Morgunblaðið - 27.09.2010, Page 14

Morgunblaðið - 27.09.2010, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2010 VIÐTAL Gísli Baldur Gíslason gislibaldur@mbl.is Alexandra Líf Ólafsdóttir hélt upp á tólf ára afmæli sitt í síðasta mánuði. Fyrstu tólf ár ís- lenskra barna líða yfirleitt áhyggjulaus. Það verður þó ekki sagt um líf Alexöndru. Æsku hennar hefur að miklu leyti verið varið á sjúkrahúsum. Hún hefur þurft að kljást við tvenns konar krabbamein. Þar að auki missti hún litla bróður sinn þegar hún var aðeins sex ára gömul. Þegar Alexandra hélt upp á afmælið sitt, fagnaði hún ekki bara gjöfunum og kökunum, eins og jafnaldrar hennar eiga til að gera. Alexandra Líf fagnaði því að vera ennþá á lífi. Morgunblaðið hefur fylgst með baráttu Alexöndru og fjölskyldu hennar í rúmt ár. Blaðamaður kíkti í heimsókn til þeirra í Hró- arskeldu í Danmörku á dögunum og ræddi við Alexöndru Líf og foreldra hennar, þau Kol- brúnu Björnsdóttur og Ólaf Pál Birgisson. Hvítblæði og sonarmissir Alexandra var ekki orðin sex ára þegar hún greindist með hvítblæði. Tíðindin voru mikið áfall fyrir ungu foreldrana. „Óli sá um að fá upplýsingar frá læknunum, því ég var eig- inlega bara dofin. Ég missti skammtímaminnið í langan tíma eftir þetta og þurfti að styðjast við minnisblöð til að komast í gegnum daginn,“ segir Kolbrún, móðir Alexöndru. Skömmu síðar hófst tveggja ára tímabil erfiðrar lyfjameðferðar fyrir hina kornungu Alexöndru. Þegar tæpt ár var liðið af meðferðinni virtist foreldrunum sem það væri farið að birta yfir tilverunni. „Við vorum farin að verða rosa- lega bjartsýn,“ minnist Kolbrún. En birtan varði ekki lengi: „Svo gerðist þetta með Krist- ófer.“ Kristófer Birgir, annað barn Ólafs og Kol- brúnar, var aðeins þriggja ára gamall þegar hann kvaddi þennan heim. Fjölskyldan var stödd í afmælisveislu móður Ólafs á herragarði á Fjóni þegar Kristófer hvarf skyndilega úr augsýn foreldra sinna. „Á neðstu hæð hússins var sundlaug, sem elstu krakkarnir í fjölskyldunni fengu að fara út í. Ég vildi ekki leyfa Kristófer greyinu að fara líka, því laugin var ísköld. Hann elskaði vatn,“ segir Kolbrún og rifjar upp þetta sárs- aukafulla atvik. „Við fórum aðeins upp og Kristófer fór út. Eftir stutta stund fórum við aftur niður og ég byrjaði undir eins að leita að Kristófer, en fann hann hvergi.“ Kolbrún rauk að sundlauginni. Kristófer Birgir hafði drukknað. Hann hafði farið út í laugina þar sem enginn gat séð til hans, ekki einu sinni frændfólk hans sem var við laugina allan tímann. Gleðin horfin „Ég held að það hafi ekki gert neitt verra þótt þetta hafi verið tvö áföll í röð. Þetta seinna var algjör viðbjóður,“ útskýrir Ólafur. „Það er sama hvað hefur dunið yfir Alexöndru, vonin hefur alltaf verið til staðar. En þarna var engin von.“ Sonarmissirinn hefur markað djúp spor í lífi foreldranna. „Maður breytist sem mann- eskja eftir svona. Það er ekki nokkur vafi á því. Ég hef aldrei fengið gleðina aftur sem ég hafði. Að geta notið lífsins á jákvæðan hátt – það er horfið,“ segir Kolbrún. „Þessi hundrað prósent gleði er ekki lengur til staðar. Við áttum frá- bært sumarfrí í ár. Börnin voru verulega glöð og við líka. En maður kemst aldrei alveg upp í hundrað prósent. Og ég veit fyrir mitt leyti, að það kemur aldrei aftur,“ segir Ólafur. Læknarnir fylgdust undrandi með Hvítblæðismeðferð Alexöndru lauk um haustið 2006. Í nokkurn tíma gekk allt vel og fjölskyldan var tilbúin að láta lífið halda áfram. En læknarnir voru í efa. Þá var farið að gruna að enn væri eitthvað að. Þjáningum Alexöndru var langt frá því að vera lokið. Í þrjú ár lifði fjölskyldan við algjöra óvissu. Alexandra var sífellt veik og var ekki búin að ná sér. Enginn gat tilgreint hvert meinið væri. Á síðasta ári fór Alexandra að fá óskýr- anlega rauða bletti á húðina og missti hárið. Það var ekki fyrr en blettunum fór að fjölga ört sem læknarnir áttuðu sig á því hvað væri að. „Á tveggja klukkustunda tímabili á ríkis- sjúkrahúsinu breyttist allt. Það var eins og hún hefði lent í bruna, því það var eins og hún hefði brunnið að innan og utan. Tungan, augun – hún var nánast óþekkjanleg,“ segir Kolbrún. Alexandra hafði fengið Stevens-Johnson- heilkennið í kjölfarið á lyfjameðferðinni við hvítblæðinu. Læknar frá öllum deildum fylgd- ust undrandi með þessum hamförum, þar sem Alexandra litla lá á sérstöku brunalaki sem festist ekki við brennandi hörundið og fékk lyf í æð. Systirin kom til bjargar Eftir að hafa verið prófuð fyrir um það bil öllum sjúkdómum í heiminum komust lækn- arnir loks að niðurstöðu. Alexandra var með MDS-krabbamein. Við tók einhver erfiðasta krabbameinsmeðferð sem fyrirfinnst og nú gat Alexandra ekki lengur reitt sig eingöngu á lyfjagjöf. Meðferðin við MDS-krabbameininu krafðist þess að Alexandra fengi nýjan bein- merg. Alexandra þurfti á hjálp að halda frá systur sinni. Báðar systur Alexöndru reyndust hæfir beinmergsgjafar og varð Ronja, sú eldri, fyrir valinu. Alexandra Líf lá í sóttkví á Ríkissjúkra- húsinu í Kaupmannahöfn í tvo mánuði. Loftið var hreinsað og enginn mátti koma nálægt henni, nema í sérstökum búnaði, með grímu og hanska. „Þeir segja að það sé ekki til sterkari lyfjameðferð. Lyfjunum var dælt inn í slagæð og skolað strax út í áfastan poka, því lyfin skemma nýrun, lifur og allt saman,“ segir Ólafur. Þau hjónin skiptust á að vera með Alexöndru og sjá um heimilið á meðan á þessu stóð. Styðja hvort annað Þegar Alexandra Líf fór í sína fyrstu lyfjameðferð var Ólafi og Kolbrúnu sagt að flestir foreldrar skilji í kjölfar slíkra erfiðleika. Í þeirra tilviki hefur hjónabandið þvert á móti verið helsta hjálpin. „Við hjálpum hvort öðru og höfum notið skjóls hvort annars á meðan okkur hefur verið mikið niðri fyrir. Þannig held ég að við höfum komist í gegnum þetta. Við höfum verið styrk- ur hvort annars þegar það hefur verið erfitt,“ segir Kolbrún. „Einhvers staðar höfum við Við hjálpum hvort öðru  Röð áfalla hefur markað djúp spor í líf Alexöndru Lífar Ólafsdóttur og fjölskyldu hennar  Sex ára baráttu við krabbamein vonandi lokið  Foreldrarnir anda þó ekki léttar alveg strax Alexandra Líf „Þú verður bara að halda áfram“ Mikið hefur mætt á foreldrum Alexöndru síðustu ár. Þau segjast þó hafa fengið ómetanlega að- stoð bæði frá Íslandi og nærumhverfi sínu í Danmörku. Sérstakir styrktartónleikar voru haldn- ir fyrir ári og samfélagið í Hróarskeldu létti undir með foreldrunum þegar álagið var mest.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.