Morgunblaðið - 07.01.2011, Side 15

Morgunblaðið - 07.01.2011, Side 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2011 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Bandarísk rannsóknarnefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að sprengingu, sem olli olíulek- anum í Mexíkóflóa á liðnu ári, megi rekja til ým- issa mistaka og ákvarðana sem voru líklega teknar til að spara peninga og tíma. Nefndin komst einnig að þeirri niðurstöðu að þrjú fyrirtæki, BP, Halli- burton og Transocean, bæru öll ábyrgð á þessum mistökum. Þessi niðurstaða varð til þess að gengi hluta- bréfa í BP hækkaði um 2,27% í gær og hefur ekki verið hærra frá því í maí á liðnu ári. Hækkunin var Kerfisbundin mistök ollu slysinu  Rannsóknarnefnd segir að þrjú fyrirtæki beri ábyrgð á olíulekanum í Mexíkóflóa  Líklegt að niðurstaðan verði til þess að BP greiði minni bætur en talið var rakin til þess að nefndin telur að öll fyrirtækin, sem tengdust olíuborpallinum sem sprakk, beri ábyrgð á mistökunum – ekki aðeins BP. Líklegt þykir að þetta verði til þess að BP þurfi að borga minni skaðabæt- ur vegna olíumengunarinnar en búist var við. Olíufyrirtækið hefur þegar selt eignir að and- virði 30 milljarða dollara, sem svarar 3.500 milljörðum króna, til að geta greitt skaðabæturnar. Bandaríkjaforseti skipaði rannsóknarnefndina Eldur í olíu- borpallinum. og hún hyggst birta niðurstöður sínar í heild á þriðjudaginn kemur. Getur gerst aftur Nefndin segir að opinberar eftirlitsstofnanir hafi ekki haft nægilegt vald og bolmagn til að hindra mistökin sem stuðluðu að sprengingunni. Mistökin hafi verið „kerfisbundin“ og líklegt sé að slík mengunarslys verði aftur ef ekki verða gerðar breytingar á starfsháttum í olíuvinnslunni og opinberu eftirliti með starfseminni. Halliburton veitti BP ýmsa þjónustu við rekstur olíuborpallsins sem sprakk og olíufyrirtækið leigði borpallinn af Transocean. Afdrifarík sprenging » Ellefu manns biðu bana í sprengingu í olíuborpallinum Deepwater Horizon í Mexíkó- flóa í apríl. » Sprengingin varð til þess að 4,9 milljónir tunna af olíu láku í hafið á þremur mán- uðum og er það eitt mesta olíumengunarslys sögunnar. Áhrifin á lífríkið voru þó ekki eins mikil og óttast var í fyrstu. Hópur galvaskra Búlgara dansar í ískaldri á, Tundzha, í bænum Kalofer í Búlgaríu á þrettándanum í gær þeg- ar minnst var komu vitringanna þriggja að jötunni í Betlehem. Íbúar bæjarins telja að dans í ánni tryggi þeim góða heilsu á nýja árinu og fjölmargir taka því þátt í dansinum á þrettándanum. Reuters Dansa sér til heilsubótar í ísköldu vatni Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Glæpamennirnir og ofbeldisseggirn- ir sofa ekki á nóttinni og konurnar eru því oft andvaka í flóttamanna- búðunum á Haítí. Þeirra á meðal er Guerline sem þurfti að horfa á vopn- aða menn nauðga ungri dóttur sinni í tjaldbúðum í Port-au-Prince, höfuð- borg landsins. Guerline hefur dvalið þar með þremur börnum sínum eftir að hafa misst mann sinn í jarðskjálft- anum sem reið yfir Haítí fyrir tæpu ári. Dóttur hennar var nauðgað í mars, tveimur mánuðum eftir jarð- skjálftann. „Fjórir menn nauðguðu henni. Hún er 13 ára gömul,“ er haft eftir Guerline í skýrslu sem mann- réttindasamtökin Amnesty Inter- national hafa birt um nauðganir í flóttamannabúðunum. „Þeir sögðu við mig að þeir myndu drepa mig ef ég segði frá þessu. Þeir sögðu að ef ég færi til lögreglunnar myndu þeir skjóta mig til bana,“ sagði Guerline. „Ég er hrædd. Ég er hvergi óhult um líf mitt, á eng- an öruggan samastað, þannig að ég varð að þegja.“ Mennirnir nauðguðu líka Guerline þessa nótt og hún getur ekki hætt að hugsa um þessa hræðilegu reynslu. Margar aðrar konur og stúlkur í flóttamannabúðunum hafa svipaða sögu að segja, að sögn skýrsluhöf- undanna. Nauðguðu 11 ára stúlku Þeirra á meðal er stúlka, sem köll- uð er Myriam og var aðeins ellefu ára gömul þegar henni var nauðgað. Þrír menn nauðguðu annarri stúlku steinsnar frá höfuðstöðvum lögregl- unnar í Port-au-Prince. Hópur manna nauðgaði Suzie fyrir framan börnin hennar. Skýrsluhöfundarnir notuðu ekki rétt nöfn kvennanna af ótta við að of- beldismennirnir myndu refsa þeim. Í skýrslu Amnesty segir að lítið hafi verið gert til að vernda konur í flóttamannabúðunum þar sem rúm milljón manna hírist enn eftir jarð- skjálftann sem kostaði um 230.000 manns lífið og lagði stóran hluta höfuðborgarsvæðisins í rúst. „Vopnaðir hópar ráðast á konurn- ar eins og þeim sýnist, enda vita þeir að litlar líkur eru á því að þeir verði dregnir fyrir rétt,“ sagði Gerardo Ducos, sem stjórnaði rannsókn Am- nesty á Haítí. Lifa í stöðugum ótta við hópa nauðgara  Lítið gert til að vernda konur í flóttamannabúðum á Haítí Stjórnvöld í Þýskalandi reyndu í gær að sefa ótta almennings vegna frétta um að mikið magn af díoxíni, þrávirku lífrænu mengunarefni, hefði verið í allt að 3.000 tonnum af dýrafóðri sem notað var í um það bil þúsund kjúklinga- og svínabúum í landinu. Ilse Aigner, landbúnaðarráð- herra Þýskalands, sagði að almenn- ingi stafaði ekki hætta af díoxíninu þótt dreifing mengaða dýrafóðurs- ins hefði verið miklu meiri en talið var í fyrstu. „Allt mengað dýrafóð- ur, sem sett var á markað, hefur verið innkallað og öll matvæli frá búum, sem notuðu fóðrið, voru tek- in úr verslunum.“ Margir neytendur í Þýskalandi hafa haft miklar áhyggjur af mál- inu eftir að skýrt var frá því að mörg þýsk bú hefðu hætt eggja- og kjötframleiðslu vegna mengunar- efnisins. Embættismenn í sam- bandslandinu Nordrhein-Westfalen segja að tvö bú hafi dreift meira en 100.000 eggjum sem kunni að hafa innihaldið of mikið magn díoxíns. Ætluð til pappírsframleiðslu Talsmaður þýska landbúnaðar- ráðuneytisins sagði að bú í Sax- landi-Anhalt hefði selt 136.000 egg til Hollands í síðasta mánuði. Aigner sagði að díoxínið hefði verið í olíu sem nota hefði átt við pappírsframleiðslu en þess í stað verið sett í dýrafóðrið. „Við höfum ekki enn fundið orsök díoxínmeng- unarinnar, það hafa aðeins verið settar fram tilgátur,“ sagði land- búnaðarráðherrann. bogi@mbl.is DÍOXÍN Í DÝRAFÓÐRI Berlín Brandenborg Saxland-Anhalt Talið er að 3.000 tonn af dýrafóðri hafi innihaldið mikið magn af díoxíni Fóðrinu var dreift til 1.000 kjúklinga- og svínabúa í átta sambandslöndum Þýskalands 8.000 kjúklingum hefur verið fargað Kjúklingum gefin a.m.k 55 tonn af fóðri sem kann að hafa verið mengað 100.000 egg sett á markað 136.000 egg flutt til Hollands í desember Getur haft mikil eitrunaráhrif ef það berst í líkamann í talsverðu magni yfir langt tímabil Getur skaðað ónæmiskerfið, raskað hormónaframleiðslu og valdið krabbameini Fóðurframleiðandinn Harles & Jentzsch segist hafa blandað fitusýrum í dýrafóður, í þeirri trú að það bætti fóðrið Petrotec AG, sem selur fitu- sýrurnar, segir að þær hafi ekki verið ætlaðar til manneldis eða í dýrafóður Neðra-Saxland 90% af mengaða dýrafóðrinu var dreift þar Nordrhein- Westfalen 120.000 menguð egg sett á markað á síðustu fjórum vikum Slésvík-Holtsetaland ÚTBREIÐSLAN DIOXÍN Þ Ý S K A L A N D Reynt að sefa ótta við díoxínmengun í dýrafóðri Eric Besson, iðnaðarráðherra Frakk- lands, sagði í gær að Frakkar stæðu nú frammi fyrir „efnahagsstríði“ eftir að franski bílaframleiðandinn Renault skýrði frá því að upplýsingaleki og iðnaðarnjósnir ógnuðu fyrirtækinu. Grunur leikur á að leynilegum upp- lýsingum um rafmagnsbíla hafi verið lekið til keppinauta Renault. Þremur af yfirmönnum Renault hefur verið sagt upp störfum eftir nokkurra mán- aða rannsókn á málinu. Heimildar- menn fréttastofunnar AFP segja að mennirnir hafi allir stjórnað verkefn- um í tengslum við þróun rafmagns- bíla. Renault hef- ur í samstarfi við japanska bílafyrirtækið Nissan lagt mikið fé í þróun rafbíla og hyggst setja nokkrar gerðir þeirra á markað á næstu þremur ár- um. „Þó að orðið „efnahagsstríð“ sé stundum fáránlegt, þá er það viðeig- andi í þessu tilviki,“ sagði Besson í út- varpsviðtali. Óttast iðnaðarnjósn- ir og „efnahagsstríð“ Eric Besson Allt að fjórar milljónir barna þjást vegna ófullnægjandi aðgengis að vatni, hrein- lætisaðstöðu, heilsugæslu og menntun nú þegar tæpt ár er liðið frá jarðskjálft- anum mannskæða á Haítí. Þetta kemur fram í skýrslu sem UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, birtir í dag. Þar kemur m.a. fram að þótt hjálparstarfið hafi gengið vel sé endurreisnarstarfið rétt að byrja. Rúm milljón manna býr við þröngan kost í flóttamannabúðum á Haítí, þeirra á meðal 380.000 börn. „Börn hafa sérstaklega þurft að þjást og halda áfram að þjást vegna síendurtekinna erfiðleika sem komu upp á liðnu ári. Þau hafa ekki enn fengið að njóta fullra réttinda til heilsu, menntunar og verndar,“ segir Francoise Gruloos- Ackermans, yfirmaður UNICEF á Haítí. Hundruð þúsunda barna þjást ENDURREISNARSTARFIÐ Á HAÍTÍ RÉTT AÐ BYRJA Stúlka í flótta- manna- búðunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.