Morgunblaðið - 10.01.2011, Page 6

Morgunblaðið - 10.01.2011, Page 6
FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ekki eru allir á eitt sáttir um niður- stöðu starfshóps sem leggur til að beinar lúðuveiðar verði bannaðar, en þessar veiðar hafa farið vaxandi síð- ustu ár. Bent er á að rannsóknir skorti á lúðustofninum og að mun fleiri lúður veiðist sem meðafli í drag- nót, botnvörpu og humarvörpu heldur en með notkun haukalóða. Stórlúðan bítur hins vegar frekar á stóra króka lúðulínunnar, sem kölluð er haukalóð, og því er tonnafjöldinn sem kemur á land úr beinum veiðum mun meiri en sem meðafli í önnur veiðarfæri. Því verður þó tæpast á móti mælt að lúðustofninn stendur illa og hefur hrakað verulega síðustu árin. Í árs- skýrslu Hafrannsóknastofnunar á síðasta ári segir að árið 2009 hafi landaður lúðuafli á Íslandsmiðum verið um 570 tonn. Afli Íslendinga var um 530, en Færeyingar hafa heimild til að veiða 40 tonn hér við land. Frá árinu 1996 hefur lúðuafli á Íslands- miðum verið innan við eitt þúsund á ári. Reyna að drýgja kvótann Upplýsingar um lúðuafla liggja fyr- ir allt frá árinu 1905, og sýna að frá þeim tíma hefur hann aldrei verið minni en undanfarin ár, segir í skýrslu Hafró. Að mati stofnunarinn- ar hefur lúðugengd á grunnslóð verið mjög lítil í tvo áratugi. Í skýrslunni er talað um að viðkomubrestur hafi orð- ið í stofninum og segir þar að ástandið sé orðið svo langvinnt að fyrirsjáan- legt sé að stofninn muni áfram verða í lágmarki á næstu árum. Hafrann- sóknastofnunin ítrekaði í fyrra ráð- gjöf fyrri ára um að bein sókn í lúðu verði bönnuð sem fyrsta skref í verndun stofnsins. Á þann hátt megi ætla að takast megi að vernda nokkuð hrygningarstofninn og þannig tryggja svipaða nýliðun og nú er. Eftir útkomu þessarar skýrslu í júní í fyrra sendu útgerðarmenn átta báta sem verið hafa á lúðuveiðum bréf til sjávarútvegsráðuneytisins. Sumar þessara útgerða eru ekki með kvóta og hafa því sótt í lúðuna, sem er ekki í aflamarki. Aðrar nota lúðuveiðarnar til að drýgja kvótann, m.a. vegna þess hve lítið er að hafa á leigumarkaði. Bátar sem stunda beinar línuveiðar eru af ýmsum stærðum, frá 10 upp í um 200 lestir að stærð. Fáir fiskar fást á haukalóð Í bréfinu er harðlega mótmælt öll- um áformum um að banna beinar veiðar á lúðu og segir þar að styrking Betra að sleppa smálúðu en banna beinar veiðar  Stóra kynþroska lúðan hefur einkum fengist á haukalóð  Ungfiskurinn kemur frekar sem meðafli í önnur veiðarfæri 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2011 Togarinn Eldborg RE 13 kom til Hafnarfjarðar um miðj- an dag í gær í kjölfar þess að hann rakst á ísjaka við strendur Grænlands þar sem hann hafði verið að veiðum. Gat kom á olíutank togarans, sem gerður er út frá Eist- landi,og tóku hafnarstarfsmenn, slökkviliðsmenn og kaf- arar á móti honum við komuna til landsins. Viðbrags- kerfi Umhverfisstofnunar vegna bráðamengunar var ræst þegar tilkynning barst frá Landhelgisgæslunni um olíulekann. Að sögn Kristins Aadnegard, forstöðumanns þjón- ustusviðs Hafnarfjarðarhafnar, var engin hætta á ferð- um. Einhver olía hefði lekið úr olíutanki togarans en hún hefði að mestu haldist í honum vegna þrýstings. Kristinn segir að um sjö tonnum af olíu hafi verið dælt úr tanknum við komu togarans til Hafnarfjarðar. Þá hafi rifan sem kom á tankinn ekki verið stór og hafi verið þétt með tréfleygum. Togarinn fari síðan í slipp í Reykjavík í dag og aftur á veiðar að viðgerð lokinni. Rakst á ísjaka við Grænland Morgunblaðið/Kristinn Olíuleki Gat kom á olíutank togarans Eldborgar RE þegar hann rakst á ísjaka við strendur Grænlands í gær. Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is „Þetta er svolítið eins og lífrænn gjörningur. Núna eru að spretta upp þessi karókí úti á landi þannig að við ætlum allavega að láta þetta rúlla fram yfir þá atburði og síðan er ætl- unin að afhenda Jóhönnu þetta. En nákvæm tímasetning og gjörningur á því er ekki alveg ákveðinn,“ segir Oddný Eir Ævarsdóttir, einn af tals- mönnum undirskriftasöfnunar á vef- síðunni Orkuaudlindir.is. Óvíst sé nákvæmlega hvenær söfnuninni verði hætt. Með undirskriftasöfnuninni er skorað á stjórnvöld að koma í veg fyrir söluna á orkufyrirtækinu HS Orku til sænska fyrirtækisins Magma Energy og jafnframt skorað á Alþingi að láta fara fram þjóð- aratkvæðagreiðslu um eignarhald á orkuauðlindum Íslands og nýtingu þeirra. Um klukkan níu í gærkvöldi höfðu safnast rúmlega 45 þúsund undirskriftir á síðunni. Sama söfnunin Borið hefur á gagnrýni á undir- skriftasöfnunina þess efnis að nöfn fólks og kennitölur hafi verið skráð á vefsíðuna að því forspurðu. Nokkrir tugir einstaklinga hafa haft sam- band við forsvarsmenn söfnunar- innar og kvartað undan slíku. Fólk hefur ætlað að skrá sig en þá fengið þau skilaboð að það hefði þegar gert það. Þá hefur það verið gagnrýnt að eina leiðin til þess að kanna hvort fólk hafi verið skráð í söfnunina væri að skrá það. Að- spurð segir Oddný að skýr- ingin á þessu kunni a.m.k. í ein- hverjum tilfellum að vera sú að um sömu undir- skriftasöfnun sé að ræða og hófst síðasta sumar gegn sölunni á HS Orku. Einhverjir sem skráðu sig þá hafi hugsanlega ekki gert sér grein fyrir því að um sömu söfnun- ina væri að ræða þegar þeir ætluðu að skrá sig núna. Reynt að tryggja „Við munum náttúrlega í fyrsta lagi tryggja það að þarna séu ekki nöfn og kennitölur sem eru ekki til með því að keyra listann saman við Þjóðskrá,“ segir Sigurður Bragason sem heldur utan um vefsíðu undir- skriftasöfnunarinnar. Hann segir að það sé á hinn bóginn í raun ekki hægt að koma algerlega í veg fyrir það ef einhverjir aðilar reyni að skrá fólk að því forspurðu nema þá með því að tengja söfnunina við rafræn skilríki eða annað slíkt. Sigurður segir að hins vegar sé reynt að koma í veg fyrir að slíkt sé gert með öllum tiltækum ráðum og meðal annars með því að kanna hvort margar skráningar komi frá sömu tölvu. Þá hafi verið athugaðar flestar þær skráningar sem gerðar hafi verið athugasemdir við og það verk klárað á næstu dögum. Um 45 þúsund undirskriftir  Gagnrýni á að fólk sé skráð án vitundar Oddný Eir Ævarsdóttir Gunnlaugur Árnason Stykkishólmi Gestur Hólm Kristinsson, trillu- karl í Stykkishólmi, hefur stundað lúðuveiðar í Breiðafirði meira og minna á hverju hausti frá því hann var unglingur. Hann var 11 ára þegar hann dró sína fyrstu lúðu á haukalóð með Ágústi Péturssyni skipstjóra og síðar hafnarverði. Gestur segir að lúðuveiði hafi verið mjög misjöfn í gegnum tíðina. Sum árin hafi verið góð lúðuveiði, en önnur ár hafi minna veiðst. Hann seg- ir að á hefðbundnum haukalóða- slóðum hafi verið áberandi minna um lúðu síðustu 20 árin. Gestur segir að það sé álit sjómanna hér um slóðir að þegar rækjuveiðar voru mest stund- aðar í Breiðafirði árið 1985 þá hafi rækjubátar mokað upp stórlúðu í Breiðafirði. Þegar fiskmarkaðir tóku til starfa í kringum 1990 kom í ljós að dragnótabátar lönduðu miklu magni af smálúðu kringum kíló að þyngd. Þessir tveir þættir telur Gestur að eigi stærstan þátt í hvernig ástand lúðustofnsins er í dag. Gestur er ósáttur við að Hafrannsóknastofnun geri tillögu um að banna íslenskum bátum sérveiðar á lúðu. Stofnunin virðist ekki hafa gögn í höndunum sem rökstyðji tillöguna. Gestur segist hafa heyrt að ein- ungis 3% af lúðueinstaklingum sem veiddir eru komi frá sérveiðum og það er ekki stór hluti. Mestur lúðu- afli, um 97 %, komi sem meðafli í önn- ur veiðarfæri. Hafrannsóknastofnun hefur aldrei gert athugasemdir við lúðuafla sem meðafla hjá t.d. drag- nóta- og rækjubátum. Tölur séu til um lúðuafla í hvert veiðarfæri fyrir sig, en ekki eftir gerð skipanna og stærð þeirra, og ekki séu til tölur um kynjaskiptingu eða stærðarflokkun. Hann telur að Hafrannsóknastofnun hafi litlar sem engar rannsóknir stundað varðandi lúðuna. Gestur seg- ir að það helsta sem Hafrann- sóknastofnun hafi í höndunum sé ár- legt togararall. Það gefi enga mynd af lúðuveiðum sem sérveiðum. Gestur er á móti því að lúðuveið- ar með haukalóð verði bannaðar eins og nú er til umræðu. Áður en til þess komi þurfi að liggja fyrir rökstuddar rannsóknir sem leiði það í ljós að haukalóðin sé stóra vandmálið í minnkandi lúðustofni. Hann telur að önnur veiðarfæri vegi miklu þyngra og þangað eigi að beina athyglinni til verndar lúðunni. Haukalóðin ekki stóra vandamálið  Hefur stundað lúðuveiðar í Breiða- firði í áratugi Morgunblaðið/Gunnlaugur Aflamaður Haustið 2009 lagði Gestur Hólm 1.000 króka á lúðuslóð á Breiðafirðinum. Í einum róðri var aflinn sjö stórar lúður sem samtals reyndust um hálft tonn að þyngd. Algengasta heitið á flyðrulóð var haukalóð, en einnig var hún kölluð haukalína, snæri, sprökusnæri, hneifasnæri, sprökulóð, hneifalóð, dráttarlóð og lúðulóð, segir í riti Lúðvíks Kristjánssonar, Íslenskir sjávarhættir. Þar kemur einnig fram að haukalóð mun ekki hafa verið byrjað að nota fyrr en seint á 18. öld og þá ef til vill fyrst á Aust- fjörðum og í Strandasýslu. Við lúðuveiðar er línan almennt látin liggja lengur en sólarhring og jafn- vel upp í fjóra sólarhringa. Orðið haukur hefur ýmiskonar merkingu í íslensku máli og meðal annars er haukur stór öngull, t.d. á flyðrulóðum, samkvæmt íslenskri orðabók. Lúðukrókur er bæði þyngri og nokkru stærri en krókar sem notaðir eru til bolfiskveiða, samkvæmt upplýsingum frá Haf- rannsóknastofnun. Einnig er lagið á hauknum öðruvísi og lagað að því að halda lúðunni sem best, en kjafturinn á lúðu snýr á annan hátt en á bolfiskum. Því endar oddurinn á króknum með því að vísa inn að leggnum á króknum en ekki að auga eins og oftast er á venjuleg- um krókum. Almennt er notaður girnis- taumur og lengri taumar en við venjulegar veiðar. Á þessu er þó heilmikill breytileiki þar sem al- gengast er að sjómaður setji upp sína línu sjálfur. Beita er að öllu jöfnu skorin stærri og er af annarri gerð en notuð er við hefðbundna veiði þar sem oft er beitt síld eða makríl. Á lúðuveiðum er oft beitt karfa, ufsa eða öðru sem til fellur. Í riti Lúðvíks segir að egnt hafi verið fyrir lúðu með margs konar beitu, „en algengasta lúðuagnið var ljósabeita, einkum kalýsa og þaraþyrsklingur og ennfremur koli, ufsi og lok.“ Þyngri og stærri krókar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.