Morgunblaðið - 15.10.2010, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.10.2010, Blaðsíða 16
Nýjir þættir um útiveru, náttúru og hreyfingu á sjónvarpsstöðinni ÍNN Föstudagskvöld kl. 21:30 á ÍNN INN 16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2010 STUTTAR FRÉTTIR ● Yfirtaka danska tryggingasjóðsins Finansiel Stabilitet á færeyska bank- anum Eik tók gildi í gær. Hefur bankinn nú runnið inn í nýtt dótturfélag Fin- ansiel Stabilitet, sem nefnist Eik Banki Føroya P/F. Samkomulag var gert 30. september milli Eikar og Finansiel Stabiltet og hef- ur öllum skilyrðum nú verið fullnægt, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallar Íslands frá Odd Bjellvåg, stjórnarformanni bankans. Yfirtöku á Eik lokið Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Hagnaður Norvik-samstæðunnar nam rúmlega 1,4 milljörðum króna á síðasta ári, að því er fram kemur í uppgjöri sem skilað var til ársreikn- ingaskrár í þessari viku. Norvik er að mestu í eigu kaupsýslumannsins Jóns Helga Guðmundssonar, en meðal fyrirtækja Norvik hér á landi eru Byko, Kaupás og Elko. Tekjur samstæðunnar jukust um tæplega 700 milljónir á síðasta ári og námu í heild um 57,6 milljörðum króna. Kostnaður seldra vara og launakostnaður dregst lítillega sam- an og hagnaður fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) var þrír milljarðar. EBITDA-hlutfall samstæðunnar batnar raunar milli ára og var 5,2%. Ríflega helmingur skulda Norvik er í erlendri mynt, en stór hluti eignasafns fyrirtækisins er erlendis. Breytingar á gengi krónunnar or- saka hins vegar um þriggja milljarða viðsnúning í gengismun milli ára, en hann var jákvæður um einn og hálf- an milljarð á síðasta ári. Nettófjár- magnsgjöld voru þannig jákvæð um 87 milljónir króna á síðasta ári, en árið 2008 voru þau neikvæð um 2,8 milljarða. Í ársreikningi kemur fram að stjórn félagsins leggur til að eng- inn arður verði greiddur. Viðsnúningur í afkomu Norvik á síðasta ári Morgunblaðið/Golli BYKO Er meðal þeirra fyrirtækja sem eru í eigu Norvik, eignarhalds- og fjárfestingafélags í eigu kaupsýslumannsins Jóns Helga Guðmundssonar.  Framlegð samstæðu batnar  Sterk- ara gengi krónunnar lagar skuldastöðu Norvik á síðasta ári » Hagnaður samkvæmt sam- stæðureikningi nam rúmlega 1,4 milljörðum króna. » EBITDA hækkar um 700 milljónir milli ára og var þrír milljarðar. EBITDA-hlutfall batnar og var 5,2%, miðað við 4,1% árið áður. » Meðal fyrirtækja í eigu Nor- vik eru Kaupás, sem rekur Nóatún, Byko og Elko.                                           !"# $% " &'( )* '$* ++,-+. +/0-1 ++,-,2 2,-/0. +3-+0 +0-/4/ ++4-/0 +-.401 +/.-3+ +41-54 ++,-.3 +/0-5. ++,-.1 2,-521 +3-2+0 +0-5,0 ++0-,5 +-.0,1 +/1-1. +44-25 2,0-+50 ++,-04 +//-20 ++,-00 2,-554 +3-2/2 +0-544 ++0-1 +-.011 +/1-34 +44-/+ FRÉTTASKÝRING Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Með því að binda í lög eða stjórn- arskrá reglu um að útgjöld ríkisins megi á hverju ári ekki aukast meira en sem nemur meðaltali hagvaxtar á mann undanfarin tíu ár væri hægt að létta mjög undir peningamálastjórn og jafna efnahagssveiflur. Kemur þetta fram í þingsályktun- artillögu, sem Tryggvi Þór Her- bertsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, mun leggja fram í byrjun næstu viku ásamt flokkssystkinum sínum. Í drögunum að þingsályktunartil- lögunni segir að til að leysa þann hagstjórnar- og gjaldmiðlavanda sem Íslendingar búa við verði lagt til að tekin verði upp fjármálaregla sem styður við peningamálastefnuna á þann hátt að ekki þurfi að beita vaxtatækjum Seðlabankans á eins af- drifaríkan hátt og verið hefur. Fjár- málareglan felst í því að ríkisútgjöld vaxi sem nemur meðalhagvexti á mann undanfarin 10 ár, óháð árferði. Segir í drögunum að ef þessi regla væri við lýði yrði ríkissjóður rekinn með afgangi í góðæri en halla í óáran. Reglan mundi því draga úr hag- sveiflu og minnka álagið á peninga- málastefnuna. „Þegar sagan er skoðuð hefur ríkið og fjármálastjórnin frekar verið til þess fallin að auka sveiflur en jafna þær. Með því að binda útgjaldaaukn- ingu með þessum hætti virka útgjöld hins opinbera frekar til þess að tempra sveiflur. Á uppgangstímum yrði ríkið rekið með afgangi, en með halla í niðursveiflu,“ segir Tryggvi í samtali við Morgunblaðið. Rannsókn sýnir að ef fylgt hefði verið þessari stefnu í opinberum fjár- málum á Íslandi árin 1964–2001 hefðu hagsveiflur árin 1978–2001 orðið um þriðjungi minni en raun varð. Vextir lægri og sveiflur minni Samanlagt núvirði aukinnar vergrar landsframleiðslu vegna regl- unnar þessi ár hefði verið um 1.600 milljörðum króna meiri en ella. Notkun reglunnar hefði haft þjóð- hagslegan ávinning í för með sér sem falist hefði í aukinni framleiðslu, minni óvissu, jafnari neyslu og meiri efnahagslegri velferð. Tryggvi segir að ef reglunni sé fylgt styðji fjármálastefnan mun bet- ur við peningamálastjórnina og að ekki þyrfti að stunda jafn harða pen- ingamálastjórn af hálfu Seðlabank- ans og ef hennar nyti ekki við. „Vextir Seðlabanka hefðu því að öðru jöfnu verið stöðugri og lægri undanfarin ár en raun ber vitni. Rannsóknin sýnir í raun að sveiflur á vöxtum Seðlabankans hefðu getað verið allt að helmingi minni en raun varð á, og þar með sveiflur á gengi krónunnar, sem endurspeglar hve miklu minni óvissan hefði verið fyrir allt atvinnulíf og heimili.“ Ríkisútgjöld jafni frekar sveiflur en magni þær  Leggja til að aukningu ríkisútgjalda verði settar skorður Morgunblaðið/Ernir Stjórn Með því að taka upp regluna, sem mælt er fyrir í þingsályktunar- tillögunni, myndi fjármálastjórn vinna með peningastjórn Seðlabanka. Flýtir upptöku evru » Frá lýðveldisstofnun hefur verðbólga að meðaltali verið um 18 prósent á ári. » Segir í þingsályktunar- tillögunni að svo há verðbólga endurspegli misheppnaða hag- stjórn. » Þá segir að upptaka regl- unnar myndi leiða til þess að hægt væri að framfylgja skil- yrðum ESB um hagstjórn mun betur og þar með flýta upp- töku evru. ● Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,4% í gær, í 10,5 millj- arða króna viðskiptum. GAMMAi: Verð- tryggt hækkaði um 0,5% í 4,1 milljarðs króna veltu og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,1% í 5,3 milljarða króna viðskiptum. Síðustu vikuna hefur heild- arvísitalan hækkað um rúmt prósent, en lækkað um tæp 8% síðasta mán- uðinn. Frá upphafi árs hefur vísitalan hækkað um rúm 10%. Skuldabréfaverð hækk- aði í kauphöllinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.