Morgunblaðið - 17.12.2010, Síða 20

Morgunblaðið - 17.12.2010, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ríkisstjórn-inni tókst ígær að koma fjárlögum í gegnum þingið en hefur fyrir þeim eins tæpan meirihluta og hægt er – Þráin Bertelsson. Þrír þingmenn sem taldir hafa verið til stjórnarmeirihlutans sátu hjá við atkvæðagreiðsl- una. Þegar útlit var fyrir að einn þeirra mundi sitja hjá sagði forsætisráðherra að sá þingmaður yrði að gera upp við sig hvort hann væri í stjórn eða stjórnarandstöðu. Samkvæmt þessu mati for- sætisráðherra – sem eðlileg- ast er að líta á sem enn eina hótunina eins og sjónarmiðið var sett fram – hafa þrír þing- menn nú sagt skilið við stjórn- arliðið. Fram að þessu var stjórnin talin með þrjátíu og fimm þingmenn á bak við sig, en nú má í besta falli teljast óvissa um þingstyrk stjórn- arinnar. Afstaða þingmannanna þriggja sem við afgreiðslu fjárlaganna sögðu skilið við stjórnarliðið er skiljanleg. Allt sem að nýsamþykktum fjárlögum snýr er gagnrýni vert og gildir þar einu hvort horft er til vinnubragðanna síðustu mánuði eða niðurstöð- unnar í gær. Velferðarkerfi landsins hefur verið sett í uppnám svo ekki sér fyrir endann á og skattar hafa verið hækkaðir svo ekki sér heldur fyrir endann á þeim ósköpum, enda margt óút- kljáð. Þá eru út- gjöld stórkostlega vanmetin, ekki síst ef tekið er mið af þeim áformum ríkisstjórnarinnar að hengja Icesave-klyfjarnar á íslenska skattgreiðendur. Í gær mælti fjármálaráðherra fyrir enn einu Icesave-frumvarpinu sem gerir ráð fyrir tugmillj- arða útgjöldum á næsta ári, en lætur sama dag samþykkja fjárlög þar sem þeirra út- gjalda er að engu getið. Loks eru tekjur stórlega of- metnar í fjárlögunum, annars vegar vegna þess að skatta- hliðin er enn í algerri óvissu, en ekki síður af þeirri ástæðu að hagvöxturinn er ofmetinn. Og ofmat á hagvexti er ekki síst því um að kenna hvernig ríkisstjórnin hefur staðið að málum á síðustu misserum. Skattahækkanir í bland við fjandskap við atvinnulífið hafa orðið til þess að draga þrótt úr efnahagslífinu svo að lítil von er um verulegan vöxt á næsta ári. Nýsamþykkt fjárlög eru því sannkölluð kreppufjárlög í fleiri en einu tilliti. Þau munu framlengja kreppuástandið hér á landi ofan í þá framleng- ingu sem ríkisstjórnin hefur þegar valdið. En veikburða samþykkt þeirra er ekki síður til marks um stjórnmála- kreppuna sem ríkir um þessar mundir og allt bendir til að fari vaxandi. Kreppan er stjórn- valda, sama hvernig á það er litið} Kreppufjárlögin naumlega samþykkt Andrúmsloftið íþjóðfélaginu er enn lævi blandið og jafnvel á köflum illt. Og virðast sum- ir hafa tapað áttum og telja þetta hið sjálfsagða og æski- lega ástand. Frambjóðandi til stjórnlagaráðstefnunnar tók fram að hann væri einn af „9 menningunum“ sem réðust gegn friðhelgi Alþingis og virt- ist telja sér það mjög til fram- dráttar. Munnsöfnuður í at- hugasemdum í bloggheimum fer síst batnandi og er iðulega mannskemmandi og mjög vegið þar að einstökum persónum og mannorði þeirra undir augljósri velþóknun þeirra sem um- ræðunni stýra. Mikil mótmæla- hrina gekk yfir Lundúnir vegna ákvörðunar þarlendra stjórn- valda að hækka skólagjöld há- skóla. Í þeim óeirðum var ráðist óvænt að bifreið breska rík- isarfans og öryggi hans og eiginkonu hans þótti svo ógn- að að lögreglan hef- ur sagst aldrei hafa verið nær því að grípa til skotvopna en þá í þeirri ógn- arhrinu, sem yfir gekk. Um- ræðustjóri Ríkisútvarpsins á Ís- landi fagnaði þessum árásum á ríkisarfann sérstaklega í pistli sínum! Síðar meir verður líklega litið á marga þætti sem nú viðgang- ast, bæði orð og atburði, sem heldur dapurlegan blett á ís- lensku þjóðfélagi og hin ræs- islitaða umræðuhefð verða fyr- irlitin að verðleikum. Gáttir netheima eru eitthvað hið besta sem gat opnast fyrir opna lýð- ræðislega umræðu og er miður að siðlausir sóðar hafi náð um hríð að setja mark sitt á hana. Auðvitað mun það breytast til betri vegar fyrr eða síðar. Enn er loft lævi blandið og margt viðgengst sem úti- lokað væri við skap- legar aðstæður} Tímabundið ástand N okkuð sem maður heyrir allt of oft í stjórnmálaumræðu hér á landi er að leysa þurfi úr þessu eða hinu málinu með samvinnu og samráði allra flokka. Hug- myndin, sem eins og margar slæmar hug- myndir á sér göfugar rætur, er sú að með því móti náist sem mest samstaða um þá lausn sem verður ofan á. Þá er með þessu hægt að forðast rifrildi og leiðindi á Alþingi og láta hendur standa fram úr ermum. Vandinn við þessa nálgun á stjórnmál er sá að með henni er hlutverk stjórnarandstöð- unnar gert að engu. Stjórnarandstaðan getur vissulega, að minnsta kosti í augum þeirra sem styðja sitjandi ríkisstjórn á hverjum tíma, virst hafa þann áhuga einan að þvælast fyrir og tefja úrlausn mikilvægra mála. En í því felst einmitt hlutverk stjórnarandstöðunnar og hlutverkið er mikilvægt. Það er algerlega nauðsynlegt að stjórnarandstaða haldi fótum ríkisstjórnarinnar við eldinn og neyði hana til að færa sterk rök fyrir máli sínu. Slík átakastjórnmál leiða til lengri tíma litið til betri ákvarð- ana. Hugmyndir sem komast í gegnum síu rökræðna og jafnvel rifrilda eru sterkari og betri en þær sem sullast í gegnum Alþingi án nokkurra mótmæla. Samræðu- og samvinnustjórnmál eru að mínu viti stór þáttur í því að hugtakið „fjórflokkurinn“ varð til. Ef stjórnmálaflokkarnir vinna mikið saman á Alþingi, burt- séð frá því hver er í stjórn á hverjum tíma, er ekki nema eðlilegt að almenningur sjái ekki tilganginn í því að velja einhvern þeirra fram yfir hina. Sjá má svipaða hluti í Evrópu, þar sem allir stærstu flokkar ESB-ríkja tala einum rómi um ágæti sambandsins, þrátt fyrir að í ákveðnum ríkjum sé almenningur haldinn miklum efa- semdum um þetta meinta ágæti. Einn mesti kosturinn við lýðræðið kann að skipta litlu máli fyrir okkur friðsama og her- lausa Íslendinga. Þegar átökin eiga sér stað á þingi eru minni líkur á því að þau færist út á götu. Að þessu sögðu er að sama skapi mikilvægt fyrir alla, stjórnmálamenn sem kjósendur, að hafa það í huga að andstæðingur í stjórn- málum er ekki óvinur. Þeir eru fáir stjórn- málamennirnir sem hafa það skýra markmið að vinna landi og þjóð illt. Sumir, jafnvel flest- ir, stjórnmálamenn geta verið bölvuð flón á köflum en þeir meina vel. Sama á við um þá sem styðja stjórnmálaflokkana, sem og þá sem hafa gefist upp á „fjórflokknum“ og vilja kjósa eitthvert annað afl. Þeir sem tala um fífl sem kjósa fífl hafa misst sjónar á þessu. Við erum öll í sama bátnum, þótt við getum rifist um hvernig og hvert eigi að stýra honum. Eins og áður segir er ég þeirrar skoðunar að slík rifrildi séu af hinu góða, en ábatinn af þeim minnkar óhjá- kvæmilega ef rýtingar eru komnir á loft og heiftin ræður ríkjum. Bretar bjuggu til ágætt hugtak um þetta, sem út- leggja má á íslensku sem þjóðholl andstaða. Ég myndi taka fagnandi harðari andstöðu af því tagi. bjarni@mbl.is Bjarni Ólafsson Pistill Til varnar átakastjórnmálum STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Á rið 2006 tóku gildi breyt- ingar á umferðarlögum sem fela það í sér að mælist ávana- eða fíkni- efni í blóði eða þvagi ökumanns teljist viðkomandi undir áhrifum efnanna. Sá hinn sami má ekki stjórna eða reyna að stjórna vélknúnu ökutæki. Engu skiptir hvert mælt magn efnanna sem um ræðir er eða hvenær þeirra var hugsanlega neytt. Magnið getur hins vegar skipt máli hvað sektarupphæð varðar og refsiúrræði. Þrátt fyrir að lögin séu afdráttarlaus hættir fjöldi fólks enn á það að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna á ári hverju. „Það sem er í blóðinu, það hefur áhrif,“ segir Jakob Kristinsson, pró- fessor í eiturefnafræði við lækna- deild Háskóla Íslands og starfs- maður Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við sama skóla. Stofn- unin annast rannsóknir á blóð- prufum fyrir lögregluna. „Umferð- arlögin eru afdráttarlaus að þessu leyti. Ef það finnst í blóðinu er mað- ur talinn óhæfur til þess að aka bif- reið,“ bætir hann við. Færri brot en í fyrra Til og með nóvember hafði Ríkislögreglustjóri skráð 856 brot gegn ákvæði umferðarlaga um fíkni- efnaakstur, samkvæmt bráðabirgða- tölum frá embættinu. Haldist fjöld- inn svipaður í desember stefnir í að brot verði í heild öllu færri en í fyrra, en þá skráði embættið 999 brot. Ætla má að þeir sem aka undir áhrif- um efna, en nást aldrei, séu öllu fleiri. Jakob segir að um þessar mundir séu kannabisefni og amfeta- mín þau efni sem algengast sé að finnist í sýnum úr ökumönnum. Rafn M. Jónsson, verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna hjá Lýðheilsustöð, segir slævandi efni á borð við kanna- bis hafa svipuð áhrif og áfengi. „Samhæfingin og skynjun verður öll brengluð. Menn eru alveg jafn- hættulegir í umferðinni með það,“ segir hann. Jakob tekur í sama streng. „Það slævist allt bara.“ Þeir sem aka undir áhrifum örv- andi efna á borð við amfetamín eru ekki síður hættulegir umhverfi sínu en þeir sem neyta slævandi efna. „Þeir verða hvatvísari og menn fá þrengra sjónsvið. Það er að segja að athyglin beinist að þrengra sjón- sviði. Menn einbeita sér betur að einhverju þröngu og ákveðnu mark- miði, en skynja verr það sem fram fer í nánasta umhverfinu,“ segir Jak- ob. Þung viðurlög við brotum Mælist ávana- eða fíkniefni í blóði ökumanns er hann undantekn- ingarlaust sviptur ökuréttindum og beittur fjársekt, óháð magni. Lengd ökuréttindasviptingar og upphæð sektar ræðst þó af magni efnanna, og eru mörkin ólík eftir því um hvaða tegund er að ræða. Mælist amfetamín í sýni er sektarupphæðin 70 þúsund krónur, og ökumaður sviptur réttindum í fjóra mánuði. Fari magnið hins veg- ar yfir 170 ng/ml tvöfaldast sektin í 140 þúsund og sviptingin gildir í eitt ár. Mörkin hvað kannabisefni varðar eru lægri, en hækkun sektar og lenging sviptingar verður við 2 ng/ ml. Í báðum tilvikum þyngist refsing sé um endurtekið brot að ræða og er ökumaður þá sviptur ökuréttindum í tvö ár, sektin getur sömuleiðis hækkað í 200 þúsund krónur. Mælist ökumaður hópbifreiðar, vöru- bifreiðar eða bifreiðar með tengi- vagni hækkar sektin um 20%. „Það sem er í blóð- inu, það hefur áhrif“ Morgunblaðið/Júlíus Eftirlit Þeim sem staðnir hafa verið að akstri undir áhrifum fíkniefna hefur fækkað lítillega frá því í fyrra, og enn frekar frá árinu 2008. Þórarinn Tyrf- ingsson, yfir- læknir á Vogi, segir rann- sókn á áhrif- um ávana- og fíkniefna flókna, sér- staklega gagnvart efnum sem eru lengi í blóðinu, líkt og ró- andi ávanabindandi lyf og kannabis. Slík efni geta verið í blóði lengi eftir að neyslu þeirra hefur verið hætt. Það sem flæki málin enn frekar sé að amfeta- mín sé stundum notað sem lyf. Jakob Kristinsson segir það gert í mun smærri skömmtum, sem hafi ekki áhrif á aksturs- hæfni. Þórarinn segir að oft geti verið um að ræða flókin úr- lausnarefni lögfræðilega. Því sé gjarnan leitað til rannsóknar- stofa sem mæli magn vímuefna. Með skimunarprófum sé ein- faldlega mælt hvort efnin séu til staðar eða ekki. Flókin úr- lausnarefni ÁHRIF FÍKNIEFNA 856 skráð tilfelli aksturs undir áhrifum fíkniefna fyrstu 11 mánuði ársins. 70.000 kr. fjárhæð sektar sem ökumaður fær mælist lítið magn fíkniefna í blóði. ‹ FÍKNIEFNAAKSTUR › »

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.