Morgunblaðið - 15.10.2010, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.10.2010, Blaðsíða 14
VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Þessi tillaga sem liggur fyrir af hálfu meirihlutans losar borgarstjór- ann undan daglegum rekstri borgar- innar. Það er verið að færa öll svið, allar stofnanir og þjónustu við borg- arbúa úr hans höndum og yfir á herðar skrifstofustjóra borgarstjóra. Í þeim tilgangi er stofnað nýtt emb- ætti og það er ekki einu sinni aug- lýst,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, um þá tillögu meirihlutans í Reykja- vík að færa hluta af starfsskyldum borgarstjóra yfir á herðar skrif- stofustjóra hans. Tillagan var af- greidd í borgarráði á miðvikudag og fer fyrir borgarstjórn á þriðjudag enda var málið afgreitt í ágreiningi. Eftir að tillagan var borin upp lét Jón Gnarr borgarstjóri í ljós þá skoðun sína í samtali við Morgun- blaðið að hann teldi orðið úrelt að hafa aðeins einn borgarstjóra. Veldur ekki starfinu Júlíus Vífill gefur aðspurður lít- ið fyrir þessi rök og telur einsýnt hvað liggi að baki. „Það er erfitt að lesa annað út úr tillögunni og svo yfirlýsingu borgarstjóra í fjölmiðlum en að hann finni að hann valdi ekki starfi borgarstjóra. Það er sérstakt að borgarstjóri fer nú að tala um að það sé ástæða til að setja á stofn annað embætti borgarstjóra í Reykjavík. Þeir eiga þá að vera tveir. Það er sérstakt að velta upp hugmynd sem þessari þegar alvarleg tíðindi berast í sömu viku um að til standi að segja upp tugum starfs- manna hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Það er eiginlega óhjákvæmilegt að velta fyrir sér hvort einhverjir samningar í þessa veru hafi verið gerðir þegar samstarf Besta flokks- ins og Samfylkingar komst á. Ef það kemur annar borgarstjóri í Reykja- vík þá gef ég mér að það verði Dagur B. Eggertsson.“ – Hvað með það sjónarmið Jóns að tímarnir kalli á fleiri borgarstjóra og að það sé úrelt viðhorf að það eigi aðeins að vera einn borgarstjóri? „Telji Jón Gnarr það vera svo tekur hann ekki inn í þá mynd hvernig borgarkerfið í Reykjavík hefur þróast á undanförnum árum og áratugum og hvernig svið og stofnanir borgarinnar bera uppi ákveðin verkefni borgarinnar og hvernig borgarstjóri stýrir þeim verkefnum í gegnum sína undir- menn. Það má auðvitað velta því fyr- ir sér þegar þeir undirmenn eru ekki lengur undir borgarstjóra hvaða verkefni það eru sem borgarstjóri ætlar sjálfum sér.“ Verið að koma í skjól Júlíus Vífill heldur áfram: „Þessi meirihluti Besta flokks- ins og Samfylkingar er bersýnilega að koma borgarstjóranum og emb- ætti borgarstjóra í ákveðið skjól. Til þessa hefur mér vitanlega enginn borgarstjóri kvartað undan því að hann komist ekki yfir þau verkefni sem honum er ætlað að sinna.“ Ekki náðist í Dag B. Eggerts- son. Snýst um stól fyrir Dag  Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins telur hugmyndir um nýjan borgarstjóra lið í að koma Jóni Gnarr í skjól  Aðstæður kalli ekki á annan borgarstjóra Morgunblaðið/Ómar Samherjar Jón Gnarr borgarstjóri og Dagur B. Eggertsson á góðri stund. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2010 FRÉTTASKÝRING Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Hugmyndir um almenna niður- færslu skulda hafa komið upp á yfirborðið með reglulegu millibili frá því að fjármálakerfi landsins hrundi síðla árs 2008. Rætt hefur verið um forsendubrest í því sam- bandi, og það lagt til að skuldir verði ýmist færðar niður um ákveð- ið hlutfall, eða skuldastaðan „færð aftur“ í það horf sem hún var í fyrir hrun. Engum dylst að skuldavandi margra er mikill, en ljóst er að slík- ar aðgerðir fælu í sér mikinn kostn- að. Hvort hann yrði borinn af rík- issjóði, bankastofnunum, lífeyrissjóðum eða Íbúðalánasjóði fer eftir útfærslu. Lækka þarf ávöxtunarkröfu „Að mínu viti þarf að fara fram ákveðin breyting á þeirri umgjörð sem er um lífeyrissjóðina, en þá er ég að vísa í viðmið þeirra um 3,5% ávöxtun og fjárfestingarstefnu þeirra, sem er kolröng,“ segir Ottó Biering Ottósson, hagfræðingur. Hann segir að taka þurfi hina víð- tæku verðtryggingu til skoðunar, en með því móti hefðu stýrivextir Seðlabanka Íslands aukin áhrif. Yrði þetta gert myndi húsnæðis- kostnaður heimilanna lækka. Ottó segir almenna niðurfærslu ekki leysa vandann nema að litlu leyti. Sú leið myndi ennfremur ekki koma hagkerfinu út úr þeim víta- hring sem það sé í. Finna þurfi lausn sem taki ekki einungis á lækkun greiðslubyrði til skamms tíma, heldur varanlegri lausn sem hagkerfið í heild þoli. Lífeyrissjóðir miða skuldbinding- ar sínar við 3,5% raunávöxtunar- kröfu á eignasafn sitt. Þessi regla setur gólf undir verðtryggt láns- fjármagn í landinu og þar með fjár- mögnunarkostnað stofnana á borð við Íbúðalánasjóð. Lánþegar fá sín lán á hærri vöxtum en sjóðurinn, þar sem vaxtamuninum er ætlað að fjármagna rekstur hans. Með því að lækka þetta viðmið lífeyrissjóðanna í 2,2%, segir Ottó, yrði unnt að færa vexti af núverandi verðtryggðum fasteignalánum niður í 3%. Hann áætlar að heildarupphæð innlendra íbúðalána sé um 1200 milljarðar, og þar af um 770 milljarðar í eigu Íbúðalánasjóðs. Ætla megi að vegn- ir meðalvextir þessara lána séu 4,8%. Mikil kjarabót fyrir skuldara Breytingar sem þessar hefðu í för með sér mikla kjarabót fyrir skuld- ara, einkum þá sem eru með nýj- ustu lánin, segir Ottó. Vaxtabyrði 40 ára verðtryggðs láns, sem tekið var í ársbyrjun 2005 á 4,8% vöxt- um, myndi lækka um 37%, og greiðslubyrðin um 27%. Áfram yrði greitt af höfuðstól, samkvæmt upphaf- legu greiðsluferli, en á hinum nýju vöxtum. Séu önnur úrræði einnig nýtt, svo sem aðlögun skulda að eignastöðu, yrði lækkun greiðslu- byrðinnar enn meiri. Sé miðað við sama lán og áður, og veðsetning- arhlutfallið 150%, sem síðan er lækkað í 110%, myndi lækkun vaxta í 3% fela í sér 47% lækkun greiðslu- byrði, eða tæplega helmingslækkun. Kostnaðurinn óverulegur Ottó segir kostnaðinn af þessum aðgerðum líklega óverulegan, ekki síst í samanburði við kostnaðinn sem hugsanlega hlytist af almennri niðurfærslu. Hann yrði að hámarki 22 milljarðar á fyrsta ári, og bæri Íbúðalánasjóður 14 milljarða þess. Lægri fjármögnunarkostnaður komi til með að vega upp á móti tapi banka og lífeyrissjóða. Tapið kæmi til með að minnka eftir því sem lengur er greitt af lánunum. Þessar aðgerðir ættu að hafa já- kvæð áhrif á greiðslugetu fólks og kaupmátt, segir Ottó. Aukið svig- rúm til neyslu hefði jákvæð áhrif á efnahagslífið í heild. Aukin umsvif myndu síðan skila ríkinu auknum skatttekjum, sem ynni gegn tapi Íbúðalánasjóðs. Jafnframt ætti lægri fjármögnunarkostnaður að auka fjárfestingu. Leita þarf varanlegra lausna  Forsenda fyrir því að hægt sé að létta skuldavanda heimilanna, án óbærilegs tilkostnaðar, er að end- urskoða ávöxtunarviðmið lífeyrissjóðanna  Vaxtalækkun ÍLS létti greiðslubyrði um tugi prósenta Vaxtalækkun » Lækkuð greiðslubyrði vegna fasteignalána yki svigrúm til neyslu verulega, sem og tekjur ríkissjóðs. » Lægri fjármagnskostnaður ætti að liðka um fjárfestingu fyrirtækja og hraða endur- skipulagningu þeirra. » Vaxtalækkun hefði jákvæð áhrif á þróun mála á fast- eignamarkaði. Hreinar eignir lífeyrissjóðanna í ágúst höfðu aukist um 2,2% að raungildi frá því á sama tíma í fyrra. Hins vegar voru innborganir í sjóðina meiri en útgreiðslur, og raunávöxtunin því minni en 2,2%. Þetta er langt undir því viðmiði sem sjóðirnir nota við útreikninga á skuldbindingum, en það er 3,5%. Nokkrir lífeyrissjóðir hafa þegar boðað skertar greiðslur og er fyr- irsjáanlegt að fylla þurfi í það gat sem myndast við það að þeir ná ekki ávöxtunarmarkmiði sínu. Líf- eyrir ríkisstarfsmanna er til að mynda með ríkisábyrgð og þarf ríkið þá að hlaupa undir bagga. Ottó segir nauð- synlegt að „færa gólf lífeyrissjóðanna“ nið- ur, en þá væri jafnframt hægt að lækka verðtryggt vaxta- stig í landinu. Samhliða þeim breytingum ætti að endurskoða fjárfestingarstefnu sjóðanna og jafna lífeyriskjör landsmanna, að mati Ottós. Eins og fyrirkomulagið er núna eru allir sjóðsfélagar í sömu deild og með sömu fjárfest- ingarstefnu. Ottó segir það ekki skynsamlegt að 16 ára aðili eigi sömu eignir og sá sem er að taka út sinn lífeyri. Með því að skipta sjóðsfélögum í tvær deildir yrði unnið gegn sveifl- um á markaði, þar sem komnir væru aðilar með mismunandi ávöxtunarkröfu, „hvor sínum meg- in“ í viðskiptum. Miklar sveiflur geta gert það að verkum að mikillar skerðingar líf- eyrisgreiðslan verður þörf, líkt og nú sést hér á landi. Ná ekki ávöxtunarmarkmiðum LÍFEYRISSJÓÐIR Áhrif af vaxtalækkun í 3% Greiðslubyrði í upphafi Áhrif vaxta- og höfuðstólslækkunar Miðað við 16m kr. lán á 4,7% vöxtum tekið í ársbyrjun 2006 Miðað við lækkun veðsetningarhlutfalls í 110% Greiðslubyrði nú (1.okt) Ef vextir lækka í 3% 120.000 100.000 80.000 60.000 40.000 20.000 0 Kr. 74 .00 0 k r. 116 .43 5 k r. 85 .22 0 k r. 25 20 15 10 5 0 22m kr. 17,6m kr. Lán lækkað í 110% af verðmæti íbúðar Staða lánsins m Kr. þ Kr. 100 80 60 40 20 0 120 116 .43 5 k r. 67 .55 2 k r. Afborgun eftir breytingar Greiðslubyrði nú (1.okt) Fyrir hálfri öld og nokkrum dög- um betur lét Auður Auðuns af embætti borgarstjóra eftir að hafa gegnt stöðunni um hríð samhliða Geir Hallgrímssyni. Bæði voru þau í Sjálfstæðis- flokknum og stóð þessi óvenju- legi tími yfir frá 19. nóvember 1959 til 6. október 1960. Björg Einarsdóttir rithöf- undur ræddi á sínum tíma við Auði um lífið og stjórnmálin, auk þess að ganga frá æviágripi um feril Auðar fyrir Andvara. Auður hafi viljað styðja Geir í embætti við brotthvarf Gunnars Thoroddsen í stól fjármála- ráðherra enda hafi Geir haft litla reynslu af borgarkerfinu. Björg segir Auði hafa unað því að fara frá og láta Geir eftir embættið enda hafi Auður haft stóru heimili að sinna og ekki haft sérstakan metnað til að gegna stöðu borgarstjóra. Björg telur hugmynd um tvo borgar- stjóra nú lið í að Dagur snúi aft- ur. „Mér sýnist þetta vera klók- indabragð.“ Auður og Geir FORDÆMI ER FYRIR TVEIMUR BORGARSTJÓRUM Á fundi Auður Auðuns og Geir Hall- grímsson störfuðu saman.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.