Morgunblaðið - 27.09.2010, Page 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2010
✝ Guðrún Þóra Hast-ings Sigurð-
ardóttir fæddist í
Keflavík 1. júní 1946.
Hún lést á heimili
sínu Kirkjuvegi 1 í
Reykjanesbæ þann 14.
september 2010.
Guðrún var dóttir
hjónanna Sigurðar H.
Halldórssonar frá
Gaddstöðum í Rang-
árvallarsýslu, f. 14 des-
ember 1926 og Ernu
Sverrisdóttur frá
Brimnesi, Grindavík, f.
2. ágúst 1929, d. 10 ágúst 1999.
Guðrún giftist Sigurði Þorgeirs-
syni 1965, f. 30. janúar 1946, d. 13.
júlí 2010.
Eignuðust þau eina dóttur, El-
ísabetu Murray, f. 26. september
1977, maki Brian Murray, f. 1. júní
1976. Börn þeirra eru Reed
Murray, f. 7 nóvember 2003, Jack
Murray, f. 23. nóvember 2005.
Guðrún giftist Harold D. Hast-
ings 27. janúar 1987, f. 26. desem-
ber 1938, d. 1. janúar 2006.
Guðrún var elst þriggja systra,
þær eru Hrefna, f. 21. júlí 1949,
maki Rúnar Benediktsson, f. 13. júlí
1948 og eiga þau þrjú börn: Sig-
rúnu, f. 7. september 1964, El-
ínrósu, f. 25. janúar 1971 og Sigurð
Arnar, f. 28. apríl 1980. Svava, f. 21.
júní 1964, maki Ævar Ingi Guð-
bergsson, f. 18. október 1962 og
eiga þau tvær dætur: Unni Haf-
stein, f. 13. júní 1989, Köru Haf-
stein, f. 29. júní 1998.
Útför Guðrúar fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag, 27. sept-
ember 2010, og hefst athöfnin kl.
13.
Leiðir þeirra
skildi, þau eignuðust
eina dóttur, Ernu
Sigríði Sigurð-
ardóttur, f. 30 ágúst
1963. Börn hennar
og Kolbeins Jóhann-
essonar eru Guðrún
Hrefna Kolbeins-
dóttir, f. 8. febrúar
1989, Erna María
Kolbeinsdóttir, f. 18.
september 1998,
stjúpdóttir Vilborg
Hrund Kolbeins-
dóttir, f. 27 nóv-
ember 1982.
Guðrún giftist Jim Somer árið
1974, f. 21 september 1948, leiðir
þeirra skildi.
Móðir okkar var ótrúleg mann-
eskja með smitandi bros og hafði
góða nærveru. Hún lifði lífinu
hratt, það hafði margar hæðir og
lægðir, en hún fann gleði í öllu,
sem varð á vegi hennar.
Hún var gjöful manneskja sem
elskaði að hjálpa öðrum og öllum
fannst mjög þægilegt að tala við
hana. Hún er sú sem kenndi okkur
að hjálpa öðrum óháð því hvað þeir
þyrftu. Ég man að fyrir ein jól
keyptum við jólagjafir fyrir
ókunna fjölskyldu sem hafði ekki
efni á að kaupa gjafir, við keyptum
gjafir fyrir alla fjölskylduna til að
tryggja að allir hefðu eitthvað að
opna á jólunum.
Mamma naut þess að hafa gam-
an. Hún elskaði að hlæja og dansa.
Á 60 ára afmæli sínu kom hún til
Íslands til að fagna. Henni fannst
svo gaman að hún varð síðust til að
fara að sofa!
Það var líka gaman að stríða
henni. Hún trúði öllu sem við sögð-
um henni, hvort sem það var satt
eða ósatt. Við sögðum henni sann-
leikann auðvitað að lokum, en það
var gaman að spila með hana um
stund.
Mamma var alltaf að reyna að
gera okkur að betri manneskjum
með því að segja okkur hvernig
henni fyndist að við ættum að
vera. Við rákumst á þessi ummæli
eftir Robert Brault sem okkur
fannst mjög vel við hæfi –„Mamma
fyrirgefur okkur alla galla okkar,
svo ekki sé minnst á einn eða tvo
sem við höfum ekki einu sinni“.
Sem dætur auðvitað gerum við
ekki allt eins og hún vildi en von-
andi ertu sátt vitandi það að þú
gerðir okkur að betri mæðrum og
vinum.
Við elskum þig, mamma, og andi
þinn mun lifa með okkur að eilífu.
Erna og Elisabet.
Elsku besta amma okkar. Við
trúum því ekki að þú sért farin frá
okkur svona snemma, við sem vor-
um svo vissar um að þú myndir fá
að hitta barnabarnabörnin þín og
sjá allt það sem á eftir að ske en
svona getur þetta verið ósann-
gjarnt stundum.
Við getum ómögulega lýst því
hvað við eigum eftir að sakna þín
mikið, höfum svo margt að segja
þér, því þú varst alltaf sú sem við
gátum sagt allt, gátum alltaf leitað
til þín eins og allir aðrir gátu. Þú
varst alltaf gjafmildasta konan í
öllum heiminum fyrir okkur og
heldur betur fyndnasta amman.
Við munum aldrei gleyma sögun-
um sem þú hefur sagt okkur um líf
þitt, við hlæjum ennþá af því
hversu skemmtilega þú sagðir frá
öllu, sama hvert þú fórst varstu
miðpunktur allra og fékkst hvern
sem er til að hlæja með þér. Ekki
leiðinlegt að ein okkar sé skírð í
höfuðið á svona frábærri konu.
Þú verður alltaf í okkar hjarta,
við elskum þig.
Þínar
Hrund, Guðrún Hrefna og
Erna María.
Í dag kveðjum við elskulega
systur okkar og mágkonu Guð-
rúnu, eða Gunnu eins og hún var
alltaf kölluð. Gunna bauð af sér
góðan þokka, hláturmild, en hafði
þó sérstaklega gaman af þegar við
gerðum grín að henni sjálfri.
Gunna
var einstaklega örlát og blíð
kona, mátti ekkert aumt sjá, var
alltaf tilbúin að bjóða fram aðstoð
sína, stundum kannski einum of að
okkar mati, hún hafði sérstakt lag
á að laða fólk að sér. Við systurnar
ólumst upp á afar ástríku heimili,
þar sem vinir og vandamenn voru
alltaf velkomnir. Gunna fluttist tví-
tug til Bandaríkjanna en Erna
dóttir hennar varð eftir hjá for-
eldrum okkar, og ólst þar upp.
Minningarnar hrannast upp, all-
ar ferðirnar upp í sumarbústað á
Rangárvöllum, fjölskyldureitinn
okkar eins og við köllum hann. En
þó sérstaklega nú í sumar þegar
dóttir Gunnu og tengdasonur, El-
ísabet og Brian, sem búsett eru í
Bandaríkjunum komu í fyrsta
skiptið með drengina sína tvo,
Reed og Jack, hingað til lands.
Ófáar ferðirnar voru farnar til
Bandaríkjanna að heimsækja
Gunnu og Harold og nutum við
gestrisni þeirra og góðvildar í
hvert skipti. Mikill samgangur var
ætíð á milli okkar systra, þó svo
hún hafi búið í Bandaríkjunum
lengst af sinni ævi. Mikill var miss-
ir Gunnu þegar Harold féll frá fyr-
ir fjórum árum, en í kjölfarið flyt-
ur hún aftur heim og fer að búa
hjá öldruðum föður okkar.
Gunna lifði lífinu til hins ýtrasta
og hafði gaman af, en ekki var hún
þó fullkomlega sátt við að setjast
hér að.
Hafðu þakkir, elsku Gunna, fyrir
allt. Við kveðjum þig, kæra vin-
kona, með söknuð í hjarta, það var
heiður að fá að kynnast þér. Við
vitum að þú kvaddir sátt og vonum
að ferð þín á framandi slóðir gefi
þér frið.
Hrefna, Rúnar,
Svava, Ævar.
Í dag kveð ég frænku mína sem
mér finnst alltof fljótt kölluð frá
okkur, en svona er almættið. Á
hverju kvöldi eftir að fór að
skyggja horfði ég á eldhúsglugg-
ann hjá Gunnu og beið eftir ljósi,
þá vissi ég að allt væri í lagi, en nú
er myrkrið eitt.
Er Gunna kom í þennan görótta
heim, þá var ég um 10 ára og oft
hjá systur minni í Keflavík og var
mjög kært með okkur í uppvext-
inum. Gunna var hugljúf, blíð og
afskaplega góð kona.
Gunna mín átti ekkert til nema
hjartagæsku og vildi gera allt fyrir
alla, þó svo hún gæti það ekki.
Gunna mín eins og svo margir aðr-
ir fór snemma út á lífið og þar með
fóru unglingsárin fyrir bí. Er hún
kynntist Sigga Þorgeirs eignuðust
þau Ernu, en braskið og erfiðleik-
arnir komu alltof fljótt hjá svo
ungu fólki, sem síðan endaði með
skilnaði. Fljótlega upp úr þessu fer
hún að vinna hjá Loftleiðum og þá
fór Gunna að vera hún sjálf, því
hún var hrókurinn í öllum sam-
kvæmum og partíum á Loftleiðaár-
unum. Lífsgleðin, félagslyndið og
geðprýðin voru hennar aðalsmerki.
En á þessum árum giftir hún sig
sem er vart í frásögur færandi hjá
ungri konu, nema eitt sinn er ég og
Hrefna erum að fara til Lillu syst-
ur Hrefnu í Ameríku birtist Gunna
allt í einu í flugstöðinni með sínu
létta fasi og brosi, þá varð mér að
orði, en sætt af henni að koma og
kveðja okkur, þá segir mín frænka:
„Nei, ég er ekki að kveðja ykkur,
má ég ekki vera með ykkur úti
þann tíma sem þið verðið, því ég er
að skilja?“ Það var auðsótt mál.
Þarna erum við þrjú í góðu yfirlæti
hjá Lillu og Bill í þrjár vikur, síðan
fórum við til Ella og Þórhildar í
Virginíu, þar var tekið konunglega
á móti okkur eins og þeim er ein-
um lagið.
Alltaf var Gunna hrókur alls
fagnaðar á kvöldin með sinni léttu
lund og brosi. Eftir að við komum
heim giftir Gunna sig aftur, flytur
til Ameríku og eignast þá aðra
Guðrún Þóra Hastings
Sigurðardóttir
✝
Elskuleg móðir mín,
SIGURBJÖRG BJÖRGVINSDÓTTIR,
áður Þórsgötu 21 a,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laugar-
daginn 18. september, verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 28. september
kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð, sími 560 4100.
Stefán Hermanns.
✝
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför okkar
ástkæra,
ENGILBERTS GUÐJÓNSSONAR.
Okkar innilegustu þakkir færum við starfsfólki
gjörgæsludeildar Landspítalans við Hringbraut fyrir
nærgætni, hlýju og stuðning.
Þúsund þakkir fyrir fallegar kveðjur.
Guðjón Engilbertsson, Dóra Ingólfsdóttir,
Ólafía G. Ársælsdóttir, Sigfús Þór Elíasson,
Ársæll Þór Bjarnason, Kamilla Sveinsdóttir,
Eyþór Guðjónsson, Lilja Erlendsdóttir,
Elías Þór Sigfússon,
Ingólfur Hilmar Guðjónsson,
Sævar Þór Sigfússon,
Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir, Kjartan Gunnsteinsson.
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
JENS SÆVAR GUÐBERGSSON
Garðbraut 83
Garði
andaðist föstudaginn 24. september á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Ólöf Hallsdóttir,
Sveinn Magni Jensson, Dagmar María Hrólfsdóttir,
Jens Óli Jensson, Harpa Mjöll Magnúsdóttir,
Sveinborg Petrína Jensdóttir, Ólafur Ómarsson,
Særún Thelma Jensdóttir, Bjarni Páll Tryggvason,
Hallur Þór Jensson,
Sævar Gunnóli Sveinsson, Agnes Gunnþóra Sveinsdóttir,
Elvar Unndór Sveinsson, Ólöf Sólveig Ólafsdóttir,
Júlía Mjöll Jensdóttir, Ísak Helgi Jensson,
Bergrún Dögg Bjarnadóttir, Sæþór Elí Bjarnason,
Svandís Huld Bjarnadóttir, Brynhildur Þöll Bjarnadóttir.
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og
virðingu vegna andláts föður okkar, tengdaföður
afa og langafa,
KRISTJÁNS J. GUNNARSSONAR
fyrrv. fræðslustjóra
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
hjúkrunarheimilisins Skjóls fyrir umhyggju og hlýju.
Guð veri með ykkur öllum.
Guðrún Kristjánsdóttir, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
Kristján S. Kristjánsson, Margrét Steinarsdóttir,
Hörður Kristjánsson, María Hrönn Gunnarsdóttir,
Elín Kristjánsdóttir, Baldur V. Hannesson,
Ásdís Kristjánsdóttir, Ársæll Kristjánsson,
afabörn og langafabörn.
Kær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma
GUÐBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR
Njálsgötu 4.a.
er látin.
Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Hjartans þakkir til Móður Theresu systra,
Velferðasviðs borgarinnar og allra sem sinntu henni
af alúð og umhyggju.
Margrét Sigurðardóttir,
Elísabet Sigurðardóttir, Eyþór Guðlaugsson,
Íris Eggertsdóttir, Jón Páll Eyjólfsson,
Hildur Rúnarsdóttir, Torfi Þór Torfason,
Sigurður Eyþórsson, María Hrund Stefánsd,
Telma Guðbjörg Eyþórsdóttir,
Guðlaugur Andri Eyþórsson,
Embla Sól Pálsdóttir,
Sóley Úa Pálsdóttir,
Ilmur Jara Torfadóttir.