Morgunblaðið - 10.01.2011, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.01.2011, Blaðsíða 19
Gíslason læknir. Með Páli er genginn mikilvirkur maður sem lét sér fátt mannlegt óviðkomandi. Páll á að baki fjölbreyttan stafsferil sem ein- kenndi hans lífshlaup. Í senn félags- málafrömuður, skáti og stjórnmála- maður til hliðar við annasamt lífsstarf sem læknir. Páll lauk námi í handlæknisfræði árið 1955, eins og sérgreininni var þá háttað. Vann síðar á Akranesi til árs- ins 1970 er hann varð yfirlæknir á handlækningadeild Landspítalans. Í starfi sínu varð Páli snemma ljóst að „handverkið“ varð ekki þróað og þroskað innan þáverandi skipulags greinarinnar. Hann lagði sig snemma eftir að koma áhugasviði sínu á kortið en það var æðaskurð- lækningar. Páll sótti sér víða þekk- ingu og þjálfun á því sviði og fór á eigin vegum með hugsjónina eina að veganesti og sótti heim þá sem bestir þóttu í greininni á þeim tíma erlend- is. Þessa þekkingu tók hann með sér heim og miðlaði öðrum sem kennari við læknadeild Háskóla Íslands og kollegi. Mér er það minnistætt að hann sagði mér eitt sinn frá því að hann hefði áhyggjur af skipan mála í seinni tíð í heilbrigðisþjónustunni. Stjórnmálamenn, ráðuneyti og „stofnanastjórar“ kölluðu sífellt eftir meiri hlutdeild í því hvernig heil- brigðismálum væri fyrir komið hjá okkur. Þetta væri vandrataður veg- ur því reynslan sýndi að helstu gæfu- spor og framfarir í lækningum hefðu sjaldnast komið úr þeirri áttinni. Þar hefðu ætíð verið framsýnir og öflugir forystumenn innan læknastéttarinn- ar sem dregið hefðu vagninn. Þeirri forystu mætti ekki glata. Mér hefur oft orðið hugsað til þessa síðar í ljósi reynslunnar. Páll var vel kynntur meðal kollega á erlendri grundu. Hann vann sem fulltrúi Íslands innan norræna skurðlæknafélagsins og gat sér gott orðspor á þeim vettvangi. Síðar inn- an norræna æðaskurðlækninga- félagsins. Þar var hann duglegur að sækja fundi/ráðstefnur jafnvel löngu eftir að hann hætti starfi við lækn- ingar hér heima. Þrátt fyrir lélega sjón sat hann ætíð á fremsta bekk við fyrirlestra með kíkinn í annarri hendi. Spurði fumlaust og markvisst, þrátt fyrir aldur, svo eftir var tekið. Páll var einn af stofnfélögum í Æðaskurðlækningafélagi Íslands og síðar heiðursfélagi. Hans er í dag minnst með hlýju og virðingu frá fé- laginu. Við þökkum samfylgdina. Soffíu, börnum og ættingjum sendum við hugheilar samúðar- kveðjur F.h. Æðaskurðlækningafélags Íslands Stefán E. Matthíasson formaður. Það er stjörnubjart haustkvöld á Akranesi árið 1956. Páll Gíslason er kominn til starfa sem yfirlæknir við Sjúkrahús Akraness. Við Siggi B. eigum erindi við Pál á heimili hans. Við þekktum til starfa Páls, m.a. sem mótsstjóra á Landsmóti skáta á Þingvöllum árið 1948. Félagsforing- inn okkar var fluttur til Reykjavíkur. Er Páll tilbúinn að ganga til liðs við okkur og gerast félagsforingi skát- anna á Akranesi? Hann tekur á móti okkur með hlýju brosi, og í léttu spjalli yfir kaffibolla samþykkir hann erindið. Á þeirri stundu hófst frábært samstarf okkar í skátastarf- inu næstu 15 árin þar til fjölskyldan flutti til Reykjavíkur. Páll var einstakur stjórnandi og skátastarfið á Akranesi átti sín bestu ár undir stjórn hans. Við hlið hans í skátastarfinu stóð Soffía, eiginkona hans. Hún stofnaði svannasveit, sem varð fjölmennur hópur eldri kven- skáta og starfaði af miklum krafti að þeim verkefnum sem fyrir lágu hverju sinni. Páll hreif með sér yngri og eldri og hvatti fólk til dáða, fékk skátunum verkefni við hæfi. Að virkja sem flesta og treysta þeim til sjálfstæðra starfa. Í því var galdurinn fólginn. Það var lykillinn að góðum árangri. Hugsjónir skátahreyfingarinnar hrifu með sér ungt fólk til öflugra starfa. Stofnuð var Hjálparsveit til þess að vera viðbúin til björgunarverk- efna. Byggður var útileguskálinn Hákot við rætur Skarðsheiðar og byrjað var á útilífsmiðstöðinni í Skorradal sem nú er orðin sannkall- aður unaðsreitur til útivistar. Auk þess var Skátaheimilið á Akranesi endurbyggt og stækkað. Á þessum árum stóð Skátafélag Akraness fyrir fjölmennum skáta- mótum í Botnsdal. Þar voru fjöl- skyldubúðir fyrir skátafjölskyldur, en það var nýmæli á skátamótum á Íslandi. Um 400 skátar voru í starfi á Akranesi á þessum tíma, eða 10% íbúanna. Tengjum fastara bræðralagsbogann er bálið snarkar hér rökkrinu í. Finnum ylinn og lítum í logann og látum minningar vakna á ný Þessar upphafslínur úr vinsælum varðeldasöng skáta koma upp í hug- ann þegar ég lít til baka við andlát góðs vinar, Páls Gíslasonar læknis og fyrrum skátahöfðingja. Margar stundir áttum við saman með skát- um við varðeld. Oftast var Páll þá stjórnandinn í söng og leik. Í lokin var hugleiðing og hvatning sem fylgdi okkur inn í svefninn. Það var mikið lán að fá Pál og Soffíu til starfa á Akranesi. Fleiri en skátarnir nutu góðs af starfi þeirra. Stórhugur hans við uppbyggingu og stjórnun sjúkrahússins vakti athygli. Frábærir læknishæfileikar hans nutu sín vel og ljúfmennska við alla sjúklinga sem treystu honum tak- markalaust. Í bæjarstjórn vann hann að mörgum framfaramálum. Skátarnir á Akranesi standa í mik- illi þakkarskuld við Pál, Soffíu og börnin þeirra fyrir fórnfúst og óeig- ingjarnt starf í þágu skátahreyfing- arinnar. Við Elín og börnin okkar þökkum fjölskyldunni fyrir vináttu og ógleymanlegar samverustundir og sendum þeim samúðarkveðjur. Páll er farinn heim, eins og við skátar segjum þegar við kveðjum látinn félaga. Blessun fylgi góðum vini. Bragi Þórðarson. Kveðja frá Endurfundum skáta Það var haustið 1998 sem Endur- fundir skáta hófust að frumkvæði Páls Gíslasonar, fv. skátahöfðingja. Allar götur síðan hefur stór hópur eldri skáta hist mánaðarlega yfir vetrartímann í Skátamiðstöðinni og snætt saman hádegisverð. Á Endur- fundum skáta eru gjarnan rifjaðir upp liðnir atburðir úr skátastarfi og fór vel á því að Páll reið á vaðið og sagði frá Landsmótum skáta á Þing- völlum 1948 og 1962 á fyrstu Endur- fundunum, en hann var mótsstjóri beggja mótanna. Við viljum þakka Páli fyrir að hafa skapað okkur þennan vettvang til að hittast og sendum Soffíu og fjöl- skyldunni allri samúðarkveðjur. F.h. Bakhópsins, Júlíus Aðalsteinsson. Páll Gíslason átti náðargáfu – hann gat hrifið með sér fólk af öllum stigum og á öllum aldri til góðra verka. Hann lagði gjörva hönd á margt og var honum fátt mannlegt óviðkomandi. Velferð samborgara, heill sjúkra og framtíð æskunnar voru honum jafnvæg viðfangsefni. Páll gekk að öllum störfum með ósérhlífni og dugnaði og hugsaði sjaldan um daglaun að kvöldi. Í störfum sínum fyrir skátahreyf- inguna sinnti hann nær öllum hugs- anlegum embættum. Hann gegndi foringjastörfum á öllum stigum og var skátahöfðingi Íslands í áratug. Páll fékkst við leiðbeinendastörf, stýrði tveimur glæsilegum skáta- mótum á Þingvöllum, sem bæði ollu straumhvörfum í skátastarfinu í landinu. Hann átti jafnframt drjúgan þátt í því hversu vel tókst til er Norð- urlöndin önnuðust Jamboree al- heimsmót skáta árið 1975, sem hald- ið var í Noregi. Enginn vafi er að Páll var manna best lesinn í þeim uppeldisfræðilegu grundvallaratriðum sem skátahreyf- ingin er reist á og hann íhugaði sið- ferðilegan grundvöll hennar af mik- illi alvöru. Páli var gefið að klæða alvarlega hluti í auðskilinn búning. Til að aðstoða unga skátaforingja kom hann af stað með nokkrum fé- lögum sínum bókaútgáfu, sem vann meðal annars það þrekvirki að gefa út Skátabókina eftir Baden-Powell sem skátastarfið er grundvallað á. En mikilvægust var leiðsögnin, traustið sem hann sýndi ungum skátaforingjum, velvildin og fram- sýnin. Það sýndi m.a. atbeini hans að uppbyggingu skátaskóla og skáta- miðstöðvar að Úlfljótsvatni. Páll Gíslason átti auðvelt með að hrífa menn með sér. En hann var líka stefnufastur og fylginn sér. Ég á Páli margt að þakka, en hæst ber hvatn- inguna og traustið sem hann sýndi mér í þeim störfum sem ég hef gegnt fyrir skátahreyfinguna. Nú er Páll farinn heim – hann á góða heim- komu. Ég flyt frú Soffíu og ástvinum Páls dýpstu samúðarkveðjur. Si Monu- mentum Requires, Circumspice. Ólafur Ásgeirsson. Kveðja frá Krabbameinsfélagi Reykjavíkur Páll Gíslason var einn af máttar- stólpum Krabbameinsfélags Reykja- víkur í marga áratugi. Hann var mjög áhugasamur um allt sem varð- aði baráttuna gegn krabbameini og vann að því af heilum hug að félagið næði markmiðum sínum, ekki síst varðandi fræðslu, forvarnir og mál- efni sjúklinga. Páll var í stjórn Krabbameins- félags Reykjavíkur í tvo áratugi, frá 1973 til 1992. Eftir það sýndi hann málefnum félagsins einnig mikinn áhuga, mætti á nær alla aðalfundi þess, fræðslufundi og málþing. Oftar en ekki hafði Páll eitthvað til mál- anna að leggja. Síðustu árin var Soffía með í för. Það var mikið áhugamál Páls að konum yrði boðið að koma til leitar að krabbameini í brjóstum eftir að sjötugsaldri væri náð og var brugðist við ábendingum hans. Páll Gíslason var kjörinn heiðurs- félagi Krabbameinsfélags Reykja- víkur árið 1994, í tilefni af 45 ára af- mæli félagsins. Fyrir hönd Krabbameinsfélagsins sendi ég samúðarkveðjur til fjöl- skyldu Páls. Nanna Friðriksdóttir, for- maður Krabbameinsfélags Reykjavíkur. Kveðja frá Félagi eldri borgara Úr augum hans geislaði góðvild og hlýja. Hvort tveggja gaf hann af sér m.a. í félagsstörfum með ungum og öldruðum. Á unga aldri hóf hann að starfa í skátahreyfingunni og hélt því áfram samhliða lækningum á Akranesi og í Reykjavík. Þá var hann skátahöfðingi um árabil. Fyrir skátastarfið var hann sæmdur heið- ursmerkjum innanlands og utan. Í fjölmörg ár hafði hann þá starfað að sveitarstjórnarmálum bæði á Akra- nesi og í Reykjavík og sinnt sérstak- lega málefnum aldraðra. Sem borg- arfulltrúi í Reykjavík vann hann að úrbótum í húsnæðismálum aldraðra og beitti sér fyrir því að borgin byggði félagsmiðstöðvar við íbúðir aldraðra sem einkafyrirtæki reistu. Er hann hafði lokið farsælum ferli sínum gekk hann til liðs við Félag eldri borgara í Reykjavík og ná- grenni, var kosinn í stjórn þess árið 1994 og síðan formaður í fjögur ár, árin 1995 til 1999. Fyrir þau störf var hann kjörinn heiðursfélagi á aðal- fundi þess árið 2001. Sem formaður í Félagi eldri borg- ara í Reykjavík og nágrenni lagði Páll áherslu á að efla félagsstarfið og ferðalög svo og fyrirlestrahald, t.d. um heilsufar aldraðra. Meðal annars fékk hann starfsbræður sína í hópi lækna til að halda fræðsluerindi um hina ýmsu þætti heilbrigðismála.Til þess að auðvelda fyrirlestrastarfið lagði hann áherslu á að bæta hús- næðiskost félagsins. Einnig lagði hann sig fram um að bæta kjör aldr- aðra þótt þungt væri fyrir fæti varð- andi árangur í þeim efnum þá eins og nú. Þau hjónin Páll og Soffía höfðu til skamms tíma komið á mannfundi hjá félaginu „til þess að fylgjast með“, eins og mig minnir hann hafa sagt er fundum okkar bar saman seinast. Það var jafnan ánægjulegt að njóta samfunda við Pál Gíslason og finna fast og hlýtt handtak hans. Um leið og Páli Gíslasyni er þakk- að starfið í þágu eldri borgara í Reykjavík er Soffíu konu hans og öðrum í fjölskyldunni vottuð samúð. Fyrir hönd Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, Unnar Stefánsson formaður. Stjórn Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra kveður í dag Pál Gíslason lækni, einn af bestu og traustustu bjakhjörlum sínum. Við minnumst allra hans hollu ráða gagnvart þeim verkefnum sem lágu fyrir og unnið var að sl. 25 ár. FÁÍA var einn af þeim mörgu vinnuhópum þar sem Páll gat beitt áhrifum sínum til hagsbóta, hress- ingar og farsælla lífs fyrir fólk á efri árum ævinnar. Hjartans þökk fyrir hans óeigingjarna starf. Jafnframt færum við Soffíu og fjölskyldu inni- legar samúðarkveðjur. F.h. stjórnar, Hjörtur Þórarinsson. Kveðja frá Bandalagi íslenskra skáta Páll Gíslason fv. skátahöfðingi er farinn heim, eins og við skátar segj- um gjarnan. Páll var virkur í skátahreyfing- unni frá árinu 1936 og allt til hinstu stundar. Hann var fljótt valinn til forystu og gegndi ýmsum foringja- störfum. Páll sat í stjórn BÍS í alls 27 ár, þar af sem skátahöfðingi í 10 ár frá 1971 til 1981. Hann var virkur í alþjóðlegu skátastarfi og var m.a. fararstjóri íslenskra skáta á World Scout Jamboree í París 1947 og var í mótsstjórn Nordjamb 1975, World Scout Jamboree, í Lillehammer í Noregi, en það mót var haldið sam- eiginlega af skátabandalögum Norð- urlandanna. Þá beitti hann sér fyrir því að Evrópuþing skáta voru haldin á Íslandi árið 1975, en það var í fyrsta skipti sem Evrópuþing bæði kven- og drengjaskáta voru haldin á sama stað og á sama tíma. Páll var sæmdur Silfurúlfinum, æðstu viðurkenningu íslensku skáta- hreyfingarinnar, árið 1962 og Bron- zúlfinum, æðstu viðurkenningu WOSM, heimshreyfingar skáta, árið 1981. Ég vil fyrir hönd íslenskra skáta þakka Páli fyrir öll hans störf í þágu skáta og ekki síður fyrir endalausa hvatningu til okkar sem stöndum í forystunni og ábendingar um hvað unnt er að gera til að ná betri ár- angri. Við skátar þökkum Páli samfylgd- ina í rúm 70 ár og sendum Soffíu og öðrum aðstandendum samúðar- kveðjur. Bragi Björnsson skátahöfðingi. Kveðja frá Skátasambandi Reykjavíkur Páll Gíslason fyrrverandi skáta- höfðingi er farinn heim. Hann gekk ungur til liðs við skátahreyfinguna í Reykjavík. Snemma kom í ljós næm- ur skilningur hans á manngildishug- sjón Roberts Baden-Powell og snjöllu skipulagi skátahreyfingar- innar. Hann var strax á unglingsár- um orðinn með allra starfssömustu félögum Skátafélags Reykjavíkur og gegndi starfi deildarforingja lung- ann úr fimmta áratugnum. Fáir foringjar hafa haldið uppi jafnþróttmiklu starfi og Páll. Auk þess að vera máttarstólpi í starfi Reykjavíkurskáta á þessum árum var Páll virkur þátttakandi í land- námi reykvískra skáta á Úlfljóts- vatni 1942. Hann stýrði foringjaskóla Skátafélagsins árin 1944 og 1945 og var fararstjóri íslenskra skáta á fyrsta alheimsmót skáta eftir heims- styrjöldina síðari, Friðar-Jamboree í Frakklandi 1947. Alls sóttu níutíu ís- lenskir skátar mótið. Þá var hann var mótsstjóri landsmóts skáta 1948, sem var langstærsta skátamót sem haldið hafði verið hér á landi. Það sótti fjöldi erlendra skáta. Páll var einnig mótsstjóri á landsmótinu á Þingvöllum 1962 sem haldið var á 50 ára afmælisári hreyfingarinnar hér á landi. Var það einnig mjög fjölmennt mót. Vert er að minnast á þátt Páls í útgáfumálum hreyfingarinnar. Páll stofnaði ásamt Hallgrími Sigurðs- syni, Hjörleifi Sigurðssyni, Páli Sig- urðssyni og Páli H. Pálssyni útgáfu- skátaflokkinn Úlfljót árið 1943. Úlfljótur gaf út fjölda skátabóka, þar á meðal íslenska þýðingu á Scouting for Boys eftir Robert Baden-Powell. Eftir að Páll lauk kandídatsprófi í læknisfræði lét hann af störfum sem skátaforingi í Reykjavík en síðar héldu þau Soffía uppi afar öflugu skátastarfi á Akranesi meðan Páll gegndi starfi læknis þar. Um tíma var um tíundi hver bæjarbúi starf- andi í skátafélaginu á Akranesi. Er þau hjónin fluttust aftur til Reykja- víkur var Páll kjörinn skátahöfðingi og gegndi hann því embætti með miklum sóma á árunum 1971 til 1983. Páll var árum saman borgarfulltrúi í Reykjavík og um tíma forseti borg- arstjórnar. Á þeim vettvangi studdi hann skáta í Reykjavík með ráðum og dáð. Og það gerði hann einnig margvís- lega eftir að hann hafði kvatt stjórn- málin. Skátar í Reykjavík eiga Páli Gíslasyni þakkir að gjalda fyrir framlag hans og margháttaðan stuðning við skátastarf í höfuðborg- inni í áratugi. Með þakklæti og hlýju minnumst við fallins félaga og leið- toga. Stjórn Skátasambands Reykjavíkur sendir fjölskyldu Páls samúðarkveðjur. Eiríkur G. Guðmundsson, formaður SSR. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2011 ✝ Ástkær vinkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, HAFRÚN INGVARSDÓTTIR, Suðurhólum 14, Reykjavík, lést á Landspítalanum sunnudaginn 2. janúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 11. janúar kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Elliði Magnússon, Finnbogi Oddur Karlsson, S. Ingibjörg Karlsdóttir, Jakob Jónsson, Jóhanna María Karlsdóttir, Sigmundur Hagalín Sigmundsson, Halldór Jónsson, Sigurður Hólmar Karlsson, Valgerður Lísa Gestsdóttir, Björn Auðunn Magnússon, Hlynur Þór Gestsson. Lokað Skrifstofa Félags eldri borgara Reykjavík verður lokuð í dag frá kl. 14.00 vegna útfarar PÁLS GÍSLASONAR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.