Morgunblaðið - 07.01.2011, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 07.01.2011, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2011 Frá 1. janúar sl. hefur Þjóðskrá Ís- lands tekið að sér þróun og rekstur vefsvæðisins Ísland.is sem er upp- lýsinga- og þjónustuveita fyrir ríki og sveitarfélög. Markmið Ísland.is er að auðvelda aðgengi almennings að upplýsingum og þjónustu opin- berra aðila á netinu. Stefnt er að því að hægt verði að nálgast alla opinbera þjónustu í gegnum Ís- land.is og að á næstu misserum verði framboð á rafrænni þjónustu ríkis og sveitarfélaga aukið til muna. island.is Á sunnudag nk. kl. 14 hefst KORNAX mótið 2011 – Skákþing Reykjavíkur. Þetta skákmót verður nú haldið í 80. sinn og er það nú öðru sinni haldið í samstarfi við KORNAX ehf. hveitimyllu. Það stefnir í fjölmennt skákmót og eru margir af sterkustu skákmönnum landsins þegar skráðir til leiks. Tefldar verða 9 umferðir og fara umferðinar fram á sunnudög- um kl. 14 og á miðvikudögum og föstudögum kl. 19:30. Skráning fer fram á heimasíðu T.R., www.tafl- felag.is eða á taflfelag@taflfelag.is. Skráningu lýkur 15 mínútum fyrir upphaf móts, þ.e. kl. 13:45 á sunnu- dag nk. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Áhorf- endur eru velkomnir. Skákþing Reykjavíkur hefst um helgina FRÉTTASKÝRING Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Niðurskurður á fjárveitingum til lögreglunnar og fækkun lögreglu- manna á seinni árum hefur haft þau áhrif að skráðum afbrotum, einkum sérrefsilagabrotum sem byggjast að stórum hluta á frumkvæðisvinnu lögreglunnar, hefur fækkað. Haraldur Johannessen ríkislög- reglustjóri vekur athygli á þessu í inngangi að skýrslu embættisins um afbrotatölfræði ársins 2009, sem kom út undir lok nýliðins árs. Með frumkvæðisvinnu er átt við brot sem koma upp vegna eftirlits lögreglumanna en önnur brot eru nær undantekningarlaust tilkynnt til lögreglu. Þannig eru fíkniefnabrot, áfengislagabrot og umferðarlaga- brot dæmi um frumkvæðisvinnu lög- reglu en auðgunarbrot og brot gegn lífi og líkama dæmi um brot sem til- kynnt eru. Hefur sérrefsilagabrotum fækkað um 30% frá árinu 2006 og um 52% frá 2005. Þessu til stuðnings má nefna að árið 2009 voru skráð 1.327 fíkniefnabrot en meðaltal áranna 2004-2008 var um 1.800 fíkniefna- brot á ári. Þannig voru skráð fíkni- efnabrot um 2.000 árið 2006. Til sam- anburðar má geta þess að þjófnaðarbrotum hefur frá árinu 2005 fjölgað um nærri 30% og inn- brotum um 8%. Myndavélar fjölga umferðarlagabrotum Samkvæmt upplýsingum blaðsins hafa lögreglumenn miklar áhyggjur af þessari þróun. Niðurskurðurinn hefur haft það m.a. í för með sér að lögreglumenn eru sjaldnar sendir í umferðareftirlit en áður, sér í lagi á landsbyggðinni, og almennt hef- ur dregið úr allri frumkvæðis- vinnu lögreglunnar. Þá hefur lög- reglumönnum fækkað um 60 frá árinu 2007. Hefur sérrefsilagabrot- um fækkað hjá langflestum lög- regluembættum á landinu, ef skýrsla ríkislögreglustjóra er skoð- uð nánar. Undantekningar eru Snæ- fellsnes og Eskifjörður. Þannig voru brotin í heild um 170 á hverja 10 þús- und íbúa árið 2007 en voru komin í 108 brot árið 2009. Þegar rýnt er nánar í afbrotatöl- fræði ríkislögreglustjóra kemur í ljós að fjölgun varð á umferðarlaga- brotum frá 2005 til 2009. Það skýrist að stærstum hluta af fjölgun hraða- mælinga og aukningin er fyrst og fremst vegna myndavéla sem settar hafa verið upp, ekki vegna aukins eftirlits lögreglumanna. Þannig hef- ur hlutfall hraðakstursbrota, sem skráð eru á stafrænar myndavélar, farið úr 18% árið 2007 í 56% á síðasta ári, samkvæmt bráðabirgðatölum í lok september sl. Búið er að setja upp tíu svona vélar á suðvesturhorni landsins. Bráðabirgðatölur ríkislögreglu- stjóra fyrir síðasta ár sýna að vísu lítilsháttar aukningu á sérrefsilaga- brotum frá árinu 2009 en brotin eru engu að síður 45% færri en árið 2005. Niðurskurðurinn bitnar á frumkvæðisvinnu lögreglu  Minna um verkefni að eigin frumkvæði  Sérrefsilagabrotum fækkað um 52% Morgunblaðið/Júlíus Þróun afbrota frá 2005 í % Heimild: Embætti ríkislögreglustjóra. Sérrefsilagabrot á hverja 10 þús. íbúa 2007 2008 2009 175 135 108 Þjófnaðarmál - tilkynnt til lögreglu Innbrot Sérrefsilagabrot - frum- kvæðisvinna lögreglu (t.d áfengis- og fíkniefnabrot) Hlutfall hraðaksturs- brota skráð á stafrænar myndavélar 2007 2008 2009 2010* * 1. janúar - 30. september. 18,0 % 41,1 % 53,8 % 56,3 % +27,8% +7,8% -52% STUTT „Við höfum af þessu miklar áhyggjur og það er kominn tími til að stjórnvöld fari að hlusta á okkur varðandi skilgreiningu á hlutverki og þjónustu lög- reglunnar. Eitthvað verður að gera, ekki nema menn vilji gera þjónustu- samninga við þá sem eru í afbrotum,“ segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, um þá þróun sem orðið hefur varðandi fækkun lögreglumanna og skertar fjárveitingar til lögreglunnar. Hann segir fækkun í lögreglunni skila sér augljóslega í minni frumkvæðisvinnu og minna fyrirbyggjandi eftirliti með hraðakstri, fíkniefnaakstri, bílbelta- notkun og farsímanotkun undir stýri, svo dæmi séu tekin. Þetta sjáist einn- ig vel í mikilli fækkun á eknum kílómetrum hjá bílaflota lögreglunnar. Snorri segir lögreglumenn lengi hafa barist fyrir auknum fjár- veitingum en fyrir daufum eyrum stjórnvalda á seinni árum. Hann bendir jafnframt á að afbrotatölfræðin segi ekki alltaf alla söguna. Þetta sjáist t.d. í fjölgun umferðarlagabrota sem fyrst og fremst sé vegna fjölgunar á myndavélum frek- ar en vegna aukins eftirlits lögreglu. „Við erum nú þegar komin að þolmörkum í skerðingu á fjárveitingum og fækkun löreglumanna,“ segir Snorri og bendir á að á höfuðborgarsvæðinu hafi lögreglumönnum á höfuðborgarsvæðinu fækkað um 41 frá árinu 2007, af um 60 á landinu öllu. Hlutfallslega hafi enn stærri skörð verið höggvin í raðir lögreglumanna á landsbyggðinni. Höfum af þessu miklar áhyggjur FORMAÐUR LANDSSAMBANDS LÖGREGLUMANNA Snorri Magnússon 3.464 sérrefsilegabrot skráð árið 2009, sem flest koma vegna frumkvæð- isvinnu lögreglunnar 7.167 sérrefsilegabrot skráð árið 2005 samkvæmt tölfræði embættis ríkislögreglustjóra ‹ SKRÁÐ AFBROT › » Í fyrradag fékk Barna- og unglingageð- deild Landspítalans að gjöf tvo bíla frá Lionsklúbbnum Fjörgyn. Klúbburinn ætl- ar jafnframt að veita árlegt framlag til að standa straum af rekstrarkostnaði bílanna næstu 3 ár. Bílarnir eru að gerð- inni Renault Trafic og Renault Clio sem Fjörgyn hefur haft á rekstrarleigu undanfarin 3 ár. Bílarnir hafa verið nýtt- ir af BUGL fyrir starf með inniliggjandi börnum og unglingum fyrir vettvangs- teymi göngudeildar. Við sama tækifæri afhenti Fjörgyn fartölvu, skjávarpa og sýningartjald að gjöf. Stórtónleikar Fjör- gynjar í nóvember ár hvert hafa verið helsta fjáröflunarleið klúbbsins til styrkt- ar BUGL. Ánægja Fjörgyn gefur BUGL bifreiðar og fleira. BUGL fær gjafir Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is Verð áður: Verð nú: Pallíettutoppur 13.900 kr. 6.950 kr. Toppur 4.500 kr. 2.250 kr. Boleró jakki 9.900 kr. 4.950 kr. Skokkur 18.900 kr. 9.450 kr. Kjóll 8.900 kr. 4.450 kr. Buxur 11.900 kr. 5.950 kr. 50% afsláttur Gerið góð kaup á útsölunni Kíkið á heimasíðuna okkar www.rita.is sendir öllum velunnurum sínum bestu óskir um gleðilegt ár ásamt innilegu þakklæti fyrir allan stuðninginn á liðnu ári. Greinilegt er að á erfiðum tímum er íslenska þjóðin ein stór heild og sýnir stuðning, hver og einn eftir bestu getu. Guð blessi ykkur öll. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.