Morgunblaðið - 15.10.2010, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.10.2010, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2010 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Ástralinn Michael Burkekemur með gusti inn ákaffihúsið Tíu dropa áLaugavegi þar sem við höfðum mælt okkur mót. Burke er hávaxinn og grannur og mjög ástr- alskur í útliti myndu einhverjir segja. Hann er líka afskaplega hress og kraftmikill enda starfaði hann sem lögfræðingur á daginn og uppi- standari á kvöldin áður en hann hélt í ferðalag um heiminn. Það ferðalag varð til þess að hann er staddur á Ís- landi um þessar mundir. Þegar kaffið er komið á borðið er ekki seinna vænna að hefja spjall- ið og það sem mér leikur mest for- vitni á að vita er af hverju Burke ákvað að leggja í heimsreisu. „Ég var búinn að fá nóg af lífi mínu heima, fannst ég vera orðinn eins og leikmaður í Matador; vinna, fá útborgað, eyða peningunum og vinna meira til að eyða meira. Líf mitt var í mjög föstum skorðum og ég orðinn leiður á því. Ég ákvað því að fara burtu, pakkaði niður og pantaði flug. Ég var búinn að ákveða að fara til Edinborgar í ágúst á árlegt Comedy festival þar sem ég var með uppistand. Ferðin þangað var góð afsökun til að byrja ferðalagið sem mun standa yfir í óákveðinn tíma,“ segir Burke. RIFF og Airwaves Ferðalagið er óplanað en Ísland var einn af fáum fyrirfram ákveðnum stoppistöðum hjá Burke. „Plön eru fyrir aula,“ segir hann og hlær. „Ég er ekki með plön, ég vildi bara fara af stað. Ég hafði það planað að fara til Edinborgar og „Ég er ekki með plön, ég vildi bara fara af stað“ „Ég var búinn að fá nóg af lífi mínu heima, fannst ég vera orðinn eins og leik- maður í Matador; vinna, fá útborgað, eyða peningunum og vinna meira til að eyða meira,“ segir Ástralinn Michael Burke sem yfirgaf heimabæ sinn Perth, þar sem hann starfaði sem lögfræðingur og uppistandari, til að ferðast um heiminn í óákveðinn tíma. Burke kom hingað til lands til að vinna sem sjálfboðaliði á RIFF og fara á tónlistarhátíðina Iceland Airwaves. Morgunblaðið/Árni Sæberg Uppistand Burke hefur starfað sem uppistandari síðasta eina og hálfa árið. Sól og sumar Burke kemur frá Perth sem er höfuðborg Vestur-Ástralíu. Að leita og skoða það sem boðið er upp á á Internetinu getur stundum verið eins og að villast í frumskógi, endalaus og óskiljanleg flækja. Því er vefsíðan StumbleUpon lífsbjörg að sumra mati. Síðan hjálpar fólki að finna og deila vefsíðum sem henta þess áhugasviði. Aðild að síðunni er ókeypis en það þarf að skrá sig inn. Þá er maður lát- inn velja nokkur áhugasvið úr fjölda valmöguleika, svo er bara að „stumbla“ en þá er ýtt á „stumble“ takkann og það er ótrúlegt magn af skemmtilegum síðum sem kemur upp og aðeins þær sem maður hefur áhuga á. Þær eru allar valdar eftir þeim áhugaflokkum sem þú merktir við. Upp koma aðeins vefsíður sem vinir og skráðir Stumble-notendur með svipuð áhugamál hafa mælt með. Þetta aðstoðar fólk við að finna margt áhugavert sem myndi annars fara framhjá því á netinu. Hægt er að vista það sem manni líst á, senda til annarra síðunotenda eða á Facebook. Einnig er hægt að skrifa litla gagnrýni um það sem kemur upp. Þegar síða kemur upp er hægt að velja „þumalputta upp“ ef manni líkar hún og þá veit Stumble hvað þér líkar við og reynir að finna meira slíkt. Einnig er hægt að gera „þumalputta niður“ og þá forðast Stumble að mæla með svipuðum síð- um. Stumble er líka eins og lítið sam- félag, það er t.d. hægt að finna aðra síðunotendur sem eru með sömu áhugamál og maður sjálfur og eiga í samskiptum við þá. Stumbleupon- .com er mjög sniðug síða og gerir netheiminn bæði minni og stærri. Vefsíðan www.stumbleupon.com Reuters StumbleUpon Gefur notendum nýja sýn á netið og það sem þar er boðið uppá. Vísar þér á áhugamálin Það er löngu uppselt á tónlistarhátíðina Iceland Airwaves sem nú fer fram í mið- borg Reykjavíkur. Það segir samt ekkert að þeir sem eiga ekki miða geti ekki not- ið hátíðarinnar. Það má skoða dagskrána og velta fyrir sér þeim böndum sem eru að spila, fletta þeim sem vekja athygli manns upp á net- inu og sjá hvort eitthvað nýtt og spenn- andi sé þar á ferð. Mikið af viðburðum er á hliðardagskrá Airwaves og það þarf engin armbönd til að komast inn á þá. Í dag verður t.d. Nolo, Lára Rúnars og danska hljóm- sveitin Reptile & Retard í bókabúð Máls og Menningar á Laugavegi. Kíkið þangað. Endilega … … pælið í Ice- land Airwaves Páll Óskar Á Airwaves í fyrra. Það er óhætt að segja að sýning franska fatahönnuðarins Jean-Charles de Castelba- jac (JC/DC), hafi verið litrík og lifandi á tískuvikunni í París í síðustu viku. Þar sýndi hann vor- og sumarlínu sína 2011. Hann er þekktur fyrir að setja leik í fötin sín og gerði t.d. fræga kápu úr böngs- um sem Madonna klæddist. Hann er ekkert hættur að leika sér eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. Tíska Undarlegt Bolur úr sólgleraugum, sniðug hugmynd en óklæðileg. Litríkt og leikandi hjá JC/DC JC/DC Hálsmen úr Effelturnum var viðeigandi á tískusýningu í París. Reuters Sirkus Fönkí kjóll og grófir skart- gripir er klassískt hjá JC/DC. Karlmenn og kvenmenn hafa jafna stærðfræðihæfileika, þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem var birt 11. október í tímaritinu Psychological Bulletin. Skoðaðar voru 242 rannsóknir gerðar á árunum 1990 til 2007 sem mátu stærðfræðihæfileika 1,3 millj- óna manna frá barnaskóla til háskóla og áfram. Allar rannsóknirnar sýndu að ekki var marktækur munur á stærðfræðihæfni karla og kvenna. Þó allar rannsóknir sýni að bæði kynin hafi jafna hæfileika til að reikna trúa margir foreldrar og kenn- arar enn að strákar séu betri í stærð- fræði en stelpur. Þetta viðhorf getur leitt til þess að stelpum sé frekar beint frá ferli í greinum tengdum stærðfræði eins og vísindum og verk- fræði að sögn Janet Hyde yfirhöf- undar rannsóknarinnar og prófessors í sálfræði og kvennafræðum við Há- skólann í Wisconsin-Madison „Foreldrar og kennarar halda áfram að halda í þá staðalímynd að strákar séu betri í stærðfræði, og það getur haft mikil áhrif á stelpur sem er sagt að halda sig frá verkfræði eða vísindum, því stelpur geti ekkert í stærðfræði,“ segir Hyde. Það er vitað að staðalímyndir hafa áhrif á fræðilega frammistöðu. „Foreldrar og kennarar senda frá sér óbein skilaboð um hversu góð þau búast við að börnin séu í ólíkum fögum og það hefur sterk áhrif á hug- myndir þeirra um sjálfan sig og getu. Þetta getur haft mikil áhrif,“ segir Hyde jafnframt. Nám Kynin eru jafnhæf í stærðfræði Reuters Á skólabekk Strákar og stelpur fæðast með jafn góða stærðfræðihæfileika.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.