Morgunblaðið - 07.01.2011, Side 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2011
„GLÆPSAMLEGA FYNDIN.“
- DAILY MIRROR
HHHH
SÝND Í KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KEFLAVÍK OG AKUREYRI
WILL FERRELL, TINA FEY, JONAH HILL OG BRAD PITT ERU
ÓTRÚLEGA FYNDIN Í ÞESSARI FRÁBÆRU FJÖLSKYLDUMYND
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
SHREK OG KUNG FU PANDA
- THE HOLLYWOOD REPORTER
HHHH
H E R E A F T E R
M A T T D A M O N
HHHH
„ÞETTA ER MYND FYRIR
GÁFAÐ FÓLK SEM ER
NÁTTÚRULEGA FOR-
VITIÐ UM HVAÐ GERIST
ÞEGAR YFIR MÓÐUNA
MIKLU ER KOMIÐ.“
- ROGER EBERT
HHHH
-THE HOLLYWOOD REPORTER
SÝND Í EGILSHÖLL OG SELFOSSISÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG AKUREYRI
„THE BEST
ROMANTIC
COMEDY OF
THE YEAR!“
- GREG RUSSELL,
MOVIE SHOW PLUS
SPARBÍÓ 3D 950 krkr á allar sýningar merktar með grænu
NÝJASTA MEISTARVERK CLINT EASTWOOD
KLOVN - THE MOVIE kl. 3:30 - 5:50 - 8 - 10:20 14 MEGAMIND 3D ísl. tal kl. 3:40 - 5:50 L
KLOVN - THE MOVIE kl. 5:50 - 8 - 10:20 VIP LIFE AS WE KNOW IT kl. 8 - 10:20 L
HEREAFTER kl. 5:30 - 8 - 10:40 12 HARRY POTTER kl. 5:20 - 8 - 10:40 10
TRON: LEGACY 3D kl. 3:303D - 5:30 - 83D - 10:403D 10 FURRY VENGEANCE kl. 3:30 L
TRON: LEGACY kl. 3:30 VIP
/ ÁLFABAKKA
KLOVN - THE MOVIE kl. 5:40 - 8 - 10:20 14 GULLIVER'S TRAVELS 3D kl. 5:40 - 8 - 10:20 L
HEREAFTER kl. 8 - 10:40 12 MEGAMIND 3D ísl. tal kl. 5:40 L
TRON: LEGACY 3D kl. 5:20 - 8 - 10:40 10
/ EGILSHÖLL
AF SJÓNVARPSHEFÐUM
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
ben@mbl.is
Jólin og hátíðarnar sem eru nýgengnarum garð eru tími hefða, ekki aðeinsþegar kemur að mat, drykk, fjölskyldu-
boðum og ýmiss konar serimóníum, heldur
nær þessi hefðarækt til sjónvarpsefnis líka.
Það þarf varla að tíunda hversu stórt hlut-
verk áramótaskaupið leikur í áramóta-
fögnuði Íslendinga sem endurspeglast í vænt-
ingunum fyrirfram og umræðunum eftir á. Í
fjölmörg ár var það líka hefð að Íslendingar
horfðu á sirkuskúnstir fyrir skaup í boði Billy
Smart. Þarna horfði maður á manneskjur
fljúga um loftin í alls kyns áhættuatriðum,
rétt eins og mennska flugeldasýningu sem
einhvern veginn var ótrúlega viðeigandi í að-
draganda flugeldasýningarinnar sem var að
vænta að loknu skaupi. Hvort tveggja glitr-
andi og stórhættulegt, og rétt eins og þegar
horft var á fegurstu eldglæringarnar á mið-
nætti undir berum himni var haldið niðri í sér
andanum af spennu yfir hrikalegustu sirkus-
atriðunum.
Ekki veit ég hvers vegna Sirkus BillySmart datt út úr gamlárskvölds-
dagskránni hérlendis. Ég man hins vegar að
þegar það gerðist fannst mér nánast að um
svik væri að ræða. Svíar hafa verið flinkari
að endursýna ákveðið sjónvarpsefni þessa
daga, þótt færa megi rök fyrir því að það sé
orðið bæði slitið og gamaldags. Á hverjum
aðfangadegi í áratugi hefur viss syrpa með
Andrési önd verið á skjánum í Svíaríki og ef
marka má þá sem hafa alist þar upp er þetta
ómissandi upptaktur að jólahátíðinni. Um það
vitnar sérstakur glampi í augum rígfullorð-
inna manna sem fyrir tilstilli tækninnar geta í
dag sest niður fyrir framan gervihnatta-
sjónvarp á Íslandi klukkan þrjú á aðfangadag
og endurupplifað æskujólin í Svíþjóð.
Hið sama gerðist þegar „semí-Svíinn“ áheimilinu rauk upp rétt fyrir kvöldmat
til að stilla á sænska ríkissjónvarpið. Að
þessu sinni var það breski einþáttungurinn
Dinner for one, sem þrátt fyrir að vera kom-
inn til ára sinna lifir góðu lífi á sænska skján-
um þetta kvöld og raunar víðar. Þetta er
svarthvít og rispuð sjónvarpsupptaka frá
1963, þar sem snillingarnir Freddie Frinton
og May Warden fara á kostum í hlutverki
aldraðs bryta og hefðarjómfrúarinnar Miss
Sophie, sem hefur efnt til árlegs kvöldverð-
arboðs fyrir fjóra góða vini sína. Sá er hæng-
ur á að ungfrúin er sú eina sem er eftirlifandi
af vinahópnum og kemur það því í hlut bryt-
ans að skála við hana fyrir hönd allra gest-
anna. Þar sem þetta er margrétta máltíð
verða ferðir brytans kringum borðið til að
tæma úr glösum gestanna ærið margar með
fyrirsjáanlegum afleiðingum. Í hverri ferð
stagla þau ungfrúin á því að nú skuli hafður
sami háttur á og á síðasta ári – já sami háttur
og á hverju ári. Það er óborganlegt að sjá
glímu Freddies við að halda virðingunni eftir
því sem veigarnar hafa meiri áhrif. Ekki
hjálpar til glæsilegur tígrishamur sem prýðir
gólfið og hinn sauðdrukkni bryti þarf að
ganga yfir að barborðinu, og auðvitað hrasar
hann í hvert skipti um tígrishausinn á leið
sinni.
Þrátt fyrir að hafa séð einþáttunginnfjölmörgum sinnum áður hló fjölskyldu-
faðirinn hátt og innilega og hið sama má
segja um aðra í fjölskyldunni, sem hafa séð
hann sjaldnar eða ekki. Það er ekki skrýtið
að menn hafi ákveðið að varðveita þá hefð að
sýna slíkan gullmola á gamlárskvöld, ekki
bara af því að hann er frábært skemmtiefni,
heldur líka vegna þess að Miss Sophie hefur
rétt fyrir sér þegar hún undirstrikar mikil-
vægi þess að hafa sama háttinn á á hverju ári.
Á sama hátt á hverju ári
» Það er óborganlegt að sjáglímu Freddies við að halda
virðingunni eftir því sem veig-
arnar hafa meiri áhrif.
Fótakefli Freddie sendir tígrisdýrinu illt
auga enda nærri hrasaður.