyrirtækja í vikunni um
næstu skref í baráttunni við skuldavanda heimilanna.
Fjöldi
beiðna
óþekktur
1.306 heimili og fyrirtæki
verið seld á nauðungaruppboði
1.306
Heildarfjöldi nauðungar-
uppboða á landinu
öllu frá áramótum.
228
nauðungaruppboð hjá
sýslumanninum í
Keflavík frá áramótum.
‹ NAUÐUNGARUPPBOÐ ›
Ágúst Guðmundsson, annar aðal-
eigandi Bakkavarar Group, hefur
náð sáttum í máli, sem höfðað var á
hendur honum vegna 7,46 millj-
óna evra láns, það er 1,15 millj-
arða íslenskra króna, sem
hann og kona hans fengu hjá
Kaupþingi í Lúxemborg til
kaupa á skíðaskála í
frönsku Ölpunum. Þetta
kom fram á vef Fincancial
Times í gærkvöldi.
Kaupþing í Lúx-
emborg lánaði Ágústi og
konu hans féð í október
2007 til að kaupa skíða-
skála og lóð.
Félagið Pillar Securit-
isation höfðaði málið gegn Ágústi
en það yfirtók lánabók Kaupþings í
Lúxemborg í fyrra. Í kæru, sem
lögð var fyrir yfirrétt í Lund-
únum, segir að Ágúst og kona
hans hafi fullnýtt lánsheimildina
í nóvember 2007 til kaupa á
skíðaskálanum. Ágúst
greiddi ekki 30.908 evra
afborgun í nóvember og í
kjölfarið gjaldfelldi Pil-
ar allt lánið og krafðist
greiðslu eftirstöðv-
anna, 6,558 milljóna
evra.
Ekki náðist í Ágúst
vegna málsins í gær-
kvöldi.
Ágúst semur um 1,15 milljarða kr. skuld
vegna skíðaskála í frönsku Ölpunum
Ágúst
Guðmundsson
Fossasería
Ólafs Elíassonar
seldist fyrir
nærri hálfa millj-
ón dala, eða 53
milljónir ísl.
króna á uppboði
hjá Sotheby’s á
laugardaginn.
Verkið var í eigu
Lehman Brot-
hers. Áætlað söluverð var 60-80
þúsund dalir.
Börkur Arnarson hjá i8 galleríi
segir að það sé nokkuð sérstakt að
verkið hafi selst fyrir slíka upphæð
þar sem það sé „edition“ verk af
þremur. »28
Ein af þremur
Fossaseríum
Ólafur Elíasson
MBrýn þörf á lausnum fyrir heimili »4