Morgunblaðið - 10.01.2011, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2011
Heimsferðir bjóða frábæra 12 nátta ferð til Costa del Sol í vor. Í
boði er frábært sértilboð, með „öllu inniföldu“ á Roc Flamingo
hótelinu sem var mjög vinsælt meðal farþega Heimsferða í fyrra.
Ath. mjög takmarkaður fjöldi her-
bergja í boði á þessum kjörum.
Gríptu þetta frábæra tækifæri og
njóttu lífsins í vor á Costa del Sol á
ótrúlegum kjörum.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til
leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Costa del Sol
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
- með „öllu inniföldu“
28. mars í 12 nætur
Verð kr. 128.180
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli
í 12 nætur með öllu inniföldu á Hotel
Roc Flamingo***
Sveitarstjóra Dalabyggðar þykir
það sérkennileg þróun að leggja nið-
ur lögregluvarðstöðina í Búðardal á
sama tíma og um-
ferð um Dala-
byggð fer vax-
andi. Búðardalur
tilheyrir lög-
regluumdæmi
Borgarfjarðar og
Dala og hefur þar
verið einn lög-
reglumaður starf-
andi en nú stend-
ur til að leggja þá
stöðu niður og að lögreglan í Borg-
arnesi muni sinna eftirliti og útköll-
um. „Við erum að tala um þrjár
milljónir sem munu sparast, það
kostar ekki nema þrjár milljónir að
halda þessari stöð opinni,“ segir
Sveinn Pálsson sveitarstjóri. Hann
segir sveitarstjórn Dalabyggðar
leggjast gegn þessari ákvörðun og
hafi hún komið á framfæri mótmæl-
um og óskað eftir fundi með Ög-
mundi Jónassyni innanríkis-
ráðherra. „Við viljum fá útskýringar
og helst leiðréttingu á þessu.“
Víðáttumikið umdæmi
Sveinn segir mikið öryggisatriði
fyrir íbúana og vegfarendur að hafa
tiltæka lögreglu nær en í Borgar-
nesi. „Búðardalur er mjög mið-
svæðis í umdæminu og afmarkaður
með fjallvegum í allar áttir. Það geta
skapast þær aðstæður að þetta verði
einangrað svæði og það er nauðsyn-
legt, verði hér bílslys og annað slíkt,
að aðrir viðbragðsaðilar geti reitt sig
á að lögreglan mæti á svæðið. Við
bestu aðstæður tekur klukkutíma að
aka milli Borgarness og Búðardals.
Svo má ekki gleyma því að um fleiri
staði er að ræða, þetta er mjög víð-
áttumikið byggðasvæði og eitt það
stærsta á landinu, svo að aðrir staðir
innan umdæmisins eru ennþá fjær
Borgarnesi.
Ytri mörkin ná t.d. til Fells-
strandar, Reykhóla og Gilsfjarðar,
þangað tekur allt að tvo tíma að aka
frá Borgarnesi, þótt þessir staðir
séu í hóflegri fjarlægð frá Búðardal.
Svo hefur umferð aukist mjög um
þetta svæði síðan þetta varð ein að-
alleiðin til Vestfjarða, svo okkur
þykir öfug þróun að draga úr lög-
gæslu á svæðinu á sama tíma og um-
ferðin eykst.“ ingibjorgrosa@mbl.is
Engin
lögregla í
Búðardal
Sveinn Pálsson
Sveitarstjórn
mótmælir harðlega
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Gamla gestamóttakan á Hótel Loft-
leiðum iðar af lífi. Þar eru þó ekki
ferðamenn þessa dagana, sem alla
jafna setja svip á slíka staði. Yfir 30
iðnaðarmenn vinna hörðum höndum
að endurbótum á hótelinu og er áætl-
að að ljúka vinnu við endurgerð hót-
elsins áður en sumar gengur í garð.
Frá því í haust hafa miklar end-
urbætur staðið yfir á hótelinu. Um
áramót lauk breytingum á ráð-
stefnuálmunni með lagfæringum á
74 herbergjum. Þau herbergi og
önnur starfsemi í þeirri álmu eru nú
komin í fullan rekstur á nýjan leik.
Um miðja síðustu viku voru gesta-
móttaka og skrifstofur hótelsins
flutt í þessa álmu, sem snýr að Naut-
hólsvík, til bráðabirgða og þar er nú
nýr inngangur.
Með nýju ári hófust hins vegar
framkvæmdir við endurnýjun gesta-
móttökunnar, veitingasala og sund-
laugar. Allar lagnir verða teknar í
gegn í miðhúsinu og herbergi lag-
færð. Fyrir sumar verður þetta 220
herbergja hótel búið að fá mikla and-
litslyftingu og öll herbergin komin í
fulla notkun, eftir að hótelið hefur
starfað á hálfum krafti í vetur.
Fasteignafélagið Reitir er eigandi
hótelsins, en í sumar var leigusamn-
ingur hótelsins framlengdur til árs-
ins 2025. Reitir borga stærsta hluta
kostnaðar við breytingarnar á hót-
elinu, en hann er áætlaður rúmlega
milljarður.
„Hótel Loftleiðir er fjögurra
stjörnu hótel og með þessum breyt-
ingum viljum við styrkja stöðu okkar
í þeim flokki,“ segir Sólborg Stein-
þórsdóttir, hótelstjóri á Hótel Loft-
leiðum. „Hótelið fær nýjan svip og
þó mikil vinna sé samfara þessu fyrir
starfsfólk, því hótelið verður opið all-
an tímann, þá er gaman að sjá breyt-
ingarnar verða að veruleika og
ánægjulegt hversu vel hefur tekist
til nú þegar.
Ekki skemmir fyrir að þessar
framkvæmdir eru atvinnuskapandi
og ekki veitir af. Hér hafa verið 30-
40 iðnaðarmenn að vinnu að stað-
aldri síðustu mánuði og með hönn-
uðum og þeim sem eru að smíða inn-
réttingar úti í bæ telur hópurinn
örugglega 50 manns,“ segir Sólborg,
en verkfræðistofan Ferill heldur ut-
an um verkefnið.
Um áramót urðu þær breytingar á
veitingaþjónustu Hótels Loftleiða að
hótelið sjálft tók yfir veitingarekst-
urinn af JT-veitingum. Friðrik Valur
Magnússon og Arnrún Magnús-
dóttir sjá nú um veitingaþjónustuna,
en þau ráku áður veitingahúsið Frið-
rik V á Akureyri. Sólborg segir að
smátt og smátt muni þau setja sinn
svip á eldhús hótelsins. Hótelið opn-
ar nýja veitingasali og veitingastað í
vor, þar sem lögð verður sérstök
áhersla á hollustu og íslenskt hrá-
efni.
„Við bindum miklar vonir við að
nýjungar í þjónustu hótelsins muni
ekki eingöngu falla í kramið hjá hin-
um fjölmörgu erlendu ferðamönnum
sem hér gista allt árið um kring,
heldur einnig freista samlanda okkar
og nágranna á svæðinu,“ segir Sól-
borg. „Við höfum á undanförnum
misserum lagt mikið upp úr því að
veita gestum okkar innsýn í íslensk-
an menningarheim með ýmsum
hætti, til að mynda með listsýn-
ingum, bókaupplestri, bíósýningum,
auk þess að tileinka fjölda herbergja
bæði samtímalistamönnum og helstu
þjóðskáldum.“
Milljarður í andlitslyftingu
Gagngerum endurbótum á Hótel Loftleiðum á að ljúka fyrir sumar
Ekki skemmir fyrir að verkefnið er atvinnuskapandi, segir hótelstjórinn
Morgunblaðið/Ómar
Lokað Margir hafa átt notalega stund í sundlauginni á Loftleiðum og svo verður væntanlega áfram eftir að opnað verður á ný að loknum endurbótum.
Tölvumynd/Ferill
Ný móttaka Komið inn um aðalinngang hótelsins eftir breytingar.
Hjörtur J. Guðmundsson
Jón Pétur Jónsson
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráð-
herra, segir að ráðuneytið muni
koma „ákveðnum sjónarmiðum“ á
framfæri við bandarísku utanríkis-
þjónustuna vegna kröfu bandarískra
stjórnvalda um að fá afhentar upp-
lýsingar um samskipti Birgittu Jóns-
dóttur, þingmanns Hreyfingarinnar,
á netinu, einkum í gegnum sam-
skiptasíðuna Twitter.
Þá hefur Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir, forseti Alþingis, óskað
eftir því að úttekt verði gerð á rétt-
arstöðu Birgittu í málinu sem þing-
manns. Hefur m.a. verið óskað eftir
upplýsingum frá Alþjóðaþingmanna-
sambandinu vegna málsins.
Össur sagði að það yrði gert með
milligöngu sendi-
herra Bandaríkj-
anna á Íslandi, en
hann hefur verið
boðaður til fund-
ar í ráðuneytinu
vegna málsins.
Össur gerði þó
ekki ráð fyrir því
að funda með
sendiherranum
sjálfur um málið
heldur kæmi það væntanlega í hlut
ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneyt-
isins. Hann hefði ennfremur boðið
Birgittu að eiga fund með ráðuneyt-
isstjóranum og öðrum starfsmönn-
um ráðuneytisins til þess að skýra
stöðu hennar og þá áhættu sem
hugsanlega væri fólgin í ferðalögum
hennar.
Þarf að geta ferðast óáreitt
„Ég hélt fund um þetta mál í gær í
ráðuneytinu með ráðuneytisstjóran-
um og þjóðréttarfræðingi okkar
meðal annars til þess að kanna stöðu
þingmannsins í þessu máli. Við
ræddum auðvitað með hvaða hætti
við myndum koma okkar sjónarmið-
um á framfæri en ekki síður með
hvaða hætti við gætum tryggt það
sem ég vil kalla ferðafrelsi hennar
sem fulltrúa á löggjafarsamkund-
unni. Hún þarf að geta ferðast áreit-
islaust til Bandaríkjanna sem þing-
maður,“ segir Össur. Þótt Birgitta
virtist gera sér grein fyrir því teldi
hann engu að síður nauðsynlegt að
útskýra fyrir henni að um væri að
ræða grafalvarlegt mál, svo að það
væri alveg ljóst.
Réttarstaðan könnuð
Sendiherra Bandaríkjanna kallaður á fund í utanríkis-
ráðuneytinu vegna máls Birgittu Jónsdóttur, þingmanns
Birgitta
Jónsdóttir