Morgunblaðið - 27.09.2010, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2010
2010–11 TÍMABILIÐ
DAS RHEINGOLD Wagner
9. OKT ÖRFÁ SÆTI LAUS
13. OKT. LAUS SÆTI
BORIS GODUNOV Mussorgsky
23. OKT ÖRFÁ SÆTI LAUS
27. OKT LAUS SÆTI
DON PASQUALE Donizetti
13. NÓV ÖRFÁ SÆTI LAUS
17. NÓV LAUS SÆTI
DON CARLO Verdi
11. DES ÖRFÁ SÆTI LAUS
15. DES LAUS SÆTI
LA FANCIULLA
DEL WEST Puccini
8. JAN ÖRFÁ SÆTI LAUS
12. JAN LAUS SÆTI
NIXON IN CHINA Adams
12. FEB ÖRFÁ SÆTI LAUS
16. FEB LAUS SÆTI
IPHIGÉNIE EN
TAURIDE Gluck
26. FEB ÖRFÁ SÆTI LAUS
2. MARS LAUS SÆTI
LUCIA DI
LAMMERMOOR Donizetti
19. MARS ÖRFÁ SÆTI LAUS
23. MARS LAUS SÆTI
LE COMTE ORY Rossini
9. APRÍ L ÖRFÁ SÆTI LAUS
13. APRÍ L LAUS SÆTI
CAPRICCIO R. Strauss
23. APRÍ L ÖRFÁ SÆTI LAUS
27. APRÍ L LAUS SÆTI
IL TROVATORE Verdi
30. APRÍ L ÖRFÁ SÆTI LAUS
4. MAÍ LAUS SÆTI
DIE WALKÜRE Wagner
14. MAÍ ÖRFÁ SÆTI LAUS
18. MAÍ LAUS SÆTI
nánari upplýsingar á
www. operubio.is
Sambíóin kynna
TheMet: Live in HD
nýtt óperutímabil
Íheimildarmyndinni A SeaChange fylgjumst við meðkennaranum Sven Husebysem kominn er á eftirlaun og
helgar nú krafta sína því að vekja
fólk til vitundar um hækkandi sýru-
stig sjávar. Hann hefur miklar
áhyggjur af þessari skaðvænlegu
þróun og spyr sjálfan sig og áhorf-
andann að því hvers konar heim
börnin okkar muni erfa. Myndin er í
raun nokkurs konar vídjódagbók til
barnabarnsins Elíasar en það er
hans framtíð sem drífur Sven áfram.
Ferðalag Svens hófst eftir að
hann las greinina „The Darkening
Sea“ eftir Elizabeth Kolbert. Í henni
fjallar hún um það hvernig aukið
magn koldíoxíðs í höfunum er að
breyta efnasamsetningu þeirra
þannig að sýrustigið fer hækkandi.
Þetta hefur þau áhrif að skeljar smá-
dýra leysast upp sem aftur hefur
áhrif upp alla fæðukeðjuna. Sven
ferðast til m.a. Alaska, Washington
og Noregs til að leita svara hjá sér-
fræðingum um ástand hafanna í dag
og hvort einhver ráð séu til að
sporna við þessari þróun og þá hver.
A Sea Change hefur verið sýnd á
ótal kvikmyndahátíðum út um allan
heim og hlotið mörg verðlaun. Að-
standendur hennar eiga hrós skilið
fyrir að vekja athygli á mikilvægu og
lítt umræddu málefni. Hún er hins
vegar ekki góð heimildarmynd.
Samband Svens og Elíasar er vissu-
lega hugljúft og Sven rekur stutt-
lega atriði úr ævi sinni en hvorugt
kemur málinu mikið við. Falleg nátt-
úruskot birtast við og við en annars
er það áhyggjufullur Sven sem oft-
ast er í mynd.
Sannleikurinn er sá að þeim fróð-
leik sem myndin hefur fram að færa
hefði mátt koma fyrir í snoturri 10
mínútna stuttmynd. Meira að segja
forvitnilegasti kaflinn, þegar fjallað
er um hugsanlegar lausnir, er afar
þunnur þrettándi; vindorka, sól-
arorka. Og hvað? Hvernig? Fátt er
um svör. Það er miður, því umfjöll-
unarefnið er áhugavert, en fyrir
heimildarmyndaaðdáandann sem er
vanur að fá skot af upplýsingum,
staðreyndum og tölfræði beint í æð
er það af afar skornum skammti hér.
A Sea Change bbnnn
Leikstjóri: Barbara Ettinger. Heimild-
armynd. Bandaríkin, 2009. 83 mín.
Flokkur: Nýr heimur.
HÓLMFRÍÐUR
GÍSLADÓTTIR
KVIKMYND
Slök úrvinnsla á áhugaverðu efni
Hverfult haf „Fátt er um svör.“
Sýnd tvisvar í dag og á morgun.
Budrus bbbnn
Leikstjóri Julia Bacha. 82 mín. Palest-
ína, Ísrael og Bandaríkin, 2009. Flokkur:
Palestína og Afganistan í brennidepli.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
KVIKMYND
Íheimildarmyndinni Budrussegir frá íbúum palestínskabæjarins Budrus, þeir teljaum 1.500 manns. Þetta er
friðsæll bær þar sem flestir hafa lifi-
brauð sitt af ólífurækt. Þegar Ísrael-
ar fara að reisa aðskilnaðarvegg sinn
kemur í ljós að veggurinn mun taka
300 ekrur af landi Budrus-búa og
þar af helsta ræktunarland ólíf-
utrjánna. Auk þess sem veggurinn
verður 40 metra frá skólanum og fer
nánast í gegnum moskuna. Bacha
beinir sjónum sínum að ólífubónda
einum sem verður leiðtogi mótmæla
gegn þessum yfirgangi ásamt fimm-
tán ára dóttur sinni.
Þegar Bacha kemur til Budrus
eru íbúarnir að velta fyrir sér hvað
þeir geti gert til að hindra byggingu
aðskilnaðarveggsins. Það er ótrúlegt
Budrus Fimmtán ára dóttir ólífu-
bóndans ræðir við hermennina.
að velta fyrir sér að hægt sé að
byggja heilan vegg í gegnum þorp
og eingangra íbúana frá landi sínu
og lífsviðurværi. Áhorfandinn kemst
strax á band Budrus-búa og verður
orðavant yfir óréttlætinu sem þeir
verða fyrir. Eftir því sem vinnuvél-
arnar færast nær hitnar íbúunum í
hamsi og hefja mótmæli sín. Mót-
mælin eru fyrst friðsamleg, einkenn-
ast af örvæntingu enda er smæð íbú-
anna gegn þessu stóra afli mikil.
Þeir virðast vera valdalausir. Her-
menn frá Ísrael eru sendir á staðinn
til að verja framkvæmdina og halda
íbúunum í burtu og þá æsist leik-
urinn. Íbúunum bætist óvæntur liðs-
styrkur þegar ungir Ísraelsmenn og
aðrir koma þorpsbúum til aðstoðar
og þá vinda mótmælin upp á sig. Það
bætist í ísraelska herinn á móti og
áður en við verður litið er þessi frið-
sæli bær orðinn stríðssvæði. Íbú-
arnir eru einangraðir í eigin bæ en
hersveitin heldur þeim gíslum með
því að umkringja bæinn með girð-
ingum og skotvopn í hendi. Myndin
missir aðeins dampinn þegar í há-
mark átakanna er komið, öllu er
beint að átökunum og það gleymist
svolítið að sýna hvernig líf fólksins í
þessu friðsæla þorpi breytist þegar
mótmælastríð er skollið á. Mest er
sýnt frá átökum á götum úti.
Baráttuandi íbúa Budrus er aðdá-
unarverður og þó að það hafi ekki
litið út fyrir það í upphafi hafa þeir
betur að lokum. Múrinn er færður
og þeir halda eftir 95% af landi sínu.
Mikil gleði brýst út þegar það er
ljóst, Budrus er bjargið.
Myndin er einföld en áhrifarík og
ætti ekki að láta neinn ósnortinn.
Áhorfandinn verður vitni að miklu
óréttlæti, mikilli örvæntingu og
fagnar svo með íbúunum í lokin.
Baráttunni er samt ekki lokið því
það eru fleiri bæir sem þurfa að
berjast fyrir landi sínu eins og Bu-
drus. Þetta er mynd sem ætti að
auka skilning áhorfandans á stöðu
Palestínu en fyrst og fremst er þetta
mynd um sigur Davíðs yfir Golíat.
Baráttan í Budrus
Sýnd í dag og 29. og 30. sept.
áhrif á einstaklingana. Þetta er
mynd um þann skít sem hellist yfir
fólk þegar hugmyndafræði fram-
kallast í skelfilegt stjórnarfar með
ómanneskjulegum þvingunum, of-
sóknum, ofbeldi og hryllingi. En
þetta er samt alls ekki þunglynd-
isleg mynd, hún er dásamleg, und-
urfalleg og áhrifamikil. Og það er
líka í henni von.
Þessi mynd er sannkallað augna-
yndi, hvert skot er nánast listaverk.
Þetta er veisla fyrir auga og anda.
Einstaklega fagmannlegt og vand-
virknislegt yfirbragð er á öllu, og
ber merki mikils næmis. Hvert smá-
atriði er úthugsað. Allt styður hvað
annað; lýsing, hljóð, sjónarhorn,
leikur, handrit.
Tónlistin er aldrei yfirþyrmandi,
heldur undirstrikar stemninguna
hverju sinni, ýmist hreinir og tærir
píanótónar, harmonikka eða streng-
ir. Og allt er þrungið tilfinningu.
Erótíkinni er komið frábærlega til
skila, oft með því að sýna ekki of
mikið.
Kvikmyndatakan er í einu orði
sagt frábær. Ég segi húrra fyrir
Karli Óskarssyni sem stjórnaði
kvikmyndatökuvélinni. Hann sýnir
svo sannarlega hér að hann er einn
af þeim stóru.
Einhver gæti sagt að sagan í
þessari mynd sé ekki svo ólík ótal
öðrum sögum sem við höfum áður
séð, heyrt eða lesið um og gerist á
þessu tímabili í þessum löndum. En
hvernig hún er sögð hér, hvernig
hún er færð í mynd, gerir hana ein-
staka. Ef þessi saga hefði verið film-
uð á annan hátt væri þetta allt önn-
ur upplifun.
Three Seasons in Hellb b b b n
Leikstjóri Tomáš Mašín. Aðalhlutverk
Kryštof Hádek, Karolina Gruszka.
110 mínútur. Tékkland, Þýskaland, Sló-
vakía. 2009. Flokkur: Fyrir opnu hafi.
KRISTÍN HEIÐA
KRISTINSDÓTTIR
KVIKMYND
Þeir sem ekki hafa reynt áeigin skinni hvernig þaðvar að lifa undir ógnar-valdi kommúnista þess
tíma sem myndin Þrjár árstíðir í
helvíti gerist (1947-1949) geta aldrei
raunverulega vitað hvernig það hef-
ur verið. Einmitt þess vegna eru
myndir eins og þessi svo nauðsyn-
legar. Þær gefa okkur svolitla sýn
inn í eitt af þeim fjölmörgu helvítum
sem mannskepnan hefur því miður
tilhneigingu til að búa til.
Myndin segir sögu hins unga,
sjálfumglaða en hjartahreina Ivans,
sem gengur um með ljóðskáld í
maganum og trúir því að frelsi, jafn-
rétti og betri tímar séu framundan.
Blautur bak við eyrun og of-
urbjartsýnn gengur hann til móts
við framtíðina og stingur sér á bóla-
kaf í bóhemlífið, með öllum þeim til-
raunum sem því fylgja, líka í ástalíf-
inu. En hann á heldur betur eftir að
fá löðrungana framan í sig. Hann
kemst að því á sársaukafullan hátt
hver raunveruleikinn er:
Byltingin étur jú oft börnin sín.
Þessi mynd er ekki aðeins þroska-
saga Ivans, hún er líka ástarsaga
hans og þokkagyðjunnar Jönu. En
fyrst og fremst er þetta saga um
það hvernig sjúkt samfélag hefur
Fallega sögð saga
um helvíti
Þrjár árstíðir „Kvikmyndatakan er í einu orði sagt frábær.“
Sýnd 29. og 30. september.