Morgunblaðið - 07.01.2011, Page 36

Morgunblaðið - 07.01.2011, Page 36
FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 7. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318 1. Kalin á hjarta eftir Facebook 2. Ekkert kynlíf á ströndinni 3. Stelpurnar á Íslandi eru klikkaðar 4. Veskisþjófurinn úr Kringlunni »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Gítargúrúinn Þorsteinn Magnússon er með sólóplötu í burðarliðnum. Þessi mikilhæfi gítarleikari, sem gerði garðinn frægan með Þey og Eik, segist sjaldan hafa verið brattari og horfir bjartsýnn fram á veginn. »30 Þorsteinn Magnússon með sólóplötu  Samband ís- lenskra myndlist- armanna, og Kynningar- miðstöð íslenskr- ar myndlistar bjóða til móttöku í SÍM-húsinu, Hafnarstræti 16, í dag frá kl. 17-19. Boðið verður upp á veitingar og opn- uð sýning Guðlaugar Drafnar Gunn- arsdóttur, SÍM-ara janúarmánaðar. Opið hús hjá SÍM og opnun sýningar We Made God á fyrstu plötu ársins Á laugardag og sunnudag Norðaustan 5-13, hvassast á annesjum og éljagangur á norðan og austanverðu landinu, en annars bjart. Frost 3 til 14 stig. Á mánudag Austlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri. Sums staðar él við vestur- og norðurströndina. Kalt í veðri. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 10-18 síðdegis og él norðan- og austanlands. Frost 3 til 15 stig. Hiti kringum frostmark með austur- og suðurströndinni. VEÐUR Ísland mætir Þýskalandi í Laugardalshöllinni í kvöld, í fyrri vináttulandsleik þjóð- anna í handknattleik af tveimur, en hinn fer fram á morgun. Þetta eru einu leik- ir Íslands fyrir HM í Svíþjóð. „Ég á von á jöfnum leikjum. Það er alltaf gaman að leika við Þjóðverja, þetta eru allt- af „stríðsleikir“, segir Þórir Ólafsson, landsliðsmaður Íslands og fyrirliði þýska liðsins Lübbecke. »4 Alltaf stríðsleikir við Þjóðverja Fjögur efstu liðin í úrvalsdeild karla í körfubolta unnu leiki sína í tólftu um- ferðinni í gærkvöld. Grindvíkingar fengu þó ekki liðsauka sem þeir töldu í höfn. Þorleifur Ólafsson hljóp í skarðið og átti mjög góðan leik þrátt fyrir að ganga ekki heill til skógar. „Ég verð að drepast í skrokknum á morgun en svo verð ég tilbúinn í næsta leik. Ég er í með- ferð daglega og þarf svo að bíta á jaxl- inn í leikj- um,“ sagði Þorleifur. »2-3 Þarf að bíta á jaxlinn í leikjunum Strákarnir í 21 árs landsliðinu í hand- bolta eru komnir til Serbíu og leika þar í dag og um helgina í undan- keppni HM. Þeir eiga væntanlega fyr- ir höndum hreinan úrslitaleik gegn Serbum á sunnudaginn. „Þeir sjá til þess að það verður brjáluð stemning og þetta er því ekki auðvelt verkefni,“ segir Einar Andri Einarsson, annar þjálfara íslenska liðsins. »4 Strákarnir spila um HM-sæti í Serbíu ÍÞRÓTTIR  Fyrsta plata ársins kemur út í dag, plata þungarokkshljómsveitarinnar We Made God og nefnist hún It’s Getting Colder. Á plötunni má finna tíu lög en hljómsveitin gefur sjálf út plötuna. We Made God hefur samið við ítalska hljómplötuútgáfu, Av- antgarde Music, og mun hún gefa plötuna út erlendis. „Þrjú hjól undir bílnum,“ sungu þau Björk Guðmundsdóttir og Ómar Ragn- arsson saman í karókímaraþoni sem fór af stað í gær. Björk ásamt fleirum stendur fyrir söngmótinu og í tengslum við það hefur farið af stað undir- skriftasöfnun þar sem skorað er á stjórnvöld að stöðva söluna á HS Orku til Magma Energy og að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um eignarhald á orkuauðlindum Íslands og nýtingu þeirra. »31 Morgunblaðið/Ernir Björk og Ómar sungu saman dúett „Þegar ég sá mig fyrst í mynd þoldi ég mig ekki, langaði mest til að sparka í mig. Ég held að það séu eðlileg viðbrögð við að sjá sig í fyrsta skipti í kvikmynd,“ segir hin átján ára Eygló Hilmarsdóttir um eigin viðbrögð þegar hún sá sig í fyrsta skipti í hlutverki Höllu í Gauragangi. Eygló fékk leiklistar- áhugann í móðurkviði, enda dóttir tveggja leikara, og stefnir á leiklist- arnám um leið og hún hefur lokið prófi frá Menntaskólanum í Reykja- vík. »10 Morgunblaðið/Ómar Upprennandi Eygló Hilmarsdóttir. Er athyglis- sjúkari en Halla Talið er að á annað þúsund Íslendinga fái árlega slíkt höfuðhögg að alvar- legar afleiðingar geti af því skapast. Er þá um að ræða höfuðáverka þar sem heilahristingur er vægasta birtingarmynd en heilaskaði sú alvarlegasta. Oft greinast áverkar ekki en fólk leitar sér aðstoðar eftir hálft ár, ár eða jafnvel síðar og hefur skaðinn þá valdið alvarlegum afleiðingum fyrir viðkomandi. Gísli Einarsson, yfirlæknir á Grensásdeild, hefur áhyggjur af þekkingarleysi almennings þegar kemur að höfuðáverkum. Hann telur auk þess að ofbeldi fari harðnandi og að sama skapi fari virðing fyrir höfðinu minnkandi. Sést það best á því hversu oft menn sparka í höfuð liggjandi manna. Í nýlegri rannsókn sem gerð var kom í ljós að annar hver Íslendingur telur sig hafa orðið fyrir höfuðáverka, sjö prósent þeirra sögðu afleiðingar slíkar að þær hái þeim í daglegu lífi. Gísli segir einnig að efla þurfi eftirfylgni við þá sem hljóta minniháttar höfuðáverka sem hann nefnir dulið vandamál í sam- félaginu. „Einkennin geta verið lítil og enginn tekur beinlínis eftir þeim en allt getur verið komið í óefni í skóla, vinnu eða fjölskyldulífinu.“ »12 Virðing fyrir höfðinu fer minnkandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.