Morgunblaðið - 10.01.2011, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 10.01.2011, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2011 Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Læknar eru „hóflega bjartsýnir“ á að bandaríska þingkonan Gabrielle Giffords muni ná bata. Giffords var skotin í höfuðið í árás byssumanns í Tucson í Arizona-ríki Bandaríkj- anna í fyrradag. Einn maður hefur verið handtek- inn eftir árásina, en að minnsta kosti sex manns eru látnir, þar á meðal níu ára gömul telpa og dóm- ari við alríkisdómstól í Arizona. Tólf aðrir særðust þegar maðurinn hóf skothríð við Safeway verslun í Tucson, en Gifford var þar að ræða við kjósendur í borginni. Íbúar slegnir Christine Tse, sem býr í Tucson og á íslenskan eiginmann, segir í samtali við Morgunblaðið að íbúar borgarinnar séu slegnir vegna árásarinnar. „Maður bregst allt öðruvísi við þegar svonalagað ger- ist í nánasta nágrenni manns. Verslunin er rétt hjá íbúð minni og ég var að hugsa um að fara þangað rétt áður en árásin var gerð, en sem betur fer hætti ég við að fara. Ég held að móðir mín hafi haft meiri áhyggjur en ég, því hún vissi um tíma ekki hvort ég hefði farið í Sa- feway eða ekki.“ Tse segir að öllum götum í kringum verslunina hafi verið lokað af lögreglu í marga klukkutíma eftir árásina og þeir sem voru þar að versla, eða til að hitta þingmanninn, hafi því verið fastir þar til opnað var fyrir umferð að nýju. „Það sem ég hef heyrt af árásinni er að strákurinn hafi gengið upp að þingmanninum þar sem hún var að ræða við tvær aðrar manneskjur og skotið hana í gagnaugað af mjög stuttu færi. Eftir það hóf hann skot- hríð að því er virðist af handahófi í mannfjöldann. Hann var svo snúinn niður af einhverjum sem voru við- staddir og mér skilst að það hafi ennþá verið skot í byssunni, þannig að enn fleiri hefðu getað dáið.“ Sem áður segir var maðurinn handtekinn á staðnum, en lögregla leitar nú annars manns, sem hún segir að hafi komið með hinum grunaða á staðinn. Yfirmaður lög- reglunnar í Pima-sýslu, Clarence Dupnik, segir lögregluna ekki sannfærða um að hinn grunaði, Ja- red Loughner, hafi verið einn að verki. Hefur lögreglan sent frá sér mynd, sem öryggismyndavél náði af hinum óþekkta manni. Búið er að fjarlægja hluta haus- kúpu Giffords í því skyni að mýkja heilann. Hin fertuga Giffords hefur að sögn lækna á Háskólasjúkrahús- inu í Arizona náð að tjá sig eftir ein- földum skipunum. Michael Lemole, yfirlæknir taugaskurðdeildar sjúkrahússins og einn lækna þingkonunnar, segir að viðbrögð Giffords sýni fram á „mjög mikla virkni heilans“. Skotið sem hæfði Giffords fór beint í gegnum vinstri hlið höfuðs- ins. Lemole segir að ef skotið hefði farið úr einni hlið heilans í aðra (þ.e. þvert), þá væru batalíkur Ciffords mun minni. Þrátt fyrir þessi tíðindi ítrekaði Lemole að ástand Giffords væri mjög slæmt og að hún ætti á hættu að henni snarversnaði við litlar bólgur í heilanum. Fjölmenni kom saman þegar haldin var bænastund til að minn- ast þeirra sex sem létust í skotárás- inni í Tucson í Arizona í gær. Þá var beðið fyrir þeim sem særðust. At- höfnin fór fram við háskólasjúkra- húsið í Tucson þangað sem þing- konan var flutt. Loughner hafði áður komið við sögu lögreglunnar vegna hótana sem hann hafði haft í frammi, en ekki er enn vitað gegn hverjum þær hótanir beindust eða af hverju þær voru ekki teknar alvarlega. Reuters Tucson Fjöldi fólks kom saman við sjúkrahúsið þangað sem hinir særðu voru fluttir eftir árásina, til að biðja fyrir hinum særðu og til að sýna samhug. Þingkona skotin í Arizona  Eiginkona Íslendings býr í nánd við árásarstaðinn  Segir íbúa borgarinnar Tucson slegna  Læknar þingkonunnar eru hóflega bjartsýnir á bata Franski bílafram- leiðandinn Ren- ault hefur sagt upp þremur hátt settum stjórn- endum eftir rann- sókn á hugs- anlegum leka á viðkvæmum upp- lýsingum til keppinautar. Innanrík- isráðherra Frakklands, Eric Bess- on, hefur neitað að staðfesta að kín- versk fyrirtæki liggi undir grun, en heimildir BBC innan Renault herma að hugsanlega hafi kínverskir keppi- nautar fyrirtækisins fengið upplýs- ingarnar í hendur. Besson hefur lýst njósnunum sem efnahagslegum stríðsaðgerðum og Frakklandsforseti, Nicolas Sarkozy, hefur beðið leyniþjónustu Frakk- lands að rannsaka málið. Rekstarstjóri Renault, Patrick Pelata, segir að fyrirtækið hafi orðið fórnarlamb alþjóðlegs njósnanets, en að mikilvægustu tækniupplýs- ingar Renault hafi ekki lekið út. bjarni@mbl.is Iðnaðar- njósnir hjá Renault  Kínversk fyrirtæki liggja undir grun Carlos Ghosn, for- stjóri Renault. Danskur hermað- ur lét lífið í gær af völdum vega- sprengju í Afgan- istan. Maðurinn var í eftirlitsferð í Helmand-héraði í suðurhluta lands- ins. Hermaður- inn, Samuel Enig, var fluttur á danskan herspít- ala en var úrskurðaður látinn við komu á spítalann. „Hugur okkar er hjá fjölskyldu hermannsins, en líf hennar verður aldrei samt, og félaga hans í hernum sem hafa misst góðan vin og samstarfsmann,“ segir í yfir- lýsingu frá danska hernum. Alls hafa 40 danskir hermenn lát- ist við skyldustörf í Afganistan. Sveit hermannsins var á ferð með breskum og afgönskum hermönnum á leið að ræða við heimamenn í hér- aðinu þegar sprengjan sprakk. Fjörutíu danskir her- menn fallnir Samuel Enig Viðskipti milli Kína og Brasilíu hafa aukist til mik- illa muna undanfarin ár og byggjast þau að stórum hluta á eftirspurn Kínverja eftir hrávörum sem þeir kaupa af Brasilíumönnum. Ríkasti maður Brasilíu, Eike Batista, hefur efnast mjög á þessum við- skiptum, en hann og fyrirtæki hans ráða yfir mikl- um birgðum af þessum hrávörum og þá á hann einnig hafnarmannvirki, sem þjónusta útflutnings- iðnaðinn. Batista hefur gengið svo langt að segja Carlos Slim, mexíkóska fjarskiptajöfrinum sem nú telst rík- asti maður heims, að hann skuli pússa baksýnis- speglana því skammt sé þar til Batista taki fram úr honum. Ekki fagna þó allir Brasilíumenn vaxandi efna- hagslegum mætti Kínverja. Maria Helena Victer var meðal fyrstu kvenna til að ganga um í bikinís- undfötum á Copacabana og í kjölfarið hóf hún fram- leiðslu á sundfötum ásamt dóttur sinni. Á örfáum árum hefur hún hins vegar séð útflutn- ingsnet sitt, sem hún hefur byggt upp með tíð og tíma, verða að engu í harðri samkeppni við kín- verska bikiníframleiðendur. Það eru ekki aðeins bikiníframleiðendur sem verða illa úti í samkeppni við kínverska framleiðslu, heldur sýnir ný könnun að um 80 prósent af brasilískum útflutningsfyr- irtækjum eiga við vanda að etja vegna kínverskrar samkeppni. bjarni@mbl.is Brasilísk bikiní verða undir í samkeppninni  Brasilía hefur hagnast mikið á viðskiptum við Kína, en ekki taka þó allir Brasilíubúar þátt í kínversku veislunni Reuters Föt Brasilía er þekkt fyrir frjálslyndi í klæðaburði. Þrátt fyrir að lögregluyfirvöld hafi ekki gefið nafn byssumanns- ins út opinberlega er almennt talið að um hinn 22 ára gamla Jared Loughner sé að ræða. Yfirmaður lögreglunnar í Pima-sýslu í Arizona segir að hinn grunaði eigi sér „erfiða for- tíð“ og þá hefur lögreglan sagt að hann eigi við andlega erf- iðleika að stríða. Ef marka má Youtube- og Facebook-síður Loughners var hann sann- færður um að ríkisstjórn Bandaríkjanna væri að heilaþvo fólk með því að stjórna mál- fræði og pen- ingaprentun. Skólafélagar segja hann hafa notað eiturlyf og að hann hafi verið mjög reiður. Miklir andlegir erfiðleikar HINN GRUNAÐI Jared Loughner Íranskir fjölmiðlar greina frá því að írönsk farþegaþota hafi hrapað í norðvesturhluta landsins, skammt frá borginni Orumiyeh. Óvíst er sem stendur hve margir voru um borð í flugvélinni, en fréttastofan Fars segir að 105 farþegar hafi ver- ið um borð í vélinni, sem hafi verið að fljúga frá Teheran til Orumiyeh. Íranska ríkissjónvarpið segir hins vegar að 156 hafi verið um borð. Fars segir að a.m.k. 50 hafi sloppið lifandi þegar vélin hrapaði til jarðar í vondu veðri. Slæmt veð- ur hamlar nú björgunaraðgerðum, en mjög mikill snjór er á svæðinu. Þessi miklu snjóþyngsl munu hafa leikið stóran þátt í því að vélin hrapaði. Flugslys eru algeng í landinu, en flugflotinn samanstendur af gömlum flugvélum og er viðhaldi þeirra ábóta- vant. Í júlí sl. kviknaði í ír- anskri flugvél þegar hún lenti í Mas- hhad með þeim afleiðingum að 17 farþegar létust. Tíu dögum áður hafði kviknað í annarri flugvél sem var á flugi. Hún hrapaði í norðurhluta Írans og lét- ust allir 168 um borð. Þá létust 276 hermenn þegar herflugvél hrapaði í suðausturhluta landsins árið 2003. Flugslys í norður- hluta Írans  Slæmt veður hamlar björgunarað- gerðum, en mikill snjór er á svæðinu Íran Töluvert hefur snjóað í Íran.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.