Morgunblaðið - 27.09.2010, Síða 21

Morgunblaðið - 27.09.2010, Síða 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2010 Vegna umfjöllunar um notkun lyfja við ofvirkni í fjölmiðlum undanfarið verða hér settar fram fleiri hlið- ar á málinu m.a. frá sjónarhóli foreldra barna með ADHD. ADHD er alþjóðleg skammstöfun fyrir at- hyglisbrest og of- virkni. Orsakir at- hyglisbrests og ofvirkni eru líffræðilegar, þ.e. truflun taugaboðefna í mið- taugakerfinu og í heilanum. Al- þjóðlega viðurkennd tíðni ADHD er um 5%. Hérlendis hefur Íslensk erfðagreining nýlega rannsakað arfgengi þessarar taugaröskunar og sýna niðurstöður allt að 7,5% tíðni hjá börnum og unglingum. Samkvæmt rannsókninni skýra erfðir 75-95% einkenna athyglis- brests og ofvirkni. Miðað við 7,5% tíðni þá glíma um 5000 börn á Ís- landi við einkenni ADHD. Áætla má að í hverjum bekk í grunnskóla séu að meðaltali um 2 börn með ADHD í hverjum bekk. Ekki eru öll börn sem greinast með ADHD ofvirk eða með hegð- unarerfiðleika. Helstu einkenni ADHD eru athyglisbrestur, mikil hvatvísi og hreyfiofvirkni. Ein- kenni fela m.a. í sér einbeiting- arskort, skert vinnsluminni, skort á sjálfstjórn, truflun á virkni til at- hafna og forgangsröðun verkefna, skipulagsleysi, frestunaráráttu og svefntruflanir virðast algengar. Hjá sumum er athyglisbresturinn ráðandi, jafnvel getur verið um að ræða vanvirkni og barnið virðist vera úti á þekju. Ýmsir fylgikvillar fylgja ADHD svo sem námserf- iðleikar, kvíði, áráttuþráhyggja og þunglyndi. Léleg sjálfsmynd er ekki óalgeng afleiðing þess að vera með ADHD. Einkennin hafa m.a. áhrif á námsgetu, samskiptafærni og getu til að lesa í aðstæður. Fé- lagsleg einangrun og vanlíðan sem því fylgir er algeng meðal barna og unglinga með ADHD. Einkenn- in geta verið mjög mismunandi eða allt frá því að vera vægur námsvandi til þess að flokkast sem geðtruflun og allt þar í milli. Um 70% barnanna glíma áfram við ADHD á fullorð- insaldri. Börn og ung- lingar með ADHD eða athyglisbrest með of- virkni geta haft mjög truflandi áhrif á um- hverfi sitt og því hef- ur athyglin beinst meira að þeim heldur en að þeim börnum sem greinast með ADD (athyglisbrestur ráðandi einkenni án ofvirkni). Vandi þeirra síðarnefndu er ekki minni þó svo hann sé ekki eins sýnilegur. Bent skal á að mörg börn með ADHD eða ADD uppfylla greiningarviðmið um kvíðaröskun. Þau hafa ekki sömu forsendur og önnur börn til að uppfylla væntingar og kröfur um- hverfisins miðað við þroska og ald- ur og fá þar af leiðandi marg- faldan skammt af neikvæðum skilaboðum frá umhverfinu bæði í skóla og á heimili. Sjálfsmynd barnsins getur því borið skaða af ef ekki er næg þekking á ADHD/ ADD og orsökum og afleiðingum þess í nánasta umhverfi barnsins. Lyfjagjöf við ADHD Ein meðferðarleið við ADHD sem hefur skilað afgerandi bestum árangri samkvæmt niðurstöðum fjölda rannsókna er lyfjameðferð samkvæmt því sem fram kemur hjá helstu sérfræðingum í ADHD hérlendis á Barna- og unglinga- geðdeild og Þroska- og hegð- unarstöð heilsugæslunnar. Ástæða er til að undirstrika að leggja þarf metnað í fagleg vinnubrögð við greiningu ADHD til að fyr- irbyggja ofgreiningu og ennfremur mætti sjálfsagt draga úr lyfjanotk- un við ADHD ef önnur meðferð og ráðgjöf vegna ADHD væri mark- vissari og aðgengilegri. Engu að síður verður alltaf stór hópur barna með ADHD sem ekki getur stundað nám eða nýtt sér aðra þjónustu og úrræði öðruvísi en með hjálp lyfja. Það er hverju foreldri ofviða að horfa upp á barnið sitt fara hall- oka bæði námslega og félagslega og því fer sem fer að foreldrar eru tilbúnir að fara að læknisráði og gefa barninu sínu lyf við líf- fræðilegri röskun á taugaboð- efnum, nefnt ADHD, svo því geti liðið betur, tekið framförum í námi og eignast vini eins og önnur börn. Samkvæmt Ólafi Ó. Guðmunds- syni yfirlækni á BUGL sýna rann- sóknir með afgerandi hætti að börn með ADHD sem fá lyfja- meðferð leiðast síður út í vímuef- namisnotkun þar sem þau standa betur að vígi námslega og fé- lagslega. Grein eftir Ólaf um ADHD og lyfjanotkun birtist í fréttabréfi ADHD samtakanna 3. tbl. 2009 sem komið er á vefsíðu samtakanna www.adhd.is. ADHD vitundarvika Dagana 20.-24. september hefur verið boðað til ADHD vitund- arviku hjá flestum stofnunum sem þjónusta börn og unglinga. Þá gefst öllum kjörið tækifæri til að auka umræðu og fræðslu um ADHD í leik og starfi og ekki síst í fjölmiðlum, með jákvæðum hætti að sjálfsögðu. Einn ágætur skóla- stjóri í Reykjavík heldur því fram að við séum öll með sérþarfir af mismunandi toga. Við þurfum að læra að viðurkenna sérþarfir barnanna af hvaða toga sem er hvort sem þær birtast í formi námserfiðleika, hegðunar, kvíða, langvarandi veikinda, þroskahöml- unar eða líkamlegrar fötlunar. Börn með ADHD hafa verið kölluð óþekku börnin, óhreinu börnin hennar Evu og olnboga- börnin í íslensku samfélagi. Ljóst er að börnum með ADHD fer ekki fækkandi, þau eru komin til að vera og við þurfum að sjá þau fyrst og fremst sem börn með sömu þarfir og önnur börn fyrir viðurkenningu, ást og umhyggju. Börn með ADHD Eftir Ingibjörgu Karlsdóttur » Vegna umfjöllunar um notkun lyfja við ofvirkni í fjölmiðlum undanfarið verða hér settar fram fleiri hliðar á málinu. Ingibjörg Karlsdóttir Höfundur er félagsráðgjafi og fram- kvæmdastjóri ADHD samtakanna. Sjálfstæði Íslands, íslensk tunga, þjóð- kirkjan, heimili landsins, atvinnulíf, mennt- og menning eru órofa hornsteinar Íslands sem sjálf- stæðs ríkis í sam- félagi þjóðanna, því aðeins við sjálf höf- um vilja og metnað til þess að verja landið okkar, fólkið og auðlindir landsins sem skipa okkur í röð verðmætustu þjóða. Um stundir er mikil tortryggni, reiði og óvissa í samfélagi okkar en við verðum, hreinlega verðum, að koma okkur út úr þessari sjálf- heldu þar sem margir sjá ekki til sólar fyrir gremju. Þessi gremja blússaði inn í mesta þéttbýlið á Ís- landi í kjölfar bankahruns og efnahagskreppu bæði heima og heiman. Þar þurfum við að draga allt fram í dagsljósið, smúla dekk- ið og moka flórinn, en það tekur tíma og við sem eftir sitjum meg- um ekki fara fram úr sjálfum okk- ur, nóg gerðu bankamennirnir og baklandið í stjórn landsins. Við Íslendingar verðum að horfa fram á veginn fyrst og fremst, koma hjólum atvinnulífsins á fulla ferð, styrkja heimilin og allan grunninn um leið en tilgangur þessarar greinar er að víkja að stöðu kirkjunnar á Íslandi. Þjóðkirkjan er eitt af höf- uðankerum þjóðarinnar og þótt belji og blási á landi, legi og í lofti þá má grunnankerisfestan ekki haggast, ankeristaugin má byltast, en ekki andi kirkjunnar, kristnin sjálf, boðskapur Biblíunnar, því Íslendingar byggja allt á kristinni siðfræði, kærleika, von, fyrirgefn- ingu og vinarþeli. Annars lifum við ekki af sem sjálfstæð þjóð. Annars lifum við í þjáningu og myrkri vonleysis. Vonin er Guðs gjöf og við verðum að rækta hana. Deilur um kirkjuna eru ekki nýjar af nálinni og kirkjan er ekki óskeikul frekar en annað á jörðu, en íslenska kirkjan og sér- trúarsöfnuðir vinna magnað og óeigingjarnt starf. Þjóðkirkjan hefur á að skipa ótöldum fjölda fólks, góðs fólks, sem vinnur margvísleg störf innan kirkjunnar af mikilli hæfni og umhyggju. Þessu fólki þarf að fjölga en ekki fækka. Undanfarin misseri hafa enn á ný blossað upp deilur um kirkjuna þar sem dóma er krafist. Miklar körfur eru gerðar til ýmissa þjóð- félagshópa og þar sem mannleg mistök koma upp, ekki síst ef þau valda broti á trúnaði og meiða. Þá eru þau þeim mun viðkvæmari. Slík slys í veiki eða veikleika eru skelfileg. Ákveðinn hópur landsmanna, oft af pólitískum rótum, hefur lengi notað öll tækifæri til að ráðast að kirkjunni í heild og undanfarin misseri hefur þjóðkirkjan og bisk- up Íslands, herra Karl Sig- urbjörnsson, ekki farið varhluta af því vegna sorglegs máls sem varð- ar fyrrverandi látinn biskup Ís- lands. Það er afar flókið að krefj- ast dóma og afneitunar á látnum manni. Allir hafa túlkunarrétt samkvæmt eigin samvisku, en það er í raun of seint að sækja látinn mann til saka. Það gengur ekki upp og er ekki eðli- legt. Í öllum málum eru fleiri hliðar en ein, og ef maður fær ekki að svara til saka fer réttætið út og suður og byggist á sleggju- dómum. Þegar torgin hrópa á blóð er erfitt um vik, en biskupinn okkar, herra Karl Sig- urbjörnsson hefur með mikilli stjórnvisku, ábyrgð, kærleika og mannelsku komið fram í þessu máli og reynt að milda og sefa eins og vera ber þar sem líf og dauði skilur málsaðila að. Biskup Íslands hefur ekki leyfi til að fella dóma yfir látnum mönnum, eng- um, alveg sama hver hugmynd hans eða sannfæring er um máls- atvik. Þetta hefur núverandi bisk- up leyst afburðavel þótt hann kunni að hafa látið eftirlifandi frekar njóta vafans. Biskup Ís- lands getur ekki borið alla ábyrgð á gengnum kirkjunnar mönnum, hann hlýtur að trúa á handleiðslu Guðs og taka á málum samkvæmt því. Þjóðkirkjan getur aldrei verið einn maður, engin kirkja getur byggst á einum manni, því kirkjan er fyrst og fremst vettvangur Guðs og gæsku hans, trúarinnar á hið góða í lífinu. Biskup Íslands getur haft mikil áhrif á leikreglur kirkjunnar, treysta þær og fækka hættupóst- unum á mistökum og þessu hefur kirkjan unnið markvisst að á und- anförnum árum. Þess vegna er skelfilegt að núverandi stjórnvöld sækja að þjóðkirkjunni með því að skera við trog fjármuni til mjög mikilvægs starfs á vegum kirkj- unnar, uppbyggjandi mann- úðarstarfsemi sem hefur tvímæla- laust létt álagi á heilbrigðisstofnanir þjóðarinnar og bætt andlega líðan landsmanna. Það er mikilvægt fyrir okkur Ís- lendinga, ekki síst sem litla þjóð í ölduróti stórþjóðanna, að eiga fasta pósta í lífsleiknum og þjóð- kirkjan er einn af þeim mikilvæg- ari. 80% Íslendinga eru í þjóð- kirkjunni og stór hluti landsmanna á samleið með kirkj- unni bæði í sorg og gleði og kirkj- an og kristnin hefur mikilvæg undirliggjandi áhrif á hlédrægan hátt í daglegu lífi landsmanna. Í dag þurfum við Íslendingar allt annað en rótleysi og þess vegna ber okkur skylda til að styrkja kirkjuna, styrkja biskup okkar, presta og allt það góða fólk sem vinnur á vettvangi kirkjunnar og vinna með því að betri framtíð í kristnum anda yfirvegunar og leikgleði. Þjóðkirkjan, einn af máttarstólpum landsmanna Eftir Árna Johnsen Árni Johnsen »Kirkjan hefur fjölda góðs fólks sem vinn- ur margvísleg störf inn- an kirkjunnar af mikilli hæfni og umhyggju. Þessu fólki þarf að fjölga en ekki fækka Höfundur er alþingismaður. Þann 3. júní birtist frétt í fjölmiðlum þar sem sagði frá bréfi sem mennta- málaráðherra sendi skólastjórum í fram- haldsskólum og dag- sett er 17. maí. Tilefni þessa bréfs er fíkni- efnaleit sem fram- kvæmd var í Tækni- skólanum með aðstoð lögreglu. Í bréfinu segir að menntamála- ráðuneytið hafi ákveðið að tjá sig með almennum hætti um þessi mál. Og þar hitta þeir naglann á höfuðið því bréfið er almennt fro- ðusnakk um þessi mál, rökleysa, og niðurstaðan eftir því. Niðurstaðan er sem sé að al- menn fíkniefnaleit er ekki forvörn. Hvernig menn komast að þessari niðurstöðu er mér sem foreldri framhaldsskólanema algjörlega hulið. Maður hlýtur að spyrja sig að því hverra hagsmuna mennta- málaráðherra sé að gæta. Mín fyrsta hugsun eftir að hafa lesið fréttir um þetta mál og hafa haft samband við menntamálaráðu- neytið og leitað skýringa, er sú að hér er hvorki verið að gæta hags- muna nemenda né foreldra. Þessi boðskapur, ekki bara mennta- málaráðuneytisins heldur einnig Róberts Spanó, umboðsmanns Al- þingis, og lögspek- ingar mennta- málaráðuneytisins eta upp eftir honum og menntamálaráðherra kvittar undir, hlýtur að vera jákvæður í augum fíkniefnasala. Gleðjast nú fíkni- efnasalar? Nú geta þeir vaðið inn í menntaskóla landsins hvenær sem er, en skólayfirvöld og lög- gæsla þurfa að til- kynna leit með fyrirvara þannig að fíkniefnasalar hafa nógan tíma til að koma sjálfum sér og varn- ingnum út. Bæði umboðsmaður og mennta- málaráðherra vitna í lög um mann- réttindi. Lögfræðingur mennta- málaráðuneytisins tjáði mér í símtali sem ég átti við hann um þetta álit, að börnin yrðu svo hrædd þegar svona aðgerðir væru framkvæmdar. Maður verður nú bara hræddur við að heyra svona málflutning! Það vita allir að fíkniefnavanda- málið á Íslandi verður sífellt um- fangsmeira og erfiðara viðfangs. En samt er til fólk sem telur að lausnin sé sú að gefa fíkniefnasöl- um lausan tauminn, í nafni mann- réttinda, eins og umboðsmaður al- þingis og lögfræðingar menntamálaráðuneytisins. Með sömu rökum ættu ökumenn sem andsnúnir eru eftirliti lögreglu gegn ölvunarakstri að snúa sér til umboðsmanns. Umboðsmaður væri ekki samkvæmur sjálfum sér ef hann úrskurðaði ekki að eftirlitið væri ekki hluti af forvörn gegn ölv- unarakstri, í nafni mannréttinda. Þetta almenna froðusnakk sem lögspekingar menntamálaráðuneyt- isins átu upp eftir Róbert Spanó og menntamálaráðherra sendi frá sér og kvittaði undir er ekkert annað en vatn á myllu fíkniefnasala og er hneisa. Ég er sannfærður um það að meirihluti foreldra og nemenda er á þeirri skoðun að almenn fíkni- efnaleit er forvörn. Þess vegna höfnum við þessari dellu sem menntamálaráðherra og umboðs- maður sendu frá sér um þessi mál. Ég sem foreldri mennt- skólanema skora á skólastjóra í framhaldsskólum að halda sínu striki og framkvæma óvænta leit að fíkniefnum með aðstoð lögreglu, enda er með því verið að gæta mannréttinda foreldra og nemenda. Gleðjast nú fíkniefnasalar? Eftir Helga Helgason »Maður hlýtur að spyrja sig að því hverra hagsmuna menntamálaráðherra sé að gæta Helgi Helgason Höfundur er stjórnmálafræðingur og foreldri menntaskólanema.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.