Morgunblaðið - 27.09.2010, Page 23

Morgunblaðið - 27.09.2010, Page 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2010 Elsku vinur, það er svo óendanlega sárt að þurfa að kveðja þig allt of snemma. Þú sem gafst mér svo margt og varst mér svo góður. Þú kenndir mér þolinmæði við að sýna þolinmæði og þú kenndir mér umburðarlyndi við að sýna umburð- arlyndi. Þú baðst aldrei um það sem þú gafst ekki sjálfur og sættir þig oft við að gefa án þess að þiggja. Þú hefur sýnt mér að mikilvægur hluti hins sanna manngildis er að geta sett hagsmuni annarra fram fyrir sína eigin. Þín einlæga sann- færing um jákvæðan tilgang lífsins hreif okkur öll og í leit að tilgangi með brotthvarfi þínu er gott að leita í Magnús Sigurðsson ✝ Magnús Sigurðs-son fæddist í Garðinum 21. janúar 1950. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 13. sept- ember 2010. Útför Magnúsar fór fram frá Keflavík- urkirkju 21. sept- ember 2010. þau gildi og þá trú sem þú kenndir okkur. Ég er ævinlega þakklátur fyrir að við höfum hist. Við elsk- um þig öll og þú munt alltaf lifa í hjörtum okkar sem nutum ná- vistar við þig. Þín sanna arfleið eru þau góðu áhrif sem þú hef- ur haft á líf okkar allra. Elsku pabbi minn – vertu blessaður. Þinn sonur, Ragnar Sævarsson. Kveðja frá Skógræktarfélagi Suðurnesja Skógræktarfélag Suðurnesja hef- ur misst sinn besta liðsmann og fé- laga. Látinn er Magnús Sigurðsson, einn ötulasti og virkasti félaginn og einn af þeim sem komu að endur- reisn þess 1996. Með orðinu félagi er hér bæði átt við meðlim sem og fé- laga í merkingunni vinur og banda- maður í uppbyggingu útivistarskóga og gróðursæls umhverfis á Suður- nesjum. Hann var ötull og óþreyt- andi vinnuhestur sem datt oft inn í kaffispjall um skógrækt, lífið og loks dauðann. Maggi var öflugur og skilaði öllu sem hann tók að sér með miklum sóma. Nú síðastliðið sumar meira af vilja en mætti. Lengst af starfaði hann sem gjaldkeri félagsins en auk þess sá hann um hópastarf unglinga við gróðursetningu og umhirðu gróður- svæða síðustu árin. Þess utan kom hann að öllu skipulagi um starfsem- ina. Hann var vel vakandi yfir högum félagsins og taldi aldrei eftir sér að vinna að málefnastarfi þess allt til síðasta dags. Trjárækt á Suðurnesj- um, hvort heldur til skjóls eða ynd- isauka, var Magnúsi mikið hjartans mál. Hann var ófeiminn við að prófa og þróa nýjar aðferðir í trjárækt sem hentuðu því umhverfi sem er á Suð- urnesjum. Missir okkar félagsmanna og Suðurnesjanna allra er því mikill og þökkum við Magga fyrir sam- fylgdina og vottum fjölskyldu hans dýpstu samúð og óskum þeim styrks á erfiðum tímum. Með kveðju, Sigurjón Þórðarson, formaður Skógræktarfélags Suðnesja. ✝ Anna Gunnlaugs-dóttir fæddist þann 12. ágúst 1910 að Ytri-Másstöðum í Skíðadal. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík 18. september 2010. Foreldrar hennar voru Gunnlaugur Daníelsson og Stein- unn Sigtryggsdóttir. Anna var sú fjórða í röð átta systkina, allra samfeðra. Elst var Guðrún Daníela, móðir hennar var Anna Sigfúsína Zophoníasdóttir. Þar á eftir fædd- ist Þorgrímur Gunnar Bílddal og var móðir hans Valgerður Sigurð- ardóttir. Sammæðra komu svo systkinin sex í aldursröð, Sóley, Anna sjálf, Guðmar, Jóhanna Kristín, Guðjón og yngst og ein eftirlifandi er Lilja Emilía. Anna eignaðist fjögur börn. Steinunn, f. 27. september 1930, faðir Halldór Friðrikson frá ir, f. 30. júni 1944. Börn þeirra eru Valtýr Trausti, Laufey og Stefán. Fyrir átti Ester dótturina Maríu Breiðfjörð. Lang-ömmubörn Önnu eru nítján og langalang-ömmu- börnin orðin fimm. Anna ólst fyrstu 15 ár ævi sinn- ar upp í Svarfaðardal og á Ak- ureyri, fyrst í foreldrahúsum og svo hjá elstu systur sinni Guðrúnu og hennar manni Birni Sigmunds- syni. Næstu fimm árin lá leið Önnu í kaupavinnu að Helgastöðum í Kinn, S.-Þingeyjarsýslu. Tvítug er Anna aftur komin til Akureyrar. Tuttugu og fimm ára hélt hún svo til Reykjavíkur þar sem hún bjó til dauðadags. Anna var alla tíð bú- sett í miðbæ Reykjavíkur, lengst af að Tjarnargötu 10A. Síðast bjó hún á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Anna vann um tíma ýmis verka- vinnustörf, en lengst af sem saumakona. Anna var ein af fáum Íslendingum sem kunnu þá list að kúnst-stoppa, en sú handavinna felur í sér að gera við fatnað á þann máta að varla má greina við- gerðina á flíkinni. Útför Önnu fer fram frá Nes- kirkju í dag, 27. september 2010, og hefst athöfnin kl. 11. Helgastöðum. Maki Steinunnar var Leif- ur Unnar Ingimars- son, f. 2. október 1935, d. 28. desem- ber 1983. Börn þeirra eru Halldóra Þorgerður, Kristján Hallur og Arnhildur Guðrún. Sambýlis- maður Önnu var Kristján Elíasson frá Arnartanga í Stað- arsveit og áttu þau saman þrjú börn. Elí- as Sigurður f. 25. maí 1938, maki Bára Bjarnadóttir, f. 27. janúar 1937. Sonur þeirra er Kristján Örn, en að auki á Elías synina Eyjólf Konráð og Þorstein Sindra. Kolbrún, f. 4. febrúar 1943, d. 13. maí 1988, maki Borg- þór Herbertsson, f. 1. febrúar 1941, d. 28. desember 1975. Börn þeirra Anna Lind, Sigurður Rafn og Berglind. Hörður Brynjar, f. 12. ágúst 1944, d. 10. júni 1995, maki Ester Breiðfjörð Valtýsdótt- Í dag kveðjum við móðursystur okkar, Önnu Gunnlaugsdóttur. Sem betur fer upplifa flestir þá hamingju að kynnast góðu og mætu fólki og eiga með því samleið á lífs- göngunni og nutum við systurnar þeirrar hamingju. Í okkar huga var Anna einkar glæsileg og geislaði af lífsgleði, kona sem öllum þótti vænt um sem kynnt- ust henni. Með fallegri framkomu sinni við alla menn ávann hún sér traust og virðingu samferðamanna sinna. Hún var vinamörg og gerði sér far um að rækta vel vináttuna. Hún gaf af tíma sínum. Heimili hennar bar þess merki í einu og öllu hversu mikill fagurkeri hún var. Hún kunni þá list að skapa fegurð í kringum sig. Smekkvísi hennar var orðlögð, listrænir hæfi- leikar hennar fengu að njóta sín m.a. í „kúnststoppi“ og saumaskap. Í minningunni þegar von var á þeim systrum að sunnan, Önnu og Lilju, breyttist andrúmsloftið heima í Hlíðargötu í gleði og eftirvæntingu. Þá var hátíð í bæ! Anna var ættuð úr Svarfaðardal. Hún var ein af stórum systkinahópi sem átti það sameiginlegt að hafa sterkar rætur í Dalinn sinn. Þau systkinin voru sérstaklega samheldin og áttu það sameiginlegt að halda vel utan um hópinn sinn og búum við niðjarnir að því enn í dag. Frændgarðurinn var sterkur stofn. Dagsverkinu – hundrað árun- um – er nú lokið og þá er ekkert ann- að eftir en að þakka henni af alhug fyrir samfylgdina. Við óskum henni góðrar heimkomu á æðra tilveru- stigi. Hún horfði sátt við heiminn á hið hinsta sólarlag og hún á margra hylli og þökk sem hér er kvödd í dag. Og hún á tón sem ómar enn frá innsta hjartans streng. (Steingrímur frá Nesi) Fjölskyldu Önnu sendum við inni- legar samúðarkveðjur. Steinunn, Margrét og Guðrún Guðmundsdætur. Anna Gunnlaugsdóttir Morgunblaðið birtir minningar- greinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á for- síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upp- lýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einn- ig koma fram upplýsingar um for- eldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöf- undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinun- um. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynn- ingu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendi- kerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar ✝ Matthildur Ing-ólfsdóttir (Didda), fæddist í Reykjavík 14. ágúst 1950. Hún lést á Landspítalanum hinn 16. september 2010. Foreldrar hennar voru Ingólfur Guð- mundsson húsa- smíðameistari, f. 17. maí 1912, d. 6. októ- ber 1988, og Karítas Magnúsdóttir hús- móðir, f. 1. maí 1918, d. 16. apríl 1998. Systkini Matthildar eru Örn Haukur, f. 1939, Elísabet Guðrún, f. 1942, Ingólfur Ragnar, f. 1949, Dóra Jóhanna, f. 1955, d. 1957, Guðmundur Ólafur, f. 1957, og Ríkharður Þór, f. 1962. Matthildur ólst upp í Sörlaskjóli 5 og hóf sinn búskap einnig þar. Matthildur giftist 27. desember 1969 Vilhjálmi Björnssyni, f. 21. nóvember 1943. Börn þeirra eru Linda María, f. 24. júlí 1971, og Ragnar Örn, f. 2. mars 1976. Linda er gift Leif David Hal- vorson, f. 1969. Börn þeirra eru Sólrún Hlín, f. 20. apríl 1996, og Bjarki Tómas, f. 15. september 2000. Matthildur starfaði síðustu 25 ár við heimilishjálp. Útför Matthildar fór fram í kyrrþey. Elsku Didda systir. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið loga skæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson) Þinn bróðir Ragnar. Með nístandi sorg og söknuði kveð ég ástkæru systur mína, hana Diddu mína, sem allir elskuðu. Hún var hlý og gefandi og besta vinkona okkar allra. Lífið verður aldrei samt án hennar. Þessir síðustu mánuðir hafa verið erfiðir en við vorum samt bjartsýn fram á síðasta dag, þess vegna varð höggið svo þungt. Elsku Billi minn, Ragnar Örn, Linda og fjölskylda – Guð gefi ykkur styrk í þessum mikla missi, megi minningarnar um yndislega eigin- konu, móður og ömmu styrkja ykkur um ókomin ár. Guð leiði þig, en líkni mér, sem lengur má ei fylgja þér, en ég vil fá þér engla vörð, míns innsta hjarta bænagjörð. Guð leiði þig. Elísabet Ingólfsdóttir. Didda frænka var ótrúlega hjartahlý manneskja með góða nær- veru. Það var alltaf svo gaman að hitta hana, hún brosti mikið og var með hlýjan og góðan faðm. Það skein í gegn hversu vænt henni þótti um fjöl- skylduna sína og stórfjölskyldu, og við fundum alltaf fyrir því hversu vænt henni þótti um okkur frænku og frænda. Hún ræktaði fjölskyldu sína og uppskar yndislegan eiginmann, börn og barnabörn. Elsku Didda frænka. Við áttum saman frábærar stundir á aðfanga- dag ár hvert þegar við fjölskyldan heimsóttum ykkur Billa og Ragnar Örn. Það var alltaf tilhlökkunarefni að koma í heimsókn til ykkar þennan sérstaka dag og deila sögum, hlæja og hafa gaman. Það var alltaf svo jólalegt að koma til ykkar með fína jólatréð ykkar og konfektið og smákökurnar. Megi þær yndislegu minningar sem við eigum um þig lifa áfram. Ingólfur Ingólfsson og Ragna Ingólfsdóttir. Elsku besta Didda mín, ég kveð þig með söknuði – takk fyrir allt og allt – ég fékk að upplifa strax sem barn hvað þú varst alltaf tilbúin að vera til staðar fyrir alla og alltaf tilbúin að rétta fram hjálparhönd. Ég sótti mik- ið í að fá að gista í Sörlaskjólinu til að fá að vera meira með Lindu og ykkur en ég var aðeins 6 ára gömul er ég tók strætó í fyrsta skiptið úr Breiðholtinu og var þér falið að taka á móti mér við Háskólann þar sem þú þurftir að bíða í dágóðan tíma þar sem bílstjórinn gleymdi að segja mér hvenær ég átti að fara út, en ég komst að lokum á leiðarenda og þú tókst á móti mér með opnum örmum. Ég á svo margar góðar minningar um þig og Billa og börnin ykkar. Mest á ég eftir að sakna þess að tjútta með þér og Billa við öll uppáhaldslögin okkar og taka sporið fyrir þig, svo ekki sé minnst á allar þær stundir sem við áttum saman fjölskyldan og hlógum langt fram eftir öllu. Það var svo yndislegt að fá að upplifa þá ómældu ást sem þið báruð til barna ykkar og fékk ég stundum vænan skammt líka. Ég sé þig fyrir mér núna að spila við ömmu Kæju, Bettý og Halldóru, skellandi hnúunum í borðið er þið leggið spilin út með til- heyrandi hlátrasköllum. Guð geymi þig, elsku Didda mín, ég mun ávallt sakna þín. Guð veri með ykkur, elsku Billi, Linda og Leif, Ragnar Örn, Sólrún Hlín og Bjarki Tómas. Tabitha. Loforð Guðs: Ég aldrei hef lofað að brautin sé bein, né blómstígar gullskrýddir alla leið heim. Ég get ekki lofað þér gleði án sorgar, á göngu til himinsins helgu borgar. En eg hefi lofað þér aðstoð og styrk, og alltaf þér birtu þó leiðin sér myrk. Mitt ljúfasta barn ég lofað þér hef, að leiða þig sjálfur hvert einasta skref. Innilegar samúðarkveðjur, kæri Billi og fjölskylda. Mitchell Snyder. Matthildur Ingólfsdóttir (Didda) Morgunblaðið birtir alla útgáfudaga aðsendar umræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til blaðsins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem þurfa að senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Formið er undir liðnum „Senda inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein. Nánari upplýsingar gefur starfsfólk greinadeildar. Móttaka aðsendra greina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.