Morgunblaðið - 17.12.2010, Page 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 2010
Tinna Þorsteins-
dóttir píanóleik-
ari leikur ný
píanóverk eftir
Slátur-meðlimi í
Norræna húsinu
á morgun, laug-
ardag, kl. 17.
Tinna hefur á
síðustu árum
flutt mikið af ís-
lenskri tónlist
auk þess að frumflytja tónverk sem
skrifuð hafa verið sérstaklega fyrir
hana. Hún hefur unnið með ýmsum
Slátur-meðlimum í gegnum tíðina
og mun á tónleikunum á morgun
flytja verk frá síðustu tveimur ár-
um, sem flest voru gerð í samvinnu
við hana. Sláturmeðlimir stefna að
því að semja tónlist sem boðar
ágenga hugmyndafræði og nýsköp-
un, og hafa framlög þeirra fengið
góðar móttökur.
Á tónleikunum heyrist m.a. nýtt
verk eftir Hallvarð Ásgeirsson, sem
hefur nýlokið tónsmíðanámi í New
York, og verk eftir Guðmund Stein
Gunnarsson og Jesper Pedersen.
Á jólatónleikum S.L.Á.T.U.R. er
hefð fyrir því að klappa ekki, held-
ur blístra lágt eftir flutning hvers
tónverks.
Tinna leikur
verk Slátur-
meðlima
Tinna
Þorsteinsdóttir
Jólahádegistón-
leikar Önnu
Jónsdóttur sópr-
ansöngkonu og
Sophie Schoon-
jans hörpuleik-
ara verða haldn-
ir í dag, föstu-
dag, klukkan
12.15 í Skúlatúni
2, 6. hæð.
Anna og Soph-
ie hafa starfað saman undanfarinn
áratug. Á þessum tíma hafa þær á
hverju ári sett saman aðventu- og
jóladagskrá til flutnings. Á tónleik-
unum flytja þær uppáhaldsjólalögin
sín í fjölbreyttri dagskrá sem hefur
að geyma aðventu- og jólalög og
aðra andlega tónlist. Að sögn Önnu
eru þetta í bland íslensk, norræn og
ensk jólalög; verk eftir Holst sem
Egil Gunnarsson; „Jólin alls staðar“
sem „Jólasnjór“.
Dagskráin er sögð hæfilega löng
til að hlýða á í hádeginu og henta
gestum vel til að slaka á í amstri
dagsins á aðventunni.
Jólahádegis-
tónleikar
Sophie og Anna.
Í dag, föstudag klukkan 17-19,
kemur hópur rithöfunda sam-
an hjá Sögufélaginu, Fischer-
sundi 3, og fjallar um nýjustu
sögulegu ritin.
Gefst þá færi á að taka sagn-
fræðinga og höfunda nýrra
sögulegra rita tali, ræða um
sjónarmið þeirra og bakgrunn
verkanna, nálgun þeirra og
efnistök. Höfundarnir sem
verða á staðnum eru Anna
Agnarsdóttir, Þórir Stephensen, Guðni Th. Jó-
hannesson, Sigrún Pálsdóttir, Sigurður Gylfi
Magnússon, Snorri Freyr Hilmarsson, Unnur
Birna Karlsdóttir, Þorgrímur Gestsson og Þórunn
Erlu-Valdimarsdóttir.
Sagnfræði
Höfundar fjalla um
söguleg verk
Sigrún Pálsdóttir
Um þessar mundir sýnir
Sverrir Kristinsson í Listhúsi
Ófeigs, Skólavörðustíg 5. Hann
sýnir 100 myndir unnar með
blandaðri tækni og einnig 13
málverk.
Sverrir segir verkin unnin
undir hughrifum frá sjó og
landi. Þau fjalli um fólk með
sýn frá fortíð til framtíðar en
einnig um atburði dagsins,
enda sé honum ekkert óvið-
komandi. Í myndunum birtist húmor fyrir augna-
blikinu.
Málverkin eru unnin eftir hrun og fjalla um það
hvernig hrunið hefur farið með land og þjóð.
Sýningin stendur til áramóta.
Myndlist
Sverrir sýnir í
Listhúsi Ófeigs
Sverrir
Kristinsson
Melarnir í Reykjavík upp úr
stríðslokum eru vettvangur
bókarinnar Melastelpan,
ærslafullrar minningabókar
Normu E. Samúelsdóttur
sem til þessa hefur einkum
gefið út ljóðabækur. Segir í
bókinni af dóttur skosks her-
manns og íslenskrar móður,
melastelpunni, á heimili
þeirra og mannlífinu í blokkinni heima og í ná-
grenninu, en einnig af námsári meðal skoskra
ættingja, au pair-ári í París og puttaferð um
Korsíku með fleiru.
Í tilkynningu segir að þetta sé ástríðufull saga
um krakka sem er langt frá því að vera eins og
hinir.
Bækur
Ærslafull minn-
ingabók Normu
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Jólasöngvarnir eru í föstum skorð-
um og engar róttækar breytingar,“
segir Jón Stefánsson kórstjóri um
hina árlegu jólasöngva Kórs Lang-
holtskirkju, sem verða fluttir á fern-
um tónleikum, í kvöld, laugardags- og
sunnudagskvöld.
Þetta eru þrítugustu og þriðju jóla-
söngvarnir en fyrstu jólasöngvarnir
fóru fram í Landakotskirkju 1978 og
voru þá nýmæli hérlendis. „Þegar við
byrjuðum var óþekkt að vera með
svona tónleika,“ segir Jón. „Í ein-
staka kirkju voru aðventukvöld, oft
með ræðumanni, en það er með ólík-
indum hvað tónleikum í þessum anda
hefur fjölgað.“
Jón segir það vera hluta af að-
ventuhefðum margra að sækja tón-
leika. „Það er afskaplega ánægjulegt,
því hvað er betra til að undirbúa sig
fyrir hátíðina en að fjölskyldan setjist
saman í ró og hlusti á fallega tónlist.
Hugmyndin var sú að fólk gæti
undið ofan af sér eftir búðarápið.
Þess vegna voru tónleikarnir alltaf
svona seint á föstudegi, þegar búð-
unum var lokað. Til að byrja með vor-
um við í Landakoti og þetta virkaði.
Fólk kom með innkaupapokana og
slakaði á,“ segir hann.
Á tónleikunum syngja, auk Kórs
Langholtskirkju, Gradualekór kirkj-
unnar og Táknmálskórinn.
„Við erum stolt af því að vera með
Táknmálskórinn með okkur,“ segir
Jón. „Þau túlka textana á táknmáli og
það hefur verið stórkostlegt að æfa
með þeim. Það er svo áhrifaríkt að
margir söngvaranna minna hreinlega
táruðust.“
Einsöngvarar eru Andri Björn Ró-
bertsson, Ólöf Kolbrún Harðardóttir
og Þóra Einarsdóttir. Hallfríður
Ólafsdóttir og Arna Kristín Ein-
arsdóttir leika á flautur, Monika
Abendroth á hörpu og Tómas
Guðni Eggertsson á orgel. Um
djasssveiflu sjá Kjartan Valde-
marsson, Gunnar Hrafnsson
og Pétur Grétarsson.
Í hléi verður boðið upp á
súkkulaði og piparkökur. Sú
hefð komst á árið 1982, þegar
sungið var í þá óglerj-
uðu kirkjuskipi
Langholts-
kirkju í 14
stiga frosti.
„Þetta virkaði, fólk kom með
innkaupapokana og slakaði á“
Morgunblaðið/Kristinn
Táknmálskórinn æfir Táknmálskórinn kemur fram á tónleikum Kórs Langholtskirkju næstu kvöld.
Eldgosið í Eyjafjallajöklisl. vetur er efni nýrrarÚtkallsbókar ÓttarsSveinssonar. Meira
hangir raunar á spýtunni hjá höf-
undi. Einnig er sagt frá því þegar
þotu frá British Airways var flogið
Einstök heimild úr öskunni
Útkall - Pabbi, hreyflarnir loga
bbbnn
Eftir Óttar Sveinsson
Útgefandi: Útkall ehf. Reykjavík 2010 -
272 bls.
SIGURÐUR BOGI
SÆVARSSON
BÆKUR
í gegnum ös-
kuský við eyj-
una Jövu við
Indónesíu
sumarið 1982,
með þeim af-
leiðingum að
drapst á
hreyflum vél-
arinnar svo
litlu munaði að
hún hrapaði.
Lengi hefur verið vísað til um-
rædds flugs sem eins hins merk-
asta í sögunni. Reynslan sem þar
fékkst var orsök þess að gripið
var til víðtækra ráðstafana og
flugbanns um alla Evrópu meðan
gaus af mestum krafti í Eyja-
fjallajökli. Byggir Óttar frásögn
sína meðal annars á viðtali við
flugstjórann Eric Moody auk
þess að ræða við fleiri, til að
mynda farþega sem voru um
borð.
Fólk gerir sér ef til vill ekki í
hugarlund hvílík raun aðdragandi
eldgossins var fyrir Eyfellinga.
Einnig tók á taugar að berjast
vikum saman fyrir tilveru sinni
meðan þessar náttúruhamfarir
stóðu yfir. Þessu lýsir Óttar
ágætlega í bók sinni, í viðtölum
við bændur á Þorvaldseyri og
Öndunarhorni undir Eyjafjöllum
og á Fljótsdal í Þórsmörk. Vissu-
lega var talsvert rætt við þetta
fólk í fjölmiðlum sl. vor – en eigi
að síður tekst Óttari að draga
sitthvað nýtt fram. Þá eru mynd-
ir í bókinni sem
íbúarnir tóku
sjálfir á ögur-
stundum ein-
stakar heimildir
– samtímasaga í
hnotskurn.
Indónesíu-
flugið er þekkt
og víða hefur
verið vitnað til
reynslunnar sem þar fékkst. Lýs-
ingar bæði áhafnar og farþega eru
magnaðar og enginn getur í raun
ímyndað sér þá raun sem fólk
gekk þar í gegnum.
Þrátt fyrir að Útkallsbókin sé
um margt vel lukkuð er langsótt
að spyrða saman frásögn af raun-
um Eyfellinga og flugi í fjarlægri
álfu þótt einstakt hafi verið. Milli
atburða eru þrjátíu ár og ekki
tekst í bókinni að tengja þá sam-
an svo vel sé. Í raun hefði betur
farið að segja sögurnar tvær sína
í hvorri bókinni. Af nægu er að
taka. Bók Óttars er þó prýðilega
unnin, stíllinn er hnökralaus og
spennan helst út í gegn. Þó verð-
ur að segjast að frásagnarmáti
og ritháttur Útkallsbókanna, sem
eru orðnar sautján, er óþarflega
líkur frá einni bók til annarrar.
Myndi ekki saka að í þeirri
næstu færi höfundur út fyrir
þann ramma sem tryggum les-
endum er orðinn býsna fyr-
irsjáanlegur – þótt mótrök séu
þau að vinningsformúlu sé
ástæðulaust að breyta.
Óttar Sveinsson
Hann hefur aflýst öll-
um sínum flugum og
neitar að fljúga til landsins „í
þessu veðri“ 41
»
Árlegir jólasöngvar Kórs
Langholtskirkju verða
haldnir í kvöld og tvö
næstu kvöld; klukkan 23 í
kvöld, föstudag, klukkan
20 og 23 á morgun, laug-
ardag, og klukkan 20 á
sunnudagskvöldið.
Ásamt Kór Langholts-
kirkju syngur Gradualekór
Langholtskirkju en stjórn-
andi kóranna er Jón Stef-
ánsson. Þá tekur Táknmálskórinn,
undir stjórn Eyrúnar Ólafsdóttur,
þátt í tónleikunum, en það er í
fyrsta skipti sem hann kemur fram
hér á landi með öðrum kórum.
Kórarnir flytja jólalög hver fyrir
sig og einnig allir saman, bæði há-
tíðleg og einnig með léttri sveiflu.
Áheyrendur taka virkan þátt í al-
mennum söng.
Í hléi er boðið upp á rjúkandi jóla-
súkkulaði og piparkökur.
Fernir tónleikar næstu kvöld
ÁRLEGIR JÓLASÖNGVAR KÓRS LANGHOLTSKIRKJU
Jón Stefánsson
kórstjóri
Jólasöngvar Kórs
Langholtskirkju
sungnir frá 1978