Morgunblaðið - 27.09.2010, Side 20

Morgunblaðið - 27.09.2010, Side 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2010 Tíska & förðun Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Tísku og förðun föstudaginn 15. október MEÐAL EFNIS: Nýjustu förðunarvörurnar. Húðumhirða. Haustförðun. Ilmvötn. Snyrtivörur. Neglur og naglalökk. Hár og hárumhirða. Tískan í vetur. Flottir fylgihlutir. Góð stílráð. Íslensk hönnun. Ásamt fullt af öðru spennandi efni. –– Meira fyrir lesendur S ÉR B LA Ð Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 11. október Í Tísku og förðun verður fjallað um tískuna haustið 2010 í hári, förðun, snyrtingu og fatnaði auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira. Umræðan um Fram- takssjóð Íslands slhf. (FSÍ) er sérkennileg. Engu er líkara en farið hafi með öllu framhjá fólki til hvers hann er ætlaður og hvað hann hefur verið að gera. Vegna þessa ætla ég að rifja upp nokkur þau atriði sem mér finnst skipta mestu máli. FSÍ var stofnaður af 16 lífeyrissjóðum og eru stærstu sjóðirnir meðal þeirra. Sjóðurinn er því eign almennings. Tilgangurinn er að endurheimta sem mest af þeirri ávöxtun sem tapaðist í hruninu. Um 22% af eignum sjóð- anna voru afskrifuð í bókum sjóð- anna eftir hrunið en nokkuð hefur endurheimst, bjargast, í meðferð innheimtumanna. Við getum slegið föstu að tapið hafi verið nálægt 20%. Það er hörmulegt, en samt ber að hafa í huga að það er langtum minna en tap lánastofnana, sem töpuðu 65- 70% af öllum sínum eignum. Hrunið svonefnda var hildarleikur af mannavöldum. Því ollu eigendur banka og stórra fyrirtækja, sem af- greiddu sig sjálfir í bönkunum. Fé- flettir hrundu bankarnir eins og spilaborgir og þar með töpuðust nánast allar kröfur nema forgangs- kröfur. Meðal þess voru skuldabréf sem þeir höfðu gefið út á almennum markaði. Lífeyrissjóðir voru eðlilega eigendur þeirra að mestu leyti því stærð þeirra er yfirgnæfandi. Að auki höfðu nokkur stórfyrir- tækjanna sjálf gefið út skuldabréf á markaði. Þau reyndust fæst trausts- ins verð og töpuðust þessi bréf því að mestu. Á miklu veltur að áfram takist að endurheimta tapaða ávöxt- un. FSÍ er eitt virkasta tækið sem sjóðirnir hafa í því skyni. Hlutabréfamarkaður Skipulegur hlutabréfamarkaður var ekki nema u.þ.b. 15 ára þegar hann hrundi til grunna árið 2008. Á upphafsárum markaðarins og mörg ár þar á eftir höfðu hlutabréf skilað jafnt og þétt góðri ávöxtun. Vissu- lega voru þar sveiflur eins og gerist á slíkum mörkuðum en þeir sem eignuðust dreift safn hlutabréfa fengu árvissa góða ávöxtun. Mark- aður með hlutabréf stærri fyrir- tækja er óhemju mikilvægur í efna- hagslífinu. Aðgengi þeirra að áhættufé skapar þeim traust og greiðslugetu. Skilvísi þeirra tryggir rekstur margra smærri fyrirtækja sem þeim þjóna. Vexti og atvinnu- öryggi eru sköpuð skilyrði, en þetta tvennt er ávísun á velmegun og vel- ferð. Það er hlutverk FSÍ að taka við lífvæn- legum fyrirtækjum sem hafa orðið fyrir hruninu. Hin stærri og stöðugri verða skráð í Kauphöll Íslands en hin smærri og áhættu- samari verða seld, ein- hver að undangenginni endurskipulagningu. Sumir telja að fyr- irtæki í eigu banka geti gengið í sjóði bankans og að slíkt skekki sam- keppni. Til munu dæmi um þetta, en oftast er það orðum aukið. Hitt er enn skaðlegra að slík félög hafa ekki neinn raunverulegan eiganda. Bankinn mótar ekki stefnu félagsins og leyfir ekki fjárfestingar og uppbyggingu. Á nokkrum miss- erum tekur búnaður að úreldast og félagið dregst aftur úr í tækninni. Fyrirtæki í eigu bankans eflir ekki atvinnu og nýsköpun, kyrrstaða og stöðnun einkenna það fljótlega. Að- koma FSÍ að endurreisn hlutabréfa- markaðarins er líkleg til að hraða framvindunni. Það er mikilvægt ein- mitt núna að snúa vörn í sókn, sam- drætti í vöxt og draga úr atvinnu- leysi. Þegar hlutabréfamarkaðurinn tekur að lifna við á ný getur orðið hröð framvinda. Líklegt er að sagan endurtaki sig, ávöxtun verður góð, ekki síst af því að markaðurinn rís alveg frá grunni. Frumfjárfestar Skemmst er að minnast þess að þegar ríkisfyrirtæki voru einkavædd voru það fjársterkir aðilar í sterkri aðstöðu, sem komust að kjötkötl- unum. Þeir ráku þau um nokkurra missera skeið og skráðu þau síðan á markað á mun hærra verði, „til að gefa almenningi kost á að taka þátt í hlutabréfaviðskiptum“. Hagnaður þeirra var umtalsverður, jafnvel mikill. Forréttindaaðstaða, fákeppni og innherjaupplýsingar voru lykil- atriði í velgengni margra þeirra. Ekki er víst að slíkir fjárfestar líti FSÍ hýru auga. Sumir „útrásarvík- ingar“ sluppu fyrir horn og náðu hagnaði sínum út áður en fyrirtækin hrundu undan fjárglæfrum þeirra. Þeir vilja líka fá að vera frum- fjárfestar, þeim finnst þeir beinlínis eiga rétt á því, eftir allt það sem þeir gerðu fyrir samfélagið. Nú er Fram- takssjóðnum hins vegar ætlað hlut- verk frumfjárfestis. Lífeyrissjóðir ætla ekki að sitja hjá í fyrstu umferð og fá að komast að í annarri umferð, eins og síðast. Þeir eiga nú um 200 milljarða króna í reiðufé á lágri ávöxtun á bankareikningum. Þeir eru nú um stundir eina innlenda aflið sem um munar til stærri fjárfest- inga. Þeir ætla ekki að vera hlutlaus fjárfestir sem aðrir geta notað sér til stuðnings við að endurheimta fyrra veldi. Þeir ætla að vera áhrifa- fjárfestar og beita afli sínu til að koma vexti og atvinnusköpun í gang, og endurheimta sem mest af þeirri ávöxtun sem tapaðist. Í þessu skyni hafa þeir stofnað Framtakssjóðinn, sjóðfélögum sínum til heilla. Þetta hefur ekki mælst vel fyrir hjá sumum. Þeir eru daprir og svart- sýnir, útsýnið um baksýnisspegilinn gefur þeim ekki tilefni til annars. Allt sem gert er er kolómögulegt, það að gera ekkert er líka ómögu- legt. Þeir sem valist hafa til starfa fyrir sjóðinn gera eingöngu mistök, auk þess eru þeir líklega að byggja upp völd sín. Hinir döpru muna spill- inguna vel og eiga beinlínis rétt á að hún sé enn fyrir hendi. Þeir endur- taka sig í sífellu á blogginu sínu og hringja inn á opnar spjallrásir og þylja þar bölbænir sínar. Skringi- legar ályktanir stéttarfélaga hafa heyrst. Þær geta ekki gert neitt nema komið í veg fyrir að fé- lagsmenn þessara sömu stétta njóti batans. Það er dapurleg hagsmuna- gæsla. Er ekki mál að linni? Viljum við virkilega vera svona? Eva Joly lýsti í viðtali við Morgun- blaðið nýlega eftir hugrekkinu, hvað varð um það? spurði hún. Í nýlegri bók Reinhart & Rogoff „This time is different“ rekja þau 180 efnahags- lægðir sem orðið hafa í heiminum síðustu 200 árin. Að meðaltali líða tvö ár frá hruni þar til batinn gerir vart við sig. Önnur tvö ár líða þar til atvinnuleysið er gengið til baka. Reikna má með að viðsnúningurinn taki nokkru lengri tíma hjá okkur núna, hrunið var mun dýpra en venjuleg efnahagslægð. Á hinn bóg- inn er næsta víst að batinn bíður handan við hornið. Núna er rétti tíminn til að taka saman á og tryggja honum framgang. „Hver er sinnar gæfu smiður“ segir máltækið. Það gildir líka um þjóðir, hugsum um það. Er allt jafn kolómögulegt? Eftir Ragnar Önundarson » Þeir ætla að vera áhrifafjárfestar og beita afli sínu til að koma vexti og atvinnu- sköpun í gang og endurheimta sem mest af þeirri ávöxtun sem tapaðist Ragnar Önundarson Höfundur er varaformaður stjórnar Framtakssjóðs Íslands slhf. Mikil og gild um- ræða hefur átt sér stað undanfarna mán- uði og ár varðandi fá- tækt. Slík umræða er skiljanleg í kjara- skerðingar- og óvissu- umhverfi landsins. Vissulega gætir hér áhrifa heimskreppu en einnig er glímt við hrun efnahagslífsins og ömurlegar afleiðinga þess. Þetta vita allir sem opnuðu augun í morgun. Fjölskyldur og fyrirtæki hafa verið hvött til að halda áfram neyslu og aðgerðum til þess að enn verði líft á eyjunni fögru. Fólk er hvatt til að ganga á sparnaðinn sinn til þess að blása lífi í súrefn- islaust efnahagslíf sem haldið er markvisst í gíslingu, með aðgerða- leysi stjórnvalda og áhugaleysi bankastofnana. Áðurnefnd kjaraskerðing virðist þó ekki eiga við allar stéttir. Sumar til að mynda njóta velvildar banka og fá sín fyrirtæki og smá rjóma með, endurunninn, aftur í fangið. Til er einnig annar þjóðfélagshópur sem þarf aldrei að sækja um vinnu aftur, enda er mikið af sérverk- efnum hjá hinu opinbera sem nauð- synlega þarf að sinna. Í öllum til- fellum virðist vera um að ræða stétt fólks sem er svo hokin af reynslu og visku að annað eins hef- ur varla sést og mun víst aldrei fyrirfinnast aftur. Bankarnir eru sagðir vera stút- fullir af fé sem þeir einhvernveginn hafa náð af viðskiptavinum sínum og með dularfullum afskriftum frá gömlu bönkunum. Þeir fjármagna sig ekki lengur á útlánum heldur sjá þeir sér frekar hag í því að ávaxta sínar krónur í Seðlabank- anum. Með þessu geta bankarnir einnig haldið uppi nauðsynlegum launakostnaði hjá fólki sem á eng- an sinn líka að gæðum. Svo þarf bankinn líka að hafa völ á að af- skrifa skuldir fyrirtækja og ein- staklinga sem þeir velja með „úl- lendúllendoff“ á meðan aðrir eru settir í þrot af oft óskiljanlegum ástæðum. Þetta auðvitað kostar, því er nauðsynlegt að ganga að ábyrgðarmönnum þeirra sem þegar eru komnir í þrot í greiðsluaðlögun og hafa sætt sig við vistarbönd. Starfsemi skilanefnda er mörg- um hulin ráðgáta. Þær eru ríki í ríkinu. Launin virðast ekki vera í neinum takti við ís- lenskan veruleika og enginn virðist vita fyrir hvern nefndarfólkið er að vinna. Reglulega virðast vera gerð mis- tök. Fyrirtæki og eign- ir eru seld og nokkrum mánuðum seinna, fyrir algert kraftaverk, hafa þær einhvern veginn snarhækkað í verði. Þessi nýja stétt er líka hafin yfir gagnrýni þar sem allir hafa þvegið hendur sínar af því sem hún er að gera. Þeir sem svo fá að kaupa fyr- irtæki af skilanefndum eða bönkum eru einnig handvaldir með óskilj- anlegri og ógagnsærri aðferð. Út- boð á eignum og rekstri eru fátíð, og ef þeirra er kostur eru útboðs- skilmálarnir gerðir nægilega þröngir þar til einungis rétta fólkið kemur til greina. Matarraðir hjálparstofnana lengjast, fólk flytur úr landi til að leita betri kjara, ískaldur veruleik- inn blasir við. Þrátt fyrir að búa í besta landi í heimi hefur neyðin nú bankað upp á hjá mun stærri hóp en áður þekktist. Skuldug heimili, þrátt fyrir ágætar tekjur, geta ekki staðið undir byrðinni. Viðmið fyrir aðstoð félagsþjónustu miðast við ákveðin laun ekki við hvað situr eftir í veskinu þegar búið er að greiða skuldir í hverjum mánuði. Þannig að nú horfir fátæktin og hungrið í augu þeirra sem hafa enn vinnu og jafnvel þokkaleg laun. Launin duga ekki til annars en að greiða af höfuðstólum lána sem margfölduðust við hrun efnahags- lífsins. Þetta er hópurinn sem eng- inn vill tala um, þar sem ekkert getur hjálpað þeim annað en al- menn skuldaleiðrétting eða gjald- þrot. Slík umræða er ekki vinsæl á þingi, hvorki hjá stjórn né stjórnar- andstöðu. Örfáir alþingismenn hafa haft orð á þessu og með hugrekki sínu reynt sitt til að ríkisstjórnin láti af hugleysi sínu og komi til móts hina nýju stétt fátæklinga, sem áður hét millistéttin. Nýjar stéttir, nýir tímar Eftir Karen Elísabetu Halldórsdóttur Karen Elísabet Halldórsdóttir » Þrátt fyrir að búa í besta landi í heimi hefur neyðin nú bankað upp á hjá mun stærri hóp en áður þekktist. Höfundur er BA í sálfræði, MS í mannauðsstjórnun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.