Morgunblaðið - 27.09.2010, Page 29

Morgunblaðið - 27.09.2010, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2010 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Gauragangur (Stóra svið) Lau 2/10 kl. 20:00 8.k Fim 21/10 kl. 20:00 11.k Lau 13/11 kl. 20:00 13.k Sun 10/10 kl. 20:00 9.k Fös 29/10 kl. 20:00 aukas Fim 18/11 kl. 20:00 14.k Fim 14/10 kl. 20:00 10.k Fim 4/11 kl. 20:00 12.k Eftir Ólaf Hauk Símonarson - tónlist Nýdönsk Harry og Heimir (Litla sviðið) Fim 30/9 kl. 20:00 6.k Lau 16/10 kl. 19:00 9.k Sun 24/10 kl. 20:00 13.k Fös 1/10 kl. 20:00 7.k Lau 16/10 kl. 22:00 10.k Fim 28/10 kl. 20:00 14.k Lau 9/10 kl. 19:00 aukas Fös 22/10 kl. 19:00 11.k Fös 15/10 kl. 19:00 8.k Lau 23/10 kl. 19:00 12.k Einnig sýnt á Akureyri í nóvember Enron (Stóra svið) Fim 30/9 kl. 20:00 4.k Fös 15/10 kl. 20:00 7.K Lau 23/10 kl. 20:00 10.k Fös 1/10 kl. 20:00 5.k Lau 16/10 kl. 20:00 8.k Lau 9/10 kl. 20:00 6.K Fös 22/10 kl. 20:00 9.k Stórsýning um brjálæðislegt dramb og fall Fólkið í kjallaranum (Nýja svið) Fös 8/10 kl. 20:00 Fors Lau 23/10 kl. 19:00 6.k Lau 6/11 kl. 19:00 12.k Lau 9/10 kl. 20:00 Frums Lau 23/10 kl. 22:00 aukas Lau 6/11 kl. 22:00 aukas Þri 12/10 kl. 20:00 aukas Sun 24/10 kl. 20:00 7.k Sun 7/11 kl. 20:00 13.k Fös 15/10 kl. 20:00 2.k Þri 26/10 kl. 20:00 aukas Fös 12/11 kl. 19:00 14.k Lau 16/10 kl. 19:00 3.k Fim 28/10 kl. 20:00 8.k Fös 12/11 kl. 22:00 15.k Lau 16/10 kl. 22:00 aukas Lau 30/10 kl. 19:00 9.k Sun 14/11 kl. 20:00 16.k Sun 17/10 kl. 20:00 4.k Lau 30/10 kl. 22:00 aukas Lau 20/11 kl. 19:00 17.k Þri 19/10 kl. 20:00 aukas Sun 31/10 kl. 20:00 10.k Lau 20/11 kl. 22:00 18.k Mið 20/10 kl. 20:00 5.k Mið 3/11 kl. 20:00 11.k Sun 21/11 kl. 20:00 19.k Leikgerð verðlaunasögu Auðar Jónsdóttur Horn á höfði (Litla svið) Lau 2/10 kl. 14:00 aukas Lau 16/10 kl. 13:00 aukas Lau 30/10 kl. 13:00 10.k Sun 3/10 kl. 14:00 5.k Sun 17/10 kl. 14:00 7.k Sun 31/10 kl. 14:00 11.k Lau 9/10 kl. 14:00 aukas Lau 23/10 kl. 13:00 8.k Sun 10/10 kl. 14:00 6.k Sun 24/10 kl. 14:00 9.k Gríman: Barnasýning ársins 2010! Orð skulu standa (Litla svið) Þri 28/9 kl. 20:00 Þri 5/10 kl. 20:00 Þri 12/10 kl. 20:00 Gestir þri 28. sept: Kristján Kristjánsson (KK) og Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) Sala áskriftarkorta enn í fullum gangi! Fíasól ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Nánar á leikhusid.is Sími miðasölu 551 1200 Sýningar alla laugardaga og sunnudaga. PORGY AND BESS® Lögin úr Porgy and Bess eru löngu orðin ódauðleg; Summertime, I got plenty o' nuttin', Bess, You is my woman now, It ain't necessarily so. Stórvirki í flutningi Sinfóníunnar og fjögurra erlendra úrvalssöngvara. Miðasala á www.sinfonia.is og 545 2500 Stórvirki Gershwin-bræðra „Lífið er eins og djass … það er best að impróvísera.“ George Gershwin Eftir forsetakosningarnar íÍran sumarið 2009 fórufram fjöldamótmæli ágötum helstu borga landsins. Mahmud Ahmadinedjad var lýstur sigurvegari, en almenn- ingur var sannfærður um að úrslit- unum hefði verið hagrætt og fór út á götu til að styðja Mir-Hossein Mous- savi, hans helsta andstæðing. Yf- irvöld í Teheran reyndu að koma í veg fyrir að erlendir fjölmiðlar gætu greint frá því, sem var að gerast í landinu, en þau gátu ekki afstýrt því að fólk notaði síma og netið til að koma upplýsingum um ofbeldi stjórnvalda gegn mótmælendum á framfæri við umheiminn. Fyrir vikið er talað um Twitter-byltinguna í Ír- an. Mitt í þessum átökum í Íran kem- ur ung yfirstéttarkona frá Teheran, Anahita, til Parísar. Hún er náms- maður við háskólann og leiða má getum að því að foreldrar hennar hafi sent hana í burtu til að tryggja öryggi hennar. Strax verður ljóst að þótt konan sé stödd í París er hjarta hennar í Teheran. Anahita fylgist með á netinu, þar sem hún ber nafn- ið Mrs. Dalloway, og skiptist á skila- boðum við vini og ættingja. Þá kemur ástin til skjalanna. Hún kynnist ungum starfsmanni hótels- ins, sem hún býr á, og hann fer með henni á handahlaupum – í orðsins fyllstu merkingu – um borgina. Of- beldið í Íran er þó aldrei langt und- an. Léttúðugt líf í París verður hins vegar innantómt þegar vinir og ætt- ingjar eru í hættu heima fyrir. Heiti myndarinnar, Fleurs du Mal eða Blóm hins illa, er bein vísun í samnefnda ljóðabók Charles Baude- laire, þar sem saman fara ástir og úrkynjun. Anahita gefur ástmanni sínum, Gecko, ljóðabókina og biður hann skilja hana aldrei við sig. Netheimanafn aðalsöguhetjunnar er síðan bein vísun í bók Virginiu Woolf, Mrs. Dalloway, sem fjallar um dag í lífi ungrar konu á Bretlandi rétt eftir fyrri heimsstyrjöld. Blóm hins illa er ástarmynd sem fjallar um togstreitu milli tveggja einstaklinga úr gerólíkum áttum. Fljótlega læðast að áhorfandanum efasemdir um að samband byggt á þessum forsendum geti staðist. Ana- hitu þjakar samviskubit yfir því að vera fjarri heimkynnum sínum þeg- ar mikið liggur við. Daglega horfir hún á ofbeldismyndir á netinu þar sem gengið er í skrokk á mótmæl- endum sem hæglega gætu verið vin- ir hennar. David Dusa leikstjóri nær vel magnleysi Anahitu, sem vill taka þátt í atburðarás, sem hún er víðs fjarri. Og gildir þá einu þótt hún geti í raun engin áhrif haft á gang mála, hvar sem hann er niðurkominn. Fleurs Du Mal er grípandi mynd um ástina á dögum netsins. Ástin á dögum netsins Fleurs du Mal bbbmn Leikstjóri: David Dusa. Leikarar: Alice Belaïdi og Rachid Youcef. Frakkland. 99 mín. 2010. Flokkur: Vitranir. KARL BLÖNDAL KVIKMYND Ást í skugga Alice Belaïdi og Rachid Youcef í hlutverkum sínum. Sýnd í kvöld, 30. sept. og 2. okt. Bandaríska leikkonan Lindsay Loh- an er staðráðin í að fara aftur í meðferð og standa sig enn betur en áður eftir að henni var á föstudags- kvöldið sleppt á ný úr fangelsi gegn 300 þúsund dala tryggingu. Áður hafði dómari hafnað því að láta Lohan lausa gegn tryggingu en áfrýjunardómstóll sneri þeim úr- skurði við. Þarf Lohan nú að ganga með áfengismæli um úlnliðinn þar til hún kemur á ný fyrir rétt 22. októ- ber. Þá má hún ekki koma nálægt áfengisverslunum. Fangavistin var sú þriðja, sem leikkonan þarf að þola í tengslum við umferðarlagabrot frá árinu 2007 en þá var hún tvívegis staðin að því að aka bíl undir áhrifum áfengis og lyfja. Þá var hún lokuð inni í 84 mínútur en fékk síðan skil- orðsbundinn dóm en braut gegn skilyrðum dómsins og afplánaði hálfs mánaðar fangelsisvist í sum- ar. Eftir að hún losnaði úr fangels- inu gekkst hún undir meðferð og þurfti einnig að undirgangast regluleg lyfjapróf. Lohan upplýsti síðan á Twitter-vef sínum í síðustu viku, að hún hefði fallið á slíku prófi og því þyrfti hún að mæta fyr- ir dóm. Það gerði hún á föstudaginn og Elden Fox dómari fyrirskipaði að Lohan skyldi tafarlaust færð í fang- elsi til að afplána mánaðar fangels- isdóm fyrir að brjóta gegn skil- yrðum reynslulausnar. Þeim úrskurði hnekkti áfrýjunarréttur um kvöldið eins og áður sagði. Reuters Lohan Leikkonan mætir fyrir dómara á föstudaginn alvarleg í bragði. Lífsraunir Lohan RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.