Morgunblaðið - 27.09.2010, Side 4
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Fulltrúar lánardrottna Reykjanes-
bæjar, vegna 1,8 milljarða króna er-
lends láns sem gjaldféll á bæjar-
sjóðinn í upphafi ágústmánaðar,
komu til landsins nýverið til samn-
ingaviðræðna. Bærinn hefur enn
ekki greitt lánið en það var tekið ár-
ið 2000 hjá þýska Wurthemberger-
bankanum sem síðar lenti í miklu
fjárhagsörðugleikum. Böðvar Jóns-
son, formaður bæjarráðs Reykja-
nesbæjar, segir kröfuhafa lánsins
nú vera þýsk-írska Depfa-bankann.
„Það var tekið hjá þeim banka
upphaflega. Ég man nú ekki hvern-
ig það var nákvæmlega en að
minnsta kosti skipti hann um nafn.
Það var einhver annar þýskur banki
sem fékk þetta en svo var lánið selt
til írska bankans Depfa. Það er sá
banki sem er í slitameðferð. Þeir
voru eigendur lánsins en þetta er
samt eitthvert sambland. Þessi
banki og svo þýskur ríkisbanki. Mér
skilst nú að lögfræðideildin hjá
þýska bankanum sjái um þetta mál
en hafi verið í samstarfi við Depfa-
banka. Það er Depfa-bankinn sem
er hinn raunverulegi eigandi kröf-
unnar. Það voru fulltrúar þeirra
sem komu til landsins,“ segir Böðv-
ar.
Viðræðum miðar vel
Böðvar segir viðræðum við kröfu-
hafa um endurfjármögnun lánsins
ganga ágætlega. „Þeir voru hér hjá
okkur um daginn og við höfum verið
í samskiptum við þá í gegnum tölvu-
pósta síðan. Þessu miðar því ágæt-
lega.“
Segir samninga
við kröfuhafa
miða ágætlega
Reykjanesbær í viðræðum við Depfa-
banka, kröfuhafa 1,8 milljarða króna láns
1,8 milljarða lán
» Reykjanesbær tók 1,8 millj-
arða króna erlent lán árið
2000 sem gjaldféll í ágúst.
» Reykjanesbær vinnur nú að
endurfjármögnun lánsins.
» Kröfuhafinn er hinn þýsk-
írski Depfa-banki.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2010
Á haustin skartar þessi yndislega eyja sínu fegursta. Veðurfarið er einstaklega milt
og notalegt sem og allt umhverfi, hvort sem dvalið er við amerísku ströndina, á
Costa Adeje eða í Los Cristianos. Nú fer hver að verða
síðastur að panta sér ferð í október til Tenerife, því
það eru einungis örfá sæti laus. - Ekki missa af
þessari ferð!
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til
leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Tenerife
28. október í 16 nætur
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Morgunflugmeð Icelandair
Frá kr. 139.540
- Dream Villa Tagoro*** með allt innifalið!
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í íbúð
m/1 svefnherbergi. Innifalið er flug, gisting, skattar og "allt
innifalið" þjónusta". Verð kr. 187.980 á mann m.v. tvo í íbúð
m/1 svefnherbergi. Innifalið er flug, gisting, skattar og
"allt innifalið" þjónusta. Sértilboð í 16 nætur þann 28. október.
Frá kr. 164.180
- Parque Santiago***
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í
stúdíóíbúð í 16. nætur. Innifalið er flug,
gisting og skattar. Sértilboð 28. október.
Aukagjald fyrir einbýli kr. 87.100.
Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin til Tenerife
þann 28. október á ótrúlegu sértilboði
BAKSVIÐ
Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
„Það sem mér finnst vanta eru raun-
verulegar tölur. Við vitum að vanda-
málið er stórt og okkur vantar því
nákvæmar tölur. Hjá sýslumanns-
embættum er til dæmis ekki gerður
greinarmunur á beiðnum um nauð-
ungarsölur á heimilum og atvinnu-
húsnæði. Það er mikilvægt fyrir alla
að þessar tölur verði greindar og
fengnar á hreint,“ segir Ásta Sigrún
Helgadóttir, umboðsmaður skuld-
ara. Hinn 31. október næstkomandi
fellur úr gildi bráðabirgðaákvæði í
lögum um nauðungarsölu sem heim-
ilar gerðarþola að óska eftir þriggja
mánaða frestun á sölunni.
Ásta vill þó árétta að þrátt fyrir að
ákvæðið falli úr gildi muni þeir sem
sækja um frestun, til dæmis 30. októ-
ber, fá frest fram að febrúarmánuði
á næsta ári. „Það er því engin bein
holskefla framundan hinn 1. nóvem-
ber eins og hefur verið haldið fram.“
1.306 nauðungarsölur fóru fram
hjá sýslumannsembættum vítt og
breitt um landið á tímabilinu frá ára-
mótum fram að 15. september síð-
astliðnum. Þó ekki liggi fyrir ná-
kvæmar tölur um fjölda beiðna um
nauðungarsölur sem hafa borist
sýslumönnum er ljóst að vandinn er
mikill. Ásta segir mikilvægt að
stjórnvöld skoði frekari úrræði í hús-
næðismálum. Hún segir jafnframt að
mögulega séu efni til að kanna hvort
framlengja eigi heimildina til að óska
eftir frestun. „Það þarf að reyna að
forðast það eins og kostur er að fólk
missi heimili sín í nauðungaruppboð-
um og jafnframt huga að því hvað
hægt er að gera fyrir þá sem óhjá-
kvæmilega lenda í slíkum uppboð-
um.“
Ættingjar eignast
endurkröfu
Ásta segir að embætti umboðs-
manns skuldara finni fyrir því að
róður heimilanna sé að þyngjast og
málum fari fjölgandi.
Dómur Hæstaréttar frá 16. sept-
ember síðastliðnum um að sýslumað-
ur hafi ekki mátt afmá veðréttindi á
ábyrgðarmann við greiðsluaðlögun
hefur einnig valdið því að fleiri
leita til embættisins eftir ráð-
gjöf.
„Síminn hefur hreinlega
ekki stoppað. Dómurinn gerir
fólki erfiðara fyrir að nýta sér
greiðsluaðlögun. Ábyrgðar-
menn eru oft vinir eða ætt-
ingjar og þeir geta eign-
ast endurkröfu á
upphaflega skuldarann.
Slíkt fælir fólk frá því
að nýta sér úrræðið.“
Brýn þörf á lausn-
um fyrir heimilin
Umboðsmaður skuldara segir róðurinn vera að þyngjast
Morgunblaðið/Árni Torfason
Hús 1.306 nauðungaruppboð hafa verið haldin frá áramótum og umboðsmaður skuldara segir róðurinn stöðugt
þyngjast hjá heimilunum í landinu. Lilja Mósesdóttir vill kanna möguleika á að fresta uppboðum til áramóta.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Auðvitað voru allir í áfalli eftir
þetta. Hins vegar dugar ekkert að
leggja árar í bát, lífið heldur áfram,“
segir Iðunn Hauksdóttir, formaður
nemendaráðs Landbúnaðarháskóla
Íslands á Hvanneyri.
Rúmlega tvítugum karlmanni,
sem var handtekinn á Hvanneyri að-
faranótt sl. föstudags, hefur verið
vikið úr háskólanum. Maðurinn ógn-
aði þremur skólasystkinum með
hnífi en þau flúðu inn í herbergi og
læstu að sér. Maðurinn lét dólgslega
og barði á dyr svo kallað var á lög-
reglu sem handtók manninn. Þre-
menningarnir, tveir karlar og ein
kona á þrítugsaldri, sluppu við
meiðsl en eitt þeirra fór á sjúkrahús
á Akranesi vegna andlegs áfalls.
„Stjórnendur skólans brugðust
við aðstæðum. Það var ekki hægt að
bjóða neinum að þessi maður væri
hér áfram og auðvitað er þetta mjög
leiðinlegt fyrir hann sjálfan,“ út-
skýrir Iðunn og segir flesta nem-
endur á Hvanneyri hafi farið heim í
helgarleyfi og hafi málið legið í lág-
inni á meðan. Þegar skólahald hefst í
dag sjáist hvernig fólki líði og ef úr
megi bæta verði brugðist við.
„Í litlu samfélagi eins og á
Hvanneyri er mikill kostur að fólk
stendur saman ef eitthvað bregður
út af eða bjátar á,“ segir Iðunn.
Áfall en fólk stendur sam-
an þegar bregður út af
Morgunblaðið/Davíð Pétursso
Hvanneyri Öllum var brugðið eft-
ir árás hnífamannsins í skólanum.
Hnífamaður úr
skóla á Hvanneyri
Saga málsins
» Hnífamaðurinn bíður nú
eftir yfirheyrslur lögreglunnar
ákæru fyrir hótanir og mögu-
lega einnig frelsissviptingu.
» Nemendum var brugðið
enda var áfallið mikið.
» Leiðinlegt fyrir manninn
sjálfan, segir formaður nem-
endafélagsins á Hvanneyri.
„Ég tel að ríkisstjórnin eigi að
skoða það að fresta nauðungar-
uppboðum aftur. Það er komin
upp sú staða að eitt helsta úr-
ræðið [innsk. greiðsluaðlögun]
nýtist ekki vegna dóms Hæsta-
réttar um lánsveð,“ segir Lilja
Mósesdóttir, þingmaður Vinstri
grænna. Hún segir úrræði
vanta fyrir heimilin og huga
þurfi að stöðu þeirra sem fara í
gjaldþrot. „Það má ekki dæma
fólk til útlegðar frá samfélag-
inu við gjaldþrot. Við vitum að
þessi hópur fólks verður
aldrei jafnstór og á næstu
árum.“
Lilja segir jafnframt að
hún hafi rætt lauslega við
Ögmund Jónasson, dóms-
mála- og mannrétt-
indaráðherra, um
möguleika á að
fresta upp-
boðum til ára-
móta.
Uppboðum
verði frestað
LILJA MÓSESDÓTTIR
Lilja Mósesdóttir
„Auðvitað er þetta mjög bagalegt.
Hins vegar raskaðist áætlun skips-
ins vegna veðráttu og slíku verður
ekki stjórnað. Því sýnum við þessum
aðstæðum fullan skilning,“ segir El-
liði Vignisson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum.
Ferðir ferjunnar Herjólfs gengu
enn og aftur úr lagi í gær. Fyrri
hluta dags náði skipið að fara tvær
ferðir í Landeyjahöfn. Þegar á dag-
inn leið varð hins vegar þyngra í sjó
og ölduhæð á svonefndu Bakkafjöru-
dufli mældist fjórir metrar. Ferð k1.
15 var frestað í tvígang uns ferðir
dagsins voru endanlega blásnar af
undir kvöldið. „Í réttu lagi á Herj-
ólfur á sunnudegi að fara tvær ferðir
og fólk gerir sín plön eftir því. Tals-
vert af fólki kom hingað um helgina
og fyrir það er röskunin bagaleg,“
segir Elliði sem bendir á að í gær
hafi skipið þó farið tvær ferðir sumsé
sömu ferðatíðni og var áður en höfn-
in í Landeyjum var tekin í gagnið.
Nú í morgunsárið fer Herjólfur úr
höfn kl. 7.30 og hefur bæjarstjóri orð
skipstjórans fyrir því að siglt verði í
Landeyjahöfn. Gefi ekki verði siglt
til Þorlákshafnar og muni sam-
göngur því verða í lagi – svo langt
sem það nær. sbs@mbl.is
Verðum að sýna
veðráttu skilning
Áætlun Herjólfs fór úr skorðum í gær